Morgunblaðið - 25.09.1993, Page 6

Morgunblaðið - 25.09.1993, Page 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 Þættir af nýrðmantískum skáldum, 5 „Þll ERT VINUR MINN, VÍST!" Um kvæðl Sigurðai frá Arnarholti í OKTÓBER árið 1882 var póstmeistara Reylqavíkur afhentur póst- ur sem barst með póstskipinu Arcturusi. Komur póstskipa vöktu alltaf mikla eftirvæntingu og umtal, en undrandi urðu menn í þetta sinn þegar póstmeistaranum var afhent barn á þriðja ári ásamt bréfum og bögglum. Það tíðkaðist ekki þá, frekar en nú, að senda börn í pósti. Faðir drengsins var þá kennari við Lærða skólann en móðirin dönsk. Framanaf var drengurinn kallaður „Póstpakkinn" manna á millum. En nafn hans var Sigurður Sigurðsson. Síðar þekkt- ur sem Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti. „Vondur er dauðinn, bræður" Sigurður Sigurðsson eldri hafði átt þennan son utan hjónabands með danskri konu, Floru að nafni, sem treysti sér ekki að ala drenginn upp. Faðirinn var þess ekki umkom- inn að taka barnið að sér en fól yfirmanni sínum og vini Bimi M. Olsen rektor uppeldið. Af föður sín- um hafði Sigurður yngri lítið að segja, enda drukknaði hann árið 1884. Af móðurinni er að segja að hún var handtekin í Kaupmanna- höfn árið 1888, sat í fangelsi til skamms tíma en var síðan lokuð inni á geðveikrahæli - þar sem hún lést. Ahöld em um hversu sjúk móðir skáldsins var. Fullyrt hefur verið að þar sem hún var ákafur sósíalisti, meðal annars blaðamaður við málgagn þeirra, hafi yfirvöld einfaldlega lokað hana inni með skoðunum sínum. Sigurður frá Arnarholti var hvorki geðveikur né sósíalisti og ævi hans var tiltölulega venjuleg. Fimmtán ára gamall settist hann á skólabekk í Lærða skólanum, en að beiðni fóstra síns hætti hann náminu fimm ámm síðar; skáldið hafði ekki virt reglur skólans um víndrykkju sem skyldi. Hann lagði þá stund á lyljafræði, hér heima og útí Danmörku. í sex ár var hann sýsluskrifari í Arnarholti í Staf- holtstungum, átján ár lyfsali í Vest- mannaeyjum og síðustu átta árin borgari í Reykjavík. Tæpri viku eftir lát hans birti Vikan kvæði eft- ir skáldið. Sigurður hafði greinilega fundið dauðann nálgast: Hvað stoðar þeim stolt, sem er veikur og styrkurinn yfirborðs leikur? Hlaðinu er ferðbúinn Bleikur. Hann blæs. En sá nasanna reykur! Hann kumrar. Sá gamli er glettinn, glottir og langar í sprettinn, þótt hann sé þungur og dettinn, þverreiður, slæpr og skvettinn. Hann velur samt veginn og ræður - vondur er dauðinn, bræður. Rökkurljóð lyfsalans Þegar talið berst að nýróman- tískum skáldum koma fjögur nöfn fljótlega upp í hugann; Jóhann Gunnar Sigurðsson, Jóhann Sigur- jónsson, Jónas Guðlaugsson og Sig- urður frá Amarholti. Til þess liggja margar ástæður. Ekki þarf að lesa þá lengi til að hnjóta um nýróman- tísk einkenni; þrá eftir fegurðinni, lífsnautn, þunglyndi. Og fyrir 35 áram batt Hannes Pétursson skáld þá listavel saman í bókinni Fjögur ljóðskáld. Auðvitað em íjórmenn- ingamir ólíkir. Jónas deiiir á kot- ungshátt landa sinna og dreymir um árroðans strönd, Jóhann Gunnar horfir á dauðann og yrkir dimm kvæði í þjóðkvæðistíl, Jóhann Sig- uijónsson vill stíga föstum fæti fram á huldar brautir og biður um mátt hafsins. Sigurður yrkir um allt milli him- 'ins og jarðar, þegar líður á ævina