Morgunblaðið - 15.07.1993, Side 11

Morgunblaðið - 15.07.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 11 Jónas Kristjánsson Birtar eru myndir úr nokkrum handritum og saga þeirra rakin. Vafalaust hefur langtum fleira verið í letur fært en það sem geymst hefur. Sumt hefur glat- ast, annað brenglast í uppskrift- um, svo sem torskilinn kveðskap- ur. Og enn annað lent í margs konar hrakningum. Sem betur fer má þó ætla að hið verðmætasta hafi bjargast. Margar vitna hinar fornu skinnbækur um snilldar- handbragð skrifaranna sem sannarlega hafa gert sér ljóst hvað þeir voru með i höndunum. Fræðimenn hefur greint á um flest sem fomritin varðar, ekki síst um sannfræði íslendinga- CL 600 AFBURÐA LASERPRENTARI A3 og A4 pappír 600x600 punkta upplausn (dpi) Intel 80960KB RISC örgjörvi Intel 82961KD grafískur örgjörvi Hárffnt duft (7 míkrón) Margföld minnisnýting Postscript, PCL5 og HP-GLV2 35 TrueType leturgeröir 13 HP-PCL5 leturgerðir Appietalk-, rað- og hliðtengi Getur unnið á öllum tengjum samtímis SCSI tengi fyrir fontadisk Sjálfvirk skynjun á Postscript og PCL5 Tekur við prentgögnum á meöan prentaö er Skaðar ekki Ozon lagið CQ> •CalComp NYI,FR.JI A lockheed Company Alltaf skrefl á undan Ódýrir dúkar X HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 Metsolubhd á hverjum degi! sagna og fyrirmyndir þær sem höfundar þeirra kunni að hafa farið eftir. Jónas Kristjánsson blandar sér ekki í deilur vísinda- manna, enda er þetta kynningar- rit. Hann minnir þó á að fornbók- menntirnar séu alíslenskar og þar að auki einstakar í sinni röð. Fornritin eru svo grunnmúruð í vitund íslendinga að erfitt væri að gera sér í hugarlund hvernig sjálfsmyndin liti út ef þær hefðu aldrei orðið til. „Ef hinar fornu sögur og ljóð hefðu ekki verið svo gildur þáttur í menningu þjóðar- innar, þá hefðu íslendingar aldrei endurheimt sjálfstæði sitt á 20. öld_,“ segir Jónas Kristjánsson. I fáum orðum sagt: Fagurt rit og vandað. Og þörf hugvekja á tímum margs konar fjarskyldra menningarstrauma. Þarna er á einkar ljósan hátt og auðskilinn gerð grein fyrir efni sem sérhverj- um íslendingi ætti að vera hug- leikið. Námskeið og sýningar í Operusmiðjunni Hans og Gréta með brúðum ÓPERUSMIÐJAN vaknaði aftur til lífsins í sumar eftir hlé frá því í desember og heldur þessar vikurnar námskeið fyrir söngvara. Héðan er nýfarinn hollenski píanóleikarinn Gerrit Schuil sem vann með hópi söngvara í hálfan mánuð og í ágúst heldur námskeið Svíinn Torbjörn Liljeqvist. Næsta vetur ætla söngvarar Óperusmiðjunnar að setja upp Parcival og Hans og Grétu. Schuil hefur starfað með frægum söngvurum eins og Birgit Nilson, Elisabeth Schwartzkopf og Joan Suther- land og nú síðast með Virginiu Zeani hér á íslandi. Hann er stjórnandi auk píanóleiksins og hyggur á frekara samstarf með Óperusmiðjunni eftir að hann flytur til íslands síðsumars. Óperusmiðjan er opinn hópur söngvara sem setur upp óperur og smærri tónleika. Márgrét Pálmadóttir er formaður smiðj- unnar og segir hana fráleitt í samkeppni við íslensku óperuna. „Hingað koma söngvarar og vinna saman þegar önnur verk- efni kalla ekki. Við sungum fyrst Systur Angelicu eftir Puccini og síðan La Bohéme eftir sama höf- und og í vetur Amal og nætur- gestina eftir Menotti. La Bohéme er þekktasta uppfærslan, en nú er tvennt á döfínni fyrir vetur- inn: Parcival eftir Wagner með Sinfóníuhljómsveit æskunnar og Hans og Gréta eftir Humperd- inck í samvinnu við brúðuleikhús Helgu Arnalds. Þetta vorum við að ákveða og ég held að brúðu- leikhús og ópera sé alveg ný blanda á íslensku sviði.“ Iárá ISLANDI Nokkrir Ford Ranger á ótrúlegu afmælistilboði í tilefni þess að nú eru 80 ár liðin frá því fyrsti Fordinn kom til landsins bjóðum við nokkra Ford Ranger á meiriháttar afmælistilboði. Komdu í dag því það eru aðeins nokkrir bílar á afmælistilboðinu! Það fylgir því sérstök frelsistilfinning að eiga Ford Ranger - þú ferð þangað sem þú vilt, þegar þú vilt. Á þessum öfluga ameríska pallbíl, sem hefur verið mest seldi pallbíllinn í Bandaríkjunum I áratug, eru þér allar leiðir færar. Ford Ranger er frábær fyrir íslenskar aðstæður og hann er þýður sem fólksbíll. Þótt vélin sé mjög öflug er þetta ótrúlega sparneytinn bíll. Aksturseiginleikarnir hafa aldrei verið betri, hann er sterkbyggður og þú getur valið um margskonar aukabúnað og útfærslu. Ford Ranger - hvert sem er, hvenær sem er Hefur þú ekið Ford... nýlega? G/obusp - heimur gœða! Lagmula 5, sím) 91-6815 55 Alj&iíU f/sJdJSÍ/JJ s&nj fylgu/ ‘þ vj ■j'ó sJtpJ rv/íi Ji;-j/jrjs/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.