Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frattces Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Þú ert að áforma fjárfest-
ingu sem getur gefið góðan
arð. í kvöld bíða þín ánægju-
legar stundir með vinum og
ástvini.
Naut
(20. apnl - 20. ma!)
Sumir eru að setja niður
deilur í dag. Aðrir eru í gift-
ingarhugleiðingum. Hagn-
aðarvonir glæðast í viðskipt-
um.
Tvíburar
(21. maí - 20.-júní) í»
Dagurinn lofar góðu. Þú
gætir átt von á launauppbót
og stöðuhækkun. í kvöld
fagnar þú góðum árangri
með ástvini.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú sýnir bami aukinn skiln-
ing í dag. Sumir hefla nýja
tómstundaiðju. Þú unir þér
vel í einrúmi heima í kvöld
með ástvini.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Agreiningur innan fjölskyld-
unnar leysist farsællega. í
kvöld verður mikið um dýrð-
ir og þú nýtur mikilla vin-
sælda.
Meyja
(23. ágúst - 22. sentemberl
Þú eignast nýtt áhugamál
með aðstoð vinar. Starfið
veitir þér mikla ánægju og
þér semur vel við samstarfs-
menn í dag.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Dagurinn markar tímamót í
starfí og fjárhagurinn fer
óðum batnandi. Sumir fá boð
um þátttöku í áhugaverðri
skemmtiferð.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þróun mála í vinnunni er þér
mjög hagstæð í dag og þú
átt von á góðri gjöf. Sumir
íhuga þátttöku í námskeiði.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) m
Fjárhagurinn rýmkar um
þessar mundir. Gamalt verk-
efni öðlast nýtt líf. Ánægju-
legt samkvæmi gæti staðið
þér til boða í kvöld.
Steingeit
(22. des. — 19. janúar)
Þú færð viðurkenningu og
ný tækifæri í dag. Þú tekur
þátt í samstarfsverkefni.
Vináttusamband færir þér
farsæld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Verkefni sem þú hafðir
næstum gefíð upp á bátinn
veitir þér velgengni. Breyt-
ingar á vinnustað, eru þér
hagstæðar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’SZ
Hikaðu ekki við að leita ráða
hjá þeim sem til málanna
þekkja. Þér gefast ný tæki-
færi í dag sem lofa góðu
fyrir fjölskylduna.
Stj'órnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
GRETTIR
LJÓSKA
FERDINAND
SMAFOLK
S0METIME5, CMUCK, I
UUONPEK IF YOU EVER
REALIZE JUST H010
EMBARRA55IN6 THI5
CAN SE
Kalli, stundum er ég að velta því fyrir mér, hvort þú gerir þér einhvern tímann ljóst, hve vandræðalegt
þetta getur verið ...
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Það sýnist margsannað mál
að 2ja laufa fjöldjöfaopnunin,
skili hvað bestum árangri þegar
opnarinn er með fárveik spil og
4-5-skiptingu í hálitunum. Gróð-
inn er tvíþættur: Andstæðing-
amir missa gjarnan slemmu eftir
slíka truflun og þegar þeir lenda
í þremur gröndum fínnst oft eina
rétta útspilið.
Ísland-Frakkland. Spil 22.
Austur gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 75
¥Á107
♦ G976
Vestur +Á1098 Austur
♦ ÁG6 ....... ♦K1043
♦ K6 VG85
♦ ÁD1032 ♦ K4
♦ K73 Suður ♦ D542
♦ D982
▼ D9432
♦ 85
*G6
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Perron Þorl. Chemla
— — Pass Pass
1 grand Pass 2 lauf Pass
3 tíglar Pass 3 grönd Pass
Pass Pass
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Levy Sævar Mouiel Jón
— — Pass 2 lauf(!)
2 grönd Pass 3 grönd Pass
Pass Pass
Opnun Jóns í lokaða salnum á
2 laufum sýndi annað tveggja:
Veik spil með hálitina eða veika
tvo í tígli. Sævar átti ekki í vand-
ræðum með að reikna út hvort
heldur var og gerði út um samn-
inginn strax í upphafi með því
að spila út hjartatíunni!! Levy
átti slaginn á kóng og prófaði
tígulinn. Þegar hann reyndist
ekki upp á 5 slagi, gafst Levy
upp og spilaði laufí. Sævar tók á
ásinn, hirti tígulgosa og spilaði
hjartaás og hjarta. Tveir niður.
Hinum megin hafði Perron
enga ástæðu til annars en spila
út laufí. Hann valdi tíuna og
Chemla lét gosann. Ofanritaður
tók á laufkóng, spilaði tígli á
kóng og svínaði tígultíu í baka-
leiðinni. Perron drap á gosann
og lagðist undir feld í 7 mínútur.
Þegar hann svipti af sér feldinum,
birtust hjartaás og tía. Nú voru
átta slagir í húsi og úrslit spilsins
komu til með að ráðast af spaðaí-
ferðinni. Þegar tígullegan kom í
ljós var auðvelt að lesa skiptingu
Chemla og því hlaut að vera rétt
að gera ráð fyrir spaðadrottning-
unni hjá honum. Níu slagir og
13 IMPar.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp í þriðju
einvígisskák gríska stórmeistar-
ans Skembris (2.535), sem hafði
hvítt og átti leik, og Hollendings-
ins Jans Timman (2.620). Svart-
ur lék síðast 29. — De6-c8.
30. Bxg7! - Dc5+ (Svartur er
mát í þriðja leik ef hann tekur
biskupinn) 31. Bd4 - Dg5, 32.
Hxh6! (Hótar máti á h8) 32. -
f6, 33. Hh8+! og Timman gaf,
því eftir 33. - Kxh8, 34. Dxg5
er drottningin fallin. Skembris
vann einvígið 3-1 og er þessi ósig-
ur mikið áfall fyrir Timman, sem
eftir aðeins tvo mánuði teflir við
Karpov um „FIDE-heimsmeist-
aratitilinn".