Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994
B 13
Náttúra endurreist
ROKKSVEITIN Náttúra er goðsagnakennd í ís-
lenskri rokksögu, enda var hún fremst framúr-
stefnusveita á sínum mektarárum. Náttúra lagði
upp laupana fyrir rúmum tuttugu árum, en snýr
aftur til tónleikahalds í næsta mánuði.
Náttúru stofnuðu
Björgvin Gíslason,
Sigurður Arnason og Rafn
Haraldsson, en fjölmargir
áttu eftir að spila í sveit-
inni, þar á meðal Sigurður
Rúnar Jónsson og það eru
þeir Björgvin, Sigurður
Rúnar og Sigurður Arna-
son sem endurreisa sveit-
ina, en með þeim verður
trommuleikarinn Stein-
grímur Guðmundsson.
Að sögn Björgvins er
endurkoma Náttúrumanna
til komin meðal annars
vegna þess að hingað er
væntanleg fyrir tilstilli Sig-
urðar Rúnars sænsk þjóð-
lagasveit sem heldur tón-
leika í Borgarleikhúsinu
12. apríl. Þar mun Náttúra
halda fyrstu tónleikana og
leika þá meðal annars tón-
list sem bönnuð var í út-
varpinu á sínum tíma, en
það var útsetningar Nátt-
úrumanna á Bach, Mozart
og Grieg. Björgvin segir
þá Náttúruliða hyggjast
halda áfram spiliríi fram á
sumar, þó ekki sé framtíðin
fullljós.
Framúrstefna Náttúra anno 1994,
Morgunblaðið/Kristinn
Fönk/ rokk/ rapp Smokin’ Suckaz Wit’ Logic.
ROKKAÐ RAPP
RAPPIÐ er geysivinsælt, en ekki síður er vinsælt
að hræra saman rokki og rappi. Útkoman getur og
verið harla skemmtileg, sem sannast á fyrstu breið-
skifu Smokin’ Suckaz Wit’ Logic.
Smokin’ Suckaz Wit’
Logic, eða bara SSL
er gott dæmi um þá geijun
sem má sér stað í rapp-
inu/rokkinu um þessar
mundir. Sveitin er samsafn
tónlistarmanna úr ólíkum
áttum og af ólíkum kyn-
þáttum sem hafa samein-
ast í fönk/rokk/rappi og
vakið fyrir mikla athygli.
Lagið Mutha Made ’Em af
fyrstu plötu sveitarinnar,
Playin’ Foolz, hefur notið-
hylli í útvarpi hér á landi,
en þar en fléttað saman
fönkuðum grunni, sýrðum
rafgítar og rappsöng og
ekki skemmir að textinn
er upp fullur með boðskap,
þó hann gangi þvert á
kristna fyrirgefningu.
/ ’ ^
i ■*£! I
_ V ) ■ H
V
Ljósmynd/Björg Svcinsdóttir
Megas í MH.
MÞAÐ hlýtur að teljast
draumasamsetning að fá á
eina tónleika Megas og
Búðingana í Súkkati, en
slíkt er í boði næstkomandi
þriðjudag í Flensborg í
Hafnarfirði. Tónleikarnir
hefjast kl. 21.00
■ MANNABKEYTING-
AR hafa orðið í gæðadans-
sveitinni Bubbleflies, því
Þórhallur Skúlason, einn
stofnmeðlima sveitarinnar,
sagði skilið við hana fyrir
skemmstu. Þórhallur hygg-
ur á sólóferil og mun eiga
lög á væntanlegri dans-
safnplötu Smekkleysu sem
kemur út á næstunni.
Bubbleflies heldur áfram
af fullum krafti, en hyggst
ekki bæta við manni í stað
Þórhalls, og meðal annars
hefur hljómsveitin verið
ráðin til vikulegrar spila-
mennsku á Vellinum. Ann-
ars er það að frétta af
Bubblefliesliðum að þeir
verða með lag á annarri
safnplötu Smekkleysu í
sumar, eru að vinna að
myndbandi sem senda á út
og leggja drög að breið-
skífu síðar á árinu.
