Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 B 21 Morgunblaðið/Silli Sambýli FRAMKVÆMDUM miðar vel við sambýli fatlaðra á Húsavík. Framkvæmdum við sambýli fatlaðra á Húsavík miðar vel Húsavík. Á FJÁRLÖGUM sl. árs veitti Alþingi fé til að koma á fót nýju sambýli á Húsavík með það í huga að íbúum á Sólborg á Akureyri sem rætur eiga í Þingeyjarsýslu væri gefinn kostur á að flytja til Húsa- víkur. Fyrst var leitað eftir kaupum á hentugu húsnæði sem til væri á staðnum en án árangurs. Var þá farið í það að byggja nýtt hús og verkið boðið út í september, sem ekki getur talist heppilegasti árs- tíminn til að hefja byggingarfram- kvæmdir á Norðurlandi. Húsinu var valinn staður við Pálsgarð sem er miðsvæðis í bænum og stutt í alla þjónustu. Samið var við lægstbjóðanda í verkið sem voru „Sam-verktakar“ á Húsavík og hófust framkvæmdir í nóvember og hefur þeim miðað vel áfram þrátt fyrir erfitt tíðarfar. Húsið er einnar hæðar, 272 fer- metrar að grunnfleti og er það hugs- að fyrir fimm einstaklinga með sam- eiginlegu eldhúsi, borðstofu og stofu og aðstöðu fyrir starfsfólk. Húsið er hannað af Arkitekta- og verk- fræðistofu Hauks hf. á Akureyri og eftir sömu teikningum eru í bygg- ingu samskonar hús á Sauðárkróki og Blönduósi. Áætlað er að húsið fullbúið og allt frágengið kosti um 25 millj. króna og á byggingafram- kvæmdum að vera lokið í næstkom- andi ágústmánuði. Undir sömu stjórn Á Húsavík er fyrir annað sambýli fyrir fatlaða í Sólbrekku 28, fyrsta sambýiið hér, og má segja að þar hafi farið fram brautryðjendastarf undir stjórn Lilju Sæmundsdóttur, forstöðumanns. Hefur tekist ein- staklega vel að búa þeim einsktakl- ingum sem þar búa gott heimili í fullri sátt við umhverfið og tengja það mannlífinu í bænum. Áformað er að hið nýja sambýli verði undir sömu stjórn og þannig að nýta þá reynslu samhliða hagsýni í rekstri. Svæðisráð Norðurlands eystra sér um þessar framkvæmdir, en formað- ur þess er Egill Olgeirsson, Húsavík. Því vil ég við bæta að það hefur undanfarin ár einkennt bygginga- framkvæmdir hér á vegum hins op- inbera að verkin eru boðin út síðari hluta sumars og framkvæmdir hafn- ar að hausti og útivinna að vetri en innivinnan að sumri. Með þessum hætti verða verkin dýrari og síst betur unnin, svo hér þarf að verða breyting á. — Fréttaritari. IMSA INTERNATIONAL Gæðanna vegna Veislutertur á heildsöluverði Rjóma- tertur 14manna 16manna 20 manna 25 manna 30 manna 35 manna 40 manna Smásölu- verð kr. 2.996 kr. 3.424 kr. 4.280 kr. 5.350 kr. 6.420 kr. 7.490 kr. 8.560 Heildsölu- verð (okkar verð) kr. 2.394 kr. 2.736 kr. 3.420 kr. 4.275 kr. 5.130 kr. 5.985 kr. 6.840 Marsipan- tertur 14manna 16manna 20 manna 25manna 30 manna 35 manna 40manna Smásölu- verð kr. 3.486 kr. 3.984 kr. 4.980 kr. 6.225 kr. 7.470 kr. 8.715 kr. 9.960 Heildsölu- verð (okkarverð) kr. 2.786 kr. 3.184 kr. 3.980 kr. 4.975 kr. 5.970 kr. 6.965 kr. 7.960 Kransakökur 16 hringja = 30 manna 18 hringja = 40 manna 20 hringja = 50 manna 22 hringja = 60 manna Smásölu- verð kr. 5.677 kr. 7.051 kr. 9.065 kr. 10.897 Heildsöluverð (okkar verð) kr. 4.542 kr. 5.641 kr. 7.252 kr. 8.718 Hægt er að fá stærri tertur. Ath.: Ekta rjómi í öllum tertum! Rjómatertur og marsipantertur pantist með 3ja daga fyrirvara, kransakökur með 4ra daga fyrirvara. Fríheimsending í Reykjavík og Kópavog. Aukið vöruúrval. Smásöluverð Heildsöluverð Hringtertubrauð kr. 137 kr. 109 Rúllutertubrauð kr. 137 kr. 109 Óupprúlluð rúllutertubr., 3 í pk. kr. 411 kr. 327 Hvítlauksbrauð, gróf + fín kr. 64 kr. 51 Sigtibrauð, sneidd 7 sn. kr. 79 kr. 63 Maltbrauð, sneidd 7 sn. kr. 79 kr. 63 Rúgbrauð, seytt 8 sn. kr. 89 kr. 71 Heildsölubakaríið er leiðandi í lágu vöruverði Heildsölubakarfið, Suðurlandsbraut 32, sími 688406. Heildsölubakaríið, SVR-húsinu, Hlemmi, sími 18818. Tökum bæði debet- og kreditkort. Y Formanna- og sveitar- stjórnaráðstefna Sjálfstæðisflokksins verður haldin fimmtudaginn 24. mars í Skútunni, Hólshrauni 3 í Hafnarfirði. DAGSKRÁ: 10.00 Fundarsetning. Formaður sveitarstjórnanefndar Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, borgarfulltrúi, setur ráðstefnuna. 10.15 Ár fjölskyldunnar og sveitarfélögin. Frummælendur verða Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri, Inga Jóna Þórðar- dóttir, formaður Kvenréttindafélags íslands, Þórunn Gestsdóttir, framkvæmda- stjóri, og Albert Eymundsson, skólastjóri. Umræður. 12.00 Hádegisverður. 13.00 Pallborðsumræður um atvinnumál. Þátttakendur verða Árni Sigfússon, borgarstjóri, Magnús L. Sveinsson, formað- ur Verslunarmannafélags Reykjavíkur, Elínbjörg Magnúsdóttir, verkakona, Þor- steinn Jóhannesson, yfirlæknir, Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar- sambands íslands, og Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. 15.00 Kaffihlé. 15.30 Kosningaundirbúningurinn. Kristján Guðmundsson, formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, Arndís Jónsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, og Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, halda erindi um verkefni landssamtaka í sveitarstjórnakosningum. Umræður. 17.00 Ráðstefnuslit. 18.00 Móttaka í Valhöll þar sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sophusson, tekur á móti ráðstefnugestum. Fundarstjóri verður Magnús Gunnarsson, aðalbókari, Hafnarfirði. Allir formenn flokkssamtaka Sjálfstæðisflokksins, sveitarstjórnamenn og væntanlegir sveitastjórnarmenn eru hvattir til að mæta á ráðstefnuna. Ráðstefnugjald er 1.400 krónur og innifalið í þvf er hádegisverður og síðdegiskaffi. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig íValhöll ísíma 91- 682900 fyrir kl. 5 miðvikudaginn 23. mars. IÐNSKOLADAGURINN sunnudaginn 20. mars 1994 Opið hús kl. 13:00 til 17:00 EFLUM VERKMENNTUN Á ÍSLANDI! IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK kynnir starfsemi sína með opnu húsi Kynning á deildum skólans og sýning á verkum nemenda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.