Morgunblaðið - 22.05.1994, Blaðsíða 7
MpftGUlNBMEHÐ:,
MANNLÍFSSTRAUMAR
TÆKNI/En/ geimferdir að verða sameiginlegt átak
mannkyns? ______
Geimstöðvar komandi ára
SKIPTING hins iðnvædda
heims í tvær meginblokkir
hélt mörgu við, sem við tókum
fyrir gefið. Hrun járntjaldsins
og kommúnismans austan þess
hefur til dæmis orðið til að
allt annað á við um geimferðir
og geimrannsóknir en áður. I
stórum dráttum má segja að
erfiðara sé en áður að fá fé
til áætlana. Þetta er vitaskuld
vegna þess að allt sem viðvék
geimferðum hafði óbeina eða
beina hernaðarþýðingu. Enn
er það, að ýmis samvinna sem
áður kom ekki til greina á
milli Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna er gerleg á milli
þeirra og núverandi Rúss-
lands. Þetta og sparnaðarsjón-
armið ráða því að nú er fyrir-
sjáanleg miklu meiri samvinna
— þessara þjóða og fleiri —
en áður var talið hugsanlegt.
að hefur enn ýmsa tækni-
lega og þjóðfélagslega kosti
í för með sér að láta geimferðir
ekki dankast niður, fyrir vestan
tjald vegna þess að þeirra sé
hernaðarlega ekki þörf, fyrir
austan tjaldið
gamla vegna
þess að fjár-
munir eru ekki
til. Tækni sem
ekki er haldið
úti gleymist að
nokkru leyti.
Það er einnig
löng reynsla komi fyrir því, að
sú hátækni sem búin er til frá
grunni vegna geimferða kemur
til góða bæði í iðnaði almennt,
og hún eykur tækniþekkingu.
Það eru enn rök í þessu máli,
að mannaflinn á við þann sem
sem í þetta fer yrði atvinnulaus
að öðrum kosti. Það styður enn
þessa samvinnu, að geimferða-
ríkin hafa einmitt upp á mismun-
andi þætti að bjóða, og mynda
saman sterka heild. Núverandi
Rússar hafa haldið úti geim-
stöðvum á braut um jörðu í á
þriðja áratug og hafa geysilega
reynslu í því efni, hvað varðar
tengingar mismunandi eininga í
geimnum, langa dvöl manna þar,
og áhrif þeirra. Þeir hafa einni
þróað betur öðrum ýmis kerfi
innan slíkra geimstöðva, svo sem
loftræstikerfi o.þ.h. Hin sterka
hlið Bndaríkjamanna hefur ætíð
verið bandaríski dalurinn, semsé
fjármagn. Auk þess þróaðasta
hátæknin, þ.e. tölvuútbúnaður
og stýritækni sem hann er tengd-
ur.
Alfa-geimstöðin
Árið 1997 hefjast fram-
kvæmdir við stærsta samvinnu-
verkefni í geimnum til þessa. Það
er geimstöð, sem hefur hlotið
nafnið Alfa. Hlutaðeigandi eru
hvorki meira né minna en Banda-
ríkin, Rússland, Evrópusam-
bandið, Kanada og Japan. Til að
spara orku verður stöðin sett
saman afar lágt yfir jörðu, eða
i um 3-400 kílómetra hæð. Þar
er núningur lofts orðinn nógu
lítill til að hlutir geti haldist í
nokkur ár án þess að þeir breyti
braut sinni verulega. En það tek-
ur um fjögur ár að setja geim-
stöðina saman. Um er að ræða
100 m langt ferlíki þegar allt er
komið saman. Rússneskar Pro-
ton-eldflaugar og bandaríska
geimskutlan vinna meginverkið
við að lyfta hlutunum upp, en
ferðir til aðfanga verða margar.
Þegar stöðin er samsett verður
henni lyft upp á varanlega braut,
þ.e. í tæplega 500 km hæð.
Sé spurt til hvers eigi að nota
slíka risageimstöð, þá er svarið
við því það sama og til hvers sé
verið að geimrannsóknum. Það
er mikil spurning sem er ekki
ætlunin að fást við hér. Aðeins
skal þess getið, að auk þess að
vera sjónarhóll stjarnfræðilegra
rannsókna, eru afar mikilvæg
verkefni í hátækni, líf- og
læknisfræði, sem er einungis
hægt að framkvæma í þyngdar-
leysi. Til smádæmis má taka að
krabbameinsfrumur er auðveld-
ara að rækta í þyngdarleysi.
Myndun veirukristalla er annað.
Þá má e.t.v. betur búa til úti í
geimnum. Með bognun röntgen-
geisla má fá mikilvægar upplýs-
ingar um sameindagerð veir-
anna.
SUNN.ypApyR, 2$. MAÍ1984, Bí 7-j
Sumarblóm - trjóplöntur - runnar
Úrval og verð aldrei hagstæðara.
Opnunartilboð á mörgum tegundum.
Garöyrkjustööin Grímsstaöir,
í meira en 50 ár,
Heiðmörk 52, Hveragerði. Sími 98-34230.
Sendum plöntulista.
sólpallur
11 | CVl
O
eldhús
Til sölu
Til sölu nýtt heilsárs sumarhús,
nær fullklárað. (2. byggingastig)
Húsið er tilbúið til flutnings.
c
stigi
bað
I
Grunnflötur 44 fm auk 20 fm
| svefnlofts. Verönd ca.12 fm.
f. Verð 2.260 þús. eða hæsta boð.
%
9
Upplýsingar í síma 91 - 88 40 60
brekld 5.4m
Pantiö fyrír
sumariö núna
Sundbolir og bikini
frá kr. 1.449r
Kíktu á verðið!
Fatnaður á alla
fjölskylduna.
Full búð af vörum.
Pöntunarsími 52866
BMB.MAGNUSSON
■VB «■ HOLSHRAUNU 2 SlMI S2866 ■ HAFNARFIROI
Veiðieftirlitsmaðurinn hafði á
bakinu kvartil. Það var í laginu
eins og tröllaukinn vindill af-
sneyddur í báða enda. Kvartilið
var fullt, af vatni. í það voru sett-
ir fiskarnir sem veiðimaðurinn
veiddi um daginn og geymdir
lifandi til kvölds. Þá var þeim
ráðstafað eftir atvikum?
„Já, komdu nú sæll,“ sagði ég.
„GRÚSS GOTT,“ hann brosti
góðlátlega.
„Þú verður," tilkynnti hann, „að
hafa veiðieftirlitsmann."
FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTID
MEÐSANDI OG GRJOTI
|
SANDUR SIGURSTEINAR Þú færð sand og allskonar grjót hjá okkur. . Viö mokum þessum efnum á bíla eða f í kerrur og afgreiðum líka í smærri 1’ einingum, traustum plastpokum sem V þú setur í skottið á bílnum þínum. ' VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR BJÖRGUN HF. SÆVARHÖFÐA 33 ^Yfpyy SÍMI: 68 18 33 \. Ilkjj y Afgreiðslan við Elliðaár er opin: ■ • Mánud.-fimmtud. 7.30-18.30. l J Föstud. 7.30-18.00.