Morgunblaðið - 03.10.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 03.10.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, ■" Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Gjaldtaka án lagaheimildar Umboðsmaður Alþingis hefur í skýrslu fyrir árið 1992 gert athugasemdir við það að stjórn- völd setji oft reglugerðir m.a. um gjaldtöku og skattheimtu án þess að lagaheimild sé fyrir. Þetta kem- ur óneitanlega á óvart og bendir til að framkvæmdavaldið búi ekki við nægilegt aðhald, hvorki frá Alþingi né almenningi. I fréttaskýringu í Morgunblað- inu í gær um þetta mál er vitnað til sératkvæðis Magnúsar Thor- oddsens í hæstaréttardómi frá ár- inu 1986 um álagningu þunga- skatts en í sératkvæðinu sagði: „Skattþegnar almennt líta svo á að þeir skattar sem þeim er gert að greiða, séu löglega á lagðir. í þessu efni gildir hið fornkveðna „Konungurinn gerir ekki rangt“. Því er það svo að skattborgarar eru seinþreyttir til vandræða í þessum efnum og greiða almennt skatta sína fyrirvaralaust í þeirri trú að þeir séu löglega á lagðir." Þetta er áreiðanleg rétt lýsing á afstöðu almennings til gjaldtöku og skattlagningar hins opinbera. Þess vegna kemur það óþægilega á óvart að allmörg dæmi virðast vera um gjaldtöku án þess að laga- heimild sé fyrir henni. Athuga- semdir og ábendingar umboðs- manns um þetta mál verður að taka alvarlega. Þar verður Alþingi sjálft að hafa forystu. Fram- kvæmdavaldið starfar í umboði Alþingis og getur ekki tekið í sín- ar hendur skattlagningarvald. Þingið hefur bersýnilega látið framkvæmdavaldið fara of langt inn á sitt starfssvið. Athugasemd- ir umboðsmanns um gjaldtöku án lagaheimildar eru ekki eina dæmið uip það. í raun og veru má segja að þróun síðustu áratuga hafi ver- ið sú að framkvæmdavaldið hafi sífellt dregið til sín meira og meira af því valdi sem að réttu er hjá Alþingi. Þetta hefur þingið látið gerast möglunarlaust eða möglun- arlítið þar til á allra síðustu árum að breytt viðhorf hafa skapast hjá þingmönnum. Gjaldtaka án lagaheimildar er einungis eitt af fjölmörgum málum sem snerta almenning í landinu, þar sem ekki hefur verið gætt sem skyldi hagsmuna hins almenna borgara en sérhagsmunir látnir sitja í fyrirrúmi. Þetta hefur verið að breytast smátt og smátt. Neyt- endasamtökin eiga ríkan þátt í að skapa það viðhorf að fólk eigi ekki að láta bjóða sér hvað sem er í sambandi við kaup á vöru og þjónustu. Þær kröfur sem nú eru gerðar tii seljenda vöru og þjón- ustu eru margfalt meiri en fyrir áratug. Þetta á við um verzlun og þjónustufyrirtæki almennt. Hins vegar hafa stjórnarstofn- anir ekki sætt sama aðhaldi að nokkru marki fyrr en þá nú. I fréttaskýringu Morgunblaðsins í gær kom fram að fjármálaráðu- neytið hefði tekið þá stefnu að endurgreiða ekki gjöld sem ekki var lagaheimild fyrir að taka, nema greiðendur hefðu gert sér- stakan fyrirvara þegar greitt var. Byggir þessi'afstaða á fyrrnefnd- um hæstaréttardómi. Hún stríðir hins vegar gegn réttlætiskennd almennings. Hafí menn greitt í góðri trú opinber gjöld sem síðar kemur í ljós að hið opinbera hafði ekki heimild til að leggja á, er það auðvitað skylda ríkisvaldsins eða annarra opinberra aðila að endur- greiða þau gjöld. Hvar