Morgunblaðið - 20.03.1994, Side 3

Morgunblaðið - 20.03.1994, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 B 3 Fyrirlestur um orðafar í Islend- inga sögum EIRIKUR Rögnvaldsson, prófess- or við Háskóla Islands, og Ornólf- ur Thorsson, stundakennari við Kennaraháskóla íslands, flytja þriðjudaginn 22. mars kl. 16.15 fyrirlestur í boði Rannsóknar- stofnunar Kennaraháskóla ís- lands. Fyrirlesturinn nefnist: Um orðafar í íslendinga sögum. Undanfarin ár hefur hópur fræði- manna unnið að svokölluðum Orð- stöðulykli íslendinga sagna. Þar er um að ræða skrá um öli orð sem fyrir koma í sögunum, þar sem sýnt er í hvaða samhengi þau standa. Slíkir lyklar auðvelda mjög hvers kyns athuganir á orðafari og orða- notkun og gagnast málfræðingum, bókmenntafræðingum, sagnfræðing- um og ýmsum öðrum sem skyggnast vilja í merkingarheim þessara bók- mennta. Þess má vænta að Orðstöðu- lykill Islendinga sagna verði gefinn út á geisladiski síðar á þessu ári, en jafnframt hefur verið unnið að orð- stöðulyklum annarra fomtexta, eink- um Sturlunga sögu og Heimskringlu Snorra Sturlusonar. í framhaldi af gerð orðstöðulykl- anna hefur verið unnið að ýmiss konar rannsóknum á orðaforða text- anna og í fyrirlestrinum verða kynnt- ar nokkrar niðurstöður þeirra rann- sókna. Fýrirlesturinn verður í stofu M-301 í Kennaraháskóla íslands og er öllum opinn. Hemlaklossar Hemlakjálkar Hemladiskar Hjóldælur Höfuðdælur Hemlaslöngur Hemlagúmmí Handbremsubarkar Hemlavökvi Hemlarofar Höföar til .fólks í öllum starfsgreinum! SAMSKONAR LYF ERU Á MISMUNANDI VERÐI TIL ALMENNINGS. VELJUM ÓDÝRASTA KOSTINN! Þegar almenningur kaupir lyf, er ekki Lryggt að samskonar, jafngild lyf séu ætíð seld á sama verði. Verðmunurinn getur verið ótrúlegur. í þessari auglýsingu er leitast við að skýra einn þátt er miklu máli skiptir í verðlagningu iyfja. Þegar sama virka lyfjaefnið er skráð undir mismunandi lyfjaheitum, frá mismunandi framleiðendum, eru þau lyf kölluð SAMHEITALYF. Þetta eru iyf sömu tegundar, samskonar lyf. Þau eru ekki aðeins markaðssett hvert undir sínu heiti, heldur eru þau einnig í ólíkum umbúðum. Lyfin eru engu að síður talin jafngild (bio-equivalent) af heilbrigðisyfirvöldum, enda gerðar til þeirra nákvæmlega sömu gæðakröfur. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að samheitalyf geta verið á afar mismunandi verði og stundum er sá munur margfaldur. Hér eru nokkur dæmi um verðmun á algengum sýklalyfjum, en sjúklingar greiða slík lyf að fullu. Dæmin miðast við algengan 7 daga skammt af jafngildum lyfjum. SAMHEiTALYF Dýrt: Ódýrt: Mismunur: a) 429 kr. 297 kr. 132 kr. b) 1.253 kr. 611 kr. 642 kr. c) 1.302 kr. 511 kr. 791 kr. d) 1.369 kr. 605 kr. 764 kr. e) 6.684 kr. 3.479 kr. 3.205 kr. Aðhald og sparnaður í rekstri veitir aukið svigrúm til betri heilbrigðisþjónustu. Merki læknir bókstafinn (g) við lyfjaheiti á lyl'seðli, fær sjúklihgur eingöngu afgreitt tiltekið lyf. Merki læknir hins vegar bókstafinn(S)við lyrjaheiti, fær sjúklingur afgreitt ódýrasta samheitaiyf í sama lyfjafiokki. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLA- RÁÐUNEYTÍÐ TRYGGINGASTOFNUN Kp RÍKISINS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.