Morgunblaðið - 25.09.1993, Page 5

Morgunblaðið - 25.09.1993, Page 5
4 C MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 C 5 + Gunnlaugur Blöndal UÓMIIITANNA Gunnlaugur Blöndal: Reylgavíkurhöfn. 1928. ________Myndlist Eiríkur Þorláksson Þegar menningarmál eru annars vegar er sjaldan minnst á að íslend- ingar eru langt frá því að vera sam- stæður hópur hvað varðar aðstæður til að njóta þess sem er efst á baugi hverju sinni. Þar koma ekki aðeins til mismunandi aðstæður einstakl- inga í uppeldi og menntun, heldur ekki síður kynslóðaskipti; það sem einni kynslóð kann að vera almenn þekking, er hinni næstu ef til vill hulinn leyndardómur. Einnig kann ákveðinn aldurshópur að vera háður aðstæðum og fordómum liðinna tíma, sem yngra fólk þekkir ekki og hefur því enga ástæðu til að setja fyrir sig. Þetta er vert að hafa í huga þeg- ar skoðuð er sú yfirlitssýning á verkum listmálarans Gunnlaugs Blöndal, sem nú hangir uppi i Lista- safni Reykjavíkur að Kjarvalsstöð- um. Gunnlaugur var fæddur 27. ágúst 1893, og því er þessi sýning haldin á aldarafmæli listamannsins; jafnframt eru þijátíu ár liðin frá því síðast var haldin sýning á verk- um hans hér á landi. Þó stöku málverk Gunnlaugs hafi ratað inn á samsýningar umliðinna áratuga, má segja að nú sé uppkomin heil kynslóð íslendinga, sem hefur ekki fyrr fengið tækifæri til að sjá yfir- lit yfir verk þessa listamanns og draga eigin ályktanir um stöðu hans í íslenskri myndlist af þeim kynnum. Því hlýtur þessi sýning sérstaklega að vekja athygli yngra fólks, sem hefur áhuga á að leggja eigið mat á íslenska listasögu, í stað þess að taka gagnrýnilaust við fullyrðingum fyrri tíma um stöðu einstakra listamanna. Við undirbúning sýningar af þessu tagi eru skipuleggjendur hennar ávallt í þeirri aðstöðu að þurfa að framkvæma ákveðið val. Hér hefur verið farin sú leið að láta myndefnin ráða mestu, þó þannig að sýningin myndar sterka heild, og tímaröð verður fljótt ljós innan hvers efnisflokks fyrir sig. Með þessu fá sýningargestir einnig glögga mynd af þeim viðfangsefn- um sem Gunnlaugur Blöndal lagði mesta áherslu á, og áttu drýgstan þátt í að skapa honum þann sess, sem íslensk listasaga hefur hingað til ætlað honum. Hér er fyrst og fremst um að ræða fjölmargar módelmyndir, en myndir af konum hafa verið ein helsta leið hans til að ná fram því samspili lita og forma, sem hann leitaðist við að byggja upp; einnig má nefna til myndir frá Parísarárum lista- mannsins, nokkrar hafnarmyndir og landslagsverk, og loks uppstill- ingar og persónumyndir, þar sem sjálfsmynd frá síðasta æviári hans trónir einna hæst. Alls eru á sýning- unni hálfur fímmti tugur listaverka, og er það hæfílegur fjöldi til að draga fram kosti listamannsins; fleiri verk hefðu þar litlu bætt við. Gunnlaugur var umdeildur síð- ustu áratugi ævi sinnar og list hans hefur að miklu leyti legið í þagnar- gildi allt frá dauða hans 1962, en þarf endurskoðunar við í ljósi þess- arar sýningar. Hér verður ferill Gunnlaugs Blöndals ekki rakinn, enda íjallað skilmerkilega um hann í ritgerð Gunnars Kvaran í sýning- arskrá. Samt er rétt að benda á, að eftir að eiginlegu listnámi lauk, bjó og starfaði Gunnlaugur árum saman erlendis, fyrst í París á þriðja áratugnum, og síðan í Kaupmanna- höfn á þeim fjórða; hann