eru nú full- trúar þjóðaripnar sem sitja á Al- þingi og eiga að veita fram- kvæmdavaldinu aðhald? Tilhneigingin til að leggja út- gjöld á almenning hér og þar er rík. Sem dæmi má nefna þær umræður sem fram hafa farið um svonefnd debetkort á undanförn- um vikum, þar sem útgefendur kortanna hyggjast taka prósentu- gjald af viðskiptum, þótt augljós- lega séu ekki rök fyrir öðru en að taka ákveðna krónutölu fyrir hveija færslu, hvort sem viðskiptin eru mikil eða lítil. Þörfin fyrir að veija fólk gegn þessari ásókn er orðin mjög brýn. Þar ættu alþing- ismenn, fulltrúar fólksins á þjóð- þinginu, að vera fremstir í flokki. Því miður hefur sú hefð ekki skap- ast hér nema að litlu leyti en hins vegar æskilegt að hún verði til. Skýrsla umboðsmanns Alþingis um gjaldtökur opinberra aðila án lagaheimildar vekur til umhugsun- ar. Fróðlegt verður að fylgjast með því, hvort einhveijir alþingis- menn verða til þess að taka upp hanzkann fyrir hinn almenna borgara í umræðum um þessi mál og áþekk mál á þinginu í vetur. Q1 Oli erfið tákn og líkingar í Tímanum og vatninu einsog í Sorg og á þeim tíma mikil nýjung í íslenzkri ljóð- list; ekkisíður en nýstárlegar mynd- ir. Yfirborðið órætt einsog sagt var og dularfull myndhvörf eða hálf- myndir einsog Sigurður skólameist- ari Guðmundsson kallaði það, að sögn Kristjáns Karlssonar. Þá eru kvæðin byggð á þverstæðum eða andstæðum til áherzluauka. En ég sé engar sundraðar setningar eða samhengislausar í þessum kvæðum því vísanirnar og táknin eiga að skýra það sem ósagt er. Þessi kvæði eru í raun táknrænn skáld- skapur og heyra symbólismanum til, fyrstogsíðast. Kvæði af þessum skóla eru að sjálfsögðu einn helzti þáttur módernismans en þá mætti alvegeins nefna ljóð eftir aðra sym- bólista einsog Einar Benediktsson sem er einn sá fyrsti og ýmis ljóð nýrómantískra skálda einsog Huldu, Siguijóns á Laugum Frið- jónssonar, Jónasar Guðlaugssonar, Jóhanns Gunnars, Jakobs Jóhann- essonar Smára, Guðmundar skóla- skálds og fleiri. Öll eru þessi skáld fulltrúar táknmyndastefnunnar, hvert með sínum hætti; ekkisízt Einar Benediktsson sem er einn helzti symbólisti íslenzkrar tungu fyrrogsíðar. Kristján Karlsson hef- ur bent mér á einhveija eftirminni- legustu hálfmynd sem við eigum í íslenzkri ljóðlist, en hún er í kvæði Einars um Egil Skallagrímsson: Frá brotsjónum yzta að bergássins lind, sem brynnir andavarans þyrstu hind... HELGI spjall Hér er andvaranum líkt við þyrsta hind; þannig verður andvar- inn mjúkur og hlýr; mjúkur einsog öldu- faldur. í raun og veru eru kvæði einsog Tíminn og vatnið og Sorg engu auðveldari en þau tvö kvæði Jónas- ar Hallgrímssonar sem hvað ill- skiljanlegust eru, Alsnjóa og Svo rís um aldir en þau hafa fullkomin einkenni táknlegs skáldskapar og hefðu getað verið ort af yfirlýstum symbólista, einkum hið fyrrnefnda. Vandtúlkuð kvæði síðari ára eru mun auðveldari til skilnings en Alsnjóa án þess nokkrum manni detti í hug að kalla Jónas Hall- grímsson módernista því hann er fyrstogsíðast rómantískt skáld. En táknmyndaleikur hans í þessum kvæðum gerir hann að einhvers- konar symbólista löngu fyrir daga þessarar bókmenntastefnu, enda eru öll mikilvæg skáld symbólistar í aðra röndina