Morgunblaðið - 15.07.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993
21
Rússar gagnrýna laga-
breytingu Eistlendinga
Moskvu. Reutcr.
RÚSSAR gagnrýndu í gær Eistlendinga fyrir ný lög um
ríkisborgararétt sem hinir fyrrnefndu telja skerða mann-
réttindi rússneska minnihlutans í Eistlandi. Lögunum var
nýlega breytt og segir Lennart Meri Eistlandsforseti að
þá hafi verið farið að tilmælum Evrópuráðsins og Ráðstefn-
unnar um öryggi og samvinnu í Evrópu, RÖSE, sem vildu
að komið yrði til móts við kröfur Rússa.
Tugir rússneskra
landamæravarða
felldir í Mið-Asíu
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESK stjórnvöld hétu því í gær að auka viðbúnað landa-
mæravarða á mörkum Mið-Asíulýðveldanna Tadzhíkistans og
Afganistans en 20 Rússar féllu I átökum við skæruliða frá
báðum löndunum á þriðjudag. Að beiðni stjórnar Tadzhíkist-
ans hafa Rússar haldið uppi gæslu á landamærunum og haft
herbækistöð í landinu frá síðustu áramótum en Tadzhíkistan
var áður Sovétlýðveldi.
Konstantín Kobets, aðstoðar-
varnarmálaráðherra Rússlands,
hvatti rússneska þingið til að sam-
þykkja að sendar yrðu flugvélar
og fótgöngulið úr hernum til að
aðstoða við gæsluna. Mikilvægt
væri að þingmenn samþykktu
strax áætlun yfirmanna hersins.
Hann hefði enn sem komi væri
enga lagalega heimild til að grípa
til raunverulegra hernaðaraðgerða
á svæðinu og „drengirnir okkar
munu [ella] láta lífið“.
Að sögn utanríkisráðuneytis
Tadzhíistans féllu á milli 100 og
200 óbreyttir borgarar á svæðinu
í átökunum sem stóðu í sólarhring
og var beitt sprengjuvörpum. Auk
landamæravarðanna féll liðsmaður
í rússneskri hersveit sem hefur
bækistöð í höfuðborginni, Dús-
hanbe.
Tadzhíkistan hefur margsinnis
kvartað við afgönsk stjórnvöld
vegna meints stuðnings þarlendra
mujahedin-skæruliða við tadzhíska
skæruliða sem flúðu land eftir hörð
innanlandsátök fyrr á þessu ári og
í fyrra.
Að vera eða vera
ekki Shakespeare
London. Reuter.
BRESKIR sérfræðingar í verkum Williams Shakespeare
segja að handrit sem fullyrt var í vikunni að væri að löngu
glötuðu leikriti skáldsins, Cardenio, væri það alls ekki.
Bandaríska vikuritið News-
week skýrði frá því á mánudag
að handritafræðingur í New
York, Charles Hamilton, hefði
sannreynt með rithandar rann-
sóknum að handrit í bresku þjóð-
arbókhlöðunni væri að leikriti
sem William Shakespeare hefði
skrifað í samvinnu við lærisvein
sinn John Fletcher árið 1612.
Hamilton bar saman handritið
og erfðaskrá Shakespeare og
sagðist vandræðalítið geta sann-
að fyrir rétti að leikverkið væri
skrifað af erfðarskrárhöfundin-
um.
Sérfræðingar í skáldverkum
Shakespeare við háskólana í
Oxford og Birmingham gerðu
lítið úr fullyrðingum Hamiltons
og sögðu að líklega hefði skáld-
ið ekki skrifað erfðaskrána sína,
það hefði annar maður gert fyr-
ir hann. „Það sem virðist hafa
átt sér stað er að Hamilton hef-
ur rekist á handrit sem við allir
þekkjum,“ sagði Martin Wiggins
við Shakespeare-stofnunina í
Birmingham-háskólanum. Það
væri að leikritinu „Second Maid-
en’s Tragedy" eftir leikskáldið
Thomas Middleton sem áritun
ritskoðara benti til að skrifað
hefði verið árið 1611.
Rýmingarsala
a kjólum
Verö 3.000 til 7.000 kr.
Elísubúðin,
Skipholti 5.
„Því miður er enn um að ræða
mismunun í lögunum. Yfirlýsing
ráðamanna Eistlands um að réttindi
rússneskumælandi minnihlutans
yrðu virt hefur ekki reynst á rökum
reist,“ sagði talsmaður rússneska
utanríkisráðuneytisins, Sergej
Jastrszhembskí, á fréttamanna-
fundi. „Rússar munu enn sem fyrr
hafa áhyggjur af framvindu mála
í Eistlandi“.
