Morgunblaðið - 22.05.1994, Side 1

Morgunblaðið - 22.05.1994, Side 1
16 KRAFTAVERK VORSINS SUNNUDAGUR SUNNUDAGUR 22. MAI 1994 BLAÐ B STRIÐINN HARflJAXL Þorbjörn Jensson, fyrrum landslids- fyrirliói hef ur nóð geysigóó- um árangri sem þjálf- ari Vals Þorbjörn Jensson stýrði ungu Valsliði til íslands- meistaratignar í hand- knattleik um síðustu helgi og lýktu sumir þeim árangri við hálfgerða galdra, eftir þá miklu blóðtöku sem liðið varð fyrir áður en keppni hófst í haust. „Ef ég á að segja alveg satt,“ sagði Þorbjörn í upphafi samtals við Morgunblaðið, „fannst mér í fyrstu að við ættum ekki mikla möguleika á að verða íslands- meistarar eftir breytingarnar á hópnum. Liðið er mjög ungt, en þegar ég fór að kíkja á hin liðin, hugsaði ég með mér að við ættum auðvitað mögu- leika þegar færi að halla á vorið. Og eftir því sem leið á veturinn sannfærðist ég enn meira um að við gætum unnið." Þorbjörn var ekki árenni- legur mótherji þegar hann var að spila á árum áður. Varnarjaxl- arnir gerðust vart sterkari og frændur vorir Danir sögðu hann einhverju sinni líkari hnefaleika- kappa en handboltamanni, hann væri svo grófur. Margir muna Þorbjörn á vellinum; hann var hörkutól, oft brúnaþungur, hvatti menn til dáða og tók á öllu sem hann átti í baráttunni við and- stæðingana. Þorbjörn segir fólk oft hafa talið hann algjört rudda- menni, vegna framkomunnar inn- an vallar, en þegar betur er að gáð er Ijóst að hann er ekki all- ur þar sem hann er séður; leik- stíllinn var hluti af sálfræðihlið keppnisíþróttarinnar. Harðjaxlinn er Ijúfur sem lamb og hlyti eflaust titilinn stríðnasti þjálfari Islands ef keppni um hann færi fram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.