Morgunblaðið - 06.08.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1993
6 11
Odýrt bensín
ÞAÐ ER heilmikil íþrótt í Evrópu að fara yfir landamæri til að
kaupa ódýrara bensín en í heimalandinu. En það er ekki fyrr en
menn eiga leið með bílinn til Bandaríkjanna að sparnaðurinn fer
að verða eftirtektarverður því þar er bensínverð með allra lægsta
móti um þessar mundir. Þar er verðið á lítranum af bensíni allt
niður undir níu krónur íslenskar... Já, 9 krónur.
Hjólbarðablús
í danska fagblaðinu Dækspec-
ialisten er því haldið fram að áhugi
bíleigenda á hjólbörðum sé í algjöru
lágmarki. Þar er vitnað til könnun-
ar sem einn af stóru hjólbarðafram-
Ieiðendunum stóð fyrir. Þar kom
fram að 30% aðspurðra gátu ekki
nefnt eina einustu hjólbarðategund
og annar hver bíleigandi vissi ekk-
ert um hjólbarðastærðir og ekki
einu sinni stærð hjólbarðanna undir
sínum eigin bíl.
Meira ál í bílum
Nýjar rannsóknir benda til þess
að eftirspurn bílaframleiðenda eftir
áli muni aukast í Bandaríkjunum
út þennan áratug. Sérfræðingar í
Bandaríkjunum telja að árið 2002
verði um fjórðungur heildareftir-
Thomas Pappert
spurnar eftir áli
í Bandaríkjun-
um tilkomin
vegna öku-
tækjafram-
leiðslu. Þeir telja
jafnframt að
eftirspum eftir
áli muni einnig
aukast verulega
meðal framleið-
enda véla og verkfæra.
Sölutækni
Á hádegisverðarfundi nýlega var
Thomas Pappert aðstoðarforstjóri
Chrysler í Bandaríkjunum spurður.
að því hvernig best væri að selja
bíla. Hann sagði að árangursríkast
væri að kynna til sögunnar nýja
gerð. „Sé útfærslan þriggja ára
gömul þá er gefinn 500 dollara
afsláttur,“ sagði hann. „Sé hún
Peugeot 405
fjögurra ára gömul er gefínn 1
þúsund dollara afsláttur. Sé hún
fimm ára gömul er reynt að ganga
til samstarfs við ijármögnunariyr-
irtækin. Og sé hún sex ára gömul
er hvort tveggja gert.“ En hvernig
færi Pappert að því að selja tuttugu
ára gamlan pallbíl? „Við myndum
bjóða antík-númeraplötur með hon-
um í sárabætur,“ sagði Pappert.
Þess má geta að Chrysler býður
loks upp á nýja útfærslu af Ram-
pallbílnum næsta haust, en hann
hefur verið framleiddur því sem
næst óbreyttur í 21 ár.
Bílainnflutningur bannaður
til Kína
Kínversk stjómvöld hafa bannað
innflutning á bílum til landsins
næstu sex mánuði til að koma í
veg fyrir þenslu í efnahag lands-
ins, en einnig hafa stjórnvöld ótt-
ast að gjaldeyrisforði þjóðarinnar
myndi minnka mikið við óheftan
innflutning. Á síðásta ári vom
fluttir inn 225 þúsund bílar til Kína
sem er mesti innflutningur frá
1985. Bann við innflutning á bílum
var einnig sett á árið 1988 og dróst
þá sala á bílum til Kína verulega
saman í tvö ár. í Kína þar sem
íbúamir em 1.160 milljónir talsins
em um fímm milljónir fólksbíla,
flutningabíla og fólksflutningabíla.
Þar af em fólksbílar 1,5 milljónir
og aðeins 37 þúsund þeirra em í
einkaeign. Að meðaltali þarf hver
Kínverji að reiða fram sem svarar
50 árslaunum til að eignast bifreið.
í Þýskalandi á annar hver lands-
maður bifreið en einn af hverjum
1.000 í Kína.
Nýr Peugeot405
Búist er við að arftaki Peugeot
405 komi á markað í byrjun næsta
árs og fær hann aukastafína 406.
Heyrst hefur að bíllinn byggi að
einhverju leyti á hönnun Citroen
Xantia. Salan á stærsta bílnum í
Peugeot fjölskyldunni, 606, hefur
gengið afleitlega og því hyggjast
Peugeot verksmiðjurnar koma með
þennan nýja bíl á markað. Bíllinn
verður með sömu vélaútfærslum
og 405 en auk þess verður hann
fáanlegur með þriggja lítra, sex
strokka vél, 172 hestafla vél. ■
Mercedes smíðar fyrir Evrópu-
markað í Bandaríkjunum
MERCEDES hyggst byggja verksmiðju í Bandaríkjunum til að fram-
leiða fjórhjóladrifna sportbíla að mestu fyrir Evrópumarkað. Verk-
smiðjan mun kosta yfir 20 milljarða ISK.