Rússar eru um þriðjungur íbúa
Eistlands og hafa langflestir flust
þangað eftir að landið var innlimað
með valdi í Sovétríkin 1940. Sam-
kvæmt lög„num ber þeim að sækja
um borgararátt eða dvalarleyfi;
velji þeir fyrrnefnda kostinn er það
sett sem skilyrði að umsækjandi
kunni 1.500 orð í eistnesku og hafi
búið í nokkur ár í landinu.
Eistlendingar benda T að það
hafi verið markviss stefna sovéskra
yfirválda að reyna að drekkja þjóð-
erni þeirra með því að flytja Rússa
til landsins. Eistland og hin Eystra-
saltsríkin, Lettland og Litháen,
komust undir yfirráð Rússa á 18.
öld en nutu sjálfstæðis á árunum
milli heimsstyrjaldanna. Löndin
þtjú hafa skipt Rússland miklu
máli vegna landfræðilegrar legu og
einkum hafnaraðstöðu fyrir herflot-
ann.
ERLENT
Reuter
Clinton heitir neyðaraðstoð
BILL Clinton Bandaríkjaforseti kannaði ástand á flóðasvæðum í
miðvesturríkjum landsins í gær og hét því að beita sér fyrir því
að þingið samþykkti tafarlaust 2,5 milljarða dollara fjárveitingu
til þess að bæta tjón sem hlotist hefði af völdum flóðanna. Fór
Clinton í þyrluflug yfir Des Moines en miðborgin er undir vatni
og drykkjarvatn á þrotum. Á myndinni er Chinook-þyrla að flytja
dráttarvél í vatnshreinsiver borgarinnar en vonast er til að starf-
semi hefjist þar að nýju um helgina en þá er búist við að flóðin réni.
Q 1.500 KR. Á MÁNUÐI OG ÞIÐ FÁIÐ
STIGAHUSIÐ teppalagt
Já, það er ódýrara en margir halda að teppaleggja stigana.
Hér eru dæmi um verð á viðurkenndum teppum sem þola mikið álag.
Dæmi 2:8 íbúða stigahús í Stóragerð
Dæmi 1: 6 íbúða stigahús í Flúðaseli.
Staðgreiðsluv. Kr.26.147,- pr. íbúð.
M/afborgunum. Kr. 27.200,- pr. íbúð.
8 mánaðargr. Kr. 3.400,- pr. íbúð.
12 mánaðargr. Kr. 2.300,- pr. íbúð.
18 mánaðargr. Kr. 1.500,- pr. ibúð.
Staðgreiðsluv.
M/afborgunum.
8 mánaðargr.
12 mánaðargr.
18 mánaðargr.
Kr. 22.000,- pr. íbúð.
Kr. 23.200,- pr. íbúð.
Kr. 2.900,- pr. ibúð.
Kr. 1.900,- pr.íbúð.
Kr. 1.300,- pr. íbúð.
Algengt er að útborgun nemi 1/3 af kaupverði og eftirstöðvar greiðist á 6 mánuðum.Sumir
kjósa að greiða með greiðslukorti og dreifa afborgunum á I I til 18 mánaða greiðslutímabi!
Með þeim hætti getur mánaðargreiðsla farið niður í kr. 1.500,- pr. íbúð.
5 ARA BLETTA- OG SLITÞOLSABYRGÐ
Við bjóðum ávallt sérstakt tilboðsverð á teppum fyrir stigahús.
Við fjariægjum gömul teppi, mælum upp, sníðum og leggjum fljótt og vel.
Við lánum störar teppaprufur og sendum ráðgjafa á húsfund ef óskað er.
UMB0ÐSMENN
UM UND ALLT
^X/AR GERÐIRTEPPA ÍTUGUM LíTa
TEPPABÚÐIN
ÖLL GÓLFEFNI
Á EINUM STAÐ
TEPPI» FLÍSAR « PARKET • DÚKAR • MOTTUR ■ GRASTEPPI • VEGGDÚKAR • TEPPAFLÍSAR • GÚMMÍM0TTUR • ÖLL HJÁLPAREFNI
‘wST
® GÓLFEFNAMARKAÐUR • SUÐURLANDSBRAUT 26 • SÍMI 91-681950