Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 8
SKOTFIMI
Gudrún Jóna Kristjánsdóttir KR-ingur reynir hér að leika fram hjá Halldóru Gylfadóttur í leiknum á laugardaginn.
Morgunblaðið/Sverrir
ÍÞfémR
glfoyimgiMaftift
Carl J.
fékk gull
fráDan-
mörku
Carl J. Eiríksson, skotmað-
ur, hefur verið sæmdúr
Gullnælu danska skotsam-
bandsins, og fékk hann næluna
senda í síðustu viku. Carl J.
vann til nælunnar er hann varð
sigurvegari á sterku skotmóti í
Danmörku í fyrra — náði 594
stigum í riffilskotfimi, en Dan-
inn Jesper Brodt varð í öðru
sæti með 591 stig. 594 stig
þarf til að tryggja sér næluna.
Það var Poul H. Glesner, fyrrum
formaður danska skotsam-
bandsins, sem nú er starfsmað-
ur sambandsins, sem sendi
Carli J. næluna og í bréfi til
hans óskaði hann Carli J. til
hamingju með árangurinn og
að vera kominn í þann hóp skot-
manna sem bera gullnælu sam-
bandsins.
„Satt best að segja átti ég
ekki von á að fá gullnælu
danska skotsambandsins. Eg
hélt að aðeins Danir gætu unn-
ið til hennar,“ sagði Carl J., sem
var að vonum ánægður með
gullsendinguna frá Danmörku.
KR missti sín fyrstu stig
VESTURBÆINGAR urðu að sjá
á eftir sínum fyrstu stigum í
1. deild kvenna á laugardaginn
þegar Skagastúlkur náðu 2:2
jafntefli í Frostaskjólinu en sig-
ur hefði auðveldlega getað fall-
ið öðru hvoru liðinu í skaut.
Skagastúlkur náðu þó einu
stigi en hafa ekki fundið sig í
sumar.
Stefán
Stefánsson
skrífar
Eins og venjulega byijuðu KR-
ingar mjög vel og höfðu Hel-
ená Ólafsdóttir og Ásthildur Helga-
dóttir gert sitthvort
markið innan sjö
mínútna. En smám
saman komust gest-
imir inní leikinn og
fMagnea Guðlaugsdóttir minnkaði
muninn i 1:2 eftir góðan undirbún-
ing Brynju Pétursdóttur. Skaga-
stúlkur gerðu nokkrar tilraunir við
mark KR fyrir hlé en tókst ekki
að skora.
Seinni hálfleikur byijaði eins og
sá fyrri. KR-ingar sóttu af krafti,
að vísu án þess' að skora, en fljót-
lega jafnaðist leikurinn og liðin
skiptust á færum, heimamenn áttu
þó fleiri. Eftir 20 mínútur jafnaði
IA eftir vamarmistök KR-inga,
þegar Júlía Sigursteinsdóttir komst
lein innfyrir vömina og renndi létti-
lega í markhomið. Á síðustu mínút-
unum gerðu bæði lið góðar tilraun-
ir til að gera út um leikinn; Ásthild-
ur undirbjó gott færi fyrir Guðrúnu
Jónu Kristjánsdóttur sem skaut
framhjá oggott skot Helenar strauk
þverslána. Hinu meginn tókst KR-
Kópavoginum á laugardaginn.
Akureyringar nýttu svotil eina
færi sitt í fyrri hálfleik og komust
í 0:1 með marki Amdísar Olafsdótt-
ur eftir 15 mínútna leik, en Katrín
Jónsdóttir jafnaði 1:1 með þrumu-
skoti tíu mínútum síðar. Strax eftir
hlé kom Olga Færseth Blikum í 2:1
og í kjölfarið fylgdi mark frá Mar-
gréti Ólafsdóttur og annað frá Olgu.
En Blikastúlkur sofnuðu á verðinum
svo Ellen Óskarsdóttir minnkaði
muninn í 2:4.
