Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
43
FOLX
■ ÍSLAND sigraði Sviss með
þremur vinningum gegn tveimur í
Evrópukeppni áhugamanna í golfí
í gær, og leikur til úrslita í C-riðli
Segn Grikkjum í dag.
I / DAG fer fram knattspyrnu-
leikur í Vestmannaeyjum, milli liðs
ÍBV og úrvalsliðs KSÍ, í tilefni af
vígslu Hásteinsvallar eftir gagn-
gerar breytingar og þess að 20 ár
eru liðin frá Vestmannaeyjagosi.
Leikurinn hefst kl. 13. Asgeir El-
íasson, landsliðsþjálfari, hefur val-
ið 22 manna hóp; þá leikmenn sem
leika með íslenskum félagsliðum
og verið hafa í landsliðshópnum
undanfarið að nokkrum viðbættum.
■ ENSKA fyrstu deildar liðið
West Bromvich Albion hefur
ákveðið að stefna Ossie Ardiles,
fyrrum framkvæmdastjóra félags-
ins og núverandi framkvæmda-
stjóra Tottenham, til greiðslu
skaðabóta vegna þess tjóns sem
félagið varð fyrir er Ardiles rifti
samningi sínum við félagið og gekk
til liðs við Tottenham.
■ WBA er líka að íhuga að stefna
Alan Sugar stjórnarformanni
Tottenham og einnig félaginu
sjálfu, og hefur farið fram á það
við enska knattspyrnusambandið
að það beiti sér gegn Tottenham
í málinu.
■ ÞETTA er í annað sinn á fímm
árum sem framkvæmdastjóri hefur
yfírgefíð félagið. Ron Atkinson
hætti hjá Albion árið 1988 og gekk
til liðs við spænska félagið Atletico
Madrid. Það mál er enn óútkljáð
fyrir dómstólum.
B TOUR de France hjólreiða-
keppnin hefst í dag og eru margir
á því að Spánveijinn Miguel Ind-
urain nái þar að krækja í þriðja
sigur sinn í keppninni í röð. Keppn-
in stendur í 23 daga, líkur 25. júlí
nk. en þá haf hjólreiðamennirnir
lagt að baki 3500 kílómetra.
B GIANNI Bugno og Claudio
Chiappucci gætu veitt Indurain
einhverja keppni, en talið er að
yfírburðir hins. síðastnefnda séu
það miklir að keppnin nál aldrei
að verða/spennandi.
B TVÉIR svissneskir hjótreiða-
menn hafa einnig verið nefndir til
sögunnar sem helstu keppinautar
Indurains, þeir Alez Zuelle og
Tony Rominger. Zuelle sigraði í
París-Nice keppninni í ár og varð
annar í Spánarkeppninni og er til
alls líklegur, þó svo að fáir búist
við því að hann sigri vélmennið
Indurain, eins og Spánverjinn er
stundum uppnefndur.
B DIEGO Maradona var rekinn
frá spænska félaginu Sevilla á
þriðjudag, einum degi áður en
samningur hans við félagið rann
út. Ástæðurnar eru sagðar ýmsar,
meðal annars óíþróttamannsleg
hegðun, léleg æfíngasókn og slök
frammistaða auk þess sem hann
sýndi bæði leikmönnum og félaginu
virðingarleysi.
B PAULO Sousa og Antonio
Pacheco hafa gengið til liðs við
portúgalska liðið Sporting, eftir
því sem forsvarsmenn félagsins
segja. Þeir léku báðir með erkifj-
endunum í Benfica, en talið er að
fjárhagsvandræði félagsins hafí
hrakið þá í burtu.
B ORLANDO Magic og Golden
State Warriors skiptu á nýliðum
eftir hið árlega nýliðaval í NBA-
deildinni í vikunni. Orlando var
fyrst í röðinni og valdi framheijann
Chris Webber en skipti síðan á
honum og bakverðinum Anfernee
Hardaway við Golden State, sem
var númer þijú.
B SHAWN Bradley var valinn
af Philadelphia 76ers sem var
númer tvö í röðinni, á eftir Or-
lando. Dallas Mavericks var með
fjórða valrétt og valdi Jamal Mas-
hburn, og Minnesota Timberwol
ves, sem var númer fímm í röð-
inni, valdi J.R. Rider.
HANDKNATTLEIKUR
Gunnar Beinteins-
son til Söde í Svíþjóð
GUNNAR Beinteinsson, iands-
liðsmaður í FH, hefur gert
tveggja ára samning við
sænska úrvalsdeildarliðið
Söde í Stokkhólmi. Hann fer til
Svíþjóðar um næstu mánaðar-
mót, en jafnframt þvi að leika
með liðinu verður hann ifram-
haldsnámi í viðskiptaf ræði.
Gunnar sagði við Morgunblaðið
að málið hefði komið upp eft-
ir HM í Svíþjóð á liðnum vetri og
verið í deiglunni síðan, en hann
hefði ekki tekið ákvörðun fyrr en
nú. „Það, sem gerði útslagið, var
KNATTSPYRNA
að ég komst inní mjög góðan skóla
og sló því tvær flugur í einu höggi.