og raunar er tungu- málið og hugsun okkar öll hlaðin táknum og líkingum án þess talað sé sérstaklega um symbólisma eða módernisma. Fomskáldin unnu öll með tákn og líkingar og notuðu þau með ýmsu móti; og í tungu indíána var myndmálið svo inngró- ið að segja má með nokkrum sanni að indíánar hafi talað í táknrænum skáldskap hvert skipti sem þeir tóku til máls; mannsnafnið Arn- arkló nægir sem lítið dæmi. Það er annað en þessi atriði sem úrslitum ræður um þróun nútíma- ljóðlistar; en þó einkum yfirbragðið og hugblærínn. Segja má með nokkrum sanni að Eliot og Pound yrki útúr heim- ildumr-en Steinn úr hugmyndum. í Tímanum og vatninu eru mikil litaáhrif frá nútímamyndlist, ekk- isízt ljóðrænni afstraktlist einsog Nína Tryggvadóttir málaði á tíma- bili. Tíminn og vatnið er ekki hefð- bundinn súrrealismi en stendur symbólisma nær. Steinn hefur kynnzt þessum módernisma og notar hann ókerfisbundið. Ekki veit ég samt hvort hann kynnti sér ljóð Rimbauds eða Beaudlaires, en þó er það líklegt því Steinn drakk í sig umhverfið án þess hafa mikið fyrir því. En Tíminn og vatnið á þó ekkert skylt við einfaldan ex- pressjónisma í málaralist sem er einskonar einfaldur realismi og gæti minnt á meðvitaðan naivisma einsog við sjáum í myndum Louisu Matthíasdóttur sem átti um skeið samleið með Nínu. í þessum tákn- lega skáldskap er margt sagt án þess að nefna það beinlínis. Það er í raun gert með nákvæmlega sama hætti og skapferli manns er lýst án þess að nefna það; tilaðmynda Arnarkló. Á sama hátt og hálfkveðnar vís- ur symbólistanna sem fyrr eru nefndir eiga ekkert skylt við sundr- aðan módernisma í þeim skilningi sem Örn Ólafsson leggur áherzlu á, þá er ég ekki frekar viss um að hálfkveðnar vísur í Tímanum og vatninu eigi eitthvað skylt við órök- legan módernisma sem byggist á sundraðri framsetningu. Tíminn og vatnið er einfaldlega margrætt ljóð með táknlegum vísunum en það er ekkert erfiðara til skilnings og veitir ekkert færri tækifæri til túlk- unar en Alsnjóa Jónasar Hall- grímssonar. M (meira næsta sunnudag) + REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 2. október Alþingi hefur HAF- ið störf á nýjan leik og ekki ólíklegt, að mikil átök verði í þingsölum framan af vetri. Stj órnarandstaðan metur hina pólitísku stöðu áreiðanlega á þann veg, að ríkisstjórnin, stjórnarflokk- arnir og einstakir ráðherrar liggi vel við höggi. Sumarið hefur verið stjórninni erf- itt og deilur innan hennar, og þá ekki sízt á milli stjórnarflokkanna, tvímælalaust skaðað hana verulega. Það var ofmælt hjá Svavari Gestssyni í umræðuþætti í Stöð 2 í gærkvöldi, föstudagskvöldi, að deilur á milli ráðherra minntu á ástandið í seinni vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem sat frá hausti 1978 fram á haust 1979, I en það er hins vegar líka of mikið til í því. Þetta er eins og svo margt annað spurn- ing um hugarfar. Samstarf þessara tveggja flokka á árunum 1959-1971 ein- kenndist af trausti og samheldni. Það var ákaflega sjaldgæft að veruleg átök eða orðahnippingar yrðu á opinberum vett- vangi. