Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚU 1993 37 lUiimt-klEUM HEFNDARHUGUR Frábær hasarmynd þar sem bardagaatriði og tæknibrellur ráða ríkjum. Ef þér líkaði „Total Recall" og „Terminator", þá er þessi fyrir þig! Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í A-sal. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára VILLT ÁST Erótísk og ögrandi mynd um taumlausa ást og hvernig hún snýst upp í stjórn- laust hatur og ótryggð. Mynd sem lætur engan ósnortinn. Djörf og ógnvekjandi. Sýnd í B-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára FEIL- SPOR ONE FALSE MOVE ★ ★★★ EMPIRE ★ ★★MBL. ★★★* DV Einstök sakamálamynd, sem hvarvetna hefur fengið dúnduraðsókn. Sýnd í C-sal kl. 5, 7, 9 og 11 Bönnuð innan 16 ára. 0 •• , , ; Umdeildasta mynd ársins 1993 ÞRÍHYRIM- IIMGURIIXIIM SÍÐAN „AMERICAN GIGALO" HEFUR SVONA MYND EKKISÉST! Aðalhlutv.: William Baldwin, kyntákn Bandaríkjanna ídag, („Sliver", „Flatliners“ og „Back- draft“), Kelly Lynch („Drugstore Cowboy") og Sherilyn Fenn („Twin Peaks"). ★ ★ ★ ★ „Stórkostleg mynd.“ KFMB - TV San Diego Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. Bönnuð innan 12ára. TVEIR ÝKTIR1 „LOADED WEAPON 1 “ fór beint á toppinn í Bandaríkjun- um! Mynd, þar sem „Lethal Weapon", „Basic Instinct**, „Silence of the Lambs“ og „Wayne’s World“ eru teknar og hakkaðar í spað í ýktu gríni. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. GOÐSÖGNIN Spennandi hrollvekja af bestu gerð. Mynd sem fór beint á toppinn í Englandi. Sýndkl.5,7,9og11. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Lokasýning LOFTSKEYTAMAÐURINN Meiriháttar gamanmynd eftir sögu Knuts Hamsun. Kosin vinsœlasta myndin á Norrænu kvikmyndahátíðinni '93 í Reykjavík. ★ ★★GE-DV ★★★Mbl. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. SIÐLEYSI ★ ★★V. MBL. ★ ★ ★ Pressan ★ ★ ★ Tíminn Aðalhlutverk: Jeremy Irons og Juliette Binoche. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. Kærastan sem hvarf Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Hvarfið („The Vanishing“). Sýnd í Bíóborginni. Leikstjóri: George Sluizer. Handrit: Todd Graff. Aðalhlutverk: Jeff Bridges, Kiefer Sut.herland, Nancy Travis, Sandra Bullock. Þegar þeir í Hollywood eru orðnir vita hugmyndalausir snúa þeir sér til Evrópu. Þannig hafa orðið til með stuttu millibili end- urgerðirnar „Sommersby", „The Assassin" og „The Vanishing“ eða Hvarfið, sem sýnd er í Bíó- borginni og er hér til umræðu. Ekki er að undra þótt þeir í Holiywood hafi ginið við hinni hollensku frummynd; Hvarfið er glettilega góð sakamálasaga og sálfræðitryllir sem Alfred Hitc- hcock hefði selt aðra undirhök- una fyrir. Hollenski leikstjórinn George Sluizer gerði frummyndina eftir sögu Tim Krabbe, sem heitir Gulleggið, og flaug sjáifur vestur til Hollywood til að leikstýra bandarísku útgáfunni með Jeff Bridges, Kiefer Sutherland og Nancy Travis í aðalhlutverkum. Það er segin saga að aldrei var hollenska myndin sýnd hér í kvikmyndahúsi en um leið og hún hefur verið sett í bandarísk- an búning er hún komin á hvíta tjaldið. Ungt kærustupar rífst og skammast þegar bíllinn þeirra verður bensínlaus þar sem þau eru á ferðalagi. Hann fer og nær í bensín og skilur hana eina eft- ir. Þegar hann kemur til baka hafa bæði jafnað sig og þau eru aftur orðin kát þegar þau renna inn á næstu bensínstöð. Hún fer inn að kaupa gosdrykk í nær- liggjandi verslun og sést aldrei meir eftir það. Hún er horfin eins og jörðin hafi gleypt hana. Ungi maðurinn er auðvitað sleginn og með árunum fær hann gátuna um hvarf stúlkunnar sinnar á heilann. í þijú ár leitar hann að henni eins og vitstola maður þar til aðeins ein spurning brennur í huga hans. Ekki hvort hún er lifandi, komi til hans aft- ur eða lifí hamingjusöm án hans. Ekki hvort hún hafi lent í slysi. Ekki hvort hún er látin og hann sjái hana aldrei aftur. Ekki hvort það var eitthvað sem hann gerði eða gerði ekki. Hann er löngu orðinn