Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
TENNIS / WIMBLEDON
Knattspyrna
Laugardagur:
4. deild:
Reuter
Mætast í úrslitum
UM HELGINA
PETE Sampras, til vinstri, og Jim Courier leika til úrslita í einliðaleik karla á Wimbledonmótinu á morgun.
Bandarískur úrslitaleikur
BANDARÍKJAMENNIRNIR Pete
Sampras og Jim Courier mæt-
ast í úrslitum í einliðaleik karla
á Wimbledonmótinu ítennis,
eftir að hafa sigrað andstæð-
inga sína í undanúrslitunum í
gær giska auðveldlega. Samp-
ras sigraði Þjóðverjann Boris
Becker 3:0,7-6,6-4 og 6-4, og
Courier vann Svíann Stefan
Edberg 3:1, Edberg tók fyrstu
hrinuna 4-6, en Courier þrjár
næstu 6-4,6-2 og 6-4.
Pete Sampras gerði þar með
draum Beckers um fjórða
Wimbledontitilinn að engu, í bili að
minnsta kosti. „Ég held ég hafi leik-
ið eins vel og ég get auk þess sem
Becker var aðeins utan við sig,“
sagði Sampras eftir leikinn. Becker
tók dýpra í árinni. „Hann lék frá-
bærlega. Ef hann leikur svona í
úrslitunum þá vinnur hann,“ sagði
Þjóðveijinn. „Einbeitingin var í full-
komnu lagi hjá honum og hann átti
svo sannarlega skilið að vinna,“
bætti Becker svo við. Axlarmeiðsli
sem hijáð hafa Sampras gerðu ekki
vart við sig í leiknum, því miður
sagði Becker.
Jim Courier hefur aldrei náð svona
langt á Wimbledon, hefur hingað til
verið álitinn sérfræðingur á leir eftir
góða frammistöðu á leirvöllum en
slaka útkomu á grasi. Úrslitin gegn
Edberg hljóta að teljast nokkuð
óvænt, því Edberg er grassérfræð-
ingur, og stundum nefndur til sög-
unnar sem besti grasspilari í heimin-
um. „Ég er helst hissa á þessu öllu
saman,“ sagði Courier eftir leikinn
og hló. „Ég hélt að ég yrði að leika
golf á morgun,“ bætti hann svo við
og viðurkenndi að hið þurra veður
sem verið hefur hafi hjálpað honum
mikið. „Boltinn skoppar meira núna,
sem hentar mér vel, en ég er örugg-
ur á því að hann [Edberg] getur leik-
ið betur en hann gerði í dag.“
Kvennameistarínn krýndur
Steffi Graf og Jana Novotna leika
til úrslita í einliðaleik kvenna í dag,
og ef allt fer samkvæmt bókinni
ætti Graf að krækja þar í sinni
fimmta Wimbledontitil. Enginn
skyldi þó afskrifa Novotnu, sem
sigraði Gabrielu Sabatini í átta
manna úrslitum og Martinu Navrat-
ilovu í undanúrslitum, og gæti hæg-
lega unnið Graf, ef sá gállinn er á
henni.
FRJALSIÞROTTIR
Meistaramót íslandsferfram á Laugardalsvelli um helgina:
Flestir þeir bestu með,
nema í spjótkastinu
MEISTARAMÓT íslands í
frjálsum íþróttum verður hald-
ið á Laugardalsvelli nú um
helgina. Flest af okkar besta
frjálsíþróttafólki mun keppa á
mótinu og er þátttaka mjög
góð, um 170 keppendur eru
skráðir.
Keppnin í dag hefst með stangar-
stökki klukkan 13.30, en frá
klukkan 15 til 17.30 verður keppt
í 200, 800 og 400 metra grinda-
hlaupi karla og kvenna, 5000 metra
hlaupi karla, 4x100 metra boð-
hlaupi karla og kvenna, langstökki
karla, kúluvarpi karla og kvenna,
spjótkasti karla og kvenna, há-
stökki kvenna, þrístökki kvenna og
loks 3000 metra hlaupi kvenna.
Á morgun, sunnudag, hefst
keppni klukkan 14 og lýkur klukkan
17.15. Þá reyna menn með sér í
100, 400 og 1500 metra hlaupi
karla og kvenna, 110 metra grinda-
hlaupi karla og 100 metra grinda-
hlaupi kvenna, hástökki karla, þrí-
stökki karla, kringlukasti karla og
kvenna, sleggjukasti og langstökki
kvenna.
Mótinu lýkur síðan á mánudags-
kvöldið. Þá verður keppt í 3000
metra hindrunarhlaupi karla, 4x400
metra boðhlaupi karla og kvenna
og fimmtarþraut karla. Keppni
hefst klukkan 18.30 á mánudaginn.
Guðrún og Einar gætu sett met
Meðal keppenda á mótinu verða
Pétur Guðmundsson kúluvarpari og
Vésteinn Hafsteinsson kringlukast-
ari. Unnar Garðarsson keppir í
spjótkasti en hann náði besta kasti
sínu til þessa á Reykjavíkurleikun-
um 17. júní sl., er hann kastaði
yfir 72 metra. Þórdís Gísladóttir
keppir í hástökki en hún hefur keppt
nær óslitið á meistaramótinu síðan
1975, þegar hún varð íslandsmeist-
ari fyrst. Einar Einarsson hljóp
undir gildandi Íslandsmeti í 100
metra hlaupi á Reykjavíkurleikun-
um, en þá var vindur of mikill.
