Morgunblaðið - 15.07.1993, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.07.1993, Qupperneq 44
SlMI 69110o1s1mBRÉF 691181, BÓSTHÓLF lÍöS / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 I RE' THÓÍ FIMMTUDAGUR 15. JULI 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Skýrsla frá OECD Athuga þarf skatt á kvóta eða afla í NÝÚKOMINNI skýrslu sem OECD, Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnun Evrópu, _ hefur samið um umhverfismál á íslandi segir meðal annars að athuga þyrfti árlega skattlagningu kvóta eða afla, hugsanlega í tengshun við samsvarandi lækkun á öðrum álögum. Síðan segir í skýrslunni: „Með því móti gæti stjórnunar- kerfi fiskveiða staðið undir sér í auknum mæli, meira fjármagn fengist til rannsókna á lífríki sjáv- ar og tii varnaraðgerða gegn mengun í sjó.“ I skýrslunni segir að því líffræði- lega markmiði að tryggja vemd fiski- stofna hafi verið náð að því er varði flestar tegundir þó ástand sumra þeirra valdi áhyggjum, t.d. þorsks. Stjórnunarkerfíð hafí stuðlað að hag- ræðingu í sjávarútvegi. Framsal afla- heimilda milli skipa hafi opnað út- gerðarmönnum möguleika á að sam- • -einast um réttindin og nota færri skip og draga þannig úr kostnaði. Ennfremur segir í skýrslunni: „Gjald sem fæst fyrir veiðileyfi og kvóta mætti nota í auknum mæli til að fjármagna hafrannsóknir og styðja þjóðfélagshópa og sveitarfélög sem bera skarðan hlut frá borði við að laga sig að breyttum aðstæðum." Sjá ennfremur á miðopnu. ---------»-♦--♦---- í lífshættu á Evrópumóti JÓN Baldursson, einn af spilurum Islands á Evrópumótinu í brids, var alvarlega veikur allt mótið. Meðan á mótinu stóð bárust fregn- ir af bakveiki Jóns en þegar hann kom heim og fór í læknisrannsókn kom í ljós að hann var með bráða kransæðastíflu. Gekkst hann undir hjartaþræðingu og kransæðaútvíkk- un skömmu síðar. Sigurður B. Þorsteinsson læknir segir að Jón hafí tvímælalaust verið í umtalsverðri lífshættu meðan á Evrópumótinu stóð. Sjá bls. 16: „Keppti á Evrópu- móti ..." Kröftugar laxagöngur LAXAGÖNGUR hafa aldrei verið jafn kröftugar í hafbeitarstöð Silfurlaxs í Hraunsfírði á Snæfellsnesi og síðustu 7-8 daga. Áætlað er að hvern sólarhring hafí 3-4.000 eins og tveggja ára laxar leitað uppruna síns í stöðinni í botni fjarðarins og telur Júlíus B. Kristinsson, framkvæmda- stjóri, ástæðu til að ætla að 4.-6.000 laxar á mánudag sé með því mesta Morgunblaðið/Einar Falur af Atlantshafslaxi sem komið hafí á einum sólarhring í hafbeitarstöð. Hann segir að um 3.500 löxum sé slátrað í stöðinni á hverjum degi og nálgist tala slátraðra laxa 30.000. Þrátt fyrir gott gengi undanfarið varar Júlíus við óraunhæfri bjartsýni því ekki sé hægt að reikna út ferð- ir laxsins. Á myndinni er verið að slátra laxi hjá Silfurlaxi í fyrradag. Mesta atvinmileysi meðal múrara og smiða í áratugi 60% fleiri einstaklingar en í fyrra eru nú án atvinnu í Reykjavík MUN MEIRA atvinnuleysi er núna í Reykjavík en á sama tíma í fyrra og teygir það sig yfir í stéttir, þar sem það hefur varla þekkst áður á þessum árstíma. Hátt í 50 trésmiðir eru nú atvinnu- lausir og í fyrsta skipti í fjölda ára eru múrarar á atvinnuleysis- skrá. Hyá Ráðningarstofu Reykjavíkur eru 60% fleiri skráðir at- vinnulausir en á sama tíma í fyrra eða 2.332 einstaklingar. Grét- ar Þorsteinsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, segir að biðin sé farin