I verksmiðjunni verða framleiddir
nýir fjórhjóladrifnir sportbílar og
verksmiðjan mun veita 1.500 manns
vinnu og framleiða 60 þúsund bíla á
ári, þar af 40 þúsund fyrir Evrópu-
markað og 20 þúsund fyrir Banda-
ríkjamarkað. Ríkisstjórinn í Ten-
nessee Ned McWherter hefur gefíð
vilyrði fyrir staðsetningu verksmiðj-
unnar í austurhluta fylkisins en
stjórn fyrirtækisins hefur ekki tekið
ákvörðun um hvar henni verður fyrir-
komið. Ákvörðun þar að lútandi verð-
ur tekin í september að sögn tals-
manna Mercedes.
Tennesse er eitt fjögurra ríkja sem
koma til álita sem staður fyrir verk-
smiðjuna. Linda Paulmeno, talsmað-
ur Mercedes Benz Project Inc., segir
að fyrirtækið sækist eftir stað þar
sem er að fínna dugmikinn vinnu-
kraft, þétt flutninganet og góðan
aðgang að höfnum því þriðjung fram-
leiðslunnar á að flytja úr landi.
í miðju austurhluta Tennessee er
aðgangur að þremur hraðbrautum
og skipgengri á. Þar eru einnig með
bækistöðvar skammt frá Nashville
Nissan ' og Satum-verksmiðjurnar.
Nissan var reyndar fyrsti bílafram-
leiðandinn sem setti upp bækistöðvar
í Tennessee árið 1988. Nissan hefur
fjárfest um 90 milljarða í verksmiðju
sinni í fylkinu og þar eru framleiddar
tegundirnar Sentras, Altimas og
Nissan Quest-Mercury Villager
smásendiferðabílar.
General Motors hefur fjárfest um
120 millj. ÍSK í Satum-verksmiðju
sína í fylkinu og þar em starfsmenn
um 6.700 talsins. ■
Nýr Trans Sport
NOKKRAR breytmgar hafa verið gerðar a 1994 árgerðinni af Pont-
iac Trans Sport. Eins og sést á mynd af frumgerðinni hér að ofan
hefur grillið og stuðarinn fengið nýtt útlit og sömuleiðis eru komn-
ar nýjar framlugtir og þokuljós á bílinn. ■
Toyota Corolla, sigurvegarinn í neðri flokki með-
alstórra bíla, með þrjár bilanir á hverja 1.000 bíla.
Toyota Carina, sigurvegarinn í efri flokki meðal-
stórra bíla, með þijár bilanir á hverja 1.000 bíla.
Bizzarrini
frumgerð
EINN þekktasti bílhönnuður Ítalíu, Giotto Bizzarrini, hefur í sam-
vinnu við bandaríska athafnamanninn Barry Watkins smíðað frum-
gerð bíls sem hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Bíllinn
kallast BZ 2001 og er vægast sagt rennilegur en hentar tæpast
til notkunar við íslenskar aðstæður.
öll skráð tilvik neyðarhjálpar ADAC
skoðuð sem hlutfall af hverjum 1.000
nýjum bílum sömu tegundar eða ár-
gerðar.
í þremur af fjórum flokkum skara
japanskir bílar fram úr eins og reynd-
ar einnig varð raunin í fyrra. Traust-
asti smábíllinn er Nissan Micra en
Toyota Corolla er traustastur í neðri
flokki meðalstórra bíla. í efri flokki
er það Toyota Carina. Þýskar bílteg-
undir hafa hins vegar vinninginn
hvað lága bilanatíðni snertir í flokki
meðalstórra/stórra bíla og þar fer
fremstur Mercedes. Opel fær hins
vegar slæma útreið því Opel Calibra
er §órum sinnum hættara við að
bila en besta bílnum í efri flokki
meðalstórra bílar og Opel Omega
sömuleiðis í flokki meðal-
stórra/stórra bíla.
Fiat Tipo og Seat Ibiza er einnig
mjög hætt við bilunum en verst er
þó útkoman hjá austur-evrópskum
bílum, s.s. Skoda Favorit og Lada
Samara, sem báðir voru með yfír 33
bilanir á hveija 1.000 bíla.