ferðaðist talsvert og tók þátt í sýningum víða um lönd, og var orðinn þekktur listamaður, einkum þó í París og Danmörku. Á þessum árum kom Gunnlaugur oft til íslands, starfaði hér um tíma og hélt sýningar, en hann settist ekki að á Islandi fyrir fullt og allt fyrr en í upphafí síðari heimsstyijaldar. Eins og á við um alla þá íslensku listamenn sem fóru erlendis til náms á fyrri hluta aldarinnar og dvöldu langdvölum í Evrópu, er ljóst að Gunnlaugur varð fyrir ýmsum áhrifum af því sem þar gat að líta. í ritgerð sinni nefnir Gunnar Kvar- an nokkra þá listamenn, sem helst er hægt að tengja myndgerð Gunn- laugs við og kennir þar ýmissa grasa. Víst er að hann hreifst snemma af verkum frönsku málar- anna Auguste Renoir (1841-1919) og Henri Matisse (1869-1954) þeg- ar hann sá þau á námsárum sínum í Noregi, og þegar hann kom sunn- ar í álfuna urðu áhrifin enn marg- víslegri; Gunnlaugur hefur sjálfur nefnt til verk þeirra Maurice Utrillo (1883-1955) og Amedeo Modigliani (1884-1920) og frönsku Fauvist- anna. Auk þessara áhrifavalda hef- ur pólski málarinn Moise Kisling (1891-1953) verið nefndur, en Iist hans er að mörgu leyti tengd Mod- igliani á annan veginn og Gunn- laugi á hinn, einkum í módelmynd- unum. Þessu til viðbótar má ef til vill vísa til litameðferðar Auguste Macke (1887-1914) og annarra í hinum þýska „Blau Reiter“-hóp, sem vissulega má fínna skyldleika við í ýmsum verkum Gunnlaugs. Þessi langa upptalning getur þó aðeins leitt til einnar niðurstöðu: Gunnlaugur fylgdist vel með því sem var að gerast í myndlistinni, lærði af sumu og hafnaði öðru, og þróaði þannig smám saman þá myndsýn, sem hentaði honum. Þar var ekki að fínna yfírgnæfandi áhrif úr einni átt, heldur uppsafnaða reynslu, sem einkum beindi athygli hans að meðferð litarins í málverk- inu. Það verður fljótt ljóst við skoðun verka Gunnlaugs, að liturinn var alla tíð hans helsta viðfangsefni, og þá einkum sem tjáningarmiðill fyrir þá hugsýn, sem endurspeglast í myndefninu hveiju sinni, því verk hans standa ætíð nær draumi en raunveruleikanum. Jafnframt má greina vissa þróun i beitingu lista- mannsins á litunum í verkum á sýningunni, allt frá mýkt fyrstu myndanna frá Parísarárunum á þriðja áratugnum, til vissrar hörku tjáningarinnar í litnum í myndum frá síðustu árum listamannsins. Loks er ávallt til staðar eitthvert ljóðrænt stef í þeim expressionisma, sem birtist í verkum hans, og þann- ig stendur hvert verk fyrir sig full- komnlega undir því að áhorfandinn sökkvi sér í það. Parísarborg birtist í tindrandi birtu grámóskunnar í myndum eins og „Notre Dame“, þar sem mildir litimir leiða skoðandann niður á árbakkann, þar sem tvær mannver- ur njóta umhverfisins og árinnar, sem reyndar birtist ekki sem fljótið Signa, heldur sem endurspeglun regnbogans, loftkennd fremur eri áþreifanleg. Svipað má segja um pastelmyndina „Reykjavíkurhöfn", sem listamaðurinn gerði 1928; haf- flöturinn ber með sér speglun um- hverfisins fremur en eigin giídi, og fyrir vikið svífur þessu draumsýn fyrir augum áhorfandans í stað þess að bera með sér þunga skip- anna eða fjallanna sem loka mynd- sviðinu. í gagnsæjum litum þessara verka er varla hægt að tala um veður, heldur virðist myndefnið í stóískri ró hafið yfir jarðneska til- vem, óháð duttlungum náttúrunn- ar. Þessi