að lengjast fullmikið eftir aðgerðum gegn atvinnu- leysi, sem samið var um í kjarasamningum. Yfirvinnubann flugvirkja raskar áætlunum hjá Flugleiðum Líkur á töfum í dag FUNDUR vegna yfirvinnubanns flugvirkja hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara nk. mánudag. Allnokkrar tafir urðu á flugi Flugleiða í gær vegna bannsins og búist er við einhverj- um töfum í dag, fimmtudag, en seint í gærkveldi var ekki Ijóst á hvaða flugleiðum tafir yrðu. Að sögn Jóhannesar Bragason- ar trúnaðarmanns flugvirkja er óbreytt staða í samningavið- ræðum og segir hann samningahorfur dökkar, ekkert hafi þokast í samkomulagsátt. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki hefði verið lagt mat á fjárhagslegt tjón fé- lagsins vegna seinkana en tölu- vert óhagræði hefði af hlotist. „Það er mjög bagalegt að þess- ar aðgerðir skuli koma á háanna- tíma. Við vorum að tryggja fram- tíð þessarar íðngreinar með bygg- ingu flugskýlisins og höfum verið að reyna að fá erlend flugfélög til að koma með sitt viðhald hing- að. Það er ekki auðvelt þegar við getum átt von á verkföllum eða yfírvinnubanni hvenær sem er,“ sagði Sigurður. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Við vinnu FLUGVIRKJAR við vinnu á Védísi í gær en hún átti að fljúga síðdegis í gærdag. Atvinnuleysi hjá trésmiðum í Reykjavík fór í mars upp í um 140 manns eða tæp 15% af félags- mönnum en hefur minnkað niður í 40 til 50 manns í júlí. Grétar segir að ekki virðist, sem atvinnu- lausum muni fækka meira. Á sama tíma í fyrra voru að sögn Grétars 15 til 20 trésmiðir atvinnulausir. Stórfyrirtæki segja upp „Ég óttast að atvinnulausum fari að ijölga snemma í haust, það er vitað meðal annars um upp- sagnir á miklum fjölda manna hjá stórfyrirtækjum,“ segir Grétar. Hann segir að félagið reyni að gera hvað það getur til að tryggja ■ fleirum vinnu. „Okkur finnst reyndar ganga dálítið seint fram- vindan í sambandi við þessi at- vinnuskapandi verkefni, sem var samið um. Sannast sagna stóðum við í þeirri trú þegar við vorum að semja að það yrði gengið í þessi verk strax næstu daga eða allra næstu vikur. Að mínu viti hefur þetta dregist alltof mikið,“ segir Grétar. Þarf að dreifa vinnunni „Meginmálið er auðvitað að reyna að tryggja öllum vinnu og þáttur í því er að reyna að dreifa þeirri vinnu, sem er til ráðstöfun- ar,“ segir Grétar en hann segir að félagið hafi reynt að vinna í þeim málum en talað fyrir daufum eyrum. „Það eru nokkrir stórir vinnu- staðir ekki síst hjá opinberum aðil- um eins og Reykjavíkurborg og ríkinu, þar sem unninn er óheyri- lega langur vinnutími á sama tíma og tugir iðnaðarmanna eru at- vinnulausir," segir Grétar og bæt- ir við að það sé til dæmis ekki í takt við þessar aðstæður að setja af stað stórverkefni í júlí, sem eigi að skila í september. Hann telur að það ætti að setja í útboðsgögn það skilyrði að verkið sé unnið í dagvinnu. Haustið lítur illa út Gísli Dagsson, formaður Múrarafélags Reykjavíkur segir að sjö múrarar séu á atvinnuleysis- skrá hjá félaginu núna en í maí og júní hafí þeir verið milli 10 og 15. Hann segir að atvinnuleysi hafi verið óþekkt hjá múrurum á þessum tíma árs í mörg ár þar með töldu síðasta ári. Múrarar staldri jafnan stutt við á atvinnu- leysisskrám en „þegar fer að hausta og kólna líst okkur frekar dapurlega á ástandið,“ segir hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.