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins lögðu sig fram um að halda gagnrýni á samstarfsflokkinn í skeíjum í umræðum innan flokksins. Sjálfsagt hefur það einnig gerzt innan Alþýðuflokksins. Þó gætti á þeim árum töluverðrar andúðar á Alþýðu- flokknum innan Sjálfstæðisflokksins. Ekki sízt í byggðarlögum þar sem sjálfstæðis- menn höfðu áratugum saman átt í hörðum átökum við Alþýðuflokkinn. Það var t.d. áberandi að sjálfstæðismenn í Hafnarfirði voru mjög gagnrýnir á samstarfið við Al- þýðuflokkinn á Viðreisnarárunum og allt annar tónn í þeim en sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Astæðan var auðvítað sú, að þessir tveir flokkar höfðu barizt um völdin í Hafnarfirði áratugum saman. Það var einfaldlega í blóðinu í sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði að vera á móti krötum! Kannski má segja að þessi átök hafi náð hámarki í kosningunni á milli Emils Jóns- sonar, formanns Alþýðuflokksins, og Matt- híasar Á. Mathiesen, kornungs frambjóð- anda Sjálfstæðisflokksins, í Hafnarfirði í fyrri kosningunum 1959, þegar Matthías vann frægan sigur. Afstaða sjálfstæðismanna í Hafnarfirði var undantekning á þessum árum en ekki regla. Yfirleitt einkenndist Viðreisnarsam- starfið af þeirri vináttu á milli manna, sem var forsenda þess að það hélzt svo lengi. Fróðlegt verður að kynnast viðhorfum dr. Gylfa Þ. Gíslasonar til þessa samstarfs en bók eftir hann um Viðreisnarárin kemur út á næstu vikum og verður vonandi gagn- leg kennslubók fyrir þingmenn og ráð- herra núverandi stjórnarflokka. Vandamál Alþýðuflokksins á þessum árum var áreið- anlega minnimáttarkennd gagnvart stærri samstarfsflokki. Sjálfstæðismenn höfðu 4 ráðherra í ríkisstjórn en Alþýðuflokksmenn 3. Þessi munur á ráðherrafjölda svo og sú staðreynd að þingmenn Sjálfstæðis- flokksins vorum langtum fleiri hafði auð- vitað þau áhrif á Alþýðuflokksmenn að þeir töldu sig þurfa að ganga enn lengra í kröfugerð á hendur samstarfsflokknum en ella og vafalaust hefur það einnig verk- að þannig á forystumenn Sjálfstæðis- flokksins á þessum árum að þeir töldu sig þurfa að gefa meira eftir við samstarfs- menn sína en ella. Minnimáttarkennd Al- þýðuflokksmanna jókst við ófarir þeirra í kosningunum 1971 og 1974 og átti áreið- anlega einn stærsta þátt í því að þegar Viðreisnarmeirihluti varð til á Alþingi eft- ir kosningarnar 1978 voru Alþýðuflokks- menn ófáanlegir í slíkt samstarf, jafnvel þótt til boða stæði að það yrði undir þeirra forsæti. Með þessa forsögu í huga var það áreið- anlega snjall leikur hjá Davíð Oddssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, að bjóða Alþýðuflokksmönnum jafn mörg ráðherra- embætti í núverandi ríkisstjórn og sjálf- stæðismenn fengu. Það leiddi á svipstundu til meira jafnræðis á milli flokkanna en var á ViðreÍ8narárunum fyrri. Hins vegar hefur ekki skapast það traust og sú vin- átta á milli manna, sem einkenndi Við- reisnarstjórnina fyrri. Það er rétt sem fram kom hjá Svavari Gestssyni í fyrrnefndum sjónvarpsþætti að slík tengsl skipta miklu á milli manna sem starfa saman í ríkis- stjórn. Alveg sérstaklega á þetta þó við um forystumenn stjórnarflokkanna og má óhikað fullyrða að traust vinátta var fyrir hendi á milli Ólafs Thors og Bjarna Bene- diktssonar annars vegar og Emils Jónsson- ar og Gylfa Þ. Gíslasonar hins vegar. En þótt jafnræði sé