Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 44

Morgunblaðið - 03.10.1993, Page 44
"V-. 33sP= FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00 W9/ Reglubimdinn sparnaður JV Landsbanki Má íslands ÆMJt Bankl allra landsmanna MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJA VlK SlMl 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Spennar brunnu í Laxárvatnsvirkjun A-Húna- vatns- sýsla án rafmagns Blönduósi. ELDUR varð laus í spennum í Laxárvatnsvirkjun, skammt frá Blönduósi, kl. 8.30 á laugardags- morgun. Sót og skemmdir slógu út háspennurofa í spennuklefa og varð öll Austur-Húnavatnssýsla rafmagnslaus við atvikið. Viðgerð átti að Ijúka um kvöldmatarleytið í gær, laugardag. Haukur Ágeirsson, rafveitustjóri á Blönduósi, segir að um alvarlega bilun hafi verið að ræða og að líkind- um yrði að tengja fram hjá há- spennurofunum til að rafmagn kæm- ist aftur á. Eldsupptök eru ókunn og vildi Haukur ekki meta fjárhagslegt. tjón að svo stöddu. Öll Austur-Húnavatnssýsla varð rafmagnslaus þegar spennarnir brunnu, en á Skagaströnd er vara- rafall sem fór fljótlega í gang og urðu Skagstrendingar því lítt varir við óþægindi af völdum brunans. Jón Sig. ■irs Fimmtán ára stúlka alvarlega slösuð eftir líkamsárás Þijár stúlkur spörk- uðu í höfuð hennar Lögreglumaður blés í hana lífi þegar hún hætti að anda FIMMTÁN ára gömul stúlka liggur alvarlega slösuð á Borgarspít- alanum eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás á Lækjar- torgi um kl. 2 aðfaranótt laugardagsins. Rannsóknarlögreglan leitar þriggja stúlkna sem grunaðar eru um að hafa sparkað i höfuð stúlkunnar. Á leið á sjúkrahús missti stúlkan meðvitund og hætti að anda en lögreglumenn blésu í hana Iífi á ný og gekkst hún undir aðgerð á höfði á Borgarspítalanum í fyrrinótt. Opinber gjöld einstaklinga og félaga Rúmlega 8,5 millj- arðar í vanskilum VANSKIL opinberra gjalda í staðgreiðslu hjá einstaklingum og félög- um á landinu öllu af álagningu á yfirstandandi ári og vegna óinn- heimtra gjalda frá fyrri árum voru samtals rúmlega 8,5 milljarðar króna 2. september síðastliðinn samkvæmt upplýsingum sem feng- ust í fjármálaráðuneytinu. Eftirstöðvar opinberra gjalda einstaklinga vegna álagningar frá fyrri árum voru 4.612 milljónir kr. um sein- ustu áramót og hefur tekist að innheimta 1.101 millj. af þeirri upp- hæð, eða 23,9%, en eftirstöðvar opinberra gjalda félaga frá fyrri árum sem ekki hefur tekist að innheimta nema tæplega fjórum milljörðum kr. Álagning opinberra gjalda í stað- greiðslu á einstaklinga á yfirstand- andi ári var 8.853 millj. kr. og var búið að innheimta 1.990 millj. 2. september sl., eða 22,5%, en um 6.200 millj. voru ógjaldfallnar. Van- skil vegna álagningar ársins voru því komin í 663 millj. kr. Álagning á félög á þessu ári er 6.013 millj. kr. og var búið að inn- heimta 2.420 millj. kr. af þeirri upp- hæð 2. september sl. en um þrír milljarðar voru enn ógjaldfallnir. Eftirstöðvar vegna álagningar frá fyrri árum voru 4.701 millj. um sein- ustu áramót en tekist hafði að inn- heimta 892 millj. af þeirri upphæð í byijun september. Samkvæmt upplýsingum fjár- málaráðuneytisins hefur innheimta gengið þokkalega á undanförnum misserum en of snemmt sé að meta hver árangurinn verði á þessu ári og hvort vanskil séu að færast í aukana. . Stúlkan hlaut heilablæðingar og var í lífshættu um tíma. Henni tókst sjálfri að leita aðstoðar lögreglu á Lækjartorgi eftir árásina og kvart- aði þá undan eymslum í höfði. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík hef- ur lögreglubíll verið staðsettur undanfarnar helgar við Dómhúsið á Lækjartorgi og þeir sem þurft hafa á aðstoð lögreglu að halda hafa gengið að henni vísri þar. Stúlkan var stödd í miðbænum ásamt vinkonu sinni. Hún kvað þijár stúlkur hafa_ hrint sér í göt- una og sparkað nokkrum sinnum í höfuðið á sér og annars staðar í líkamann þar sem hún lá á göt- unni. Hún kvaðst ekki þekkja árás- armennina. Hætti að anda Lögreglan flutti stúlkuna á slysadeild og á leiðinni þangað kastaði stúlkan upp og skömmu síðar náðu lögreglumenn ekki sam- bandi við hana og fengu engar lík- amlegar svaranir frá henni. í ljós kom að hún var hætt að anda en veikur púls fannst. Lögreglumaður hóf þegar lífgunartilraunir og hóf hún þá að anda sjálf. Árásarmennirnir höfðu ekki náðst í gær en Rannsóknarlögregl- an hefur rannsókn málsins með höndum. Mjög litlar lýsingar eru á árásarmönnunum. Þó eru mörg vitni að árásinni og yfirheyrslur yfir þeim stóðu yfir. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Borgarspítalans er stúlkan talin úr lífshættu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þröngt athafnasvæði FIMM vikna tafir hafa nú orðið á framkvæmdum við Steindórs- plan og gamla Hótel íslandsplanið en stefnt er að Ijúka þeim 15. nóvember nk. Framkvæmdir í Kvosinni í sumar Fimm vikna seink- un á Ingólfstorgi FRAMKVÆMDUM við Steindórsplan og gamla Hótel íslands- planið, sem hlotið hefur nafnið Ingólfstorg, hefur seinkað um tæpar 5 vikur frá upphaflégri áætlun, að sögn Sigurðar I. Skarp- héðinssonar, gatnamálastjóra. Sigurður vinnur nú að samantekt kostnaðar við framkvæmdirnar fyrir borgarráð og segir að útlit sé fyrir að breytingar sem gerðar hafa verið til sparnaðar og seinkun framkvæmda jafnist út þannig að kostnaður standi á sléttu. Verktakar eru Suðurverk og Björn og Guðni og segir Sigurður að skrifstofa gatnamálastjóra hafi þrýst á þá nýverið um að auka hraðann við framkvæmdir og hafi hann aukist undanfarnar tvær vikur. Samkvæmt seinustu áætlunum eiga verkskil að vera 15. nóvember nk. „Framkvæmdir í Kvosinni eru mjög flóknar í eðli sínu vegna þess að þetta er þröngt athafna- svæði og erfitt með alla að- drætti,“ segir Sigurður. „Fram- kvæmdirnar voru heldur ekki fullhannaðar þegar við lögðum af stað og menn hafa verið að breyta þeim eftir að þær hófust, þannig að allt leggst á eitt um að seinka þeim.“ Sigurður segir að nú sé unnið öll kvöld til að flýta framkvæmd- um og nýlega einnig á sunnudög- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.