fjarlægi friður einkennir raunar einnig landslagsverk Gunn- laugs frá sjötta áratugnum eins og „Frá Þingvöllum" og „í Grábrókar- hrauni", þó þar megi finna merki árstíða í hömlulitlum litunum, gul- um, grænum og rauðum, sem eru lagðir á léreftið í þykkum og kröft- ugum pensilstrokum. Þær myndir em um flest ólíkar því sem lands- menn vora vanir um landslags- myndir og leiða hugann að því að í raun sé það annað, sem listamað- urinn er fyrst og fremst að fást við; myndvakinn úr náttúmnni er fremur tilfallandi atriði en ráðandi þáttur í sköpun verksins, en það er Ijómi litanna, sem skiptir öllu. Síldarstúlkurnar sem Gunnlaug- ur málaði á Siglufirði sumarið 1934 hafa löngum vakið mönnum undrun og aðdáun í senn. Þarna stíga hvorki fram á sjónarsviðið lúnar verkakonur né beygðar bændadæt- ur íslenskrar fátæktar kreppuár- anna; myndefnið verður listamann- inum tilefni til að laða fram dísir draumanna, reisulegar, glæstar stúlkur, hina væntanlegu heims- borgara nýrrar þjóðar. Þessar stúlk- ur gætu „hæglega leyst af sér svuntumar og gengið beint inn á Café Royal í París“, eins og Björn Th. Bjömsson orðar það svo skemmtilega í umíjöllun sinni um Gunnlaug Blöndal í riti sínu, „Is- lenzk Myndlist á 19. og 20. öld.“ Þannig verður myndefnið lista- manninum tilefni til draumsýnar, sem er undirstrikuð af átakaleysi vinnunnar, tómlátum svip stúlkn- anna, líkt og myndin sýni stolið augnablik, sem aldrei kemur aftur. Myndlist Bragi Asgeirsson Hver kynslóð hefur til að bera sérstakt mat á fegurð og aldrei hafa kynslóðaskiptin verið eins ör og á þessari öld hraða og tækni- legra umbyltinga. Á tímum er mannsævin hefur lengst til muna hafa umskiptin um leið orðið sneggri og óvæntari í þessum efnum og þannig ber það vott um mikla grunnhyggju að ætla sér að spá fram í tímann um þróun lista almennt. Einungis - þróunar- saga allra síðustu ára sýnir okkur fram á, að hér á almenn getspeki ekki heima og auk þess hefur kom- ið fram að einstaklingskenndin er sterkari en nokkur hélt og rís jafnt upp gegn miðstýringu sem mark- aðsáróðri annars vegar og forsjár- hyggju og niðursuðuiðnaði hins vegar. A örfáum árum hefur heims- myndin tekið miklum breytingum og risaveldi er teigði anga sína um allan heim hefur liðið undir lok, jafnframt hmndi blómlegur lista- verkamarkaður, sem reis stöðugt hærra og hærra og er nú loks eitt- hvað að rétta við sér aftur. Þá eru ný teikn á lofti um þróunina í Aust- urlöndum og þaðan má búast við miklum tíðindum á næstu árum, sem kann enn að umbreyta heims- myndinni og listmatinu um leið. Módelmyndimar hafa oft verið talinn sá flokkur mynda, sem leiði best fram snilli Gunnlaugs í með- ferð lita og forma, og margar mynd- anna á sýningunni staðfesta þetta vissulega. Hins vegar eru þessar konur tæpast mannverur af holdi og blóði, þar sem þær þvo sér, greiða hár sitt eða stara fjarrænum, gleðilausum augum fram úr mál- verkinu, ómeðvitaðar um athygli listamannsins og áhorfandans. Per- sónugerðin verður til þess að leiða athyglina enn frekar að munúðar- Eðilega hafa þjóðfélagslegar umbreytingar alltaf dijúg áhrif á mótun lista, en framrásin í listheim- inum hefur þó orðið giska öðruvísu en lærðir menn á þeim vettvangi ætluðu og þeir hafa frekar mátt beygja sig undir hana, en að þeim hafi tekist að