Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993 LEIKARAR eiga sammerkt með flestum öór- um listamönnum að setjast seint eða aldrei í helg- an stein, hvort sem það stafar af kröfum listarinnar eða kjörum lista- manna. I fyllingu tímans fara leik- arar sem starfa við opinberar stofnanir þó ó eft- irlaun, en stíga ófram á svið eftir því sem leikritaval íslenskra leik- húsa, sjónvarps og kvikmynda- gerðar býður upp ó. Nokkrir valin- kunnir leikarar hafa nóð eftir- launaaldri í vor eða ó síðustu órum, en enginn þeirra hyggst leggja upp laup- ana í leiklistinni, enda „krónískur sjúkdómur fremur en vinna,“ eins og einn þeirra orð- aði það. Þeir voru allir róðnir sam- kvæmt reglu sem kveður ó um að þegar sam- anlagður lífaldur opinbers starfs- manns og starfs- aldur hans nói 95 órum megi hann fara ó eftirlaun. Þessi regla hefur nú verið afnumin en gildir enn fyrir þó sem róðnir voru til starfa um og eftir miðja öld- ina. Menningar- kólfurinn mun í dag og næstu helgar spjalla við nokkra af þessum -leikurum, bæði þó sem hættu fyrir nokkru og hafa leitaó fyrir sér í lausamennsku og þó sem eru að nólgast þessi tímamót. ft Morgunblaðið/Kristinn RÓBERT ARNFINNSSON: Búinn að leika allan skalann frá drottni allsheij- ar niður í sjálfan skrattann. RÓBERT „RICHARD er gáfaður og bráðþroska, og hefir, foreldrum sínum til mikils ama, lesið feiknin öll af „hættulegum" og „siðspillandi" skáldskap, sem hann hefir á hraðbergi og vitnar í við hvert tækifæri." Þannig lýsir Sigurður Gríms- son, leikdómari Morgunblaðsins, per- sónueinkennum Richards sem er ein helsta þungamiðja í leikriti Eugene O’Neill, Ég man þá tíð. Róbert Arnfinns- son lék þama sitt fyrsta aðalhlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en rúmu ári áður hafði hann lokið námi hjá Leik- listarskóla Lárusar Pálssonar: „Róbert er kornungur maður og nýgræðingur að heita má, á leiksviðinu, því mjer vitanlega hefir hann ekki áður leikið nema smáhlutverk í Kaupmanninum í Feneyjum og Þórarin í Manni og konu. Róbert færðist mikið í fang er hann tók að sjer þetta hlutverk, því það er erfitt mjög og vandasamt og krefst mikillar leiktækni. En hann leysti hlutverkið af hendi með þeim ágætum að fágætt mun vera eða jafnvel einsdæmi um byijanda á íslensku leiksviði. Hann kom, sá og sigraði og má hiklaust fullyrða að þarna hafi Leikfjelaginu áskotnast „ungi mað- urinn“ sem því hefir svo mjög vanhagað um í mörg ár.“ Ekki ónýtt veganesti fýrir ungan leik- ara. Þegar þessi skrif eru borin upp við Róbert segir hann að slíkur dómur geti verið bjarnargreiði við óreyndan lista- mann, en geri samt þá kröfu að viðkom- andi standi undir lofinu þegar tímar líða. „Menn verða að halda dampi og reyna eftir mætti að falla ekki niður í ein- hveija lágkúru eftir að hafa verið fylgt úr höfn á þennan hátt, og það þarf tölu- vert sterk bein til þess.“ EÐLILEGUR ÖLDUGANGUR Róbert lét fyrst aö sér kveóa órið 1945 í Kaupmanninum í Feneyjum, eins og áður var getið. í sömu uppsetningu stigu Gunnar Eyjólfsson og Baldvin Halldórsson sín fyrstu spor svo orð er BESSI GALSI og kímnigáfa hafa verið aðals- merki Bessa Bjarnasonar sem leikara frá upphafi. Hann vakti strax kátínu sem hinn vitgranni Gvendur smali í Skugga Sveini árið 1952 og næstu ára- tugi skipaði hann ótal ærslafengin eða hláleg hlutverk. Þar má nefna Hvin í Jónsmessudraumi, bumbuslagarann í Doktor Knock og auðvitað Leópold yfir- þjón í Sumri í Týrol, sem var samfelld sigurför. „Sérstæð kímni hans, kátleg svipbrigði, fímleiki og ótrúleg mýkt hafa fyrir löngu vakið athygli," skrifaði Ás- geir Hjartarson í leikdómi um sýning- una, „en aldrei fengið að njóta sín eins vel og í þetta sinn.