yrkir hann til dæmis reiðinnar býsn af tækifærisljóðum. En góð em sum kvæðin sem skáldið yrkir þegar nótt er að taka við af degi; þá er gott að vaka og virða heiminn fyrir sér, heyra andardrátt hinna sofandi og sleppa huganum lausum inn í lendur vökudraumsins. í þessum rökkurkvæðum nýtur margrómuð formsnilli Sigurðar sín vel og ekki þarf að lesa lengi í Lágnætti við Laxfoss til að komast að þeirri nið- urstöðu að skáldið frá Arnarholti gat, ef því sýndist svo, verið skáld hins hljóða rökkurs: Sof rótt á meðan, veröld við og breið, og vek ei neinn, sem þarf að dreyma og gleyma. Þei, næturvindur, far þér ei svo ótt með ilminn burt af mínum skuggavegi; og giljalækir, vaggið vært og rótt, Sigurður frá Arnarholti - skáld- ið sem kom með póstinum. að vökudraumar mínir stuggist eigi. Og lát þú, foss minn, bogann bærast hljótt sem blæ, er vængnum aðeins lyfta megi - ég kynni að hitta og höndla það í nótt, sem horfið væri og týnt á næsta degi. Það var erilsamt starf að vera sýsluskrifari og lyfsali, og ekki bara erilsamt heldur áfskaplega borgara- legt líka - veraldlegt. Fátt fýrirlitu nýrómantísku skáldin meir en hið venjubundna og borgaralega líf. Sigurður hefur því eflaust harmað lyfsalatilvem sína þegar hann hler- aði eftir orðum í mannlausri nætur- kyrrðinni. „Nú færist þytur dagsins nær og nær / og næturkyrrðin er á fömm bráðum," segir hann í lok Lágnættis við Laxafoss. Jafn ólíkur og Sigurður er Huldu í skáldskap sínum, verður mér þó stundum hugsað til skáldkonunnar sem lifði hálf í draumaheimi J>egar ég les rökkurkvæðin hans. I Draumi vef- arans em „kona og bam í bóli sínu / þær blunda vært og dreymir margt“, meðan skáldið vakir og hugsar um næsta vef í ljóðið, hugs- ar um draum og hugsar um dagsins verk: Þótt dagsins verk sé vont á stundum og volkið kalt og svaðilkennt, þá fellur dögg í draumsins lundum sem drottins orð af himnum sent. Ó, draumur, þín er dýrð og máttur að dreypa víni á þyrsta sál: hinn blindi skyggn og særði sáttur, Opnunartónleikar MENNING/LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Kjarvalsstaðir Sýningar: Gunnlaugur Blöndal, Fimm norrænir meistarar, Hannes Pétursson til 17. október Listasafn íslands Bragi Ásgeirsson til 31. október Norræna húsið Skagenmálaramir til 24. október Nýlistasafnið Brynhildur Þorgeirsdóttir og Tina Aufi- ero til 4. október Safn Ásgríms Jónssonar Vatnslitamyndir til febrúarloka Listasahirinn Portið Jónína Björg Gíslad. sýnir í vestursal. Ljósmyndasýn. i austursal tii 10. okt. Galleri Sævars Karls Stefán G. Karlsson til 29. september Hafnarborg Inga Elín Kristinsdóttir, Lhame Tobías Shaw og Svafa Björg Einarsdóttir til 4. október SPRON, Álfabakka Ingiberg Magnússon til 19. nóvember Galleri Úmbra Hafdís Ólafsdóttir til 13. október Mokka Þorvaldur Þorsteinsson til 10. okt. Önnur hæð Roni Hom sýnir út októbermánuð Listhúsið i Laugardal Jónas Bragi Jónasson til 3. október Eden, Hveragerði Aðalbjörg Jónsd. - lýkur á morgun. Gerðuberg Myndbandasýn. „Samtal" og Hrefna Sigurðardóttir til 3. október Gallerí Borg Ásgeir Smári til 1. október Ráðhúsið 67-kynslóðin, sýningu lýkur á morgun Gallerí Fold Sossa til 2. október Listsafn ASÍ Páll Reynisson Ljósm.sýn. til 3. okt Rjá þeim Ingibjörg Hauksdóttir til 2. október Gallerí 11 Alexandra Kostrubala