Þróttur Nes. lagði Val
Þróttur lagði Val að velli, 2:1, á
Neskaupstað. Eftir tíðindarlít-
inn fyrri hálfleik fengu Valsstúlkur
óskabyijun í seinni
Áqúst hálfleik er Erla Sig-
Blöndal urbjartsdóttir skor-
skrífar aði eftir aðeins tvær
mín. með föstu skoti
— knötturinn hafnaði út við stöng.
Þróttarstúlkur létu það ekki á sig
fá heldur sóttu í sig veðrið og sóttu
grimmt að marki Valsstúlkna.
Sirrý Haraldsdóttir náði að jafna,
1:1, fyrir Þrótt og það var svo Gerð-
ur Guðmundsdóttir sem skoraði sig-
urmark heimamanna með þrumu-
skoti. Undir lok leiksins fóru Vals-
stúlkur að sækja, en það var of
seint.
Þróttarstúlkur áttu góðan dag
og var sigur þeirra verðskuldaður.
Gerður Guðmundsdóttir og Nanna
Tómasdóttir léku vel, en best í liði
Vals var Erla Sigurbjartsdóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
Ásthildur Helgadóttir átti góðan leik með KR gegn ÍA á sunnudaginn.
stúlkum að bjarga úr markteig sín-
um eftir mikinn darraðadans og á
lokamínútu leiksins bjargaði Berg-
lind Þráinsdóttir naumlega af tám
sóknarmanna KR.
„Það hlaut að koma að því að
við misstum stig og ég átti alveg
eins von á því í þessum leik. Við
byijum alltaf vel og eigum fullt af
færum en inissum síðan niður bar-
áttuna," sagði Arna Steinsen þjálf-
ari og leikmaður KR eftir leikinn.
Óhætt er að taka undir orð hennar
því liðið var mjög sannfærandi í
byijun. Ásthildur var þeirra best,
mjög lagin með boltann og spilar
honum vel.
Skagastúlkur voru of hikandi í
byijun en komust á gott skrið er
leið á leikinn. Magnea var góð,
Brynja spræk og ekki mátti líta af
Jónínu Víglundsdóttur í framlín-
unni.
Vonandi aflíöandi núna
Botnlið 1. deildar, íþróttabanda-
lag Akureyrar, tapaði 2:4 gegn einu
af toppliðum deildarinnar, UBK, í
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
FRJALSAR
Kariamir
í þriðja
sæti
Sunna og Þuríður í
þriðja og fjórða sæti
ÍSLENSKA karlaliðið ítugþraut
varð í 3. sæti í C-riðli Evrópubik-
arkeppninnar í fjölþraut sem
fram fór i Hassle í Belgíu um
helgina. íslenska liðið hlaut
samtals 19.473 stig í keppninni,
en Belgar sigruðu, fengu 20.063
stig, og Portúgalar urðu i öðru
sæti með 20.017 stig.
Islenska liðið var skipað þeim Ólafi
Guðmundssyni HSK, Friðgeir
Halldórssyni USAH og Auðunn Guð-
jónssyni HSK. Ólafur náði bestum
árangri þeirra félaganna og varð í
þriðja sæti í einstaklingskeppninni
með 6935 stig. Friðgeir varð í níunda
sæti með 6362 stig og Auðunn varð
í ellefta sæti með 6176 stig.
Sunna setti nýtt stúlknamet
Konurnar voru aðeins tvær í sjö-
þrautarkeppninni, ein þeirra meidd-
ist, Ingibjörg ívarsdóttir HSK, og
gátu þær því ekki tekið þátt í heild-
arstigakeppninni. Sunna Gestsdóttir
USAH og Þuríður Ingvarsdóttir tóku
þátt í einstaklingskeppninni og stóðu
sig vel. Þuríður varð í þriðja sæti
með 4759 stig. Sunna varð í fjórða
sæti með 4756 stig, og setti þar
með nýtt íslenskt stúlknamet.