“ Bessi brá sér í föt hrakfallabálksins, prakkarans, daðrar- ans og ærslabelgsins og virkjaði til fulls meðfædda skopgáfu. Hann hefur haldið stöðu sinni, ekki síst gagnvart nokkrum kynslóðum af æsku landsins, hvort sem það var í mynd hins sársoltna refs í Dýrunum í Hálsaskógi eða skapstyggs föður Emils í Kattholti. LAUNAMUNUR Bessi kaus að leggja fyrir sig lausa- mennsku fyrir tæplega fjórum árum, eftir að hafa verið á samningi við Þjóð- leikhúsið síðan 1952. Hann segist ekki hafa rennt algerlega blint í sjóinn þótt áhættan hafi verið töluverð. „Af minni hálfu fylgdi uppsögninni engin sérstök óvissa. Eg var búinn að ákveða mörgum árum áður að hætta og sagði upp nánast sama dag og tæki- færið kom. Bömin voru farin og húsið klárað, þannig að fjárhagslegt óöryggi var í lágmarki. Hefðu tækifærin ekki látið á sér kræla fjölgaði bara tómstund- um.“ Hann kveðst hafa verið orðinn lúinn af álaginu samfara fastráðningu. „Mað- ur var notaður gegndarlaust í gegnum árin og yfirleitt var um gangstykki að ræða, þannig að fjöldi sýninga fór alit upp í 190 á ári. Eftir þessar sýningar fékk maður síð- an jafn mikið útborgað og þeir sem sátu heima í rólegheitum og biðu eftir launaseðlinum. Það er stutt á milli vin- sælda og þrældóms og það sjá allir hvort á gerandi, og má því segja að ný kyn- slóð leikara hafi komið fram í dagsljósið í skjóli Shakespeares. „Eftir þetta fór að síga á brattann og hlutverkin urðu stærri og viðameiri," segir Róbert, „þó að skipst hafí á tindar og lægðir í þessu eins og öðru og algengt er í öllu lífs- hlaupi.“ Hlutverkalistinn er orðinn langur og þegar gælt er við að leggja saman fjölda uppsetninga og margfalda með tölu sýn- inga á hverri og einni, fallast mönnum fljótt hendur. Utkoman er heil ævi, og myndu stundimar þó ekki segja söguna nema til hálfs. „Já, leiklist er enginn leikur," samsinnir Róbert. „Ef við skoð- um leiklistina liggur í henni gífurlega mikil vinna, bæði líkamleg og andleg. BESSI BJARNASON: Það er stutt á verður ofan á þegar sýnt er alla daga vikunnar og upp í tvær sýningar á dag, eins og gerst hefur. Ég vildi ráða ferð- inni sjálfur það sem eftir var. Ég vildi bæði fjölga frístundum til að sinna bet- ur hugðarefnum og geta stjórnað hlut- verkavalinu, í stað þess að vera settur í öll möguleg og ómöguleg hlutverk, hvert bamaleikritið á fætur öðrum og svo framvegis.“ AF FRJÁLSUM VILJA Breyttu fyrirkomulagi fylgdu kostir. „Sálarlega séð líður mér öðru vísi að koma inn í Þjóðleikhúsið nú en var; af fijálsum vilja í stað þess að vera skikk- aður til að mæta á ákveðnum tíma á æfingu. Mig grunaði líka að launin myndu hækka við þessa ráðstöfun sem kom raunar á daginn. Ég hef aldrei haft jafn mikið að gera en nú þarf ég Til að geta haldið ótrauður áfram verð- ur að sætta ýmsa utanaðkomandi þætti. Leiklistinni fylgir til dæmis mikið álag og hún fellur illa að vanalegum störfum annarra, því hún fer að mestu fram á kvöldin og um helgar. Fólk fer út í hana af einhverri þörf og vegna þess að það telur sig hafa eitthvað fram að færa, þótt tíminn skeri úr um hveijir halda áfram og hveijir heltast úr lestinni. Sumir er heppnari en aðrir og ég þakka forsjóninni fyrir að vera í hópi þeirra sem notið hafa velgengni og tækifæra til að sinna leiklistinni heilshugar. Starfíð veitir mikla fullnægju en er um leið krefjandi og gengur nærri kröft- unum. En þegar menn eru búnir að gegna skyldu sinni áratugum saman og Morgunblaðið/Kristinn milli vinsælda og þrældóms. að vinna mun minna til að fá sömu laun og áður. 0g eitt hlutverk í leikhúsi, sem er kannski þriggja til fjögurra mánaða töm, hækkar launin umsvifalaust. Þar spilar tíminn inn í; eldri leikarar sem geta tekið sömu hlutverk og ég eru að minnka við sig sökum aldurs, þó að þeir haldi flestir áfram að leika fram i andlátið eins og forverar þeirra. Ég hef að vísu leikið jöfnum höndum í gamanleikjum og verkum alvarlegs eðlis, óperum og óperettum, en það em miklu færri sem geta leikið gamanhlut- verkin. Jafnvel þegar litið er til milljóna- þjóðanna sér maður aðeins örfáa leikara sem valda gamanrullum, þannig að við megum hrósa happi að eiga álíka marga gamanleikara og við gerum. Nú vekja menn & borð við Sigurð Sigurjónsson og Örn Árnason hlátur, en á milli þeirra og minnar kynslóðar eru rúm tuttugu hafa enn þol og burði til að halda áfram, sé ég enga ástæðu til að bakka niður. í ýmsum öðrum starfsstéttum