stýra henni eftir eig- in höfði þrátt fyrir mikinn og góðan vilja. Sívaxandi straumur fólks á list- viðburði hvers konar og söfn hefur komið mörgum svo mjög í opna skjöldu, að það hefur ruglað þá, en um leið hafa þeir orðið að breyta afstöðu sinni til hlutanna til að vera samstiga framvindunni. Fólk er upplýstara og áhugasam- ara og tekur meiri þátt í umræðu dagsins sem í sjálfu sér skapar nýjar þarfir. Um leið og menn fara að segja þessum hópi til, hvað sé list og hvað ekki, er fólkið horfið á braut og spekingarnir standa eftir aleinir á kassanum. Þannig eru aðrar og meiri kröfur gerðar til safna en áður og listhús er halda fram miðstýrðum staðli hafa mörg lagt upp laupana. Söfn þurfa að vera sveigjanleg og lifandi og víða er mikil samkeppni á milli þeirra á þá veru. Þetta gerir líka að verkum, að endurmat á sér stað á verkum myndlistarmanna og þótt slíkt sé ekkert nýtt hefur það aldrei verið eins áberandi og á síðustu árum. Orsökin er hrun miðstýringar- fullum litunum, þar sem mótun holdsins er framan af unnin með viðeigandi tónum húðlita, en síðar með sífellt djarfari litasamsetning- um. Oftast er þrengt að módelinu í myndfletinum, þannig að ekkert getur dregið athygli áhorfandans frá því litaspili, sem listamaðurinn hefur sett þar saman; þetta sést vel í myndum eins og „Sofandi kona“ og „Stúlka með greiðu", sem vænt- anlega er eitt þekktasta verk Gunn- laugs. Af sýningunni má sjá, að eftir HANS aflanna og einnig, að nú er mun erfiðara að fela verk listamanna og virtir fjölmiðlar hafa stóraukið þjón- ustu sína við myndlist og listvið- burði almennt. Hér eru þeir þó ein- ungis að sinna þeirri frumskyldu að ná til fólks og þjóna óskum þess og þannig verða menningarkláfarn- ir stöðugt stærri og glæsilegri. Þar með eru þeir í takt við tímann og þróunina. Á námsárum mínum var eitt blað öðru frægara í myndlistarheimin- um, sem hét „Art aujourd’hui" (Listin í dag) og var gefið út í Par- ís og þótti einstakt í sinni röð, en nú þjóna almenn dagblöð þessum sama vettvangi jafnvel með enn meiri glæsibrag og em um leið mun hlutlægari. Jafnframt er komin upp ný staða sem engan óraði fyrir, sem er, að þessi þjónusta almennra dag- blaða við lesendur er farin að veita sígildum listtímaritum harða sam- keppni! Hér á sér þannig stað mikil upp- stokkun gilda og hugmynda og það verður hver sá var við, sem flettir í listtímaritum að staðaldri og hefur aðgang að erlendum dagblöðum. — Á Islandi höfum við ekki í sama mæli orðið vör við þessa umbyltingu, nema að því leyti að listaverkamarkaðurinn er í mikilli lægð, en hann var nú aldrei að marki blómlegur né skipulagður. Þó er mikill munur á honum og í þá tíð er þeir sem keyptu mynd- MÁLARINN OG SAMTÍD Gunnlaugur Blöndal: Módel. 1962. heimkomuna til íslands verða tals- verðar breytingar á list Gunnlaugs. Módelmyndirnar sýna nú fullþroska konur fremur en nettar stúlkur (sbr. „Kona við þvottaskál"); formin verða fyllri, litirnir smám saman sterkari, andlitssvipir hörkulegri og stellingar jafnvel djarfari (sbr. „Liggjandi módel“, 1961). Hvort þessar breytingar em eðlileg þróun þess expressionisma sem hann var alla tíð að takast á við, eða endur- spegla viðbrögð listamannsins við nýju (og á margan hátt andstæðu) umhverfi, skal ósagt látið; hitt er ljóst að þessi verk