Morgunblaðið - 06.08.1993, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1993
B 3
GÍSLI á Hofl fyrir framan kúluhúsið sem hann lét reisa.
arbú í Skaftafells- Árnes- og Rangár-
vallasýslu. Hann telur ekkert ólíklegt
að hann eigi eftir að loka hringnum
og fjalla um hrossaræktendur á Vest-
urlandi.
Gísli gefur hrossaræktarbækumar
út á íslensku, ensku og þýsku til að
áhugamenn um hesta geti kynnt sér
hvaða hrossastofnar séu á hveijum
bæ og hvemig að ræktun sé staðið.
Á þennan hátt á kaupendum líka að
vera unnt að velja sér hesta af þeim
stofnum sem þeir hafa mest álit á.
Einungis fá hrossabændur sem
eiga hross í ættbókum að vera með
í bókinni. Þeir aðilar styrkja síðan
útgáfuna og fá bækur í staðinn. Gísli
segir að unnendur íslenska hestsins
erlendis og þá einkum Þjóðverjar
hafi tekið bókinni vel.
— En hvemig datt Gísla í hug að
fara að gefa út bækur?
„Það kom til þannig að á ættar-
móti sem haldið var árið 1988 var
mér ásamt tyeimur öðrum falið að
koma út niðjatali ættarinnar. Á end-
anum lenti vinnan á mér og þannig
varð fyrsta niðjatalið til.“
Gísli segir óvíst að niðjatölin verði
fleiri en hann er þegar búinn að
gefa út. Hvorttveggja er að þeirri
útgáfu fylgja mikil ferðalög og fjár-
hagsleg áhætta sem hann er ekki
viss um hann sé tilbúinn að taka.
Verkar hákarl
— Þú hefur fengist við að verka
hákarl?
„Það var eiginlega tilviljun sem
réð þvf-að ég fór að dunda mér við
það. Birgir Þorbjörnsson skipstjóri á
Arnari á Skagaströnd kom til mín
fyrir nokkmm ámm og það kom í
ljós að hann hafði þurft að henda
fjórum hákörlum því enginn vildi
taka þá til geymslu. Ég spurði hann
I hvers vegna hann hefði ekki leitað
til mín þar sem ég var með frystigám
og hann tók mig á orðinu. Næst
þegar hann fékk hákarl tók ég við
honum. Ég kunni ekkert til verka,“
segir Gísli og brosir við tilhugsunina
þegar hann stóð frammi fyrir fyrsta
hákarlinum og starði á hann ráð-
þrota. Það gerði hann ekki lengi
enda ólíkt honum að gefast upp.
Gísli hafði samband við nokkra vana
menn og bað þá ráða. Þeim bar ekki
saman um tímann sem tekur að
kæsa hákarl né um verkun þannig
að Gísli tók meðaltalið. „Á endanum
tókst þetta vel.“ Annars vill hann
ekki gera mikið úr hákarlaverkuninni
en segist þó ekki neita hákarli ef
hann býðst. „Ég hef gaman að því
að bjóða kunningjum bita og bita.“
Póstkort af þéttbýllskjörnum
Gísli hefur að undanförnu gefið
út póstkort af þéttbýlis- og sögustöð-
um á landinu. Hann er kominn með
um 90 staði á póstkort og ýmist eru
þau á tveimur, fjórum eða sex mis-
munandi tungumálum, jafnvel á jap-
önsku. Hann segir að fallegasta kort-
ið sé af Grundarfirði enda staðurinn
rómaður fyrir náttúrufegurð. Honum
finnst gaman að stússa við korta-
gerðina, segist líka hafa kynnst
fjölda fólks og fræðst um land og
þjóð. „Yfirleitt gengur þetta þannig
fyrir sig að sveitarstjórar kaupa upp-
lagið og mér hefur þótt gaman að
kynnast þessum mönnum. Þetta eru
ungir og framtakssamir menn.“
Þegar kortin ber á góma kemur í
ljós að Gísla finnst erfitt að komast
inn á svokallaðan kortamarkað. „Ég
verð var við að kortaframleiðendur
semja við verslanir um að taka ekki
við kortum af öðrum og samkeppnin
er mikil. Það er því heilmikil vinna
að koma kortunum á markað."