Hann er í fjarska góðu formi með
góðum stuðningi áhorfenda gæti
hann sett nýtt met á sunnudaginn.
Fleiri keppendur mætti nefna; Fríða
Rún Þórðardóttir og Martha Ernsts-
dóttir mætast í 3000 metra hlaupi
kvenna og í 100 metra hlaupi
kvenna mætast þijár úr sveitinni
sem setti nýverið íslandsmet í
4x100 metra boðhlaupi. Gaman
verður og að fýlgjast með Guðrúnu
Arnardóttur í 100 metra grinda-
hlaupinu, en hún er nálægt A-lág-
markinu fyrir heimsmeistaramótið
í Stuttgart.
ÞROTTUR-R og KA
Sunnudaginn 4. júlíkl. Íu.OO.
Láttu sjá þig!
- 1 ......................... >
Rosenthal
Opna Rosenthal kvennamótið
verður haldið á Nesvelli sunnudaginn 4. júlí nk.
Keppt verður í 1. til 3. flokki.
Forgjöf 13-36. Ræst er út frá kl. 09.00.
Rosenthal verslunin, Laugavegi 52, sími 624244,
gefuröll verðlaun.
Skráning er í síma 611930.
Nesklúbbur
Stykkishólmsv: Snæfell - Hamar....kl. 14
Hellis.: Víkingur_- Afturelding...kl. 14
Ármannsvöllur: Ármann - Emir......kl. 14
Laugav: - Aðaldal: HSÞb - Neisti...kl. 14
Sunnudagur:
2. deild karla:
Þróttarvöllur: Þróttur R. - KA....kl. 20
Grindavíkurv: Grindavík - Leiftur.kl. 20
Kópavogsvöllur: UBK - Þróttur N....kl. 20
Stjörnuvöllur: Stjarnan - fR.......kl. 20
ísafjarðarvöllur: BÍ - Tindastóll.kl. 20
Mánudagur:
4. deild:
Gervigrasvöllur: Árvakur - Fjölnir.kl. 20
Kvennamót á Egilsstöðum
Um helgina verður tíu liða kvennamót f
knattspyrnu á Egilsstöðum, og hefst það í
dag klukkan 10. Sjö manna lið ieika í tveim-
ur riðlum, og á sunnudeginum verður leikið
um sæti. Verðlaunaafhending verður klukk-
an 16 á sunnudaginn, á útimarkaðnum á
Egilsstöðum. Tvö lið frá ÍBA og Leiftri
taka þátt á mótinu, en auk þeirra senda
ÍBV, Þróttur Neskaupstað, Valur' Reyðar-
firði, Höttur, KBS og Neisti lið á mótið.
Frjálsar
Meistaramót fslands í fqálsum íþróttum
verður haldið um helgina á Laugardalsvelli.
í dag hefst keppni klukkan 15, á sunnudag-
inn klukkan 14, og á mánudaginn klukkan
18.30. Flestir af bestu fijálsíþróttamönnum
okkar munu keppa á mótinu, skráning á
mótið er mjög góð í flestum greinum en
keppendur eru alls um 170 talsins.
Egilsstaðamaraþon
Á sunnudaginn verður Egilsstaðamara-
þonið haldið í sjötta sinn. Boðið er upp á
þijár vegalengdir, 4 km skemmtiskokk, 10
km hlaup, hálft og heilt maraþon. Ræst
verður í hlaupið klukkan 12 á sunnudaginn
frá Söluskála KHB, og þar koma keppendur
einnig í mark. Skráning í hlaupið stendur
nú yfir auk þess sem hægt verður að skrá
sig á staðnum milli klukkan 11 og 12 fyrir
hlaupið.
GOLF
Opin mót um helgina
Opna Hauks og Hermannsmótið verður
haldið á Strandavelli í dag. Mótið er fyrir
karla 65 ára og eldri.
í dag fer einnig fram opið kvennamót,
Gyðubikarinn, fyrir konur 55 ára og eldri.
Ræst verður út kl. 10 í bæði mótin, en leikn-
ar verða 18 holur með forgjöf. Skráning í
golfskála.
■Opna GR-mótið fer fram um helgina.
■Opið mót verður hjá GJÓ á Ólafsvík í
dag, leiknar verða 18 holur með og án for-
gjafar. Ræst verður út kl. 10.
■Opið afmælismót, Goslok, verður í Vest-
mannaeyjum f dag. Leiknar verða 18 holur
með og án forgjafar.
■Golfklúbbur Selfoss verður með opið mót
í dag. 18 holur með og án forgjafar.
■Opna Húsavíkurmótið, 36 holur með og
án forgjafar, verður um helgina.
■Golflúbbur Suðurnesja er með opið mót,
36 holur með og án forgjafar, um helgina.
■Opna austurlandsmótið verður hjá Golf-
klúbbi Norðfjarðar um helgina. Leiknar
verða 36 holur með og án forgjafar.
KARFA
Firmakeppni KR
Firmakeppni KR í körfubolta verður hald-
in dagana 5. til 14. júlf f fþróttahúsi KR.
Leikið verður f 2x12 mínútur og verður
leiktfmi stöðvaður síðustu tvær mfnútur í
seinni hálfleik. Að öðru leyti verður farið
eftir reglum KKÍ. Keppt verður f riðlum
með fjórum liðum í, og það lið sem vinnur
sinn riðil kemst áfram í úrslitakeppni. Þátt-
tökutilkynningar eru f síma 18177 og 15946
eftir klukkan 19. Þátttökugjald er 10.000
krónur.