Morgunblaðið - 03.10.1993, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993
KVIKMYNDIR/Sambíóin hafa tekið til sýningar spennumyndina Flóttamaðurinn,
The Fugitive, með Harrison Ford og Tommy Lee Jones í aðalhlutverkum, en
myndin er byggð á geysivinsælum bandarískum sjónvarpsþáttum sem sýndir voru •
________________hér á landi á upphafsárum sjónvarpsins.___________ #
Ganiall kunningi á flótta
KVIKMYNDIN Flóttamaðurinn sem sýnd er í Sambíó-
unum þessa dagana segir sögu skurðlæknisins Richard
Kimble, sem er gamall kunningi íslenskra sjónvarpsá-
horfenda, en hann hefur ranglega verið dæmdur til
dauða fyrir að myrða konu sína. Á leiðinni í fangelsi
verður umferðarslys til þess að honum tekst að flýja
og hefst þá örvæntingarfull og æðisgengin leit hans
að hinum raunverulega morðingja, en um leið þarf
hann að forðast lögreglumenn sem allan timann eru
rétt á hæla honum. Myndin sem frumsýnd var í Banda-
ríkjunum í byijun ágúst hefur hlotið geysimiklar vin-
sældir hvarvetna um heim þar sem hún hefur verið
tekin til sýningar og í Bandaríkjunum hafa þegar ná-
lægt 200 milljónir dollara í aðgangseyri skilað sér í
kassann.
Richard Kimble (Harrison
Ford) er mikils metinn
skurðlæknir í Chicago sem
lifir hinu fullkomna lífi.
Hann er vel kvæntur og
hátt skrifaðir meðal starfs-
bræðra sinna og býr rík-
mannlega í einu af betri
hverfum borgarinnar. Það
er því allt í lukkunnar vel-
standi hjá lækninum þangað
til eiginkona hans er myrt á
hrottafenginn hátt nótt eina
þegar hann hefur verið kall-
aður til starfa á sjúkrahús-
inu. Kimble er ákærður fyrir
morðið þar sem ýmislegt
þykir benda til sektar hans.
Ekki er tekið tilliti til fram-
burðar hans um að hafa séð
einhentan mann yfirgefa hús
þeirra hjóna morðnóttina og
er Kimble dæmdur til dauða.
Þegar honum hefur tekist
að flýja hefst ítarleg leit að
honum undir stjórn alríkis-
lögreglumannsins Sam Ger-
ard (Tommy Lee Jones) sem
lætur einskis ófreistað til að
ná strokufanganum. Þar
með hefst leit læknisins að
morðingjanum, einhenta
manninum sem hann sá á
morðstaðnum, og jafnframt
æsispennandi flótti hans
undan lögreglumanninum
sem sífellt er rétt á hælum
hans.
Vinsælt sjónvarpsefni
Sennilega er flestum
þeirra sem komnir voru til
vits og ára á fyrstu árum
sjónvarps hér á landi enn i
fersku minni framhalds-
þættimir sem sjónvarpið
sýndi um flóttamanninn
Richard Kimble. I Banda-
ríkjunum hófst sýning á
þáttunum í september árið
1963 og þar voru þeir sýndir
í fjögur ár við geysimiklar
vinsældir. Með aðal-
hlutverkið í þáttunum fór
David Janssen sem von
bráðar varð heimilisvinur um
allan heim, en hann hafnaði
reyndar tilboði um að leika
áfram í þáttunum og þiggja
fyrir það hálfa milljón
dollara. Hann sneri sér þess
í stað að leika í öðrum
framhaldsmyndum í sjón-
varpi, en árið 1980 lést
Janssen úr krabbameini að-
eins 50 ára að aldri.
Þættimir um Flóttamann-
inn komust varanlega á
spjöld sjónvarpssögunnar
með því að setja áhorfsmet
þegar lokaþátturinn var
sýndur 29. ágúst 1967, en
72% bandarískra sjón-
varpsáhorfenda fylgdust þá
með því þegar læknirinn
hundélti hafði að lokum upp
á morðingjanum einhenta.
Það met stóð síðan óhaggað
í 13 ár eða allt þar til enn
fleiri sjónvarpsáhorfendur
kveiktu á tækjum sínum til
að komast að því hver hefði
skotið JR í Dallasþáttunum.
