Morgunblaðið - 06.08.1993, Page 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1993
Skutbíllinn eða langbakurinn, Forman, er um 40 cm lengri en Favorit og þvi hent-
ugri ef menn kjósa sér ferðabíl eða þurfa á flutningsrými að halda í öðrum tilgangi.
Morgunblaðið/Þorkell
Skoda Favorit er lítt framúrstefnulegur og eru allar útlinur fremur kantaðar.
Skoda Favorit
kominn með marqar endurbætur
NÝIR Skoda Favorit og Forman voru kynntir
hjá umboðinu, Jöfri í Kópavogi, síðastliðið vor
og hafa þeir selst í á annað hundrað eintök-
um. Nú er vakin sérstök athygli á öllum þeim
endurbótum og breytingum sem gerðar hafa
verið á bílunum eftir að Volkswagen-verk-
smiðjurnar keyptu umtalsverðan hlut í Skoda-
fyrirtækinu og tóku að ráða þar framvindu
mála. Bent er á 548 atriði sem endurbætt
hafa verið og þótt flest þeirra séu kannski lítt
sjáanleg og meira á tæknisviðinu má þó benda
á nýtt mælaborð og nýjar klæðningar að inn-
an, nýja vatnskassahlíf, ný hurðahandföng og
nýjar felgur hið ytra. Skódinn hefur sem sagt
tekið miklum breytingum og mun gera það
áfram næstu misserin ef marka má yfirlýsing-
ar forráðamanna verksmiðjanna og má búast
við að í næstu breytingahrinu komi meira fram
af augljósum atriðum. Við lítum í dag á Skoda
Favorit GLXi sem kostar staðgreiddur og til-
búinn á götuna kr. 658 þúsund en þetta er
framdrifinn fimm manna fólksbíll.
Mælaborðið er einnig með þessu ferkantaða yfirbragði.
Skoda Favorit er ekki beint
framúrstefnulegur í útliti,
|hb frekar kantaður miðað við
hefðbundnar og ávalar línur
í flestum nýjum bílum í dag.
Má því segja að hann sé
2} ekki lengur á undan sinni
samtíð eins og gamli „blöðr-
52 uskódinn" var í þá daga því
hann var ávalur á alla kanta
og þótti raunar ekki merki-
legt þá. En Skoda Favorit
samsvarar sér vel, er verk-
legur og sterklegur tilsýndar. Eins
og fyrr segir er vatnskassahlífín
ný og er ósköp fyrirferðarlítil og
vindskeið að framan er einnig ný,
þá eru hurðahandföng, bensínlok
og feigur nýtt og svartir rammar
um dyrastafí og afturrúður. Stuð-
arar eru áberandi, fram- og aft-
urluktir stórar og rúður einnig
stórar. Vélarhúsið hallar dálítið
fram og afturendinn er með nokk-
uð hefðbundnu lagi hlaðbaks og
allt er þar jafn kantað og í beinum
línum.
Ýmislegt nýtt að innan
Hið sama verður uppi á ten-
ingnum þegar litið er inn í bílinn.
Mælaborð er nýtt en byggt upp
af ferköntuðum römmum, mælar
eru nýir og sömuleiðis er stýrið
nýtt. Sætin sem hafa fengið nýtt
áklæði eru nokkuð einföld í snið-
um en furðu þægileg þótt stíf
séu. Þau veita góðan stuðning við
bak og hliðar. Hnakkapúðar eru
á fjórum sætum og hægt að stilla
hæð öryggisbelta. Rými er gott
bæði í fram- og aftursætum og
farangursrýmið tekur 240 lítra
og er stækkanlegt í 550 lítra með
því að leggja fram bak aftursæt-
is. Allt er þó með fremur einföldu
móti hið innra og ekki mikið lagt
uppúr þægindum eða prjáli. Skód-
inn er með öðrum orðum hag-
kvæmur og búinn öllum nauðsynj-
um en hefur engan óþarfa.
Skódinn er búinn 1.300 rúm-
sentimetra og 55 hestafla vél með
Vélin er 55 hestöfl, með hægu viðbragði en þokkalegri vinnslu. Meðal endurbóta á tæknisviðinu er
nýtt hemlakerfi, endurbættur drifbúnaður og bein innspýting frá Bosch.
rafeindastýrðri kveikju. Hann
hefur fimm gíra handskiptingu
og að framan er hann búinn
MacPherson-fjaðrabúnaði en þve-
rás að aftan með örmum og
gormafjöðrun.
Það er fljótlegt og einfalt að
átta sig á öllu þegar sest er und-
ir stýri á Skódanum. Stjómtækin
eru vel staðsett og rofar skýrir
og skilmerkilegir, gott að grípa á
stýrinu, hemlar þægilegir og gír-
skipting í meðallagi - hún mætti
vera liprari - það er það sem
fyrst verður fyrir ökumanni ef
nefna á einhvem galla.
Krafturinn er heldur ekkert
sérstakur en leynir þó á sér, þ.e.
viðbragðið er rólegt en þegar
hraða er náð er ágætt að halda
honum og var t.d. engum vand-
kvæðum bundið að skjótast fram-
úr í þungri umferð og halda góð-
um meðalhraða á ferð um Reykja-
nesbrautina. Það er helst í streitu-
mikilli borgarumferðinni sem þess
gætir að afl skorti í viðbragði en
ef menn geta sætt sig við það
dugar Skódinn vel í borgarsnattið.
Og ef vinnslan á ferðahraða á
þjóðvegi verður ekki að ráði minni
við nokkra hleðslu má fullyrða
að Skoda Favorit dugi vel til
ferðalaga um iandið. Ef ekki ferð-
ast fleiri en tveir eða þrír er hægt
að nýta stækkanlega farangurs-
rýmið sem er þá yfrið nóg.
Lítil eyðsla - gott verA
Bensíneyðslan er sögð vera 5,7
lítrar á jöfnum 90 km hröðum
akstri, 7,8 lítrar á 120 km hraða
og 7,9 lítrar í bæjarakstri og er
það vissulega nauðsynlegur kost-
ur á tímum aðhalds og sparnaðar
og ber að hafa í huga við val á bíl.
Verðið er sennilega það besta
við bílinn, 658 þúsund krónur fyr-
ir GLXi gerðina en 598 þúsund
fyrir LXi gerð. í dýrari bílnum fá
menn það sem kallað er iúxus
innréttingu, þ.e. heldur er meira
í hana lagt með tvískiptu aftur-
sæti, snúningshraðamæli, tölvu-
klukku, þokuljósum og hliðarlista.
Þá er einnig fáanlegur Forman
langbakurinn sem kostar 697 eða
757 þúsund krónur. ■
Jóhannes Tómasson
Verðið
innanrými
Aflið
Skodu Favorit GLXi
í hnotskurn
Vél: 1.300 rúmsentimetrar,
fjórir strokkar, bein raf-
eindastýrð innspýting og
55 hestöfl.
Lengd: 3,81 m, breidd: 1,62
m,
haeð: 1,43 m.
Þyngd: 875 kg.
Burðargeta: 450 kg.
Eldsneytistankur tekur 47
lítra.
Diskahemlar að framan,
skálar að aftan.
Hjólbarðar 165/70R 13.
Fimm gíra handskipting.
Hliðarspeglar stillanlegir
innanfrá.
Tvískipt aftursæti.
Þokuljós.
Stoðgreiðsluverð: 658 þús.
kr. með verksmiðjuryðvörn
og skráningu.
Umboð: Jöfur hf., Kópavogi.