Morgunblaðið - 25.09.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 25.09.1993, Síða 1
 MENNING USTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 BLAÐ' USTAHÁTKMN IEDINBORG Úr sýningunni „The Persicms." Martinus Miroto, indónesískur dansari EFTIR BERGLJÓTU ARNALDS EDINBORG hefur oft verið nefnd höfuðborg Evr- ópu í listum. Ég hef verið búsett í Edinborg í tvö ár, en það er ekki fyrr en eftir síðustu þrjár vikur að ég skil hvers vegna hún hefur fengið þetta viðurnefni. I ágústmánuði á ári hverju er haldin viðamikil listahátíð í Edinborg. Ein sú stærsta í heimi. Þúsundir listamanna koma til borgarinnar að sýna og hundruð þúsunda flyklgast að til að fylgjast með. Hátíðin er ekki einskorðuð við eina listgrein, þar má sjá götuleikhús, óperur, mynd- list, tónlist, kvikmyndir, dans og sirkus. Hver ein- asti staður sem gefur möguleika á að troða upp er notaður og sýningartjöldum er komið fyrir víðs- vegar um borgina. Oft er barist um áhorfendur. Sumir lenda í því að fá allt að því engan á sýning- una sína, en aðrir sýna stanslaust fyrir fullu húsi og komast færri að en vilja. Þá er mjög mikilvægt að fá gagnrýni í blöðum og má segja að með góðri gagnrýni sé sýningu borgið. Mark Morris danshópurinn Edinborgarhátíðin skiptist að mestu leyti í tvennt: Edinburgh Internat- ional Festival og Edinburgh Fes- tival Fringe. Edinburgh International Fes- tival er hin viðurkennda hátíð þar semaðeins vel þekktir listamenn koma fram í betri leikhúsum og hljómleikahöllum borgarinnar. Megin áhersla er lögð á klass- íska tónlist, en einnig koma fram þekktir dans- og leikhópar. í ár voru um 80 uppá- komur á vegum „alþjóðlegu hátíðarinnar" og voru flestir listamannanna, auk inn- lendra, frá Kanada, Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu. Filharmónu- hljómsveitin í Lond- on spilaði fiðlukon- í D-dúr eftir Beethoven, en fíðlu- leikarinn var Frank Peter Zimmermann. Þá spiluðu þeir einnig 4. sinfóníu Brahms í E-moll og daginn eftir 5. sinf- óníu Mahlers. South West German Radio Symphony Orc- hestra spilaði svo 7. sinfóníu Mahlers og píanókonsert eftir Schoenberg, en píanóleik- arinn var Alfred Brendel. Á hátíðinni mátti einnig hlýða á Geoffrey Parsons og Andras Schiff spila á píanóið og Yuri Bashmet á fiðlu. Það má segja að þýsku leiksýningarnar hafi verið mjög sterkar í ár. Peter Stein setti upp Júlíus Sesar eftir Shakespeare í Lyceum Theatre og óperuna Falstaff eftir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.