Morgunblaðið - 20.03.1994, Page 26

Morgunblaðið - 20.03.1994, Page 26
26 B ' MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 — DRAUMALAND . . . PÁLS SIGURÐSSONAR ER .. BRASTHA FERÐIN til Suður-Ameríku verður alltaf ofarlega í huga Páls Sig- urðssonar, sem framleiðir bóluefni á Keldum. Fyrir tveimur árum fór hann ásamt eiginkonu sinni til Chile, Argentínu og Brasilíu, þar sem náttúran er stórbrotin og mikilfengleg og skilin hvergi eins skörp milli eymdar og auðlegðar. En það var ekki lífsbarátta fólks- ins á götunni sem er honum hvað minnisstæðust heldur hin hljóða barátta sem fer fram í kynngimögnuðum regnskógum Brasilíu. ISuður-Ameríku er hægt að fá allt það besta og versta," segir Páll. „Náttúran er stórbrotin í þess- um þremur löndum, sama hvort um er að ræða sólarlagið í Chile eða Iguazafossana á landamærum Arg- entínu, Paraquay og Brasilíu. Þarna eru fallegar strendur og ekki vantar íburðinn og glæsileik- ann þegar hótel og byggingar eru annars vegar. Þótt Brasilía sé eitt ríkasta land í heimi þegar náttúru- auðævi eru annars vegar, er fátækt fólksins líklega hvergi jafn mikil og hörmuleg og þar. í sjálfri Ríó de Janeiro býr fólk og sefur á göt- um úti, liggur jafnvel dauðadrukkið á gangstéttum án þess að nokkur skipti sér af því. En börnin eru allt- af yndisleg og söm við sig hvar sem er í heiminum, og ekki varð ég var við neina kynþáttamismunun. Þeir sem búa við góð kjör eru þó ekki heldur öfundsverðir, þeir verða að hafa sérstaka gæslumenn til að gæta eigna sinna og geta varla um frjálst höfuð strokið. Lífsbaráttan er því hörð i þessu Morgunblaðið/Sverrir fagra landi, en hvergi sá ég hana þó harðari en í sjálfum regnskógun- um. í þessum svörtu, þéttu skógum sér maður lífið í öðru ljósi. Baráttan um að komast af er hvergi meiri en þar og það var furðulegt sjá plöntur af öllum tegundum veíja sig utan um stór og þeim óskyld tré til að ná betur til birtunnar. Því þær sem ná ekki til sólar, deyja. Dýralífið er líka heill heimur út af fyrir sig og einkum minnist ég fiðr- ildanna. Þau eru svo stór og falleg að menn fóru nánast í leiðslu við að horfa á þau. Svo margt er að sjá í Brasilíu að ein ferð þangað dugir tæplega." ÚR MYNDASAFNINU . . . ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Suður um höfin ai sólgylltrí strönd slæmt veður á leiðinni yfir Atlani haf, en brátt böðuðu íslendingari sig í suðrænni sól. Stór hóp |L manna var á hafnarbakkanu I til að kveðja vini og vand || menn, þegar Gullfoss sigldi |l höfn í fyrri ferðina og vo |l myndirnar teknar við það tæl II færi. Flaggskip íslenska skipaflotans, Gullfoss, fór í tvær vetrarferð- ir til sólarlanda í janúar og febrúar árið 1967. Lagt var upp í fyrri ferðina 17. janúar og sigldu 102 farþegar með skipinu frá Reykjavík. Farið var meðal annars til Azor- eyja, Kanaríeyja, Mar- okkó og Portúgal. Gullfoss hreppti Gullfoss leggur frá bryggju í Reykja- vík að kveldi 17. janúar 1967. Mannmargt var á hafnargarðinum í Reylyavíkurhöfn að kveðja vini og vandamemi er Gullfoss hélt suður um höfin til sólar- landa. 1 MEISTARAKOKKARNIR ÓSKAR OGINGVAR Fljótlagaðir og bragðgóðir Réttir dagsins hafa þá tvo höfuð- kosti að vera fljótlegir í elda- mennsku og mjög bragðgóðir. Við gerum það hér með að til- Iögu okkar að þið takið ykkur til eitthvert kvöldið og eldið eplaréttinn, sem er til að mynda afar heppilegur og góður með ellefu-fréttunum óg það tekur ekki meira en 10 mínútur að elda hann. Risotto 1 bolli hrísgrjón (long grgin) ____________1 bolli rækjur_______ ________1 lítil dós kræklingur _________'h stk. bloðlaukur______ ___________2 stilkor sellerí_____ _______10 stk. sveppir ___ ____________50 g smjör___________ 1 tsk. turmeric (mó nota karrý) 1 búnt steinselja salt, svartur pipar eftir smekk Hrísgijónin