Það er þegar ljóst að kvik-
niyndin sem nú hefur verið
gerð eftir sjónvarpsþáttun-
um um flóttamanninn mun
á svipaðan hátt komast á
spjöld kvikmyndasögunnar,
því óðfluga stefnir í að hún
öðlist sess meðal mest sóttu
kvikmynda allra tíma.
Úrvalslið
Leikstjóri Flóttamannsins
er Andrew Davis sem fyrir
allnokkru hefur skapað sér
gott orð fyrir að leikstýra
spennumyndum, en síðasta
afurð hans á því sviði var
Under Siege með Steven
Seagal og Tömmy Lee Jones
í aðalhlutverkum, en sú
mynd var sýnd í Sambíóun-'
um síðastliðinn vetur. Áður
hafði Davis meðal annars
leikstýrt The Package með
Gene Hackman og Tommy
Lee Jónes í aðalhlutverkum
og má af þessu sjá að hann
er vanur að vinna með T.J.
Jones, sem í Flóttamannin-
um þykir sýna afbragðsleik
og loksins ná á hátind í kvik-
myndabransanum. Aðal-
í sjálfheldu
TOMMY Lee Jones í hlut-
verki lögreglumannsins
Sams Gerards sem verður
að Iúta í lægra haldi fyrir
Kimble þegar leiðir þeirra
liggja saman.
framleiðandi myndarinnar
er Arnold Kopelson, sem
hlaut óskarsverðlaunin árið
1987 fyrir framleiðslu á
mynd Olivers Stone,
Platoon, en aðrir
framleiðendur eru Roy
Huggins, sem skapaði upp-
runalegu sjónvarpsþættina,
og Keith Barish. Höfundar
handritsins eru þeir David
Twohy og Jeb Stuart, sem
skrifaði handritið að Die
Hard, en á bakvið myndavél-
ina er Michael Chapman,
sem tilnefndur var til
óskarsverðlauna fyrir
kvikmyndun Raging Bull
með Robert DeNiro.
Áflótta
HARRISON Ford í hlutverki Richards Kimble sem á
flótta undan réttvísinni leitar að morðingja konu sinn-
ar.
Á réttri slóð
FLÓTTAMAÐURINN virðir fyrir sér gervihandlegg
sem hann telur vera í eigu morðingjans sem hann leit-
ar að.
Tveir góðir saman
S AMLEIKUR þeirra Harrisons Ford og Tommy
Lee Jones í Flóttamanninum fcr meðal þess allra
besta sem Iengi hefur sést á hvíta tjaldinu, og oft
er erfitt að greina á milli hver er hin raunveru-
lega stjarna myndarinnar. Harrison Ford hefur
fyrir löngu síðan skipað sér í raðir helstu kvik-
myndasljarna samtímans, en Tommy Lee Jones
hefur hins vegar aldrei náð að slá almennilega í
gegn þrátt fyrir afbragðsgóðan leik oft á tíðum,
en ástæða þess er sú helst að myndirnar sem hann
hefur leikið í hafa einfaldlega ekki náð að slá í
gegn. En það eru greinilega tímamót í lífi þessa
hörkulega leikara um þessar mundir vegna vel-
gengni Flóttamannsins.
í þungnm þönkum
Tommy Lee Jones þarf sjálfsagt ekki að hafa mikla
áhyggjur af frama sínum
Harrison Ford hefur þeg-
ar leikið í sex af vin-
sælustu kvikmyndum allra
tíma, en það eru myndir
Stevens Spielbergs um
ævintýri Indiana Jones og
Star Wars myndir George
Lucas. Ford hlaut tilnefn-
ingu til óskarsverðlauna fyr-
ir leik sinn í Witness, en
meðal annarra vinsælla
mynda sem hann hefur leik-
ið í má nefna Patriot Ga-
mes, Regarding Henry,
Presumed Innocent, Work-
ing Girl, Frantic, The
Mosquito Coast og Blade
Runner.
Ford er fæddur og uppal-
inn í Chicago og samhliða
menntaskólanámi lék hann
í ýmsum leiksýningum.
Hann flutti til Ixis Angeles
til að reyna fyrir sér í kvik-
myndaleik, og fyrsta hlut-
verkið fékk hann árið 1964.