Hann Gísli á eftir að hafa einhver
ráð með það, hann leggur ekki árar
í bát segja þeir sem til hans þekkja
og hæla dugnaðinum í honum. ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Breytt og bætt súkkulaðikaka
Áður KAKA hita- einingar Eftir KAKA hita- einingar
125 g smjörlíki 907 125 g ósætt eplamauk.... 50
250 g sykur. 1.015 200 g sykur. 812
2 egg .157 2 egg 157
255 g hveiti 900 100 g heilhveiti 340
3 msk kakó 111 155 g hveiti 547
1 1/2 dl mjólk 104 3 msk kakó 111
1/2 tsk salt 1 1/2 dl léttmjólk 70
1 tsk matarsódi 1 tsk lyftiduft 1 tsk vanilludropar Samtals 3.194 1/2 tsk salt 1 tsk matarsódi 1 tsk lyftiduft 1 tsk vanilludropar Samtals 2.087
KREM 100 g smjörlíki 727 KREM 80 g smjörlíki 727
375 g flórsykur. 1.522 375 g flórsykur. 1.522
3 msk kakó 111 3 msk kakó 111
1 egg 78 1 egg 78
Samtals 2.438 örlítið vatn ef krem er of þykkt Samtals 2.293
Kaka og krem 5.632 Kaka og krem 4.380
12 sneiðar, hver sneið: 470 12 sneiðar, hver sneið: 365
5. Yfirleitt er hægt að minnka
sykur um lU án þess að það
breyti bragðinu mikið. Þetta á
sérstaklega við ef í uppskriftina
er notuð vanilla, múskat, kanill
eða allrahanda (allspice).
6. Hægt er að nota allt að helm-
ingi minna af súkkulaðibitum
en uppskriftin segir til um.
Súkkulaði er mjög fitandi og
nær helmingur hitaeininganna
í súkkulaði kemur úr fítu.
7. Ef hnetur eru í uppskriftinni er
hægt að nota allt að helmingi
minna af þeim. Það má ekki
sleppa þeim alveg, en hnetur
eru mjög hitaeiningaríkar, til
dæmis eru um 90% af hitaein-
ingunum í valhnetum úr fitu.
■
Áslaug Ásgeirsdóttir
Bannað að segja bless
þegar farið er úr kínverskri trúlofunarveislu
VÍÐA varðar trúlofun ekki aðeins parið sem gefur hjúskaparheit,
heldur einnig fjölskyldu hinna tilvonandi hjóna.
Hérlendis eru trúlofanir stundum
í tísku og stundum ekki. Algengast
mun vera að hér setji unga ást-
fangna parið upp hringa í einrúmi
og geri sér síðan dagamun, til dæm-
is með því að fara út að borða. Dag-
setning brúðkaups er ekki endilega
ákveðin við trúlofun og trúlofunar-
gjafir eru fremur sjaldgæfar.
Ástfangnir (útlöndum
Hjá evrópskum aðalsfjölskyldum
er algengt að fjölskyldur kærustu-
para haldi veislu í tilefni trúlofunar
og gefi unga parinu gjafir. í Kína
eru gamlar trúlofunarhefðir í heiðri
hafðar að sögn Ariels Chen sem
skrifar um málið í nýlegu tölublaði
tímaritsins Travel in Taiwan.
Þegar kínverskt par tilkynnir for-
eldrum sínum að það hyggist trúlofa
sig, leita þeir til spámanns eða spá-
konu sem kannar hvort parið á vel
saman. Einnig er skorið úr um hvaða
dagsetning og tímasetning er gæfu-
legust til trúlofunar.
