Morgunblaðið - 15.07.1993, Síða 39

Morgunblaðið - 15.07.1993, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1993 39 VELVAKANDI Seðlaveski tapaðist SVART leðurseðlaveski með greiðslukorti, skilríkjum o.fl. tap- aðist í tívolíinu við hafnarbakkann sl. sunnudagskvöld. Finnandi vin- samlega hafi samband í síma 656005. Peningaveski tapaðist FJÓLUBLÁTT peningaveski tap- aðist aðfararnótt sl. laugardags í Austurstræti. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 680567 eftir kl. 17. GÆLUDÝR Kettlingar TVEIR kettlingar, læða og fress, 9-10 vikna gamlir óska eftir góðu heimili. Upplýsingar í síma 811330 éða síma 670729. Kettlingar BLÍÐAN og kassavanan kettling og fallega læðu bráðvantar heim- ili strax. Upplýsingar í síma 652573. Kettlingar TVEIR ljúfir 'kettlingar, fress og læða, u.þ.b. 8 vikna, annar svartur og hvítur, hinn grábröndóttur, fást gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 685693. Kettlingar TVEIR kassavanir 7 vikna kettl- ingar, grár högni og svört læða, fást gefins. Upplýsingar í síma 41637 eða 40386. Kettlingar GULLFALLEGIR tveggja mánaða kettlingar, kassavanir og blíðir, fást gefins. Upplýsingar í síma 651946. Kettlingur ÞRIGGJA mánaða kassavön læða fæst gefins á gott heimili. Upplýs- ingar í síma 28747 eftir kl. 16. Köttur í óskilum GULBRÖNDÓTT fress, u.þ.b. þriggja mánaða, með hvítar loppur og hvíta týru í rófu, fannst við Keldur sl. föstudag. Kannist ein- hver við kettiinginn má hann hringja í síma 71015 eða 673700. Hanna. Týndur köttur YRJÓTTUR skógarköttur, læða, tapaðist frá Vesturvangi í Hafn- arfirði. Hún er eyrnamerkt „R3H010“. Hafi einhver orðið hennar var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 52924. Týndur síamsköttur SÍAMS-fressköttur týndist frá Brúnastekk 9. Hann er með ól. Þeir sem hafa séð til ferða hans vinsamlega hafi samband í síma 870226. LÖGLEGT EN SIÐLAUST KONA hringdi til Velvakanda og hafði þá sögu að segja að hún færi stundum út að dansa og þá oftast í Danshúsið í Glæsibæ. Hún sagði að sú nýbreytni hefði verið tekin upp á staðnum að selja fólki vatn. Ekki væri lengur hægt að fá ókeypis kranavatn heldur ein- ungis kolsýrt vatn á flöskum. Henni finnst það siðleysi af hálfu veitingahúsaeigenda að láta gesti greiða aðgangseyri, sem er í Dans- húsinu í Glæsibæ átta hundruð krónur, en gefa fólki ekki kost á ókeypis kranavatni, sem þó er nóg af. Hvað verður reynt að hafa af fólki næst? — Kannski að láta það borga inn á salemin? ÞAKKIR TIL 10 DROPA NEÐARLEGA við Laugaveginn er kaffihúsið 10 dropar. Það hefur löngum verið vinsælt fyrir heima- bakaðar kökur og létta rétti í há- degi. En nú hefur breyting orðið á hádegismatseðlinum, að farið er að bjóða upp á suður-indverska grænmetisrétti. Með þessu er ekki einungis komið til móts við græn- metisætur, heldur_ alla þá sem unna góðum mat. Ég þakka þeim á 10 dropum fyrir frábæran mat og góða þjónustu hvenær sem ég kem í hádeginu. Einnig hvet ég alla þá sem vinna í nágrenninu eða eru á ferð í bænum að gefa sér tíma til að heimsækja 10 dropa og gleðja bragðlaukana. Takk fyr- ir mig. Kristín Bergmann, Óðinsgötu 5, Reykjavík. TAPAÐ/FUNDIÐ Ljósmynd í heima- tilbúnum ramma FUNDIST hefur ljósmynd í heima- tilbúnum ramma af Elísabetu, 9 ára. Upplýsingar í síma 12983. Stelpujakki tapaðist BLEIKUR stelpujakki tapaðist þann 4. júlí sl. á leiðinni frá vest- urbæ Hafnarfjarðar og upp í kirkjugarð. Finnandi vinsamiega hringi í síma 51771. Týndi dúkkunni á Landspítalanum LÍTIL stúlka, Guðbjörg Ásta Jóns- dóttir, heimsótti móður sína á fæðingardeild Landspítalans 30. júní sl. í þeirri heimsókn týndi hún uppáhaldsdúkkunni sinni sem hún hefur mikla þörf fyrir þegar að svefntíma kemur. Þetta var sem sagt uppáhaldsdúkkan og aðrar dúkkur skipa ógjaman þann sess. Dúkkan er í bláröndóttum kjól og bleikri peysu og hún er hárlaus á höfðinu. Hafi einhver fundið dýkk- una þá er viðkomandi vinsamlega beðinn að láta vita í síma 72290 í Hrafnhólum 8 í Reykjavík. Krist- ín. Regnjakki tapaðist RAUÐUR Ajack-regnjakki gleymdist við snyrtiaðstöðuna á tjaldsvæði að Brunnum skammt frá Hvallátrum eða Látrabjargi