DÆGURTÓNLIST
Hvad eru til margarBjarkirf
Margfoldun
MEÐAL þess sem óháðu útgáfunnar bresku
þurftu að glíma við í slag sínum við stórfyrir-
tækin í upphafi liðins áratugar var að kaupenda-
hópurinn var smár. Þannig skutust smáskífur
óháðra hljómsveita iðulega hátt inn á lista, en
féllu jafnharðan út af honum aftur. Ráð við því
var að gefa sama lagið út margoft, þá með
nýjum aukalögum, eða í nýju formi, tii að mynda
fyrst sem 7“, þá sem 12“ eða jafnvel 10“ og
síðan sem smágeisla. Þetta þýddi að daginn sem
lagið kom út þustu allir áhugasamir út að kaupa
og síðan aftur viku síðan þegar ný útgáfa kom.
Þetta tryggði að lagið hélt velli á lista og hljóm-
sveitin fékk meiri umfjöllun og athygli en ella.
Þegar dansbylgjan reis í lok liðins áratugar tók
þessi útgáfa á sig nýja mynd.
Aðdáendur Sykurmol-
anna máttu hafa sig
alla við ef þeir vildu ná
saman öllu því sem hljóm-
mmmmmmmmmm sveitin
gaf út af
breiðskí-
fum, tólf-
tommum,
tíutomm-
um, sjö-
: tommum,
eftir Amo , . ,
smágeisl-
Motthíosson um og
hvaðeina. Oft var þar á
ferð endurhljóðbiöndun á
einhvetjum lögum eða jafn-
vel tónleikaútgáfur og til
að mynda var Ammæli, eða
Birthday, gefið út í níu
útgáfum hið minnsta. Þeg-
ar Björk Guðmundsdóttir
er nú orðin heimsfræg
vandast málið enn, því hún
hefur einkar gaman af að
fá liðtæka blendla til að
fara höndum um hugverk
sín og til eru fjölmargar
útgáfur af þeim smáskffu-
lögum sem hún hefur sent
frá sér, nú síðast Violently
Happy, sem gefið var út
fyrir skemmstu á tveimur
geisladiskum í átta mis-
munandi útgáfum.
Samtals eru á diskunum
tveimur 55 mínútur af tón-
list. Á fyrri disknum er
breiðskífuútgáfan af Vio-
lently Happy og sfðan óraf-
magnaðar útgáfur af The
Anchor Song, Come to Me
og Human Behaviour, en á
hinum disknum er Vio-
lently Happy í sjö útgáfum:
Fluke (Even Tempered),
Massey Mix (Long) (útgáfa
Grahams Masseys úr 808
State), Masters at Work
(„Little" Louie Vega &
Kenny „Dope“ Gonzales),
Fluke (Well Tempered),
12“ Vocal (Nellee Hooper),
Massey (Other Mix) (Gra-
ham Massey aftur) og loks
Vox Dub Nellees Hoopers.
Til viðbótar við þetta eru
svo Domestic Mix af Vio-
lently Happy á fyrstu Ven-
us as a Boy-smáskífunni
og útgáfur sem aðeins eru
fyrir diskótek og gefnar
hafa verið út á tíu- og tólf-
tommum, en Hljómalind
hefur flutt inn nokkuð af
slíkum útgáfum. Eins er
víst að ef laginu gengur
vel á listum, það byrjaði í
þrettánda sæti breska smá-
skífulistans, má búast við
að fleiri útgáfu verðir gerð-
ar.
Onnur lög Bjarkar hafa
verið gefin út í mörgum
útgáfum, til að mynda
Human Behaviour, sem til
er í sjö útgáfum, Venus as
a Boy, í sex útgáfum, Play
Dead, f fimm útgáfum, og
Big Time Sensuality, í átta
útgáfum.
-A
|gg
Ljósniynd/Björg Sveinsdóttir