vöktu almennt minni hrifningu hér á landi en eldri verkin, og vom þá gjarna kennd við ofhlæði og taumleysi litanna. Hér skal ekki tekið undir þessi viðhorf. Eflaust má að einhveiju leyti rekja þau til þess að nú sáu landsmenn allt sem Gunnlaugur gerði, hið góða jafnt sem það sem síðra var, en meðan hann bjó erlend- is barst aðeins það besta til lands- ins á sýningar; lakari verkin sátu eftir. Jafnframt gerði Gunnlaugur list fyrir sjálfa sig þóttu eitthvað skrítnir og alveg sér á báti í þjóðfé- laginu. Ungir líta hlutina nokkrum öðr- um augum en við gerðum fyrir 30 til 40 árum, sem má vera ósköp eðlilegt og sem fyrri daginn kemur það meira fyrir áhrif að utan, en breyttum og jarðtengdum viðhorf- um hér heima. Á sýningu landslags- málverka frá fyrri helmingi aldar- innar á Kjarvalsstöðum fyrr á árinu vöktu t.d. myndir þeirra Guðmund- ar frá Miðdal og Kristinns Péturs- sonar óvænta athygli og í opnunar- hófi þar var mér sagt frá þekktum útlendum málara, er hafði hrifist meir af málverkum Gunnlaugs Blöndals en nokkurs annars á landi hér. En skyldi það ekki raunhæft í heimi, þar sem gildismatið er á stöð- ugri hreyfingu og kennir það ekki einhveijum að fara varlega í dómum sínum á samtímalist og dæma hana fremur af yfirsýn og mildi en hroka og yfirlæti? Hvað sem öðru líður er það ánægjulegt að slíkt gerist einmitt er hundrað ár eru liðin frá fæðingu Gunnlaugs, en hann var mjög um- deildur meðal framsæknari málara um miðbik aldarinnar og lengstum síðan. Flestir viðurkenndu þó, að hann hafí gert eftirminnilegar myndir og að séstaða hans innan íslenzkrar myndlistar væri ótvíræð: Hér áður fyrr þótti það gamal- dags að mála og teikna fyrirsætur og almenningi þótti það satt að segja hálf dónaleg athöfn, sem ástæða þótti að hafa í flimtingum. Jafnvel segir sagan, að er Gunn- laugur málaði stúlku nokkra í föt- um, en lét greinilega móta fyrir bijóstunum í gegnum þau lá við að upp spunnust málaferli út af því! Sjálfur þekkti ég kornunga stúlku, sem hann hafði augastað á sem fyrirsætu vorið 1957, en sagði við mig, að hún vildi ekki fyrir nokk- urn mun taka þátt í jafn ósiðlegu athæfi og að bera á sér bijóstin fyrir gamlan karl ... síðustu árin mikinn fjölda andlits- mynda eftir pöntun og hefur slíkt sjaldan verið listamönnum til fram- dráttar. Sá listamaður er hins vegar ekki til, sem aðeins hefur gert góð verk. Bestu verk Gunnlaugs frá síð- ustu árum hans, eins og „Módel“ (1962) og sjálfsmynd hans frá sama ári eru þannig afar sterk, allt að því tregafull myndverk, þar sem dirska litanna og skörp myndbygg- ing ber vott um snilligáfu, sem hver listamaður gæti verið stoltur , af. Gunnlaugur Blöndal hélt því sínu striki allt til enda. I sýningarskrá er að finna ágæt- ar ljósmyndir af mörgum helstu verkum á sýningunni, auk ritgerðar Gunnars Kvaran um listamanninn. Skráin er í alla staði vel unnin, en þar sem ferill Gunnlaugs hefur lengi legið í þagnargildi (eina bókin sem gefin hefur verið út um listamann- inn kom út 1963) hefði að skað- lausu mátt leggja hér meira í verk- ið. Skrá yfir æviferil listamannsins og önnur grein um erfiða stöðu hans í íslensku listalífí á fímmta og sjötta áratugnum hefði verið fróðleg lesning, einkum fyrir yngra fólk; það er óvíst hvenær næst gefst tækifæri til að ijalla um list