Morgunblaðið - 03.07.1993, Blaðsíða 44
m lé*ttunfrIftfeU> SKÚLASON HF
MéS?
S?m169IlOO^slS'BRÉFÍ69U81, 'pÓSTnÚLF^EÍsí^/ AKIJREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Utanríkisráðuneyti
Varað við
- áhrifum
hvalveiða
í GREINARGERÐ sem tekin
hefur verið saman í utanrík-
isráðuneytinu um hugsanleg
áhrif hvalveiða hér við land
á íslenska viðskiptahags-
muni segir að ekki fari milli
mála að neikvæð áhrif geti
orðið umtalsverð á til-
teknum markaðssvæðum.
Óráðlegt sé að taka þá
áhættu sem í hvalveiðum
felist á núverandi erfiðleika-
tímum í íslensku efnahags-
lífi án þess að mat fari fram
á þeim efnahagslegu og póli-
tísku hagsmunum sem í húfi
séu.
I greinargerðinni kemur fram að
hugsanlegt sé að bandarísk stjóm-
völd myndu beita refsiaðgerðum
sem beint yrði að vöruflokkum sem
skipti íslendinga mestu, afleiðingar
ávalveiða gætu orðið alvarlegar í
Þýskalandi og að hrefnuveiðar ís-
lendinga myndu veikja markaðs-
stöðu fyrirtækja sem sjá um út-
flutning til Bretlands og dreifingu
íslenskra afurða þar.
Leggja niður sölu íslandsferða
„Marks & Spencer og Tesco, sem
selja íslenskan fisk á neytenda-
markaði, hafa varað íslensk fisk-
sölufyrirtæki við því að hefji íslend-
ingar hrefnuveiðar verði innkaup
þeirra endurskoðuð. Mikil umhverf-
isvemdarvakning hefur átt sér stað
í Bretlandi á undanfömum ámm
eins og heyra má á málflutningi
jafnvel íhaldssömustu þingmanna
__líindsins. Af upplýsingum frá fuli-
trúum Flugleiða í Lundúnum má
einnig ráða að stærsti ferðaheild-
sali þeirra í Bretlandi muni sjá sig
tilneyddan til að leggja niður sölu
á íslandsferðum vegna tengsla fyr-
irtækisins við World Wildlife Fund,
segir í greinargerðinni.
Sjá miðopnu: „Vænta má
harðra viðbragða..."
Tillaga nefndar á vegum dómsmálaráðherra hefur verið lögð fram
* Morgunblaðið/Bjami
í Þjórsárdal
ÞESSI ungmenni voru ásamt fjölmörgum jafnöldrum sínum á leið í Þjórsárdalinn í gærkvöldi frá
BSI, en þangað og á Vindheimamela virtist straumurinn liggja um helgina.
Þung umferð var á vegnm landsins í gærkvöldi
Þúsundir í Þjórsárdal
og á Vindlieimamela
MIKIL bílaumferð var á vegum landsins í gærkvöldi, en
fyrsta helgin í júlí hefur tekið við af hvítasunnuhelginni
sem næst mesta ferðahelgi ársins. Sunnanlands lá straumur-
inn í Þjórsárdal, þar sem 30 íslenskar hljómsveitir halda
tónleika. í gær höfðu um 3.000 miðar selst að sögn Sveins
S. Kjartanssonar, annars framkvæmdastjóra tónleikanna. Á
Fjórðungsmót norðlenskra hestamanna á Vindheimamelum
voru þegar komnir um 2.000 gestir í gær og Valgeir Bjarna-
son, starfsmannastjóri þar, sagði að búist væri við um 5.000
manns.
í Húsadal í Þórsmörk voru í
gærkvöldi um 600 gestir að sögn
Omars Óskarssonar, framkvæmda-
stjóra Austurleiða, og er það minna
en búist var við. Hann sagði að þar
mætti búast við þó nokkurri jeppa-
umferð. Gunnar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri BSÍ, sagði að greini-
legt væri að mesti straumurinn frá
Reykjavík væri í Þjórsárdal.
Jón Otti Gíslason hjá umferðar-
deild lögreglunnar í Reykjavík,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að umferð hefði verið meiri en fyrir
venjulega helgi síðdegis í gær. Þó
hefði ekki verið mikið um tafir af
völdum hennar. Selfosslögreglan
sagði að mikil umferð hefði verið
en þó ekki óeðlilega mikil. Allt hefði
gengið vel fyrir sig síðdegis.
Gott veður sunnanlands
Haraldur Ólafsson veðurfræðing-
ur sagði að búast mætti við nokkuð
sólríku veðri sunnanlands og gæti
hitinn farið upp fyrir 15 gráður. Á
Norðurlandi bjóst hann hins vegar
við rigningu viða og að hiti mundi
verða á bilinu 5 til 10 stig. Hann
sagði að búast mætti við súldargus-
um á hestamenn á Vindheimamel-
Almannavarnir verði sam-
einaðar Landhelgisgæzlumii
NEFND, sem Þorsteinn Pálsson dóms-
málaráðherra skipaði í fyrra til að end-
urskoða lög um Landhelgisgæzluna, hef-
ur skilað áliti og leggur meðal annars til
að starfsemi Almannavama ríkisins verði
sameinuð Landhelgisgæzlunni. Nefndin
leggur einnig áherzlu á aukið samstarf
•tiandhelgisgæzlu og veiðieftirlits Fiski-
stofu og gerir tillögur að nýjum reglum
um framkvæmd löggæzluhlutverks Land-
helgisgæzlunnar. Afrakstur starfs nefnd-
arinnar eru drög að frumvarpi til nýrra
laga um Landhelgisgæzluna.
