Morgunblaðið - 15.07.1993, Page 17

Morgunblaðið - 15.07.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 17 O 100 Jfto.1 tsaa EB ihttttp**** itvbA Sm>! w»* .lUWÖUfll SKVKIMUR É fdtiAWAHt V .??? ..Jp® BBB B3 UOwSíðpðlfctakí ES3 itVMMIiii .VinmfcVívw Marg-t breytist á 40 árum TIL vinstri sést gróðurkort af Öskjuhlíð árið 1951 þegar gróður- setning hófst þar og til hægri árið 1991. Kortin eru úr bókinni Oskjuhlíð, náttúra og saga en hana prýða 60 ljósmyndir og 20 skýringamyndir. • • Bók um náttúru og sögu Oskjuhlíðar komin út Fuglalíf o g fjöl- breytt gróðurfar UPPLÝSINGAR um fornminjar, fuglalíf, stríðsminjar og gróður- far hafa verið dregnar saman í 70 blaðsíðna bók um útivistar- svæðið í Öskjuhlíð, sem heitir Oskjuhlíð, náttúra og saga. Bókin er unnin í samvinnu Árbæjarsafns og Borgarskipulags Reykja- víkur og eru höfundarnir tveir starfsmenn þessara stofnana. Hugmyndin að baki bókinni er að landsmenn geti gengið um Öskjuhlíðina með bókina við höndina og flett upp á öllu, sem þar gefur að líta. Höfundar bókarinnar eru Helgi Sigurðsson, sagnfræðingur á Ár- bæjarsafni og Yngvi Þór Loftsson, landslagsarkitekt hjá Borgar- skipulagi Reykjavíkur. í bókinni koma ýmsar staðreyndir fram og þar má meðal annars sjá hversu mikið Öskjuhlíðin hefur breyst frá því að byrjað var að gróðursetja tré í henni um 1950. Þar segir ennfremur að í Öskjuhlíðinni hafi Náttúrufræðistofnun talið 135 háplöntur, sem er um 30% íslensku flórunnar og 84 tegundir fugla, þar af 10 árvissa varpfugla. Stríðsminjar og sjávarmörk í Öskjuhlíðinni má glöggt lesa hæstu sjávarmörk við lok síðustu ísaldar, fyrir um 10 þúsund árum og kemur þá í ljós að Öskjuhlíðin var eyja og meginlandið hófst ekki fyrr en við Ártúnsbrekku. Höfundarnir segja að á Öskju- hlíðarsvæðinu sé gríðarmikið af stríðsminjum og miklu meiri en flestir gera sér grein fyrir. Stríðs- minjarnar skráði Helgi í samstarfi við Snæbjörn Pálsson, starfsmann á Reykjavíkurflugvelli en hann fylgdist vel með uppbyggingu þeirra á sínum tíma. Þorvaldur S. Þorvaldsson for- stöðumaður Borgarskipulagsins segir að bókin tengist góðu sam- starfi milli Árbæjarsafns og Borg- arskipulags í skipulagsmálum. Hann segir að í undirbúningi sé að gefa út bækur um Lauganes, Elliðaárdalinn og fleiri þýðingar- mikla útivistarstaði Reykjavík- inga. Boðið upp á skoðunarferð Höfundar ætla að kynna bókina næstkomandi sunnudagskvöld 18. júlí, kl. 20, með því að bjóða hveij- um sem vill að koma og ganga um Öskjuhlíðina undir leiðsögn þeirra. Leiðsöguferðin hefst við Perluna. Bókin kostar kr. 1.250,- og fæst í flestum bóksölum. STEINAR WAAGE r SKÓVERSLUN Yfir 30 tegundir Stæröir: 36-41 Litir: Hvítur, drappaður og blár Stærðir: 36-41 Litir: Hvitur, drappaður Ath.: Breiðir PÓSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLU AFSLÁTTUR Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519 V Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212 Toppskórinn, Veltusundi, sími 21212. J Ódýrir ij. Ixikar HARÐVtOARVAL Útsalan er hafin (§JÚ HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 Laugavegi 97, sími 17015. ÖRYGGISBÓK 4,29 - 4,80% raunávöxtun fyrstu 6 mánuði ársins. Um næstu áramót gengur í gildi sú breyting á reglum Seðlabanka íslands um verðtryggingu að tímabil verðtryggingarviðmiðunar skal vera 12 mánuðir. Verðtryggingartímabil á Öryggisbók verður samkvæmt þessu frá 1. janúar til 31 • desember ár hvert. SPARISJÓÐIRNIR fyrir þig og þtna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.