Það er vissulega • sárt að fara frá
strákunum í FH og ég óska þeim
alls hins besta, en vegna námsins
er þetta tækifæri, sem ég get ekki
sleppt.“
Gunnar fór til Stokkhólms fýrir
tveimur vikum og leist vel á aðstæð-
ur. Liðið sigraði á sænska hand-
knattleiksmótinu utanhúss þriðja
árið í röð á dögunum og hefur yfír-
leitt verið í sjötta til níunda sæti í
deildinni. Gunnar sagði að örfhent
skytta frá Rússlandi hefði líka gert
samning við félagið, en Eistlending-
ur, sem lék með því á síðasta tíma-
bili, gekk til liðs við Sávehof.
Framhaldsnámið tekur tvö ár og
því gerði Gunnar, sem er 26 ára,
tveggja ára samning. Hann hefur
alla tíð leikið með FH og hefur
ekki misst úr leik, síðan hann byij-
aði að leika með meistaraflokki
1985. „Þetta er mikil blóðtaka fyrir
okkur, því Gunnar hefur verið einn
af burðarásum liðsins og góður fé-
lagi,“ sagði Kristján Arason, þjálf-
ari FH. Gunnar sagði að maður
kæmi í manns stað, en Kristján
sagðist ekki vera farinn að huga
að eftirmanni.
Izudin Daði Dervic
Izudin Daði frá
í tvo mánuði?
Izudin Daði Dervic, landsliðsmað-
ur í KR, meiddist í deildarleikn-
um gegn Val s.l. miðvikudags-
kvöld. Sin í þumalfingri slitnaði
og hefur hann ekkert getað æft,
er í gifsi.
Daði sagði við Morgunblaðið að
talið væri að hann yrði að vera í
gifsi í tvo mánuði, en þar sem
ekki væri vist hvort hann gæti
spilað með það væri verið að at-
huga hvort hægt væri að smíða
ámóta vöm úr plasti, sem gerði
sama gagn.
„Það er fyrst núna, sem verkirn-
ir eru ekki að drepa mig,“ sagði
Daði í gærkvöldi, en hann vissi
ekki hvert framhaldið yrði. „Það
skýrist á mánudag, hvort hægt sé
að veija fingurinn með plasti, en
ég vona það besta.“
Goycochea til bjargar
Markvörður argentínska landsliðsins í knattspymu, Sergio Goycoc-
hea, var hetja liðsins í undanúrslitaleiknum gegn Kólumbíu í
keppninni um Ameríkubikarinn í knattspymu, þegar hann varði víti í
vítaspymukeppni og tryggði Argentínu þar með sæti í úrslitaleiknum
á morgun gegn Mexíkó. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 0:0, og
þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni. Bæði lið skomðu úr fyrstu
fímm spymunum, en í sjöttu spymu Kólumbíumanna tókst Goycochea
að veija spymu Vietors Aristizabals. Vamarmaður Argentínumanna
Jorge Borelli tók sjöttu spymu þeirra og skoraði.
FRJALSIÞROTTIR
Sigurður reynir við
lágmarkið í Svíþjóð
Sigurður Einarsson, spjótkastari
og íþróttamaður ársins 1992,
verður ekki með á meistaramóti
íslands í frjálsíþróttum, sem fer
fram á Laugardalsvelli um helgina,
en þess í stað ætlar hann að reyna
við lágmarkið fyrir HM í Stuttgart
á stigamóti í Stokkhólmi á mánu-
dag.
Sigurður sagði við Morgunblaðið
í gær að vegna meiðsla hefði hann
nánast ekkert getað æft síðan á
Reykjavíkurleikunum 17. júní. „Ég
æfði ekkert í 11 daga, en hef náð
tveimur kastæfingum í þessari
viku." Hann sagðist ætla að reyna
að ná lágmarkinu í Stokkhólmi á
mánudag eða í Sviss á miðvikudag,
en því miður hefði ekki gengið upp
að koma fyrst til íslands. Það hefði
kostað of mikið og vegna meiðsl-
anna, bólgu í olnboga, væm meiri
möguleikar á að ná lágmarkinu í
betra veðri.
Hann sagði að framhaldið réðist
af árangrinum í næstu viku. Ljóst
væri að hann yrði við æfíngar í
Bandaríkjunum til 20. júlí, en síðan
hefði hann hug á að taka þátt í
þremur mótum; í Nice í Frakklandi
21. júlí, í London 23. júlí og Kaup
mannahafnarleikunum 25. júlí. „Eg
ákveð þátttöku þegar þar að kem-
ur, en æfíngar og keppni miðast
alfarið við HM í Stuttgart."
Einar Vilhjálmsson verður heldur
ekki á meðal keppenda í spjótkasti.
Hann hefur einnig verið meiddur
og er erlendis.
STIGAMOT
Cason vann
Andre Cason frá Bandaríkjunum sigraði í 100
metra hlaupi á stigamóti í fijálsum i Lille í
Frakklandi í gær. Hann hljóp á 10.03 sek., öðrum
besta tíma ársins, og sigraði bæði landa sína Carl
Lewis og Dennis Mitchell, sem og Frankie Fredericks
frá Namibíu, sem sigraði í 200 metra hlaupi á 20.28
sek. Jan Zelezny sigraði í spjótkasti á mótinu, kast-
aði 91,40 metra.
