Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 Sigurður Olafsson söngvari látinn Morgunblaðið/Ingvar Sjúkraflug frá Hornströndum ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti fótbrotna konu í Þaralátursfjörð á Homströndum skömmu eftir hádegi í gær. _Um er að ræða yfir klukku- stundarflug hvora ieið en konan var í hópi íslendinga á gönguferðalagi. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var læknir með í hópi göngufólksins og hafði hann samband við Landhelgisgæsluna og bað um flutning á konunni suður til Reykjavíkur. Komið var með konuna á Borgarsjúkrahúsið um kl. 3 um daginn og mun líðan hennar eftir atvikum góð. Sigurður var einnig þekktur hesta- maður á sinni tíð og átti marga lands- þekkta gæðinga sem hann hleypti reglulega á skeið á kappreiðum. Frægasti hestur hans var hryssan Gletta sem var um árabil ósigrandi á kappreiðavellinum. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar Ólafssonar er Inga Valfríður Einars- dóttir frá Miðdal. Þau eignuðust 6 Sigurður Ólafsson böm. Þau bjuggu í 34 ár í Laugar- nesi í Reykjavík. SIGURÐUR var fæddur í Reykja- vík 4. desember 1916. Hann var lengi einn jjekktasti söngvari þjóð- arinnar. A liðlega 50 ára söng- ferli sínum söng hann í kórum, við jarðarfarir, með danshljóm- sveitum og á söngskemmtunum. Auk þess söng hann nokkur óperu- hlutverk og önnur sönghlutverk í þjóðleikhúsinu og tók meðal ann- ars þátt í fyrstu uppfærslu Þjóð- leikhússins á óperunni „Rígó- lettó“. Sigurður söng einnig inn á fjölda hljómplatna. MS-félagið fær styrk BORGARRÁÐ hefur samþykkt að styrkja MS-félagið um 12 miljjónir króna vegna byggingar dagvistar- heimilis sem félagið hyggst taka í notkun árið 1995. í erindi Hjörleifs Kvaran fram- kvæmdastjóra lögfræði- og stjóm- sýsludeildar tii borgarráðs kemur fram, að Reykjavíkurborg leigir fé- laginu húsnæði fyrir dagvist að Álandi 13. Félagið stendur nú í bygg- ingarframkvæmdum við Sléttuveg og er kostnaður áætlaður rúmar 60 milljónir. Lagt er til að samþykkt verði að veita MS-félaginu styrk sem nemi andvirði hússins að Álandi en áætlað söluverðmæti er 12 milljónir. Upphæðin verði greidd með jöfnum greiðslum næstu þijú ár. Reynist söluandvirðið hærra þegar sala fer fram er lagt til að viðbótarfjárhæðin renni til MS-félagsins. Félagið hefur áfram afnot af hús- næðinu þar til nýbyggingin verður tekin í notkun en húsnæðið selt á þeim tímamótum. Jón Baldursson varð fyrir erfiðrí lífsreynslu á dögunum Keppti á Evrópumóti í brids með bráða kransæðastíflu MEÐAN Á Evrópumótinu í brids stóð bárust fréttir af bakveiki Jóns Baldurssonar, eins af íslensku bridsheimsmeisturunum. Bæði komst hann ekki á mótsstað fyrr en eftir að mótið var hafið, og hann gat lítið sem ekkert spilað síðustu dagana vegna sársauka. Eftir að mótinu lauk og Jón kom aftur heim leiddu læknisrannsókn- ir í ljós að hann var með bráða kransæðastíflu og hann gekkst undir hjartaþræðingu og kransæðaútvíkkun skömmu síðar. Að- gerðin tókst vel og eru líkur á að Jón nái sér að fullu. Bridslandsliðin héldu til Menton í Frakklandi á Evrópumótið föstu- daginn 11. júní en fyrr í vikunni hafði Jón fundið fyrir sársauka í bakinu. „Ég fann aðeins fyrir þessu á þriðjudeginum og miðviku- deginum en á fimmtudeginum keyrði um þverbak. Þetta var stað- bundinn verkur efst í bakinu sem leiddi út í handleggina og þar sem ég var með slæma vöðvabólgu lá beint við að þar væri að leita or- saka sársaukans. Ég fór í sjúkra- nudd og lagaðist aðeins við það. Einnig fékk ég vöðvaslakandi pill- ur hjá lækni og var sagt að þær væru svo sterkar að ég yrði að láta vekja mig til að komast í flug- vélina morguninn eftir. En ég vaknaði eftir tveggja tíma svefn með slíkar kvalir að ég treysti mér ekki út með liðinu,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið. Sársaukinn hvarf Jón fór þess í stað til læknis en rannsókn leiddi ekkert annað í ljós en að verkurinn hlyti að stafa af vöðvabólgu og jafnvel gæti ver- ið um byijun á bijósklosi að ræða. Læknirinn gaf Jóni vöðvaslakandi sprautu í bakið þar sem sársauk- inn var mestur. „Það varð hrein bylting því sársaukinn hvarf að mestu. Eg hafði raunar alltaf gert ráð fyrir því að þetta myndi lag- ast við meðhöndlun og ég dreif mig því út á mótið á sunnudegin- um og var byijaður að spila á mánudeginum.