Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 1
SUNNUDAGUR
20. MARZ 1994
jHremtiityhifttfr
BLAÐ
GRAFIKVINIR
FJARLÆ6ÐIN
6ERIR
FJÖLLIN
10 BLÁ
SUNNUDAGUR
Madame Sunant
Rey-Coquais,
sendiherrafrú Frakka
álslandi er frá
Taílandi, tók 7 ár í
að verða rðtgrðin
Frakki og sannur
fulltrði iiióðar sinnar
og iión aðlagast vel
íslenskum
vetrarveðrum
VETUR og hríðarmugga utan dyra, en inni í gamla, franska
sendiráðsbústaðnum við Skólholtsstíg mæta manni falleg
og stór útsprungin blóm á hárréttum stöðum, fínlegar
taílenskar orkideur, stórar rauðar amarilles á lauk, gulir
afskornir túlipanar og rauðar rósir á lágu borði. Tilveran
verður björt og notaleg. Líklega þrífst allt eins og blómin
í návist húsfreyjunnar, Madame Sunant Rey-Coquais, sem
tekur með hlýlegu brosi á móti snjóugum gestinum. Það
hafði einmitt fyrr vakið athygli hve allt er fallegt þeg-
arfrönsku sendiherrahjónin bjóða gestum til miðdags
eða sídegisdrykkju, dekkað borðið, rétturinn á hverjum
diski og samsetning máltíðarinnar vel útfærð. Minnti
undirritaða á heimaland húsfreyjunnar, Taíland, þar sem
matardiskurinn er alltaf eins og listaverk hjá háum sem
lágum. Enda er matreiðslan og hvert handarvik úr eig-
in hendi húsfreyjunnar í franska sendiráðinu.