KORFUKNATTLEIKUR
OvæntíEM
þ%jóðveijar tryggðu sér sæti í úrslitum Evrópu-
keppni landsliða í körfuknattleik þegar þeir sigr-
uðu Grikki í undanúrslitum í gærkvöldi, með 76 stig-
um gegn 73. Þeir mæta Rússum í úrslitunum sem
sigruðu Króata í gær. Árangur Þjóðverja kom mjög
á óvart, besti árangur þeirra til þessa var fimmta sæti
á EM. Sigur þeirra var sanngjam, en ólæti grískra
áhorfenda skyggðu á sigurgleði þeirra.
Gunnar Beinteinsson
URSLIT
Körfuknattleikur
Evrópukeppni landsliða, átta liða úrslit:
Munchen
Grikkland - Frakkland..........61:59
Rússland - Eistland............82:61
Þýskaland - Spánn..............79:77
Króatía - Bósnía-Herzeg..........98:78^
Leikir um sæti 5 til 8:
Eistland - Bosn.-Herzg.........99:91
Spánn - Frakkland..............95:83
Undanúrslit:
Rússland - Króatía.............84:76
Sergei Bazarevitch 25, Sergei Babkov 22,
Mikhail Mikhailhov 14, Sergei Panov 11 -
Danko Cvjeticanin 15, Velimir Perasovic
14, Arijan Komazec 14, Dino Radja 10.
Þýskaland - Grikkland..........76:73
Christian Welp 15, Michael Jackel 12, Henn-
ing Hamisch 11 - Fanis Christodolou 23,
Costas Patavoukas 13, Athanasios Galakte-
ros 1- Panagiotis Giannakis 12
Fimm efstu liðin í Evrópukeppninni fá
sæti á heimsmeistaramótinu sem haldið .
verður í Toronto í Kanada á næsta ári.
Knattspyrna
3. deild:
HK-Selfoss........................1:2
Einar Tómasson - Gylfi Siguijónsson, Sig-
urður Fannar Guðmundsson
Magni - Haukar................. 0:2:
Brynjar Jóhannesson, Haraldur Haralds-
son.
ReynirS.-Víðir....................1:1
- Grétar Einarsson
Grótta - Dalvík...................4:0
Kristján Brooks 3, Gisli Jóhannsson -
Skallagrímur - Völsungur.........3:4:
Finnur Thorlacius 2, Valdimar K. Sigurðs-
son - Ingvar Dagbjartsson, Axel Vatnsdal,
Róbert Skarphéðinsson, Guðni Helgason.
J Fj. ieik ja U J T Mörk Stig I
I HK 7 5 0 2 21: 7 15
1 SELFOSS 7 5 0 2 12: 7 15
VÖLSUNGUR 7 4 2 1 15: 10 14
HAUKAR 7 4 1 2 12: 9 13
VÍÐIR 7 3 3 1 10: 5 12
DALVÍK 7 3 1 3 9: 11 10
GRÓTTA 7 2 1 4 13: 13 7
REYNIRS. 7 2 1 4 15: 20 7
SKALLAGR. 7 1 1 5 12: 23 4
| MAGNI 7 0 2 5 3: 17 2
4. deild A:
HB - Léttír......................6:3:
Ámi Sæmundsson 3, Baldur Eiðsson, Garð-
ar Jónsson, Bjami Magnússon - Grétar
Grétarsson 3.
4. deiid B:
Njarðvík - Hafnir.................1:0___
Freyr Sverrisson -
Leiknir R. - Hvatberar...........15:0
Ragnar Baldursson 4, Guðmundur Péturs-
son 2, Pétur Guðmundsson 2, Ásmundur
Vilhelmsson 2, Guðjón Jóhannesson 2, Bald-
ur Öm Baldursson 2, Glsli Þorsteinsson 1. -
4. deiid C:
Hvöt-KS...........................3:0
Pétur Arason 3 -
4. deild D:
KBS-ValurRf........................7:1
Jón Hauksson 3, Gunnar Larsson 2, ívar
Ingimarsson, Andre Raes - Sigurjón Rún-
arsson
Einheiji - Austri E................5:1
Hallgrímur Guðmundsson 3, Kristján Dav-
íðsson, Örvar Karlsson - Steinar Aðalbjöia^M
son
Huginn - Höttur...................1:4
Baldur Kristjánsson - Hörður Guðmundsson
2, Haraldur Klausen, Grétar Eggertsson
NM U-16 ára stúlknalandsliða:
ísland - Holland.................0:2
■íslenska liðið var betri aðilinn f leiknum
að sögn Vöndu Sigurgeirsdóttur þjálfara,
var meira með boltann en gekk illa að skapa
sér færi. Hollendingar skoruðu strax á
þriðju mínútu, og síðara markið kom á
mínútu, og fékk vart önnur umtalsverð
færi í leiknum. íslenska iiðið leikur síðasta
leikinn í keppninni í dag, gegn Finnum.