Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 PRÓFAÐU SJÁLF! Spennandi förðunarnámskeið fyrir sumarið sem nálgast Námskeið í'yrir hópa og einstaklinga, dagförðun og kvöldförðun. 26.3. kLl6. 09.4. kLl6. 16.4. kLl6. Sniðugt fyrir ferminguna, brúðkaupið, útskriftina eða stefnumótið! y % Q DAGFORÐUN I snyrtist ofa HÖNNU KRISTÍNAR Skeifunni 19, sími 67 86 77 VANGO SVEFNPOKAR Nitestar 3 Kuldaþol -10°C, þyngd 1,9 kg. Verð 4.900 Nitestar 2 Kuldaþol -5°C, þyngd 1,7 kg. verð 4.200 VANGO BAKPOKAR Sherþa 55L verð 6.400 Sherþa 65L Verð 6.800 VANG0 KÚLUTJÖLD DD 300 þyngd 4,25 kg. Verð 16.300 DD 200 þyngd 3,75 kg. verð 11.600 FERMINGARTILBOÐ Svefnpoki Nitestar 3 4.900 Bakpoki Sherpa 65 6.800 Kr. 11.700 Fermingartllboð Kr. 10.500 iglu kúlutjald 3-4 manna 6.900 Svefnpoki Nltestar 2 4.200 Kr. 11.100 Fermingartllboð Kr. 9.900 Tjald DD 300 16.300 Fermingartllboð Kr. 13.900 Tjald DD 200 11.600 Fermingartllboð Kr. 10.250 SPORTHÚS RHYKJAVÍKUR LAU6AVEGI 44. SlMI 62 24 77 OPERA Wagner á Vesturgötunni eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Læknirinn og óperuunnandinn Ámi Tómas Ragnarsson tekur á móti mér með bam í fangi. Eg elti hann niður í kjallara í húsi hans við Vesturgötu í Reykjavík. í all- stóru herbergi í kjallaranum hafa Ámi og Selma Guðmundsdóttir kona hans komið fyrir sjónvarpi og geislamyndspilara á borði fyrir framan nokkrar stólaraðir. Fáeinir gestir eru komnir til þess að horfa á óperusýningu. Þorsteinn Blöndal læknir, einn gestanna, tekur bamið meðan Ámi sýnir mér hróðugur stóra „gullplötu". „Hér á eru óperur Wagners, Niflungahringurinn allur saman, við erum byijuð að hafa forsýningar á verkinu hér áður en verkið verður sýnt stytt á Listahá- tíð í vor, “ segir hann og bregður plötunni í tækið. í sömu andránni og Gwyneth Jones í hutverki Brynhildar, hefur upp raust sína í sjónvarpinu byijar litla heimasætan, Selma Lára, að hrína. Það er ekki að kynja því nú býr Brynhildur sig til að stíga á bálið, við undirleik voldugra þrumu- tóna Wagners, Ragnarök nálgast, áhorfendum er eftirlátið að ákveða hvort heimurinn ferst algjörlega eða hvort nýr heimur rís upp af rústum þess gamla. „Wagner lætur svarið koma í tónlistinni en ekki textan- um,“ segir Ámi og hraðspólar fyrir mig svo ég sjái sem fyrst fulltrúa mannkynsins fylgjast með Valhöll brenna og snúa sér síðan að augliti áhorfenda. „Það gerir ekkert til fyrir dra- matíkina þótt stórir kaflar í verkinu séu skomir úr,“ segir Ámi. „Það skýrist sumpart af því að Wagner skrifaði verkið aftur á bak og segir í flórða kafla það sem gerðist í hin- um þremur sem hann hafði þá enn ekki skrifað og þannig koll af kolli." Ámi hefur haft forgöngu um að sýna hið mikla verk Wagners Nifl- ungahringinn óstyttan. Þessar sýn- ingar hafa margir vinir og velunn- arar óperunnar séð. „Þetta verk er hugsað sem ein heild þótt það sé samansett af fjórum óperam," segir Ámi. „Upphaflega var víst ætiun Wagners að Sigurður Fáfnisbani, yrði aðalpersóna Niflungarhingsins. En þegar Wagner var kominn vel á veg með verkið breyttust hug- myndir hans og Niflungarhringur- inn varð að harmsögunni um Óð- inn, drottnara alheimsins, sem hafði rangt til að auka auð sinn og völd og hlaut því að farast að lokum. Morgunblaðið/Þorkell Frá óperusýningu á Vesturgötu 36B. Fremstir á myndinni silja f.v. Árni Tómas Ragnarsson og Þorsteinn Blöndal. Robert Wagner Textinn í þessu mikla tónlistar- og leikverki er mjög mikilvægur. Ég sá Niflungahringinn í fyrsta skipti í sjónvarpi með skjátexta og skildi allt, þar með varð bæði músik- in og leikritið miklu aðgengilegra. Það fólk sem hefur séð sýningamar héma hefur einmitt haft orð á því hve skjátextinn sé því mikilvægur. Inn á þessum verkum er skjátexti, hægt að velja á milli texta á ensku, þýsku og ítölsku. Þetta hefur alltaf mikið að segja, ekki síst í Wagneró- perum.