til. 7. október Snegla listhús Ema Guðmarsdóttir til 23. október Listasafn Ámesinga Sigurður Einarsson, lýkur á morgun TONLIST Laugardagur 25. september Ljóða og óperutónleikar í Víðistaða- kirkju kl. 17 Þriðjudagur 28. september Djass- tónlist í Norræna húsinu kl. 20.30. Miðvikudagur 29. september Flauta og píanó, í sal Tónlistarskólans á Akra- nesi kl. 20.30 Laugardagur 2. október Flauta og píanó í kirkju Ytri-Njarðvíkur kl. 17 LEIKLIST Borgarleikhúsið Spanskflugan, lau. 25. september kl. 20, sunnud. ki. 20, miðvikud. kl. 20, föstudag 1. október kl. 20, laugard. kl. 20. Þjóðleikhúsið Þrettánda krossferðin, frumsýning 1. október kl. 20 Kjaftagangur, lau. 25. sept. kl. 20, sunnnud. kl. 20 Ferðalok, sunnud. 26. sept. kl. 16, sunnud. kl. 16 „Júlía og MánafóIkiðÁ I Héðinshúsinu, sun. 26. september kl. 14, mánud. kl. 13.30, þri. kl. 10, lau. 2. október kl. 11 „Fiskar á þurru landi“ Pé-leikhópurinn í Islensku óperunni iau. 25. september kl. 20.30 „Standandi pína“ í Tjarnarbíói, lau. 25. september kl. 20, sunnud. kl. 15, miðv. kl. 20, fim. 30. kl. 20, lau. 2. október kl. 15 Leikfélag Akureyrar ■ Ferðin til Panama, mán. 27. september kl. 15 í Þórsveri, Þórsh., þriðjud. kl. 13 í Hnitbjörgum, Raufarh., miðv. kl. 11, 14 og 16 á Húsav., fös. 1. október kl. 9.30 í Stórutjamarsk. og kl. 13 í Skjól- brekku, Mývatnssveit KVIKMYNDIR MÍR „Spaðadrottningin" sun. 26. sept. Hreyflmyndafélagið Sýning þriðjud. kl. 9, fimmtud. kl. 5 og helgarsýning fostudag ki. 9 SOFN Nútíð við fortíð I Þjóðmipjasafni v. Suðurgötu, opið sun., þri., fim. og lau. kl. 12-17 Umsjónarmenn listastofnana og sýn- ingarsala! Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birta í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt: Morgunblaðið, menning/listir, Kringlan 1, 103 Rvk. Myndsendir: 91-691222. Ténlist Jón Ásgeirsson Sinfóníuhijómsveit Islands hóf vetrarstarfið með tvennum opn- unartónleikum og var undirritaður á þeim seinni, sl. fimmtudag. A efnisskránni vom verk eftir Gers- hwin, Bernstein, Mussorgskíj, Puccini, Verdi og Ravel. Kynnist var Jóhann Sigurðarson, leikari, og söng hann einnig tvo dúetta úr söngleikjum með Sólrúnu Bragadóttir, sem auk þess söng aríur eftir Puccini og Verdi. Tónleikamir hófust á Kúbanska forleiknum eftir Gershwin, sem hann samdi eftir sumarheimsókn á Kúbu 1932 og hreyfst þá af létt- um leik kúbanskra dansspilara. Verkið var fyrst flutt undir nafn- inu Rúmba en síðar gefið konsert- nafnið Kúbanskur forieikur. Það er sniðuglega samið og hrynrænt mjög erfitt og hefði flutningur þess mátt vera bæði hrynfastari og nákvæmari. Sólrún Bragadóttir og Jóhann Sigurðarson sungu lag úr óperunni Porgy og Bess og gerðu það af þokka og síðasta lagið eftir Gershwin var Summertime og söng Sólrún þessa fallegu vöggu- vísu frábærlega vel. Candide for- leikurinn eftir Bernstein er snjöll tónsmíð, eins konar nútíma „buffaforleikur" og var hann oft mjög vel leikinn af hljómsveitinni. Glitter and be gay er feikna vel gerð ópemstæling úr söngleiknum Candide og var þessi skemmtilega gamanaría mjög vel sungin af Sólrúnu. Tonight úr West Side Story er svo þvældur söngur að hann hefði mátt missa sig. Fyrir hlé lauk tónleikunum með fantasíunni Nótt á eyðifjalli eftir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.