Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.07.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 15 til 1983, er hann settist í helgan stein. III Afi átti sterka stoð þar sem amma Guðfinna var. Hún var úr Fljótsdalnum, sannkallaður skör- ungur sem bjó þeim dásamlegt heimili á Norðurgötu 53. Hjá Guð- finnu Hallgrímsdóttur var aldrei komið að tómum kofanum í neinum skilningi. Skoðanir hafði hún á öllu og lá ekki á þeim; var hörkutól en brosmild, lífleg og skemmtileg kona. Glaðvær hetja, sem átti við erfið veikindi að stríða og hvarf á brott úr þessum heimi allt of snemma, 69 ára að aldri síðsumars 1979. Missirinn var ólýsanlegur þó að ef til vill hafi hann ekki verið óvæntur á sínum tíma. Bn óskiljan- legur fannst mér hann og finnst enn. Mannlegur máttur ræður engu um brottfarartíma; eflaust erum við öll með einhvers konar apex-miða sem ekki er hægt að breyta, en benda mætti almættinu á að svona ömmur á það ekki að hrifsa til sín svo snemma.-' iin Afi varð 85 ára 20. júní. Lá þá í rúmi sínu á Fjórðungssjúkrahús- inu, þar sem hann dvaldist síðustu vikurnar. Við komum öll til hans, nánustu ættingjar, sátum langa stund, en samræður voru ekki eins líflegar og stundum áður. Öllum var ljóst að nú styttist í brottför; kraft- ar voru í kögglum og hugsjónimar miklar á sínum tíma, en þreytan var orðin augljós. Eftir að heymin varð verri og sjónin svo slæm að hann gat nánast ekkert lesið lengur varð hann sár. Honum leið vel á heimili foreldra minna og bróður, Hebu, Hallgríms og Ásgríms Arn- ar, í Reynivöllunum, þar sem hann eyddi síðustu ámnum, en þegar hann gat ekki orðið bjargað sér sjálfur svo vel færi var enginn til- gangur lengur. Hann vildi ekki vera upp á aðra kominn. Hann var ekki að kynnast veik- indum í fyrsta skipti nú; veiktist mjög alvarlega fyrir um 30 ámm, en náði sér ótrúlega vel og síðustu árin kom það oft fyrir að menn héldu að komið væri að leiðarlokum. En viljastyrkurinn og krafturinn var slíkur að alltaf reis afi upp og var farinn að arka um Eyrina af sama þrótti og fyrr. Þegar ég heimsótti afa i síðasta sinn, til að kveðja fyrir suðurför, hafði hann orð á því að þetta gæti ekki gengið svona mikið lengur, enda hafði hann verið rúmfastur í nokkrar vikur; kyrrsetan var ekki fyrir Skapta Áskelsson. Ég kvaddi hann með kossi, og sagði: „Hafðu það gott, afi minn. Við sjáumst fljótlega aftur.“ Já, svaraði hann lágt, en það var öðruvísi að horfa í augun en áður. Hann vissi ég kæmi aftur von bráðar í frí — ég kom, en hann var farinn í síðustu ferðina; dó fjórum dögum eftir að við kvöddumst. Liklega geta menn slappað vel af og haft það huggulegt í efra, hvílt sig eftir jarðvistina. Ef ég þekki afa rétt kemur hann hins vegar ekki til með að sitja aðgerðar- laus frekar en fyrri daginn. Skipa- smiðum á himnum hefur bæst góð- ur liðsauki, þannig að nú verður líklega hægt að hefjast handa við að endurnýja himnaflotann. Ef þess gerist ekki þörf hlýtur að minnsta kosti að vera hægt að kenna ein- hveijum að lesa. Skapti Hallgrímsson. Burðarás fallinn, styrkur ás úr atvinnubyggingunni, Skapti Áskelsson skipasmiður, alltaf kall- aður Skapti í Slippnum, lengi for- stjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri. Frumkvöðull að smíði stórra skipa á sjöunda áratugnum, lét þá byggja Hekluna og Esjuna, strandferða- skipin, atorkumaður og ókvalráður. Hann hafði sér þá til liðs frábæran hóp verkmennta- og iðnaðarmanna - og sagði þetta skýrt: vegna þeirra hefði þetta tekist. Ég veit það var rétt. í þeim hópi voru margir frænd- ur Skapta. - Slippstöðin veitti mikla atvinnu á Akureyri á þessum tíma, verkmenning og gott verksvit nytj- aðist og þróaðist svo að mikil- verð- mæti urðu eftir og bærinn býr að. Auk nýsmíða þá var mikið verk allur undirbúningur skipa fyrir síld- ina - ég man að þá gekk talsvert á hjá frænda út í Slipp. - Og einn burðarás í atvinnusögunni er fall- inn; þá fer að vanta nýja. Það verða sterk trén sem róta sig við gröf slíks manns. Skapti föðurbróðir var orðinn hálfníræður þegar dauðinn fékk sótt hann, og hafði þá staðist ýms- ar fyrri atlögur. Menn gantast; Jón á Skarði gamla kempan móðurbróð- ir Skapta, sagðist hafa legið fjórar banalegur - það var næstum satt. Skapti þijár, sagð’ann, áður en hann féll. Flestum dugir okkur ein. Atvinnusagan norðanlands er heillandi stúdía, ungir menn og átakamiklir lögðu sig fram, bæði til sveita og sjávar, það fjölgaði í plássunum, þau tóku við mannfjölg- uninni, þá tíðkuðust stórir barna- hópar. Nú er það breytt. Þetta var vel alið fólk og sterkt, vant allri vinnu, mikil verðmæti sem við enn- eigum reyndar talsvert af, menn töldu ekki eftir sér að leggja lið, sjá síðu 31. IITSALA - UTSALA - UTSALA Dragtir - Stakir jakkar - Kjólar Peysur - Blússur - Buxur - Pils U RVA U M 50 FERÐAST ÞUINNAN ísumar: 5 MANNA tjald Lapland 2 SVEFNPOKAR Nitestar -5° 32 Lkadibox Alft í einum pakka 8.900,- stgr. 9.400.- m. greiðslukorti 19.200. stgr. 4 stólar og borð á 3.990.- 4 MANNA Peking 180 2 SVEFNPOKAR Ntestar -5° Allt í einum pakka Einlitir frá 1.900 - Þykkri frá 2.990.- SVEFNPOKAR 5 | TJALDASÝNING I TJALDSTÓIAR 1 KÆLIROX FRA KR. 3.990.- ALLA DAGA FRÁ KR. 990.- Á ÚTSÖLU opið laugardag kl. 10-16 sunnudag kl. 13 - 16 POSTSENDUM SAMDÆGURS ...þar sem ferðalagið byrjar! SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJASLÓÐ 7 101 REYKJAVÍK S. 91-621780

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.