Smábílar
Nissan Micra var með lægsta bil-
anatíðni, eða fjórar bilanir miðað við
hveija 1.000 bíla. Sigurvegarinn frá
árinu áður, Mazda 121, var ekki með
í úttektinni að þessu sinni þar sem
ekki seldust yfír 10.000 bílar í Þýska-
landi í fyrra. I öðru sæti varð Suzuki
Swift, en þýskir bílar, VW Polo og
Ford Fiesta, skipuðu sér í þriðja og
fjórða sæti. Lestina rak hins vegar
Seat Ibiza með 16 bilanir á hveija
1.000 bíla.
Meðalstórir/neðri flokkur
Sigur japanskra bíla í þessum
flokki var sexfaldur því Toyota,
Mazda, Mitsubishi, Suzuki, Nissan
og Honda röðuðu sér í efstu sætin.
Toyota Corolla var með þijár bilanir
á hveija 1.000 bíla en skammt á
eftir kóm Mazda 323. Á eftir jap-
önsku bílunum komu Renault 19,
VW Golf, Jetta og Vento bensínbílar
og díselbílar, Ford Escort og Orion,
Peugeot 309 og Opel Astra og Kad-
ett. Hins vegar var niðurstaðan ekki
jafntraustvekjandi hvað snertir dísel-
b-,a Ford og Opel tegundanna. Fiat
’.ipo og Tempra stóðu sig heldur
ekki vel. í neðsta sæti voru bílar frá
Austur-Evrópu, Skoda Favorit með
34 bilanir og Lada Samara með 37
bilanir á hveija 1.000 bíla.
Meðalstórir/efri flokkur
Toyota Carina reyndist traustasti
bíllinn í þessum flokki með þijár bil-
BZ 2001 - glæsilegur
farkostur.
anir á hveija 1.000 bíla. Fast á eftir
honum komu Mercedes 190 dísel og
Mazda 626. í fjórða sæti kom Nissan
Primera og Bluebird og í fímmta
sæti Mercedes 190 bensínbíll. Næstir
komu Honda Accord, Audi 80, BMW
3-línan og Audi 80 dísel. Opel Vectra,
VW Passat, Ford Sierra, Peugeot
405, VW Passat dísel stóðu sig mun
verr, en Opel Calibra sem var með
í fyrsta sinn í úttekt ADAC vermdi
neðsta sætið með 14 bilanir á hveija
1.000 bíla.
Meðalstórir/stórir
Þýskir bílar röðuðu sér í efstu
sætin í þessum flokki. Gamalkunnur
sigurvegari í þessum flokki, Merce-
des 200-300 dísel, brá ekki út af
vananum og stóð uppi sem traust-
asti bíllinn með fimm bilanir á hveija
1.000 bíla. S-lína Mercedes, sém
hafnaði í öðru sæti, og Ford
Scorpio, sem hafnaði í þriðja
sæti, bættu sig verulega frá
síðustu úttekt ADAC, en
eins og þá lenti Opel Omega
í neðsta sæti með 20 bilanir
á hveija 1.000 bíla. ■
Bizzarrini hannaði hraðakstursbíl-
inn 250GTO sem Ferrari smíðaði sem
og Lamborghini V-12. Auk þess
hannaði hann nokkra hraðskreiða
bíla sem voru smíðaðir undir hans
nafni á sjöunda áratugnum. Watkins
hitti Bizzarrini fyrst á Pebble Beach
sýningunni 1990 þar sem afrakstur
af ævistarfi Bizzarrini var kynntur.
Watkins var hrifínn af Spyder SI
sportbíl sem Bizzarrini hafði hannað
og dreymdi um að hanna bíl í sam-
vinnu við ítalska meistarann. Af-
rakstur samvinnu þeirra er BZ 2001
en allt er á huldu um hvort frumgerð-
in verði eini bíllinn eða hvort lág-
marksframleiðsla verði hafín á bíln-
um.
Byggir á Ferrari
Frumgerðin byggir að verulegu
leyti á undirvagni Ferrari Testarossa
en Watkins segir að verði fleiri bílar
framleiddir verði þeir með undirvagni
hönnuðum af Bizzarrini og fjaður-
búnaði hraðakstursbíla. Ýmis smá-
vægileg hönnunaratriði gera BZ
2001 frábrugðinn öðrum bílum.
Stefnuljósin að framan virka t.a.m.
sem stöðuljós þegar þau eru ekki í
notkun og stöðuljósunum að aftan
er haganlega fyrirkomið í stuðara
bílsins. Sætin eru leðurklædd og
mælaborðið bogadregið. ■