Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 14

Morgunblaðið - 20.03.1994, Síða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 4- + w SPAÐ IDUTTLUNGA BANDARISKU KVIKM YNDAAKADEMIUNNAR 1994 mmm %rí t. iu; Y-'T f W- Dreggjor dagsins Listi Schindlers Píanó Óvissa er orð dagsins. Árið 1993 fæddi nef nilega af sér f éeinar af burða- myndir sem munu halda þessu értali í heiðri é síöum kvikmyndasögunnar. í nafni föðurins Flóttamaöurinn eftir Sæbjöm Valdimarsson Á MORGUN rætast æðstu vonir örfárra listamanna en þeir verða þó fjórfalt fleiri sem snúa heim, aðeins reynslunni ríkari. Orrust- an um Oskarinn hefur ekki verið tvisýnni um árabil. Óvissa er orð dagsins. Það er jafnan hálfgert happdrætti að segja til um sigur- vegarana í flestum flokkanna, en nú verður lukkan að koma til hjálpar sem aldrei fyrr! Árið 1993 fæddi nefnilega af sér fá- einar afburðamyndir sem munu halda þessu ártali í heiðri á síðum kvikmyndasögunnar. Listí Schindlers, Dreggjar dagsins, I nafni föðurins, Píanóið, Flótta- maðurinn, Far velfrillan mín, allt eru þetta verk sem hafa burði til að skara framúr hvaða ár sem er. Og fleiri snjallar og minnis- stæðar myndir eins og Old sak- leysisins, Dave, Menace II Soci- ety, Tina, Ys ogþys útaf engu, að Júragarðinum ógleymdum, litu dagsins ljós. Tímamir breytast og mennimir með. Nú eru Óskarsverðlaunin orðin snar þáttur í auglýsinga- herferð kvikmyndahúsanna, tilnefn- ingar sem verðlaunahafar. Að öllum líkindum em þau hvergi jafn áber- andi í auglýsingum utan Bandaríkj- anna sjálfra. íslensku dreifingaraðil- ar standa sig líka æ betur, nú eru allar bestu myndirnar komnar til landsins, aðeins Philadelphia enn ósýnd. Auk þess em allar aðrar myndir sem getið er hér á eftir vænt- anlegar á hvíta tjaldið á næstu vik- um. Bcsta mynd ársins Strax í upphafi einkennir tvísýnan valið. Að Flóttamanninum und- anskiidum, þeirrar annars ágætu og afar spennandi en veigalitlu myndar, geta allar hinar fjórar staðið uppi sem sigurvegarar. Þó freistast ég til að álíta að Píanóið eigi hverfandi mögu- leika, þótti hólið jaðri við oflof á köflum. Philadelphia tekur fyrst stór- mynda á vágestinum eyðni og gerír það vel undir stjóm Jonathans Demme (Lömbin þagna). Eyðnin hef- ur bankað hvað vægðarlausast uppá hjá kvikmyndagerðarmönnum og vissulega nýtur hún samúðar meðal akademíumeðlima. / nafni föðurins er sláandi mynd um rotið réttarkerfi og ótrúleg en sönn afdrif norður-írskra smælingja í greipum þess. Krydduð afbragðs leik Daniels Day-Lewis og jafnvel enn betri frammistöðu Petes Postlet- hwaites, í hlutverkum feðga sem voru fómarlömb Breta í baráttu þeirra við hryðjuverkamenn. Það er engin spuming að hún getur unnið. Á hitt ber að líta að efnið er afar viðkvæmt og í sviðsljósinu þessa dagana, það getur ráðið úrslitum. Og akademían er íhaldssöm. Ef að líkum lætur fellur heiðurinn annaðhvort Dreggjum dagsins eða Lista Schindlers í skaut. Þetta eru að flestra dómi bestu myndir ársins. Framleiðandanum Merchant, leik- stjóranum Ivory og handritshöfund- inum Jhabvala tekst fima vel upp í Dreggjum dagsins, sem státar jafn- framt af einstæðum leik Anthonys Hopkins í aðalhlutverkinu. Þessi lág- stemmda mynd um einmana sálir í skel sinni gefur ekkert eftir fyrri myndum þessa fræga þríeykis, nema síður sé. En myndir þess hafa oftar en ekki komið við sögu verðlaunanna á undanfömum árum. Sigurstranglegust frá mínum bæj- ardyram séð er þó Listi Schindlers, hið átakanlega stórvirki Spielbergs um atburði sem aldrei mega gleym- ast. Hrylling Helfarar gyðinga, út- rýmingarbúðanna, djöfulskapar nas- ista og hugrekki kaupsýslumannsins Oskars Schindlers og lífsþorsta gyð- inganna. Hér er valinn maður í hverju rúmi, efnistökin slík að um tíma- mótaverk er að ræða, myndin raunar svo veigamikil að framhjá henni verð- ur tæpast gengið. Spielberg á líka inni hjá akademíunni sem hefur jafn- an hundsað myndir hans, þar með taldar nokkrar þær vinsælustu í sög- unni. Og ekki skaðar að í akadem- íunni er fjöldi gyðinga og roskinna meðlima. 