nú meira á milli stjórnarflokkanna að því er varðar fjölda ráðherra í ríkisstjórn hefur stjórnarsam- starfið að undanförnu verið meira í ætt við samskipti sjálfstæðismanna og Alþýðu- flokksmanna í Hafnarfirði á viðreisnarár- unum fyrri en samstarf þessara flokka í ríkisstjórn á þeim árum. Og það býður hættunni heim, þegar orðahnippingar hefj- ast á milli formanna flokkanna á opinber- um vettvangi. Þeir geta rifizt eins og þeim sýnist inn á við en þeim ber skylda til að standast þá freistingu út á við. Ðeilurnar á milli stjórnarflokkanna á undanförnum vikum hafa skaðað ríkis- stjórnina og stjórnarsamstarfið. En þær geta líka orðið til góðs, ef bæði ráðherrar og þingmenn flokkanna átta sig á því að samstarf í þessari tóntegund gengur aldr- ei til lengdar. Á næstu vikum mun stjórnar- andstaðan leggja sig fram um að undir- strika þessar deilur í umræðum á Alþingi ekki sízt í sambandi við landbúnaðarmálin. Það verður til marks um, hvort samstarf þessara flokka er vænlegt til lengdar, hvort t.d. utanríkisráðherra og landbúnaðarráð- herra tekst að mynda sterka samstöðu gegn fyrirsjáanlegri sókn stjórnarandstöð- unnar. Það sýnir litla stjórnvizku af þeirra hálfu, ef þeir láta Ólaf Ragnar og Stein- grím Hermannsson etja sér saman á Al- þingi og hleypa öllu í bál og brand í stjórn- arsamstarfinu. Fjárlög og hugarfar HUGARFAR skiptir máli í öðrum efnum en þeim sem snúa að samstarfi stjórnarflokkanna. Eitt helsta verkefni Alþingis á næstu vik- um verður afgreiðsla fjárlaga fyrir árið 1994. Núverandi ríkisstjórn hefur unnið sleitulaust að því í tvö ár að draga úr hallarekstri ríkissjóðs með takmörkuðum árangri. En hún hefur reynt. Þetta er hins vegar erfitt verk. í hvert skipti, sem ámálg- að er að draga úr útgjöldum rísa þeir upp sem hafa hagsmuni af því að útgjöldunum verði haldið áfram. Hér er spurningin ekki bara sú, hvar hægt er að finna sparnaðar- leiðir, heldur hvort hægt er að breyta hugarfari fólks til peningagreiðslna úr sameiginlegum sjóði. Umræður sem fram hafa farið hér á síðum Morgunblaðsins undanfarna daga um smávægilegan út- gjaldalið á fjárlögum sýna þetta vandamál í hnotskurn. Morgunblaðið hefur gert athugasemdir við það að Alþýðusamband íslands, sem er heildarsamtök verkalýðsfélaganna í landinu, fái um 13 milljónir króna úr ríkis- sjóði til starfsemi sinnar. Nýlegar upplýs- ingar sem komu fram hér í blaðinu benda til þess að verkalýðshreyfingin í heild sé að verða eitt mesta fjármálaveldið í land- inu. Lára V. Júlíusdóttir, framkvæmda- stjóri ASÍ, svaraði þessari gagnrýni í Morgunblaðinu í dag, laugardag. Hún seg- ir m.a.: „Alþýðusamband íslands gegnir ekki einungis mikilvægu hlutverki í þágu um- bjóðenda sinna heldur hefur það mikilvægu þjóðfélagslegu hlutverki að gegna. Það er til ráðuneytis og aðhalds stjórnvöldum í öllum málum sem lúta að heill almennings og tekur þátt í mótun reglna sem brýnt er að þjóðfélagssátt sé um. Það tekur til umfjöllunar aðgerðir stjórnvalda, bæði fræðilega og tæknilega, og veitir pólitískt aðhald. Sem dæmi um slíkt starf er undir- búningsvinna að samningi um evrópskt efnahagssvæði. Án virkrar þátttöku full- trúa ASÍ í því starfi hefði ekki tekizt að aðlaga okkar reglur þeim kröfum, sem þar voru gerðar. Annað dæmi um hlutverk ASÍ er þátttaka í mótun landbúnaðar- stefnu. Þar var um afar viðkvæmt verk- efni að ræða sem nauðsyn var á að næðist breið samstaða um, verkefni sem stjórn- málamenn höfðu löngu gefizt upp á, en nú hefur náðst bærileg sátt um. Sú víð- tæka sátt sem náðist með þjóðarsáttar- samningum stuðlaði að hagsbótum fyrir þjóðfélagið í heild.