Gunn- laugs líkt og gefst hér. Sumar sýningar verða öðrum mikilvægari í minningunni, og þó stutt sé liðið á sýningartímann, má leiða líkur að því að yfirlitssýning Listasafns Reykjavíkur á verkum Gunnlaugs Blöndal verði talin ein markverðasta sýningin á íslenskri myndlist á þessu ári. Einkum er athyglisvert að skoða hana með hliðsjón af verkum ýmissa listamál- ara af yngri kynslóðinni, þar sem meðferð litarins og expressionism- inn hefur orðið sífellt mikilvægara viðfangsefni hin síðari ár. Yfirlitssýningin á verkum Gunn- laugs Blöndal á Kjarvalsstöðum stendur til sunnudagsins 17. októ- ber og ber að hvetja listunnendur og allan almenning til að láta sýn- inguna ekki fram hjá sér fara. í útlöndum hefði mörg konan vafalítið borgað jafn virtum lista- manni stórfé fyrir að mála sig ber- bijósta, enda varla tiltökumál er svo var liðið á öldina. Lítið land er oft- ar en ekki gróðurvin fyrir hvers konar fordóma, sem skortir hvorki áburð, ljós né aðra virkt til döngun- ar. Jafnframt er undirróðurinn mun afdrifaríkari en í stærri þjóðarheild- um, sérstaklega ef hlutlægar upp- lýsingar liggja ekki á lausu og þannig þróast þar hvers konar óeðli og trúboð betur en annars staðar. Einkum í listum. Gunnlaugur Blöndal var goðsaga í vissum hópi manna, sem leit róm- antískum augum á landið og sá það í hillingum, en hér vom einmitt á ferð menn er voru ákafir fylgjendur sjálfstæðis landsins og höfðu barist fyrir því. Þetta voru tímar er söngv- arinn Eggert Stefánsson nefndi'Is- lands fata morgana". — Árdegishill- ingar íslands, og þjóðin var gagn- tekin frelsisþrá og drauminum um lýðveldi, og á þeim tímum hljómaði einnig slagorðið „samvirk framníng þjóðreisnar" (Laxness). Þetta var þannig kynslóð morg- undagsins í íslenzkri sögu og ekk- ert var eðilegra en að hún fæddi af sér málara er spann glitvefi úr litaspjaldi sínu, óf úr þeim gagnsæ klæði regnbogans og breiddi yfir landið. Kynni mín af Gunnlaugi voru næsta lítil, en á móttöku á franska sendiráðinu 14. júlí 1961, kom hann til mín að fyrra bragði og tók þétt- ingsfast í hönd mér og er það atvik mér einhvern veginn enn í ljósu minni. í sínum bestu myndum má segja að Gunnlaugur Blöndal hafi verið afar flínkur málari og fyrir það var hann metinn af samtíð sinni og enginn framúrstefnumálari gat tek- ið það frá honum. Og nú er listin virðist um sumt vera að losna úr tröllahöndum ljótleikans má vera eðlilegt að fram fari endurmat á lífsverki hans. Paavo Haavikko Albióðleoasta skáld Finna FÓSTURJÖRÐIN ER LJÓDIÐ EFTIR JÓHANN HJÁLMARSSON Finnsk ljóðlist hefur lönguin verið þróttmikil og Finnar meðal helstu brautryðjenda nútímaljóðlistar á Norðurlöndum. Þetta vita margir íslendingar þótt ekki hafi alltaf verið kostur á að kynnast finnskum skáldum í þýðingum. Meðal þeirra sem þýtt hafa finnsk Ijóð á undanförn- um_ árum er Láms Már Björnsson. í fyrra kom út eftir hann þýðingasafnið Voraldir með ljóðum eftir Solveigu von Schoultz og Gösta Agren. Nýlega sendi hann frá sér Veraldir, en þar eiga ljóð Sirkka Turkka, Lars Huldén, Paavo Haavikko og Martin Enc- kell. Útgefandi beggja bókanna er Bókmenntafélagið Hringskugg- ar. Nýsköpunarmaður Ljóð Paavos Haavikkos eru orð- mörg og myndrík í fyrstu bókun- um, en orðfá og myndrík í seinni bókum. „Styrkur hans liggur í myndsköpun