Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ MENIUINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 Frægur sjónvarpsvestri; Gibson og Garner í Maverick. Maverick endurborinn Af öllum þeim bandarísku sjónvarpsvestrum sem gerðir voru á sjöunda ára- tugnum, allt frá „Gun- smoke“ til „Bonanza“ og „Wanted: Dead or Alive“, hefur aðeins Maverick með James Garner orðið að bíó- mynd. Má það nokkurri furðu sæta í því endurgerð- ar- og stælingarfári sem ríð- ur húsum í Hollywood þessi árin. Tökur standa nú yfir á Maverick með Mel Gibson í titilhlutverkinu, Garner í aukahlutverki og Jodie Fost- er í aðalkvenhlutverkinu undir leikstjóm hasar- myndastjórans Richard Donners („Lethal Weapon“- myndirnar). Persónur Gib- sons og Foster eiga að standa í einhverskonar ást- arsambandi en „þær eru svo vondar og illgjarnar að það var varla hægt að koma amorsandanum fyrir,“ segir Foster. „Hann er alltaf að reyna að fá fólk til að, þú veist, veita sér athygli,“ segir Forster um mótleikarann Gibson. „Það er eins og hann hafi persónuleikaeinkenni einhvers sem er verulega smávaxinn, alls ekkert sæt- ur og vel gefinn." Linda Hunt leikur einnig í myndinni, snákatemjara, en snákahrekkir voru bann- aðir á tökustað án þess að væri farið mikið eftir því. „Við misstum þrjá menn,“ segir leikstjórinn Donner, „en ég vissi ekki hveijir það voru og það skipti ekki máli. Þeir voru leikarar." KVIKMYNDIR— Hvad segja breskirgagnrýnendur? I kjölfar morðingja Alls höfðu um 15.000 manns séð spennu- myndina í kjölfar morðingja eftir síð- ustu helgi að sögn Karl 0. Schiöths bíó- stjóra í Stjörnubíói en myndin var einnig sýnd í Laugarásbíói. Þá höfðu 4.500 manns séð gamanmynd- ina Fleiri pottorma samtals í Reykjavík og á Akureyri og Karl sagði Dreggjar dagsins hafa byijað mjög vel fyrstu sýningarhelg- ina. Alls sáu tæp 10.000 manns Öld sakleys- isins sem nú er hætt að sýna. Næstu myndir Stjörnubíós verða Fíladelf- ía, eyðnimynd Jonathans Demme, sem byij- ar á skírdag, 31. mars, en hún er með Tom Hanks í aðalhlutverki. Þá kemur Geronimo eftir Walter Hill með Wes Studi í aðalhlut- verki og loks gamandramað „My Girl 2“ með Dan Aykroyd. Indíánaleikur; Studi leikur Geronimo. Engin elsku mamma; Steve Martin. Barnagælan Sleve Martin A Inýjustu gamanmynd sinni leikur Steve Martin einbúa sem finnur og ættleiðir litla stúlku. Myndin heitir „A Simple Twist of Fate“ og er leikstjórinn skoskur, Gillies MacKinnon að nafni, en hann gerði áður „The Playboys". Eina vandamálið við kvikmyndagerðina var að í hvert sinn sem litla stúlkubarnið rak augun í Steve Martin fór 'það að hljóða ógurlega. Er sú hegðan rakin til fyrstu tökunnar þar sem barnið þurfti að skríða frá látinni móður sinni í gegn- um snjó og heim til Mart- ins, sem tekur á móti því. Barnið grét óstjórnlega all- an tímann þennan fyrsta tökudag og þarf ekki nema sjá Steve Martin tilsýndar eftir það til að bresta í óstöðvandi grát. Með önnur hlutverk fara Gabriel Byrne, sem leikur alvörupabba stúlkunnar, og Catherine O’Hara, sem er vinkona Martins — og veitir ekki af. ínafni sannleikans Fáar ef nokkrar myndir hafa vakið eins mikil við- brögð, umræður og deilur hin seinustu ár í Bret- landi og mynd Jims Sheridans, í nafni föðurins. Ætti það ekki að koma á óvart þeim sem séð hafa myndina því hún er kynngimögnuð ádeila á breska réttarkerfið I bland við sorglegan mannlegan harm- leik sem fær hjartað til að slá hraðar og reiðina ólga undir sljórn fyrsta flokks sögumanns. Umræð- ur gagnrýnenda í Bretlandi hafasnúist um atriði málsins sem áhorfendur annars staðar í heiminum þekkja ekki eins vel en lúta að sannleiksgildi og því hvernig myndin hagræðir staðreyndum og hversu langt er leyfllegt að ganga í þeim efnum. Gagnrýnandi The Times Literary Supplement skrifar í blað sitt að ágæti myndarinnar hafi fallið í skuggann af deilunum sem mmmmmmmm hún hefur vakið í Bretlandi. í blaða- greinum hefur ver- ið lögð áhersla á að myndin víki í veigamiklum atriðum frá sannleikanum og sérstak- lega bent á að feðgamir eftir Arnald Indriðoson Satt og logið; úr hinni umdeildu mynd, í nafni föðurins. Gerald og Giuseppe Conlon hafi aldrei deilt fangaklefa, að einn af Guildfordfjór- menningunum, Paul Hill, hafi ekki verið með Gerald kvöldið sem sprengjan sprakk í Guildford, að það hafí ekki verið róni heldur búðarmaður sem veitti að- eins Conlon fjarvistarsönn- unina sem aldrei kom fram. Þetta telur gagnrýnandinn réttilega að grafi undan trúverðugleíka annarra þátta myndarinnar eins og þeim að fjórmenningarnir séu