“ Þetta eru m.a. rök framkvæmdastjóra ASÍ fýrir því, að skattgreiðendur eigi að greiða 13 milljónir króna til öflugustu fé- lagasamtaka landsmanna. En fleiri fá borgað úr vösum skattgreiðenda en verka- lýðshreyfingin. Það fær Vinnuveitenda- sambandið líka skv. frétt í laugardags- blaði Morgunblaðsins. Vinnuveitendur fá sjö milljónir greiddar úr ríkissjóði. Rök þeirra fyrir því að taka við þessum greiðsl- um eru ekki síður forvitnileg en rök Láru V. Júlíusdóttur. í samtali við Morgunblað- ið í dag, laugardag, segir Hannes G. Sig- urðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri VSI: „Við höfum margítrekað að þetta verði fellt niður, en við viljum að sjálfsögðu vera þarna inni meðan aðrir .fá þessi fram- Iög.“ Hér er um að ræða 20 milljónir króna af fjárlögum, sem nema um 110 milljörð- um, svo að ekki skipta krónurnar máli en hugarfar og afstaða þeirra, sem við þeim taka skipta öllu máli og óhætt að fullyrða, að það er einkennandi fyrir afstöðu, sem liggur að baki mörgum milljörðum króna í útgjöldum ríkissjóps. Alþýðusamband íslands er heildarsam- tök sem verkalýðsfélögin í landinu hafa myndað til þess að geta sameiginlega bar- izt fyrir bættum kjörum, ef þeim sýnist svo. Til þess að undirbyggja þessa hags- munabaráttu hafa verkalýðsfélögin ráðið í sína þjónustu sérfræðinga á ýmsum svið- um m.a. lögfræðinga og hagfræðinga. Þessir sérfræðingar vinna að hagsmuna- baráttu launafólks með sama hætti og vinnuveitendur hafa myndað með sér sam- tök og ráðið sérfræðinga í sína þjónustu til þess að vinna að hagsmunamálum at- vinnufyrirtækjanna. Við skulum vona að það starf sem þessi samtök inna af hendi fyrir umbjóðendur sína „stuðli að hagsbót- um fyrir þjóðfélagið í heild“ eins og fram- kvæmdastjóri ASÍ talar um, en það breyt- ir ekki því að hvorki ASÍ né VSÍ hafa verið sett upp til þess að vinna að heildar- hagsmunum þjóðarinnar heldur að sér- hagsmunum. Og þeir sem njóta góðs af sérhagsmunabaráttu þessara samtaka: eiga auðvitað að greiða allan kostnað af hénni. Þess vegna eru röksemdir^ fram- kvæmdastjóra Alþýðusambands íslands fáránlegar. Ríkisvaldið hefur yfir nægileg- um fjölda sérfræðinga og stofnana að ráða til þess að tryggja allt það upplýsinga- streymi sem stjórnmálamenn og embættis- menn þurfa á að halda til þess að taka mikilvægar ákvarðanir. Þessir aðilar þurfa ekki á aðstoð ASÍ að halda í þeim efnum. ASÍ er hins vegar samningsaðili fyrir ákveðinn þjóðfélagshóp en sá þjóðfélags- hópur hlýtur að greiða sjálfur það sem að honum snýr. Ekki eru röksemdir talsmanns Vinnu- veitendasambandsins betri. VSÍ gerir kröfu til þess að vera tekið alvariega í umræðum um hagsmunamál íslenzks at- vinnulífs og hefur uppi margs konar kröfu- gerð á hendur stjórnvöldum. Er hægt að taka menn alvarlega sem taka við pening- um úr ríkissjóði bara af því að