þreyttur á öllum vanga- veltum. En hann verður að vita HVAÐ gerðist. Þráhyggja hans eyðileggur líf hans, eyðileggur nýtt samband hans við aðra unga konu en þijáhyggjan verður líka leiðin að ódæðismanninum og hún verður vopnið í höndum hans sem geymir svarið. Sluizer byggir myndina kostu- lega upp með því að sýna okkur í nk. inngangi inní hugarheim Jeff Bridges, sem leikur ódæðis- manninn, þar sem hann er að æfa sig í að lokka ungar konur uppí bíl til sín. Bridges er frábær í hlutverkinu sem fjölskyldumað- ur og efnafræðikennari er geng- ur til verka eins og um tilraun sé að ræða; mælir púlsinn á sér, tímasetur hversu lengi svefnlyfið virkar, mælir vegalengdir. Síðan er sjónarhornið sett á Sutherland og þráhyggju hans og í þriðja þætti mætast þeir í uppgjöri þar sem hin hægláta, sálfræðilega undirbygging Sluizers á frásögn- inni brýst út í raunverulegri spennu. Bridges hefur svosem ekki úr miklu að vinna því efnafræði- kennarinn er furðuleg ráðgáta en með göngulagi og stirðum lík- amsburðum og talanda tekst honum að gefa eftirminnilega mynd af þessum ofur rólynda manni sem gerir tilraunir á því hversu langt hann getur gengið. Sutherland er einnig ágætur sem hinn hugsjúki maður er leggur allt í sölurnar til að fá svar við spurningu sinni. Hér er á ferðinni fínasta saka- málasaga, sem á það fyllilega skilið að vera tvísögð. * Astarsaga úr borg- inni Þríhyrningurinn („Three of Hearts“). Leikstjóri: Yurek Bogayevicz. Sýnd í Regnbog- anum. Aðalhlutverk: William Baldwin, Kelly Lynch, Sheri- lyn Fenn og Joe Pantoliano. Astarþríhyrningurinn í mynd- inni „Three of Hearts“ er ansi skringilega samansettur. Will- iam Baldwin er karlmella sem selur sig ríkum konum, Kelly Lynch er lesbía í ástarsorg og Sherilyn Fenn er önnur lesbía sem hætt hefur með Lynch og hyggst ætla að vera með karl- mönnum í framtíðinni. í hinni ósennilegu fléttu myndarinnar ræður Lynch hinn myndarlega Baldwin til að fleka Fenn og skilja svo við hana í sárum þannig að hún kemur hlaupandi aftur í fangið á henni reynslunni ríkari. En hlutirnir fara ekki eins og þeim er ætlað frekar en venjulega og málin verða mun flóknari en Lynch gerði ráð fyrir. Myndin fer sannarlega ekki troðnar slóðir í persónugerð en einhvern veginn snertir þetta lið mann sáralítið og sálarangist þess fer fyrir ofan garð og neð- an. Leikstjórnin er hálf vand- ræðaleg á köflum og leikararnir virka ósannfærandi; partur af því er ofleikurinn í Kelly Lynch og það er óttalega tilgerðarlegt þegar Sherylin Fenn, sem leikur bókmenntakennara, tekur að vitna í Knut Hamsun af öllum mönnum og ástarbréf Viktoríu. Ósennilegust er þó sagan af kari- mellunni sem Baldwin leikur eins og afvegaleiddur mömmudreng- ur. Þar inní kemur hliðarsaga um bijálæðing sem ætlar að myrða hann og snertir í raun ekkert það sem myndin annars fjallar um. Það eru eins og atriði úr annarri bíómynd þar sem Joe Pantoliano fer með aðalhlutverk- ið. Þegar í ofanálag mann grunar strax hvernig endarnir verða hnýttir saman í lokin kemur fátt á óvart. Það er kyndugt sjónar- hornið í þessari ástarsögu en þegar til kemur fellur í hún skorður klisjunnar og lausnirnar verða furðulega auðveldar. Hagstæð heyskapartíð Borg í Miklaholtshreppi SLÁTTUR hófst hér á mörgum bæjum í fyrstu viku júlímánaðar. Hagstæð heyskapartíð hefur ver- ið hér undanfarið, sólskin marga daga og þokkalegur hiti. Gras- spretta er í knappara lagi, þó eru nokkrir bændur sem eru að ljúka fyrri slætti. Þokkalega gott gras hefur verið hjá þeim bændum, sem ekki þurftu að beita tún í vor. Dálítið er um kalskellur en þó ekki samfellt. Mikill straumur ferðafólks hefur verið hér undanfarið enda gott ferðaveður og margt er hér sem gleður auga ferðafólks. Niðjamót hafa verið hér undan- farandi helgar í Laugargerðisskóla, Breiðabliki og Lýsuhóli. Mikill fjöldi fólks hefur sótt þessi mót. Páll L«aw90v*gi 45 -t.21 255 VIKING- ii í ra í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.