1. Listi Schindlers 2. Dreggjar dagsins 3. / nafni föðurins Besta erlenda myndin Fjórar myndanna eru nánast óþekktar hérlendis þegar þessar línur birtast; hin spænska Belle Epoque, Hedd Wyn frá Bretlandi, Brúðkaup- sveislan frá Hong Kong og víet- namska myndin Ilmurinn af grænum papæja. Ekki gerir orðsporið þær lík- legar til að veita hinni sigurstrang- legu Far vel frillan mín umtalsverða samkeppni. Hún er ein minnisstæð- asta mynd sem komið hefur frá Aust- urlöndum ijær eftir að aldurinn fór að færast yfir Kurosawa. Hinar eru vissulega óséðar og Brúðkaupsveisl- an hefur vakið talsverða athygli, einkum á meðal minnihlutahópa, en myndin tekur að sögn á málum sam- kynhneigðra af óhlutdrægni. Það dugar henni þó að líkindum skammt. 1. Far vel frillan mín líesti leikstjórinn Það er hollt að hafa hugfast að besta myndin á það til, oftar en ekki, að vinda uppá sig við verðlaunaveit- ingarnar og altítt að a.m.k. leikstjóri hennar fái einnig Óskarinn. Ég gef mér það að Listi Schindlers fari með sigurlaunin í ár og þá Spielberg sömuleiðis. Nú gefst akademíunni tækifæri að bæta undrabarninu skarðan hlut á umliðnum áram og margir era þeirrar skoðunnar að hún grípi það fegins hendi. En það sem vitaskuld vegur þyngst á metunum er að Listi Schindlers hefur allt það til brunns að bera sem prýtt getur sigurvegara. Sú skoðun er ráðandi á þessum bæ að Bandaríkjamaðurinn James Ivory hafi aldrei gert betur en nú, Dreggjar dagsins hafí vinningin yfir Herbergi með útsýni, Hávarðsenda og fleiri listagóðar myndir leikstjór- ans. Ef akademían gengur framhjá Spielberg eina ferðina enn þá verður það Ivory sem hampar Óskarnum í ár. Jim Sheridan er heitur og hér er hann með sitt langbesta verk frá því hann gerði Vinstri fótinn árið 1989. Það væri synd að segja annað en að óvissan réði hér ríkjum. Jane Campi- on og Robert Altman eiga þó að öll- um Iíkindum sáralitla möguleika. 1. Steven Spielberg 2. James Ivory 3. Jim Sheridan Bcsti karllcikari ársins Eftir að hafa séð Tom Hanks ummyndast úr ungum lögfræðing á uppleið í dauðvona eyðnisjúkling, taldi ég hann vissan um sigurinn. Hanks er aukinheldur afar vinsæll leikari í sínu heimalandi og hin geð- þekkasta persóna. Myndin sú fyrsta sem tók á málum eyðnismitaðra í stórmyndaflokknum, áhrifarík og meiningin góð. En þessi nýjasta mynd Jonathans Demmes einfaldar hlutina óneitanlega og fyrir bragðið verður hún eilítið yfirborðskennd. Möguleikar Hanks minnkuðu óneit- anlega eftir að maður varð vitni að enn einum stórleik Daniels Day-Lew- is í / nafni föðurins. Day-Lewis er einn af bestu yngri leikuram okkar tíma og hlaut Öskarinn eftirsótta árið 1989 fyrir Vinstri fótinn. Hann væri nokkuð öruggur í ár ef ekki kæmi til frammistaða Anthonys Hopkins í Dreggjum dagsins. Hver getur gengið framhjá þessum leik- sigri? Hopkins hlaut reyndar Óskars- verðlaunin fyrir aðeins þremur árum fyrir kraftmikla frammistöðu sína í Lömbin þagna. Hlutverk hans í Dreggjum dagsins er miklum mun dýpra og hér kemur ekkert gervi til hjálpar. Hopkins kemur ógleyman- lega til skila öllum þeim átökum sem hið húsbóndaholla hjú byrgir innra með sér, einmannaleikanum, sárs- aukanum, söknuðinum, af þvílíkri snilld að árangurinn minnir á bestu landa hans í leikarastétt, meistarana John Gielgud, Alec Guinnes, Ralph Richardson og IiOrd Laurence Olivier. Laurence Fishburne er einn af bestu skapgerðarleikurum Holly- wood og er eftirminnilega góður sem rustinn Ike Tumer í Tinu en Liam Neeson á líklega hvað minnstu mögu- leikana að vinna í þeim tólf flokkum sem Listi Schindlers keppir í í ár. Stendur þessi ágætisleikari sig þó með láði. Robin Williams hlaut ekki náð fyrir augum akademíunnar í ár,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.