fimmtudaginn 8. júlí sl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 35955. Úr tapaðist KARLMANNSTÖLVUÚR með gylltri keðju, Casio, tapaðist í Borgarkringlunni eða í miðbænum sl. mánudag. Heimilisfang, nafn og símanúmer var grafið aftan á úrið en stafirnir orðnir nokkuð máðir. Finnandi vinsamlega hafið samband í s. 671097. Gleraugu fundust GLERAUGU í gráyrjóttri plast- umgjörð fundust fyrir utan Hótel Borg fyrir nokkru. Þetta eru lík- lega lesgleraugu. Upplýsingar í síma 603153 á daginn. Sturla. Leikföng í óskilum LEIKFÖNG fundust á leiksvæði við Landakotskirkju mánudaginn 12. júlí. Eigandi getur vitjað þeirra í síma 24966. GÆLUDÝR Kettlingur I óskilum STÁLPAÐUR kettlingur, svart- og hvítflekkóttur, er í óskilum í Hrísmóum, Garðabæ. Upplýsingar í síma 656868. Köttur í óskilum SVARTUR og hvítur fressköttur (kettlingur), ómerktur, hefur verið á þvælingi við Baldursgötu 12 í Reykjavík síðustu daga. Hann er með mjög mjótt trýni og tvo svarta depla á nefinu. Upplýsingar í síma 25859. Vafasöm leiksýning í Bohmgarvík Frá Sigríði Eymundsdóttur: Það mátti ætla að eitthvað spenn- andi stæði til í Bolungarvík 26. júní sl. er sjónvarpið sýndi fréttamynd af þéttstaðinni bryggju af heima- fólki. í þeim hópi mátti sjá þekkta leikara úr Reykjavík. Það var jú ekki beint leiksýning, er fram átti að fara á bryggjunni, en sýning var það samt, og að mín- um dómi ekki beint skemmtileg. Sægarpar á bátnum Guðný ÍS höfðu verið á sjó, trúlega til að veiða fisk, en óvart hittu þeir á ís- björn, syndandi í sjónum 60 sjómíl- ur norður af Horni. Þeir sáu ekkert annað úrræði en að drepa dýrið og það á ógeðslegan hátt. Það mátti ætla, að annarra kosta hefði ekki verið völ en ráðast að dýrinu. Þarna á bryggjunni var síðan rætt við aðal hetjuna í fyrrgreindu atviki og þar var ekki komið að tómum kofa. Hann vissi að bangsi hefði jú hvort sem er verið að gef- ast upp á sundinu. Þeir eru ekki blankir í líffræði þarna fyrir vestan. Svo bjóst sá, er spurður var, við því að fá nokkurn pening fyrir bangsa, annað hvort í heilu lagi eða á annan hátt. Þarna var peninga- von, ekki veitti af í öllu peningafár- inu í Bolungarvík. Mitt álit á fyrrnefndu atviki er viðbjóður. Ég segi því: Skammist þið ykkar vel og lengi. Ég vona, að við íslendingar eigum ekki marg- ar þessu líkar hetjur. SIGRÍÐUR EYMUNDSDÓTTIR, Njörvasundi 19, Reykjavík. Pennavinir Þýsk 36 ára kona, tveggja drengja móðir, í hlutastarfi á bóka- safni, með áhuga á bókalestri, bréfaskriftum, hjólreiðum og að læra tungumál. Skrifar bréf sitt á góðri sænsku en skrifar einnig ensku og frönsku auk þýsku: Inge Nelhubel, Kastanienweg 45, W-6830 Schwetzingen, Germany. Frá Ghana skrifar 25 ára stúlka með áhuga á ferðalögum, matar- gerð og námi því sem hún stundar en frá því er ekki greint nánar: Nana Ajuah Serwaa, P.O. Box Kl, Cape Coast, Ghana. Hollensk 35 ára kona með áhuga á bréfaskriftum, frímerkjum, sigl- ingum, skíðaferðum, auk þess sem hún safnar greinum um John F. Kennedy fyrrum Bandaríkjaforr- seta, vill skrifast á við konur: Jeanette L. van der Vlies, Menno ter Braaklan 101, 2624 TC Delft, Holland. Frá Tanzaníu skrifar 22 ára pilt- ur með áhuga á tónlist, íþróttum og ferðalögum: Joseph J.S. Shangali, P.O. Box 55152, Dar Es Salaam, Tanzania. Frá Ghana skrifar 27 ára stúlka með áhuga á ferðalögum og sjón- varpi: Araba Asafuabah, P.O. Box A84, Cape Coast, Ghana. Áströlsk 45 ára kona, tveggja dætra móðir, með áhuga á tónlist, útivist o.fl. Vill eignast pennavini í landi þar sem mikið snjóar en aldr- ei fellur snjókorn á hennar heima- slóðum og segist hún t.d. ekki eiga kápu! Þess gerist ekki þörf vegna veðursældar: Lee Weggelaar, 6 Wicks Street, Eden Hill, Western Australia 6054, Australia. ,/ Bg get ekti, munab þai: km bokheUd- arar „ i/instrL heiLL " ekam h&Qrí heiU V' Með morgunkaffinu mönnum þarna, en það er ekki þar með sagt að þeir séu mannætur. Ast er ... TM Reg. U.S Pat 0«.—all rlghts reserved ® 1993 Los Angeles Tlmes Syndicate Nágrannar okkar koma I heimsókn í kvöld. Viltu ekki fara i hreinan nærbol. HÖGNI HREKKVÍSI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.