máls og myndhverf- inga“, skrifar Lárus Már um þenn- an „helsta nýsköpunarmann í finnskri ljóðlist á þessari öld“. Þótt ekki sé unnt að segja að ljóð Haavikkos séu aðgengileg em í þeim töfrar sem laða lesandann að. Haavikko yrkir oft um náttúr- una. í einu ljóðanna sem Lárus Már þýðir kemur fram sérkennileg afstaða til gróðursins sem vert er að kynnast á umhverfisverndar- tímum: Tijágarðurinn þarf hjálparhönd til að vaxa úr grasi, grenitrén. I tvö, kannski fimm ár eru þau okkur þakk- lát. Síðan hljótum við að veita grasinu lið á flótta þess undan tijánum. Umhverfis þau verður allt autt, tignarlegt. Og furan sem óx ein fimmtán ár í kjarri skrýddum lundi einn faðmur á hæð, tággrönn, vindbarin, sliguð af'snjó, gerist ræktarleg um síðir. Hún deyðir allt sem hún nær í næstu tvö hundruð árin, árvisst, Þar sem rætur hennar eru hlýtur hún að vaxa. Ekki orð um að það vaxi á röngum stað, tréð. Hvað sem öllum gróðri líður hlýtur Paavo Haavikkoo að taka undir með mörgum öðrum skáld- um: „Ljóðið, ó aðeins ljóðið er fóst- uijörð mín.“ Sálin er að vísu tóma- rúm og maðurinn tóm, jafnt í stríði sem friði, en sú ógnvænlega niður- staða kallar ekki á algjört von- leysi eða örvæntingu. Annað starf nauðsynlegt Paavo Haavikko starfaði lengi sem útgáfustjóri hjá einu af stærstu forlögum Finnlands. Nú er hann forstjóri eigin útgáfufyrir- tækis. Hann hefur látið svo um- mælt að óhugsandi sé að fást ein- vörðungu við ritstörf. Nauðsynlegt sé fyrir rithöfund að hafa annað starf til þess að verða ekki bráð algjörrar einangrunar. Þegar Haavikko fékk alþjóðlegu Neustadt-verðlaunin 1984 sagðist hann í blaðaviðtali nota helgarnar til að semja, en þær nægðu ekki alltaf. Hann er kunnastur fyrir ljóð sín (að blaðagreinum slepptum), en er einnig skáldsagnahöfundur, leikritaskáld og óperutextasmiður. Sérkenni Kai Laitinen skrifar í sögu sinni um finnskar nútímabókmenntir að frá alþjóðlegum sjónarhóli sé Haavikko afar mikilvægur höf- undur. Það stafi þó ekki af því að hann eigi sér marga líka í bók- menntum annarra þjóða heldur sé ástæðan sérkenni hans. Laitinen nefnir hreyfinguna í ljóðunum, óvænta samsetningu mynda, leik að þverstæðum, hvernig skáldið getur Iíkt og talað mörgum rödd- um Lsenn. Jafn persónulegur er Haavikko í sögum sínum og leikritum að dómi Laitinens. í leikritunum var hann absúrdisti áður en sú stefna í leikritagerð náði til Finnlands. Óöryggi og afstæði tímanna hefur ekkert fínnskt skáld eftir- stríðsáranna túlkað betur en Haa- vikko samkvæmt Laitinen. Hann bendir einnig á söguleg yrkisefni skáldsins, fomöld og barokk sem rennur saman við nútímann í ljóð- um þess. Skáldskapurinn tælir lesandann í kunnu ljóði um keisarann sem Lárus Már Björnsson hefur tekið upp í þýðingasafn sitt er fjallað um raunveruleika og ímynd, um hugmyndir okkar sem standast ekki alltaf: „ég hef tælt þig af leið, ljúktu upp augum og hlustaðu ekki / á mig/ styrkur keisaradæm- isins býr í hjarta þér, þar býr það/ þróttmikið,/ keisaradæmið sem ris og hnígur um leið og deplað er auga.// Það deyr þegar augun opnast.“ I ljóðinu er vikið að því hvernig skáldskapurinn tælir lesandann, blekkir hann, einkum í því skyni að hann geti horfst í augu við sjálf- an sig og kannski numið brot af sannleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.