aðrir gera það?! Þetta mál er ekki gert hér að umtals- efni vegna þess að það sé svo stórt í krón- um talið. Morgunblaðið gerir þessar greiðslur að umtalsefni vegna þess að af- staða móttakenda peninganna sýnir í skýru ljósi þann vanda sem við er að etja í fjár- málum ríkisins. ASÍ og VSÍ mundu sýna gott fordæmi með því að óska eftir því að þessi fjárframlög verði lögð niður frá og með næstu áramótum. Hið sama ættu Búnaðarfélag íslands, Fiskifélag, BSRB og aðrir aðilar sem með þessum hætti fá greiðslur úr vösum skattgreiðenda að gera. HUGARFARS- breytingin þarf að verða hjá fleirum en forráðamönnum þeirra félagasam- taka sem hér eiga hlut að máli. Hún þarf að verða hjá þingmönnunum sjálfum sem taka ákvarðanir um fjárlög næsta árs. Það Afstaða þingmanna hefur lengi verið talið til marks um dugn- að þingmanna hvað þeir hafa náð miklum árangri í að ná fjármunum úr opinberum sjóðum til kjördæma sinna. Sama afstaða hefur ríkt í Færeyjum. Þar hafa stjórnmálamenn verið afar dug- legir við að útvega fé til margvíslegra framkvæmda hingað og þangað um eyj- arnar. í frétt í Morgunblaðinu í dag, laug- ardag, segir svo um árangurinn af þessum dugnaði færeyskra stjórnmálamanna: „Þeirri skoðun vex fylgi í Færeyjum að vænlegra hefði verið að fara strax gjald- þrotaleiðina, lýsa færeyskt samfélag og landssjóðinn gjaldþrota, í stað þess að þiggja mikil lán frá-Dönum. Þau hafa að mestu farið aftur til Danmerkur, til danskra kröfuhafa, en ekki til uppbygging- ar í Færeyjum. Fjármálanefnd danska þingsins er nú í Færeyjum og í gær var hún á borgarafundi með 800 manns. Kom þar fram mikil reiði í garð færeyskra stjórnmálamanna, ekki sízt Atla Dams, og margir höfðu á orði að betra hefði verið að lýsa samfélagið allt gjaldþrota strax og ljóst var til hvers fjármálaóreiðan og lántökur erlendis höfðu leitt. Þá hefðu landsmenn orðið að byija aftur og leiðin aðeins geta legið upp á við. Kirsten Jakobs- en, þingmaður danska Framfaraflokksins, styður þetta sjónarmið margra Færeyinga og vill að færeyskir stjórnmálamenn verði dregnir til ábyrgðar á óreiðunni. Dönsku þingmennirnir voru mjög snortnir af máli fólks á borgarfundinum, einkum unga fólksins sem á sér enga framtíð í landi sínu. í fyrra fluttu 4% Færeyinga burt og búizt er við, að brottflutningurinn verði 6% á þessu ári. Sumir sem vilja fara segj- ast ekki geta það vegna skulda en aðrir senda bara bankanum húslykilinn í pósti og kveðja ættjörðina.“ Þegar þingmenn, ráðherrar og allir þeir sem telja sig hafa hagsmuni af því að ná sem mestum peningum úr ríkissjóði, að ekki sé talað um þá sem vilja fá peninga af því að aðrir fá þá, setjast niður á næstu vikum til þess að fjalla um fjárlög íslenzka ríkisins, ættu þeir að hafa þessa frásögn frá Færeyjum í huga. Það er styttra á milli íslands og Færeyja en margan grun- ar. Morgunblaðið/RAX „Hér er um að ræða 20 milljónir króna af fjárlög- um, sem nema um 110 milljörðum, svo að ekki skipta krónurnar máli en hugarfar og afstaða þeirra sem við þeim taka skipta öllu máli og óhætt að full- yrða að það er einkennandi fyrir afstöðu sem ligg- ur að baki mörg- um milljörðum króna í útgjöldum ríkissjóðs.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.