“ Meðan á mótinu stóð tók Jón stöðugt vöðvaslakandi lyf og ver- kjalyf. „Ég var auðvitað ekki við hestaheilsu en töflumar slógu allt- af á verkina og þetta háði mér því ekkert við spilamennskuna lengi vel,“ sagði Jón. íslenska lið- inu gekk einnig vel og var í þriðja sæti þegar tveir dagar voru eftir af mótinu. En þá fékk Jón annað kast „Ég fór að fá verki um miðja seinni vikuna sem mótið stóð yfir. Við áttum ekki að byija að spila fyrr en um miðjan dag og um morguninn ákvað ég að fara út að hlaupa til að hressa mig við. Ég hljóp ekki langt en en þegar ég kom heim fór ég að finna fyrir verkjunum aftur. Eg dældi í mig verkjatöflum og lá fyrir þar til spilamennskan hófst og náði mér að mestu. Daginn eftir hélt ég verkjunum niðri með lyfjum þar til undir lok spilamennskunnar að ég varð alveg frá og vissi varla af mér síðustu þijú spilin," sagði Jón. Daginn eftir upphófst ganga milli lækna í Menton en þrátt fyr- ir myndatökur, skoðanir og rann- sóknir voru þeir jafn nær um hvað sársaukanum ylli. Jón vildi fá samskonar sprautu og hann fékk á íslandi áður en hann fór af stað, en frönsku læknarnir treystu sér ekki til gefa hana. Hins vegar fékk Jón önnur lyf og sprautur sem drógu úr sársaukanum og um kvöldið settist hann við spilaborðið á ný. Láréttur á sjúkrahús Þegar Jón kom aftur til íslands eftir mótið sagðist hann hafa ver- ið búinn að jafna sig nokkuð. Nokkrum dögum síðar fór hann í læknisrannsókn hjá gigtarlækni og að þessu sinni tók læknirinn hjartalínurit. „Þegar niðurstöðum- ar lágu fyrir sagði læknirinn mér að setjast eins og skot. Ég var síðan sendur láréttur beina leið upp á sjúkrahús og þar kom í ljós að ein kransæð var alveg stífluð og önnur var orðin léleg. Þessar æðar voru síðan hreinsaðar og það er hugsanlegt að það verði að hreinsa þá þriðju með haustinu,“ sagði Jón. í lífshættu í samtali við Morgunblaðið sagði Sigurður B. Þorsteinsson læknir að Jón hefði tvímælalaust verið í umtalsverðri lífshættu með- an á Evrópumótinu stóð. „Bráðri kransæðastíflu fylgir alltaf ákveð- in lífshætta, sérstaklega vegna hættu á hjartsláttartruflunum. Og mjög erfið bridskeppni hvetur auð- vitað adrenalínframleiðsluna sem eykur þessa hættu,“ sagði Sigurð- ur. Hann sagði, að verkurinn sem Jón fékk hefði verið mjög óvenju- legur af hjartaverk að vera. „Stað- setningin og útbreiðslan mæltu á móti því. Auk þess var Jón með sögu um vöðvabólgu og sprauturn- ar sem hann fékk höfðu greinileg áhrif til bóta sem aftur passar illa 0 I afturbata JÓN Baldursson spilaði Evrópu- mót í brids þrátt fyrir að hafa fengið bráða kransæðastíflu en talið var að verkur sem hann fékk stafaði af vöðvabólgu. Hann er nú á góðum batavegi. við hjartaverk, og það flækti sjúk- dómsgreininguna," sagði Sigurð- ur. Hann sendi Jón í hjartaeftirlit sl. haust og þá fannst ekkert að. En Sigurður skoðaði ekki Jón áður en hann fór til Frakklands. Hættir ekki að spila Jón sagði að allt útlit væri fyrir að hann næði sér að mestu. Hann er hættur að reykja en reykti áður að staðaldri 2 pakka af sígarettum á dag og upp í 3 pakka meðan á bridsmótum stóð. Jón segist ætla að halda ótrauður áfram í keppn- isbrids. „Það hefur þó væntanlega ekki góð áhrif á hjartað að spila á erfiðum mótum en ætli maður láti ekki duga að hætta að reykja og taka upp heilbrigt mataræði,“ sagði Jón. Islenska liðið í opna flokknum á Evrópumótinu náði ekki því tak- marki að enda ekki neðar en í 4. sæti og vinna sér þannig þátttöku- rétt á Heimsmeistaramótinu í brids í haust til að veija heims- meistaratitilinn. Liðið var í 3. sæti á Evrópumótinu þegar veikindi Jóns gerðu aftur vart við sig en í síðustu umferðunum töpuðust mikilvægir leikir og liðið endaði í 6. sæti. Jón segist aðspurður ekki vera í vafa um að veikindi sín hafi haft áhrif á liðið. „Þetta fór greinilega illa í hina liðsmennina. Menn höfðu ekki undirbúið sig undir svona hluti og það var eins og jafnvægið færi úr liðinu öllu við þetta,“ sagði Jón Baldursson. > > > > > > \ Á fjölskyldudeginum munu starfsmenn Skógræktarinnar kenna rétt handbrögð við gróðursetningu og leiðbeina um val á trjáplöntum og jafnframt kynna , starfsemi skógræktarstöðvanna. Hallormsstaðaskógur: Hestaleiga, bátsferðir frá Atlavík, skógarganga og útigrill. Vaglaskógur: Gönguferðir á klukkustundar fresti og útigrill. Allir velkomnir í grill og gleði. Skógrækt meö Skeljungi Fjölskyldudagur hjá Skógrækt ríkisins á Hallormsstað og Vöglum í Fnjóskadal laugardaginn 17. júlí. > i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.