Morgunblaðið - 12.08.1993, Page 12
12 C dagskrq
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
Lögreglumenn í sjónvarpi
- riddarar nútímans?
Breskir
sakamálaþætt-
irerualltaf jafn
vinsælir
GEORGE
BAKER
ROY
MARSDEN
MARK
McMANUS
JOHN
THAW
Bretar virðast aldrei fá nógf af sakamálaþáttum, og íslend-
ingar kunna vel að meta framleiðslu þeirra. Hver kannast
ekki við lögreglumennina Morse, Dalgliesh, Taggart, og
Wexford? Allir eru þeir breskir og hafa atvinnu af því að
leysa hvert sakamálið á fætur öðru. Fyrirrennari þeirra
allra, snillingurinn Sherlock Holmes, gerir það líka enn
gott í sjónvarpi, nú seinast í túlkun Jeremy Brett. Breska
blaðið Good Housekeeping fjallaði nýlega um áhuga Breta
á sakamálaþáttum og spjallaði við leikarana sem fara með
hlutverk hinna vinsælu lögreglumanna.
Peter Cregeen, sem stjórnar
framleiðslu myndaflokka hjá BBC,
álítur að sakamálaþættir séu nán-
ast tómstundagaman hjá mörgum
Bretum. Hann segir að allir bestu
sakamálamyndaflokkarnir séu
byggðir á vinsælum bókum með
velskrifaðri aðalpersónu. Þær per-
sónur sem hafa notið mestra vin-
sælda skera sig úr fjöldanum. Þær
hafa oft áhugamál sem koma á
óvart og eiga oft einnig við ein-
hver vandamál að stríða. Sem
dæmi má nefna að Morse elskar
óperutónlist, drekkur of mikið og
er einfari.
Rómantískir einfarar
Sálfræðingurinn David Lewis
segir að einfaramótífið sé mjög
mikilvægt fyrir vinsældir saka-
málaþátta. „Einmanaleikinn gerir
einkaspæjarana að rómantískum
hetjum. Morse er piparsveinn,
Dalgliesh ekkill og Spender frá-
skilinn. Þeir leika eins konar Hróa
hött-persónu og daðra eingöngu
einstaka sinnum við kvenfólk.
Morse og Dalgliesh eru gáfu-
menn sem elska óperur og ljóð.
Kannanir sýna að konur eru hrifn-
ar af karlpersónum sem hafa
kvenlega eiginleika. Þær heillast
af lögreglumanninum sem er
sterkur og valdamikill en er einnig
viðkvæmur og blíður, Þeir eru
meira aðlaðandi enn einkaspæjar-
ar sem eru harðir í gegn. Bresku
lögregluforingjarnir eru síðustu
rómantísku riddararnir."
Sumir fá aldrei nóg
Shaun Usher hefur verið sjón-
varpsgagnrýnandi hjá Daily Mail
í 30 ár og skrifar einnig sakamála-
sögur. Hann telur að áhorfendur
komi aldrei til með að fá leið á
sakamálaþáttum. „Stór hluti
áhorfenda er eins og ég. Ég vil
ekki þurfa að hugsa mikið og djúpt
þegar ég horfi á sjónvarp. Ég vil
sögu með byijun, miðju og enda.
Þegar maður horfír á sakamála-
þátt þá veit maður að málið verð-
ur leyst en hvernig það er gert
getur alltaf komið á óvart. Mögu-
leikarnir í persónusköpun og sögu-
þræði eru ótæmandi. Almenningur
hefur gífurlegan áhuga á sakamál-
um. Það sést best á því að saka-
málasögur eru vinsælasta efni
bókasafnana.
Sakamálaþættir hafa breyst
töluvert mikið síðustu tuttugu ár-
in. Lögreglumönnum getur skjátl-
ast núna og þeir geta líka verið
slæmir og ofbeldisfullir. Sjón-
varpsþættirnir halda sig samt allt-
af innan ákveðinna marka þegar
kemur að ofbeldi. Þeir ganga aldr-
ei eins langt og kvikmyndir gera.
Ofbeldi í sakamálaþætti er alltaf
sýnt sem neikvæður hluti af at-
burðarásinni.“
Morse
Good housekeeping spurði
nokkra leikara hvernig þeir skildu
lögreglumennina sem þeir leika
og hvernig þeir útskýra vinsældir
sakamálaþátta. John Thaw sem
leikur Inspector Morse sagði að
hann teldi Morse mjög dapran
mann. „Þegar hann fer heim á
kvöldin hefur hann örugglega
miklar áhyggjur af framtíðinni.