SamiA um helmanmund
Hafi framtíðarrýnir komist að því
að parið eigi þokkalega framtíð fyrir
höndum, setjast foreldramir að
samningaborði. Næsta skref er
nefnilega að semja um greiðslur til
foreldra stúlkunnar og heimanmund
með henni. Einnig þarf að semja um
það sem kallað er lipin, dósir með
smákökum sem vinir og ættingjar
stúlkunnar fá í trúlofunarveislunni.
Náist samningar er hafist handa við
að undirbúa athöfnina.
Þegar trúlofunardagurinn rennur
upp, vaknar stúlkan yfírleitt mjög
snemma, að sögn Ariels Chen, og
hefst handa við að snyrta sig og
klæða, en það er margra klukkutíma
verk. Fatnaður hennar við þetta
tækifæri er vitskuld rauður og rauð-
leitur, en rauður er talinn boða gæfu
í Kína. Flugeldum er skotið á loft í
tilefni dagsins og ættingjar stúlkunn-
ar hengja rauðan klút ofan við úti-
dyrnar svo allir geti séð að heimasæt-
an er í þann mund að trúlofast.
Gjafir skipta máli
Trúlofunin fer fram á heimili
stúlkunnar og koma foreldrar piltsins
Radísur
á veisluborðið
RADÍSUR eru herramanns-
matur en auk þess njóta þær
sín vel á veisluborði.
Eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum eru ótal aðferðir
við að skera í þær svo þær njóti
sín sem best. ■
með fé og þær smákökur sem um
var samið. Kínveijar trúa að máli
skipti hvort fjöldi gesta stendur á
oddatölu eða sléttri og er gæfumerki
ef hann stendur á sléttri tölu. Því
hefur myndast hefð fyrir því að fjöldi
gesta úr hvorri fjölskyldu standi á
oddatölu.
Ekki er ólíklegt að með því að
skiptast á gjöfum vilji báðar fjöl-
skyldur sýna í verki að þær óski eft-
ir að stofna til vináttu. Við trúlofun
gefa foreldrar stúlkunnar fjölskyldu
piltsins m.a. herrafatnað og blóm af
tijám granatepla, sem tákna gæfu
og von um að parið muni eignast
marga syni.
Rautt umslag með penlngum
Daginn sem trúlofunin fer fram
nýtur stúlkan aðstoðar konu sem
vegnað hefur vel í lífínu. Með því
móti telja menn líklegra að gæfudís-
ir fylgi einnig hinni tilvonandi brúði.
Stúlkan er kynnt formlega fyrir verð-
andi tengdafjölskyldu sinni og nýtur
síðan aðstoðar gæfuríku konunnar
við að færa tengdafólkinu sykrað te.
Það er í þessu tilfelli tákn um góð
samskipti stúlkunnar við „nýju“ fjöl-
skylduna.
Meðan tengdafólkið tilvonandi
drekkur úr tebollum sínum fer stúlk-
an afsíðis, en þegar hún kemur aftur
ber henni að taka saman bollana og
afhendir hver gestur henni þá rautt
umslag með peningum um leið og
hann afhendir bollann sem hann
drakk úr.
Stúlkan situr á háum stól með
fæturna á skemli, en unnustinn
stendur við hlið hennar þegar þau
skiptast á hringum og öðrum
skrautumunum. Sá aðili sem
vill hafa undirtökin í hjóna-
bandinu þrýstir vel á eftir
hringnum sem hann lætur á
fíngur hins. Við tekur kvöldmál-
tíð og þegar brúðguminn er
formlega kynntur fyrir
tilvonandi tengdafjöl-
skyldu, skála
gestir fyrir hon-
um.
Um-
sömdum
smákökum er deilt milli ættingja og
vina stúlkunnar að lokinni máltíð.