Hlutverk nefndarinnar var að skilgreina verk-
efni og markmið Landhelgisgæzlunnar með tilliti
—T.il breytinga á starfsumhverfi stofnunarinnar. Sér-
staklega átti starf hennar að beinast að hlutverki
Landhelgisgæzlunnar á sviði öryggis- og björgun-
armála, almannavarna, fiskveiðieftirlits á sjó, vita-
þjónustu og mengunarvama, og hver væri hag-
kvæmasta verkaskipting Landhelgisgæzlunnar og
annarra stofnana, sem vinna að þessum málum.
Hagræðing af sameiningunni
Eitt af athugunarefnum nefndarinnar var hvort
ástæða væri til að sameina rekstur Almannavama
starfsemi Landhelgisgæzlunnar. Stofnanirnar hafa
átt margvíslegt samstarf og meðal annars hefur
almennri vaktþjónustu Almannavama verið sinnt
í stjórnstöð Landhelgisgæzlunnar, en stjómstöð
Almannavarna í Lögreglustöðinni við Hverfisgötu
er aðeins notuð í sérstökum tilfellum. „Nefndin
telur ekkert því til fyrirstöðu, að Almannavarnir
ríkisins verði formlega sameinaðar Landhelg-
isgæzlunni, og starfræktar sem ein af aðaldeildum
þeirrar stofnunar, og leggur því til að það skref
verði stigið sem fyrst,“ segir í áliti nefndarinnar.
Þar er jafnframt lagt til að stjómstöðinni við
Hverfisgötu verði áfram haldið í viðbragðsstöðu,
en skrifstofur Almannavarna fluttar frá Lauga-
vegi og í hús Landhelgisgæzlunnar við Seljaveg.
Þá er lagt til að Almannavamaráð starfí áfram,
en staða þess breytist og það verði ráðgefandi
nefnd í stað þess að vera stjómamefnd. Nefndin
væntir þess að bæði Landhelgisgæzlan og Al-
mannavarnir geti notið hagræðingar af sameiningu
og starfsemin verði þar með markvissari.
Viðgerð á Óðni kostar hálft kaupverð nýs
skips
í áliti nefndarinnar kemur fram að nýrri varð-
skipin tvö, systurskipin Ægir og Týr, _séu í góðu
ásigkomulagi og muni endast lengi. Óðinn, sem
smíðaður var 1959, sé hins vegar í lélegra ástandi.
Fyrir dymm standi ýmsar kostnaðarsamar endur-
bætur á Óðni, auk vélaskipta, sem líklega muni
kosta um það bil helming kaupverðs nýs varðskips
af sömu stærð.
V estfjarðagöng
Ekkihægt
að mæla
vatns-
rennslið
í berginu
Ísaílrði.
GISLI H. Guðmundsson
staðarstjóri Vesturís við
Vestfjarðagöng taldi síðdeg-
is í gær að vatnsrennsli hefði
minnkað frá deginum áður.
Hann sagði að mjög erfitt
væri að meta það því að
mælingar hefðu ekki verið
gerðar. Hann taldi líklegt
að rennslið hefði minnkað
um 10-20% frá því mest
var. Vegagerðin mun skoða
þetta mál eftir helgi, en
Hreinn Haraldsson jarð-
fræðingur Vegagerðarinnar
segir að engar aðferðir séu
til, sem hægt er að nota til
að kanna vatnsrennsli í jarð-
lögum með neinni vissu,
nema mjög umfangsmiklar
jarðboranir.
Talið er að mest allt laust fylling-
arefni úr botni ganganna frá vatns-
æðinni í Breiðadalsafleggjaranum
og út úr göngunum hafi runnið
burt. Gísli sagði þó að megin uppi-
staðan í undirlaginu væri það gróft
gijót að það hefði ekkert hreyfst.
Nú er ljóst að ekkert af þessu vatni
rann inn í Botnsdalshlutann, en þar
plagar menn þó um 250 sekúndu-
lítra vatnsrennsli, sem þeir hafa
verið að vinna í undanfarið.
Vinna liggur niðri
Engin vinna er við göngin yfir
helgina vegna helgarfría og sagði
Gísli að menn notuðu tímann til að
spá í spilin. Á mánudag verður svo
hafíst handa aftur þar sem þá verð-
ur talið heppilegast að vinna, en
það hefur vakið athygli hér vestra
hvað vinnuflokkamir eru fljótir að
skipta um vinnulag, ef aðstæður
kalla á slíkt.
Úlfar.
Sjá bls. 16: „Bergið meira og
minna fullt...“
Þyrlupalliir
áFaxagarð
Þyrluþjónustan hf.
hefur fengið leyfi Hafn-
arsljórnar til að setja
upp og starfrækja þyrlu-
pall á bryggjuenda Faxa-
garðs, en að sögn Hann-
esar Valdimarssonar
hafnarstjóra hyggst fyr-
irtækið bjóða upp á þjón-
ustu- og útsýnisflug það-
an.
Hannes sagði að þyrluþjón-
usta á Faxagarði myndi lífga
upp á höfnina og vera æskileg
viðbót við þá þjónustu sem þar
væri þegar veitt. Sagði hann
aðstandendur Þyrluþjón-
ustunnar nú vera að afla sér
allra tilskilinna leyfa sem þyrfti
til starfseminnar.