þurfa menn að hætta þegar aldri er náð, þó að starfsorkan sé næg, og það fyrir- komulag er einfaldlega miður. Ég er að verða sjötugur og þrátt fyrir það er ald- urinn ekki orðinn mér fjötur um fót. Þannig var ég að ljúka við eitt stærsta hlutverk sem ég hef tekist á við, flæk- inginn í Húsverði Pinters. Þetta fellur betur inn í spilverk náttúrunnar en ætla mætti. Bæði er aldur afstæður eins og við vitum, en einnig hefur ellin breyst í tímans rás. Meðalaldur er orðinn all- miklu hærri en var, og þarf raunar ekki að líta lengra aftur en til þess tíma þegar ég var að alast upp. Þó að fast- ráðningin miðist við sjötugt, get ég hald- ið áfram eins lengi og heilsa leyfír og einhver kærir sig um að horfa á mig leika." ALLT NEMA FLIKK FLAKK Hlutverkin taka stakkaskiptum í sam- ræmi við aukna reynslu leikara og Rób- ert kveðst halda að þroskinn hafí aukist stöðugt. Enda, eins og hann segir sjálf- ur, kennir margra grasa þegar litið er yfír akurinn. „Um kringum miðjan ald- ur, á milli þrítugs og fímmtugs, komu stærstu og viðamestu hlutverkin og það eru fjöldamargir hápunktar í þeim hlut- verkum sem ég hef fengið. Úpptalning yrði bara leiðinleg. í dag veljast þó á mann hlutverk sem eiga ef til vill betur við en áður fyrr og eru kannski einnig afdráttarlausari; leikari á miðjum aldri getur án mikilla tilfæringa leikið sjötug- an mann, en það er verra fyrir sjötugan mann að leika niður fyrir sig. Ég er búinn að leika allan skalann frá drottni allsheijar niður í skrattann sjálfan — allt nema bam í vöggu. Það veitir mér visst sjálftraust að vera orð- inn þetta roskinn og geta samt sem áður tekist á við erfið verkefni og sann- fært sjálfan mig um getu mína að því leyti. I líffræðilega eðlinu liggur þó að allt verður hæggengara. En hlutimir ganga samt, þótt þeir fylgi örlítið öðm tempói en fyrrum; maður fer óneitanlega ekki í flikk flakk fyrirvaralaust. Að minnsta kosti ekki án atrennu." SFr ár, sem sýnir vel hversu fágætir góðir kómikerar eru í leiklistinni." Þegar er búið að ráða Bessa í aðal- hlutverk í tveimur uppsetningum hjá Borgarleikhúsinu í vetur, Spanskflug- unni eftir Amold og Bach sem verður fyrsta verkefni leikársins og Sólar- drengjunum eftir Neil Simon sem kemur á fjalimar á nýju ári. HÆTTUR ENDURTEKNINGA Bessi hefur þótt óhræddur við að koma fram í auglýsingum, en það hefur vafíst fyrir bijósti margra leikara eins og bögglað roð. Óttast þeir flestir að endurtekningin þreyti fólk eða virðing þeirra setji ofan að bendla nafn sitt við sápu, garðhúsgögn eða kaffi. Bessi seg- ir einfaldar ástæður liggja að baki leik í auglýsingu; svo fá tækifæri bjóðist við leik og skemmtun vegna smæðar mark- aðarins, að taka verður gylliboðum aug- lýsenda. Laun ríkisstarfsmanna kalli á önnur úrræði. „Eftirspumin er svo mik- il eftir sumum gamanleikumm að þeir þurfa að vera alls staðar til að anna henni. Sumir era vinsælli en aðrir og þeir sjá peningavon í þessu. Auglýsing getur líka auglýst leikarann ef hún er sýnd í hóflegum mæli og er góð. Þegar ég kom út á land þekkti fólk mig ekki út af vinnunni í leikhúsinu, heldur vegna auglýsinganna. Maður reynir að bak- tryggja sig með því að binda birtingar- fjölda auglýsinga fastmælum, því vita- skuld getur endurtekningin verið hættu- leg. Týpumar geta líka skapað leiða, því það er í lagi að vera dómínerandi karakter í einu hlutverki, en menn mega gæta sín að ofnota þá ekki eins og kem- ur fyrir á bestu bæjum.“ En hvemig hefur hann sloppið við að vera jaskað út? „Ég veit það ekki fyrir vist. Mér hefur gefíst best að vera einlægur og sannur og vaka yfír tíman- um; koma með rétt tilsvar á réttum tíma í hita leiksins. Ég hef stundum farið í kringum leiktextann þegar aðstæður eru réttar, eins og einhveijir vita, og tel það hreina nauðsyn. Smá spuni hjálpar mér að viðhalda ferskleika gagnvart hlut- verkum sem ég gjörþekki og ýtir líka við mótleikurum. Þegar þeir vita ekki á hveiju gæti verið von, vakna þeir og líta í kringum sig.“ SFr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.