“ Það er bamabam Richards Wagner, Wolfgang Wagner sem er listrænn ráðgjafi við uppfærslu Nifiungahringsins á Listahátíð. „Hann stakk sjálfur upp á að stytta Niflungahringinn og við gripum þá hugmynd hans á lofti, sem við höfð- um ekki einu sinni dirfst að nefna upphátt þegar við hittum hann í Bayreuth á síðasta ári. Þessi upp- færsla í vor hefur vakið mikla at- hygli erlendis, bæði vegna stytting- arinnar og tengsla verksins við Is- land.“ Engin ópera hefur eins mikla skýrskotun til íslands eins og Nifl- ungahringurinn, söguþráður verks- ins er sótt í íslensk rit, svo sem Eddukvæði og Völsungasögu. „Það tala margir um lengd Niflunga- hringsins og telja hann ekki síst merkilegan fyrir það, sannleikurinn er hins vegar sá að það er boðskap- ur verksins, það að ástin sé það sem máli skiptir í lífinu, sem er. það merkilegasta við þetta verk,“ segir Þorsteinn Blöndal þegar rætt er um gildi þessa mikla verks. Bæði hann og aðrir gestir Áma og Selmu eru sammála um að þýðing forsýning- anna á Niflungahringnum, sem þau hjón hafa staðið fyrir að undanfömu sé mikil. „Þetta tiltæki Áma mun stækka talsvert þann fremur fá- menna hóp Wagneraðdáenda sem fyrir var,“ segir Þorsteinn. Ámi getur þess að Styrktarfélag Óper- unnar hafi staðið fyrir svona ópem- kynningum um árabil, „Þetta er bara svqlítil viðbót," segir hann hæverskléga og bætir við: „ þótt veturinn í vetur sé í þessu húsi helgaður Wagner vegna sýningar Listahátíðar í vor, þá verður haldið áfram hér næsta vetur, og þá kannski á öðmm nótum en Wagn- ers.“ TRU Samantha Fox finnur Jesúm Samantha Fox er þekktust fyrir að klæða sig úr að ofan og sýna umfangsmikinn barminn á síðu þijú í gulu pressunni bresku. Þegar þeim ferli var lokið reyndi hún fyrir sér bæði sem poppsöngmær og leikkona. Þar sem hún var nokkuð fræg, þ.e.a.s. kroppurinn hennar, gerði hún sér miklar vonir um að slá í gegn. Ekki gekk það eftir og hefur hún kennt ýmsu þar um, m.a. villtu lífemi þar sem pillur og áfengi komu nokkuð ótæpilega við sögu á stundum. Sumir segja, að hún hafi ekki hæfileika á popp- og leikiistarsviðinu og hafí eftir sem áður reynt að kom- ast áfram með því að sýna barminn. Núna hefur hún snúið taflinu við. Kúvendingin felst í því, að hún hefur frelsast og „gefíð Jesú líkama sinn og sál“, eins og hún kemst að orði. Hún segir forsenduna vera þá, að við búum I hörðum heimi þar sem erfítt sé að ná á toppinn án þess að traðka á tám allra í kring um sig. Hún hafí aldrei komist upp á lag með slíkt og því „misst stjóm á lífi sínu og sjónar á markmiðum sínum“. Sam, eins og hún er yfírleitt kölluð, er aðeins 27 ára gömui og hún hefur nú lagt villt lífernið á hilluna. Sturtað úr pilluglösunum í klósettið og hætt að skreppa í ríkið. Hvað tekur við sé hins vegar óljóst í stöðunni. Sam Fox, aldrei þessu vant bærilega klædd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.