Vinnan er allt sem hann lifir fyr-
ir. Hann virkar mjög auðsæranleg-
ur og þess vegna eru kvenáhorf-
endur mjög hrifnir af honum.“ Að
sögn Thaw eru sakamálaþættir
ekki vinsælir vegna þess að áhorf-
endur séu eitthvað sérstaklega
hrifnir af lögreglunni heldur sé
einfaldlega auðveldara að fram-
leiða spennuþátt með lögreglufor-
ingja en garðyrkjumanni.
Dalgliesh
Roy Marsden sem fer með hlut-
verk Inspector Dalgliesh segist
ekki vita nákvæmlega hvers vegna
fólk kýs að horfa á sakamála-
þætti. „Mér finnst Dalgliesh vera
einhvers konar leikstjórnandi.
Hann hefur leikinn, gefur vísbend-
ingar og leiðbeinir áhorfendum í
gegnum söguna. Ef þetta er vel
gert þá ættu áhorfendur að leysa
glæpinn á sama tíma eða rétt á
undan lögreglumanninum. En
þetta er jafnframt aðalvandamálið
við að leika svona persónu. Maður
lærir að spyija hver, hvað, hvernig
og hvers vegna á athygliverðan
hátt og þarf lítið annað að gera.
Áhorfendur eru einnig hrifnir
af sakamálaþáttum af því að
undirniðri búa hugmyndir manna
um réttlæti og siðferði. í saka-
málasögum P.D. James og Ruth
Rendell sigrar réttlætið að lokum.
Sögupersónur eru athygliverðar
og lögreglumaðurinn hefur sterka
siðferðiskennd. Hann er jafnframt
einfari og einstæðingur eins og
Dalgliesh og Morse.
í mínum augum er Sherlock
Holmes ætíð meistarinn. Ég er
mjög stoltur af því að hafa leikið
í þáttunum hans Jeremy Bretts.
Nú þarf ég bara að fá hlutverk
sem gestaleikari hjá Inspector
Morse og lífið væri fullkomið. Ég
fæ stundum leið á Dalgliesh en
ég hef lært að maður á aldrei að
segja aldrei.“
Taggart
Mark McManus hefur farið með
hlutverk Taggarts síðan árið 1983.
Þar á undan hafði hann leikið
rannsóknarlögreglumanninn
Lambie í myndaflokknum „Stran-
gers“. Áður en hann tók að sér
hlutverk Lambie hafði McManus
alltaf forðast að leika lögreglu-
menn og glæpamenn. Honum
fannst sakamálaþættir of einfaldir
þar sem þeir skiptu fólki í tvo
hópa, þá góðu og hina slæmu.
„Lífíð er ekki svo einfalt. Það er
miklu flóknara, fyndnara og sorg-
legra.“ Þegar McManus bauðst
hlutverk hins þungbúna og þijóska
Taggarts sló hann til og til þess
að gefa sem raunhæfasta mynd
af starfi lögreglunnar kynnti hann
sér vel störf lögreglumanna í
Glasgow.
Wexford
George Baker leikur Inspector
Wexford í þáttunum sem byggja
á sögum Ruth Rendell. „Ég held
að sakamálaþættir hafa einfald-
lega tekið við af hinum vinsælu
sakamálasögum. Bestu þættirnir
eru byggðir á bókum þar sem
höfundur hefur skapað persónu
af mikilli leikni. Wexford á t.d.
sína fjölskyldu, eiginkonu og tvær
dætur. Hann er mjög stoltur af
annarri dótturinni og hina elskar
hann mikið en á erfitt með að
skilja hana.“ Að sögn Baker horf-
ir hann ekki mikið á sakamála-
þætti. „Ég er ekkert sérstaklega
hrifinn af sakamálaþáttum. Ég vil
miklu frekar horfa á gamanþætti."
BÍÓIIM í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Flugásar 2 ★ %
Lítið frumleg endurgerð fyrri myndar.
Drekinn ★ ★!4
Mjög þekkileg ævisöguleg mynd um
Bruce Lee með síagsmálasenum fyrir
dygga aðdáendur og dularfullri 'ættar-
fylgju sem virðist enn vera að verki.
Einkaspæjarinn ★14
Joe Pesci leikur fréttaljósmyndara sem
lendir í glæpamálum í film noir stíl
en útlitið er plastkennt og innihaldið
líka.
Skjaldbökurnar 3 ★
Þriðja myndin gerir ekkert fyrir
myndaflokkinn þótt umhverfið sé
framandi; Japan á lénstímanum. Takt-
arnir þreytandi sem fyrr.
BÍÓHÖLLIN
Flugásar 2 (Sjá Bíóborgina)
Launráð ★★14
Ágæt afþreying fyrir þá sem ekki sáu
frummyndina en Badham og félagar
geta með engu móti hresst uppá ágæta
sögu af morðkvendi sem fær annað
tækifæri.