saklausir. Gengur Sheridan of langt í að hagræða sann- leikanum? Hvort sem hann gerir það eða ekki er hætt- an er sú að ef umræðurnar um myndina einkennast aðeins af því hvernig sann- leikanum er hagrætt í minniháttar tilvikum fari fólk að efast um mikilvæg- ari efni eins og sakleysi fjórmenninganna. Á þess- um forsendum hefur mynd- in verið harðlega gagnrýnd af þeim sem til málsins þekkja. Það fer ekki á milli mála að fjórmenningarnir eru saklausir, skrifar gagnrýn- andi The Times. Játningar þeirra voru falsaðar, mikil- vægri fjarvistarsönnun var stungið undir stól og lög- reglumennimir sem stjórn- uðu rannsókn málsins voru dæmdir ósannindamenn af áfrýjunarrétti. Fjórmenn- ingarnir hefðu aldrei átt að vera sakfelldir. En samt, segir í The Times, þar sem birtur er mjög jákvæður dómur um myndina, eru uppi raddir um að fjórmenningunum og Jim Sheridan beri skylda til að afsanna að þeir hafi komið sprengjunum fyrir. Margir bæði í lögfræðistétt og á meðal lögreglumanna eru enn fullvissir um að réttu mennirnir hafi verið handteknir og byggja það á sögusögnum sem ganga í þeirra hópum. Guildford- fjórmenningamir liggja enn undir grun því eins og þeir segja sem ekki hafa látið sannfærast; þar sem er reykur þar er eldur. Þessar umræður eru skiljanlegar segir gagnrýn- andinn því menn í æðstu stöðum fundu illilega fyrir því þegar réttarhneykslið varð uppvíst og reiðin ólgar enn í bresku þjóðinni vegna sprenginganna eftir öll þessi ár. í nafni föðurins hefur einnig vakið umræð- ur um aðferðir sem beitt er í öðrum sannsögulegum myndum eins og JFK Oli- vers Stones og Amadeus eftir Milos Forman, sem taka sér ómælt skáldaieyfi. Hversu langt má ganga í því að hagræða og breyta staðreyndum? Hafa kvik- myndirnar ótakmarkað leyfi til þess? Hver á að stoppa þær? Niðurstaða gagnrýn- anda The Times um I nafni föðurins er þessi: Sheridan er ekki að reyna að sanna sakleysi Gerrys Conlons og hans dramatísku sýn má treysta. 15.000 hafa séð MFöstudaginn 25. mars nk. klukkan 21 verður haldin for- sýning í Stjörnubíói á al- næmismyndinni Fíladelfíu eftir Jonathan Derame og rennur ágóði af sýningunni til Alnæmissamtakanna á íslandi. Forsala á sýninguna hefst í Stjörnubíói á mánu- daginn. Miðaverð er kr. 800. MÞær tvær erlendu myndir sem teknar verða að hluta til hér á íslandi á næstunni, „Judge Dredd“ með Sylvest- er Stallone og „Icelandic Saga“ eftir Michael Chap- man, munu báðar koma í Laugarásbíó þegar fram líða stundir, að sögn Magnúsar Gunnarssonar bíóstjóra. Is- lendingasagan gæti komið næstu jól en Stallonemyndin ekki fyrr en sumarið 1995. MBandaríski leikstjórinn Barry Levinson hefur ekki alveg náð sér eftir sína síð- ustu mynd, undragripinn „Toys“, sem fékk slaka dóma og enn slakari aðsókn, en hann hefur nú sent frá sér nýja mynd „Jimmy Holly- wood.“ Þetta er gamanmynd og fara Joe Pesci og Christ- ian Slater með aðalhlutverk- in. Pesci leikur mann sem dreymir um að gerast leikari og þegar einhver stelur bíla- viðtækinu hans bijálast hann með þeim afleiðingum að kvikmyndaverin í - Hollywood beijast um réttinn til að kvik- mynda ævi hans. ■ Tuttugu og fimm ár eru lið- in frá því óskarsverðlauna- myndin „Midnight Cowboy" með þeim Jon Voigt og Dust- in Hoffman var frumsýnd vestra og hefur hún verið sett í endurdreifingu. Hvort sem það er í tilefni af því eða ekki er nú unnið að nútímakúreka- mynd með Kiefer Suther- land og Woody Harrelson sem leika kúreka tvo er halda úr sveitinni til stórborgarinnar New York að finna vin sinn, sem er týndur. Myndin heit- ir „The Cowboy Way“. í BÍÓ Það dregur nær óskars- verðlaunaafhendingu og eru flestar myndanna sem beijast um styttuna komnar í kvikmyndahús hér svo við getum farið að veita okkar eigin Oskara. Nú síðast byijaði stór- virkið Listi Schindlers í Háskólabíói en hún hlaut 12 útnefningar og er talin mjög sigurstrangleg þó ekki sé nema vegna þess að mörgum finnst kominn tími til að veita Steven Spielberg verðuga viður- kenningu. En eins og oft áður koma Bretamir sterkir til leiks, sérstaklega leikarar eins og Anthony Hopkins og Emma Thompson, sem leika saman í Dreggjum dagsins í Stjömubíói. Að ógleymdum Daniel Day: Lewis í ádeilumyndinni í nafni föðurins. Tom Hanks er eins líklegur sigurvegari og hver annar en myndin hans, Fíladelfía, er vænt- anleg í Stjömubíó. Við eram fyrir löngu búin að sjá Flóttamanninn, Júragarðinn, í skotlínu, Píanóið, Öld sakleysisins og fleiri af þeim sem virð- ast mestu máli skipta á óskarspalli í ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.