Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.03.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 B 17 : : / 1: II Morgunblaðið/Kristinn Þóra K. Guðjohnsen BALLETT Þrjú ár enn óra Kristín Guðjohnsen hefur fengið mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína í ballettinum Draumar eftir Stephen Mills, sem íslenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir, ásamt þremur öðr- um dansverkum. Þóra hóf ballett- nám árið 1980 í Belgíu en var síðan í bellettskóla Eddu Scheving. Ári síðar hóf hún nám við Listdans- skóla Þjóðleikshússins. Hún starfaði með íslenska jazzballettflokknum í eitt ár en var ráðin við Islenska dansflokkinn haustið 1988. Hún starfaði í þijú ár í Þýskalandi, fyrst við Borgarleikhúsið í Darmstadt og síðan við Tanz forum í Köln. Steph- en Mills hefur áður komið við sögu í íslenskum ballett. Fyrir rúmu ári setti hann upp verk sitt Rauðar rósir með íslenska dansflokknum. í bellettinum Draumar dansar Þóra m.a. tvídans með Hany Hadaya. „í þessu verki er enginn söguþráður en öll sporin eru byggð á klassísri ballettþjálfun. Breska hljómsveitin Praise á tónlistina sem ballettinn er saminn við, þetta er því í orðsins fyllstu merkingu nútímadanstón- list,“ segir Þóra. „Mér finnst mjög gaman að dansa svona verk, en það er erfitt. Ég er nýlega komin í þjálf- un aftur eftir að hafa átt við meiðsl í baki og hásiri að stríða síðan í fyiTa vetur. Ég tók þó þátt í sýn- ingu í júní í fyrra sem frumsýnd var í Kaplakrika í Hafnarfirði og við fórum síðan með til Bonn í Þýskalandi. Ég er alveg búin að ná mér eftir meiðslin, en þau kenndu mér mikið, bæði að vinna tæknilega réttar með líkamann og einnig hef- ur hugarfar mitt gagnvart dansi og því lífi sem þróast í kringum hann breyst,“ segir Þóra ennfrem- ur. ,-Mér finnst ég sjá betur nú að dansinn er ekki bara draumaheimur og að metnaðurinn getur orðið of mikill. Ef maður ætlar að fara lengra með líkamann en hann get- ur, þá stöðvar hann mann. Ég hef hugsað mér að dansa í mesta lagi þijú ár í viðbót, en ekki lengur en þar til ég verð þrítug. Ég hef alltaf haft áhuga á fatahönnun og hús- gagnahönnun, matargerð er líka eitt af mínum áhugamálum. Eitt- hvað af þessu tagi höfðar til mín og verður kannski mitt framtíðar- verkefni. Ég er ein af þeim sem á erfitt með að taka ákvarðanir og reyni því að láta tímann vinna með mér, leyfa hlutunum að þróast eðli- lega,“ segir Þóra að lokum. arhátft 4,500 nautasteikur seldar á 18 dögum Síbasta tilbobsvikan stendur til 27. mars Tilbobsverb: kr. Jarlinn veisla alla daga Ulii «y""—" ; mUN«íSí3M Sprengisandi - Kringlunni Þóra K. Guðjohnsen og Hany Hadaya í tvídansi úr verkinu Adieu, sem er eitt af fjórum verkum sem Islenski dansflokkurinn sýnir um þessar mundir Ný hljómflutningsstæ&a úr POWER PLUS línunni frá Pioneer N-50 samstæban býbur Karaoke kerfi 2 x 50 W RMS umhverfismagnara (surround) ^ 3ja ára ábyrgb — Fullkominn geislaspilara Utvarp —- Tvöfalt segulbandstæki Fjarstýringu Verð 66.655,- e5a 59.990,- stgr. Umboósnienn um lancl allt HVERFISGÖTU 103 : SlMI 625999

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.