Gengið ★ ★ 14
Epísk og svipmikil mynd sem spannar
12 ár í lífi ólíkra frænda í hverfi
Bandaríkjamanna af mexíkóskum
ættum í Los Angeles. Persónur og
atburðir þó heldur uppbólgnir og til-
gerðalegir á köflum.
Skjaldbökurnar 3 (Sjá Bíóborgina)
Getinn í Ameríku ★ ★
Aðalleikararnir þrír standa sig best í
annars misjafnri gamanmynd um sam-
skipti i kynþáttanna í henni Ameríku,
IMóg komið ★★14
Andsnúið umhverfi sprengir öryggi
bandarísks meðaljóns sem lætur reiði
sína bitna á kvölurum í LA. Skýtur
yfir markið sem þjóðfélagsádeila en á
sínar stundir sem hasarmynd.
HÁSKÓLABÍÓ
Samherjar ★
Aumt er það. Chuck Norris nálgast
það að vera einni ljósi punkturinn í
eftiröpun af Karatestráknum.
Útlagasveitin ★14
Það eina nýstárlega við þennan ofbeld-
isfulla rútinuvestra um útlaga og eftir-
reiðarmenn er að flestir eru kúrekarn-
ir dökkir á bjórinn. Á stöku stað giitt-
ir í alvarlegri og betri mynd.
Ein og hálf lögga 14
Lapþunn og illa leikin leiðindi um sam-
starf mannborulegs drenghnokka og
grautfúls lögregluþjóns.
Við árbakkann ★★★★
Minningarnar frá árbakkanum eru
seiðandi óður til mannsins og náttúr-
unnar. Tvímælalaust ein af bestu
myndum ársins.
Skriðan ★
Illa gerð spennumynd, byggð á sögu
Desmonds Bagleys. Módelsmíðin í lok-
in harla gamaldags eins og reyndar
myndin öll.
Lifandi ★★★
Afar vel sviðsett mynd um ótrúlegar
mannraunir sem gerðust hátt uppi í
Andesfjöllum fyrir tveimur áratugum.
Mýs og menn ★★★
Ljúfsár og vönduð kvikmyndagerð
uppúr frægri sögu Johns Steinbecks
um vináttu og náungakærleik. John
Malkovich er frábær sem Lenny.
LAUGARÁSBÍÓ
Helgarfrí með Bernie II ★14
Framhaldið um Bernie er ofkeyrður
farsi í ærslastíl þtjúbíómynda með ein-
staka góðum bröndurum og öðrum
slæmum.
Hefndarhugur 14
Afleitur framtíðartryllir. Fjórða flokks
framleiðsla.
Feilspor ★★★
Góð sakamálamynd um glæpahyski
sem stefnir á smábæ þar sem hug-
rakkur lögreglustjóri bíður þeirra.
Fínn leikur og spennandi saga undir
leikstjóm Carls Franklins.
REGNBOGINN
Amos og Andrew ★★
Sæmilegur farsi um kynþáttafordóma
og klúðursleg vinnubrögð útnára-
löggu. Ekki minnisstæð að neinu leyti
en á sína spretti.
Super Mario Bros. ★14
Undarlegur samsetningur byggður á
tölvuleikjunum. Brellurnar margar
hveijar góðar en innihaldið fullkomin
endaleysa.
Þríhyrningurinn ★14
Ástarsaga um skondið ungt fólk sem
snertir mann ekki mikið.
Tveir ýktir 1 ★ ★ 14
Útúrsnúningur á „Lethal Weapon" og
fieiri myndum. Tekst stundum vel upp
og stundum ekki. Leikararnir hafa
gaman af að taka þátt í gríninu.
Loftskeytamaðurinn ★★★
Vel leikin mynd um stórbrotinn ná-
unga sem setur heldur betur svip sinn
á mannlífið í norsRum smábæ. Byggð
á sögu eftir Knut Hamsun.
SAGABÍÓ
Allt í kássu ★ ★
Bresk gamanmynd sem verður aldrei
eins fyndin og skemmtileg og efni
standa til. Gott leikaralið heldur henni
mestanpart á floti.
Hvarfið ★★★
Snjöll spennandi sakamálasaga með
ágætum leikurum. Endurgerð sam-
nefndrar hollenskrar myndar.
STJÖRNUBÍÓ
Síðasta hasarmyndahetjan ★ ★ 14
Heljarmikil brellusýning, byssugleði
og banafyndni. En of langdregin og
innantóm. Schwarzenegger á að halda
sig við harðhausamyndirnar.
Á ystu nöf ★ ★ ★
Spennandi og oft frábærlega vel snið-
inn tryllir með Stallone. Margar æðis-
legar Qallasenur færa þig fram á ystu
nöf.