í kjölfarið fylgdu smáhlut-
verk í myndum eins og Luv,
Zabriskie Point og Getting
Straight. Milli þess sem
hann lék í kvikmyndum
stundaði hann trésmíðar
sem hann lærði af bókum,
en árið 1977 hlaut hann loks
langþráða heimsfrægð fyrir
hlutverk Han Solo í Star
Wars. í Flóttamanninum lét
Ford sér ekki nægja að leika
aðalhlutverkið, heldur hafði
hann hönd í bagga þegar
handritið var umskrifað,
auk þess sem hann kom
nálægt leikaravali, bún-
ingahönnun, gerð sviðs-
myndarinnar, og reyndar
flestum öðrum þáttum við
gerð myndarinnar. Hann
segir að sér þyki það sjálf-
sagt að vera með puttana
í sem flestu við gerð mynd-
anna sem hann leikur í,
enda sé það andlit hans sem
áhorfendur koma til með
að muna eftir að hafa séð
viðkomandi mynd, og því
vilji hann leggja sitt af
mörkum til þess að gera
hana sem best úr garði á
allan hátt. Hann hefur hins
vegar aldrei sýnt neinn
áhuga á að leikstýra sjálf-
ur, enda segir hann það
vera erfitt verk að vera leik-
stjóri auk þess sem það sé
ekki nægilega vel borgað.
Frítíma sínum eyðir Harri-
son Ford að mestu á bú-
garði sínum í Wyoming þar
sem hann býr ásamt eigin-
konu sinni Melissu Mathi-
son handrítshöfundi, en hún
skrifaði m.a. handrit E.T.
The Extra Terrestrial og
The Black Stallion, og
tveimur börnum þeirra.
Næsta mynd sem Ford leik-
ur aðalhlutverkið í er Clear
and Present Danger, sem
er einskonar framhald af
Patriot Games, en tökur á
henni standa yfir um þessar
mundir.
Loksins á toppinn
Tommy Lee Jones hefur
um langt árabil leikið allra-
handa misyndismenn, sér-
vitringa og geðsjúklinga
bæði í kvikmyndum og
sjónvarpi, og má þar til
dæmis nefna Howard
Hughes, Gary Gilmore og
hinn eftirminnilega Clay
Shaw í mynd Olivers Stone,
JFK. Jones hefur sýnt
einstaka hæfileika til að
skipta yfir úr hlutverkum
harðhausa af ýmsu tagi í
hlutverk venjulegra og
jafnvel hugljúfra manna í
aðal- og aukahlutverkum.
Misjafnt gengi myndanna
hefur hins vegar leitt til
þess að bið hefur orðið á
því að þessi fjöihæfi leikari
skipi sér meðal stjarnanna
á hvíta tjaldinu, en með
leik sínum í hlutverki
lögreglumannsins þijóska í
Flóttamanninum eru allar
líkur á því að sú bið sé á
enda.
Jones sem er 46 ára
gamall Texasbúi lauk á sín-
um tíma prófi í ensku frá
Harvardháskóla, en meðal
náinna vina hans í skólan-
um var A1 Gore Varaforseti
Bandaríkjanna. Jones hefur
aldrei stundað leiklist-
arnám, en á sjöunda ára-
tugnum var hann mjög við-
loðandi leiksvið í New York.
Fyrsta kvikmyndahlutverk-
ið fékk hann 1976 í mynd
Rogers Cormans, Jackson
County Jail, og í kjölfarið
fylgdu fjölmörg aðal- og
aukahlutverk í kvikmynd-
um og sjónvarpi. Framtíðin
sýnist vera björt hjá leikar-
anum um þessar mundir,
í kvikmyndum eftir leikinn
en hann hefur meira en nóg
að gera að því er virðist.
Þannig leikur hann eitt að-
alhlutverkið í mynd Olivers
Stone, Heaven and Earth,
sem frumsýnd verður í des-
ember, og þá leikur hann
aðalhlutverk í mynd sem
gerð verður eftir nýjustu
sögu Jons Grishams, The
Client, en tökur á henni eru
að hefjast. Þá er hann að
ljúka leik í annarri mynd
Olivers Stone, Natural Born
Killers, og síðar í haust leik-
ur hann á móti Jeff Bridges
í Blown Away, en þar fer
hann með hlutverk pólitísks
hryðjuverkamanns.
T