eru soðin í krækl- ingasoðinu og turmeric bætt í soð- ið. Hellt á sigti og látið leka af. Smjörið er brætt á pönnu og gróft söxuðu grænmetinu bætt á og það léttsteikt, þá er hrísgijónunum bætt á og þau hituð. Að lokum er rækjunum og kræklingnum bætt á pönnuna og hrært í. Kryddað með salti og pipamum og stráð saxaðri steinseljunni. Borið fram með brauði, helst hvítlauksbrauði. Gljáðar eplaskífur 4 stk. rauð epli _____________2 stk. smjör__________ ____________1 stk. sítróno_________ 3 msk. sykur (e.t.v. með kanel) Eplin em kjamhreinsuð og skor- in í rúmlega 1 sm þykkar sneiðar og raðað á bökunarplötu. Smjörið er brætt og penslað á eplin, þá er safinn úr sítrónunni kreistur yfir. Sett undir grill í ofni í ca. 2 mínút- ur. Þá eru eplin tekin út og sykrin- um stráð yfir og bakað aftur í u.þ.b. 2 mínútur, eða uns sykurinn er orðinn gullinbrúnn. Athugið að fylgjast vel með eplunum eftir að sykurinn er kom- inn á því sykurinn er fljótur að brenna. Gott er að bera vanilluís og ijóma fram með þessum rétti, og þeir sem eru hrifnir af kanel ættu endilega að setja hann saman við sykurinn. ÞANNIG... ÞURRKAÐIST ÚT GUANCHES-ÞJÓÐFLOKKURINN Þrælahald og pestir Þeir eru orðnir margir íslend- ingarnir sem farið hafa í sólina á Kanaríeyjum. Þar er talað um eyjaskeggja sem eru blanda úr ýmsum áttum, Spánveijum, Portú- gölum o.fl. Það vita færri, að eyj- arnar voru lengi byggðar sérstök- um þjóðflokki, svokölluðum Gu- anches, sem talinn var eiga rætur að rekja til Cro Magnon-mannsins sem byggt hefði eyjarnar fyrir 3.000 árum. Munnmæli Guanches- fólksins sjálfs hermdu að 60 menn og fjölskyldur þeirra hefðu í ár- daga sest að í eyjunum eftir að Keltar hefðu farið hamförum um heimahaga þeirra á meginlandinu. Síðar hafi flust til eyjanna fólk af stofni blökkumanna í Afríku og Berba, en það fólk hafi orðið lágstétt á eyjunum. Frá Kanaríeyjum. Guanches-þjóðflokkúrinn átti lítið skylt við Suður-Evrópubúa nú- tímans hvað útlit varðar. Þetta var hávaxið fólk, ljós- og/eða rauðhært. Það réð stærstu eyjunum Tenerife, La Palma og Gran Canaria og bjó í hellum sem það innréttaði listilega. Enn þann dag í dag eru sum híbýli Guanches í notkun og eru það elstu mannabústaðir sem verið hafa í sam- felldri notkun. Aðallinn meðal Gu- anches réð yfír miklum lendum þar sem stundaður var viðamikill land- búnaður með aðstoð vinnuliðsins af stofni Berba og blökkumanna. Lægra settir Guanches fengu jarð- arskika til leigu og lifðu éinnig vel. Þeir voru heldur frumstæðir í land- búnaðinum, notuðu til að mynda verkfæri úr steini, en það hentaði raunar umhverfinu vel. Þá þróuðu þeir með sér táknmál, flutumál sem kom sér vel í úfnu umhverfinu. Er hermt að flautumálið hafi heyrst um 4 mílna vegalengd. Þó talið sé að Guanches hafi átt einhver viðskipti við Fönikíumenn, Grikki og Karþagómenn voru þeir að mestu einangraðir á myrku öldun- um. Strax á fjórtándu öld var friður- inn úti. Skip frá Genúa og Portúgal komu í ránsferðir í leit að þrælum. Arið 1402 sótti mikið og vel skipu- lagt lið franskra aðalsmanna að eyja- skeggjum og náði á sitt vald eyjunum Lanzarote og Fuerteventura, en frumbyggjarnir á aðaleyjunum stóð- ust áhlaupið. Þetta var aðeins fors- mekkurinnaf því sem koma skyldi, því næstu 90 árin sóttu spænskir herforingjar og portúgalskir þræla- salar stöðugt með þúsundir her- manna og hjuggu þeir æ stærri skörð í raðir eyjaskeggja. Síðar komu svo fylgifiskar siðmenningarinnar, inflú- ensa og taugaveiki, sem stráfelldu innfædda og hrundu þá vamir þeirra endanlega. Snemma á sextándu öld hurfu síð- an síðustu frumbyggjarnir. Þeir voru annaðhvort hnepptir í þrældóm, myrtir, blönduðust sínu nýju herrum eða dóu úr sjúkdómum. Þjóðflokkur- inn var liðinn undir lok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.