Að svo búnu yfirgefur ijölskylda
unnustans húsið hljóðlega og án þess
að kveðja, vegna þess að því er trúað
að annars kalli þeir ógæfu yfír báðar
fjölskyldurnar. ■
Brynja Tomer
SKIPST á hringum. Sá sem vill
hafa undirtökm í væntanlegu
hjónabandi þrýstir hringnum þétt
upp á fingur tilvonandi maka síns.
Ef öngull
krækist íhendi
eða auga veiðimanns
ÞAÐ hefur komið fyrir fær-
ustu veiðimenn að þeir kræki
öngul í hendina á sér eða
andlitið á þeim sem er að
horfa á. Hvað er til ráða
gerist svona slys úti í miðri á
langt frá mannabyggð?
„Það eina sem hægt er að
gera er að klippa frá önglinum
og fara til næstu heilsugæslu-
stöðvar og láta draga öngul-
inn þar úr,“ segir Haukur
Árnason sérfræðingur á
Borgarspítalanum. „Það er
ekki hægt að draga út öngul-
inn nema með deyfingu og
þarf sérstakt lag við að ná
hakinu út án þess að það
” skemmi of mikið útfrá sér.“
Haukur segir að yfirleitt þurfi
viðkomandi líka að fá einhver
lyf til að hindra sýkingu.
Hann bendir á að yfir veiði-
tímann komi það alltof oft fyrir
að öngull festist í andliti eða
höndum. Það eru þó alis ekki
alltaf veiðimennirnir sjálfir sem
verða fyrir slysum af þessum
orsökum heldur líka þeir sem
eru að horfa á. Reglan er sú
að standi fólk fyrir aftan rétt-
hentan veiðimann eiga þeir að
vera vinstra megin við hann og
síðan öfugt. ■
Enn er deilt um
hvort rétt sé að snýta sér
í vasaklút eða sjúga upp í nefið
LÆKNAR og vísindamenn munu lengi hafa deilt um það hvort gott
eða vont sé að snýta sér. Sumir halda fram að betra sé að sjúga upp
í nefið. Um þetta er m.a. fjallað í bókinni Læknisráð Munsters» eftir
danska lækninn Erik Munster.
Þeir sem aðhyllast hugmyndir um
að betra sé að sjúga upp í nefið
rökstyðja það svo, að nefsog sé hrein-
legasta aðferðin til að losna við slím-
ið sem angrar, því smitefni slímsins
eyðist i magasýrum eftir að þvi hef-
ur verið kyngt. Með því að snýta sér
dreifast smitefnin í skítugan vasaklút
eða í úðagusum frá nefinu.
Erik Munster segir að þegar lítils-
háttar nefrennsli angri fólk, t.d.
vegna ofnæmis eða þegar slímið er
injög þunnt, sé heppilegast að sjúga
upp i nefið. Ekkert mæli þó gegn
því að nota vasaklút þar sem þunna
slímið sé ekki smitandi. Sé útferðin
töluverð segir Munster að eðlilegast
sé að hreinsa nasirnar með því að
snýta sér.
Ekki of harkalega
„Menn ættu að forðast að beita
of miklum-blæstri eða þrýstingi er
þeir snýa sér, því það gæti orðið til
þess að smitefni fari í beinholumar.
Best er að hreinsa aðra nösina í einu
og vasaklútum á að halda eins hrein-
um og mögulegt er.“
Böm geta vanið sig á að sjúga
nánast viðstöðulaust upp i nefíð og
telur Munster að það gerist nær und-
-antekningarlaust í kjölfar kvefs. Hann
ráðleggur foreldmm slíkra bama að
láta lækni kanna hvort um beinholu-
bólgu sé að ræða og sé svo ekki, að
láta kækinn lönd og leið. „Foreldrar
eru alltaf að hvetja börn til að snýta
sér þegar þau eru kvefuð. Þeir verið
ánægðir með hversu vel bömin taka
tilsögninni," segir hann. BT ■