Morgunblaðið - 22.05.1994, Page 8
8 B SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Slæmar
stelpur í
samnefndri
mynd.
INNAN VEGGJA
RVIRMYNDAVERANNA
eftir Sæbjörn Valdimarsson
SEM VIÐAST hvar annars staðar
var síðasta ár með afbrigðum
gott hvað snertir aðsókn í kvik-
myndahúsunum vestan hafsins.
Samdrættinum sem hófst fyrir
þrem árum er lokið, menn
greiddu alls 5,24 miHjarða dala í
aðgöngumiða sem er 8% aukning
frá síðasta ári og fjöldi seidra
miða var sá mesti í ein fimm ár.
Þetta var ár Júragarðsins sem
setti nýtt aðsóknarmet, ekki að-
eins í Bandaríkjunum og Kanada
heldur um víða veröld. Bandarísk-
ar myndir eru sem fyrr allsráð-
andi á heimsmarkaðnum og halda
iðnaðinum gangandi. Staðreyndin
er sú að án þeirra heyrðu kvik-
myndahúsin að mestu leyti sög-
unni til, a.m.k. eins og við þekkj-
um þau í dag. Það er hugur í
Hollywoodframleiðendum eftir
góðærið og forvitnilegt að sjá
hvernig árið kom út og hvað þeir
eru að bauka.
WARNER BROS.
Þetta var afar gott ár hjá Wamer
sem var á toppnum í fyrra, með
tveggja prósenta forskot á
næsta kvikmyndaver. Þétta
þakka menn fyrst og frémst
að sömu mennirnir hafa
verið við stjórnvölinn um
árabil, traustir og færir menn með
einkar árangursríkar auglýsinga- og
markaðsdeildir að baki sér. Warner
nálgaðist það að verða fyrsta kvik-
myndaverið í sögunni með ársveltu
yfir einn milijarð dala.
Myndirnar sem skutu Wamer í
efsta sætið í ár voru fyrst og fremst
Flóttamaðurinn, Freísum Willy,
Dave, Denni dæmalausi, Sommersby
og Lífvörðurinn. Tvær jólamyndanna
gerðu það gott; Fúll á móti, með
gömlu refunum Walther Matthau og
Jack Lemmon og Ann-Margret sem
hressti uppá útlitið. Hin er Pelíkana-
skjalið, gerð eftir metsölubók Johns
Grishams með Juliu Roberts í aðal-
hlutverkinu.
En það var ekki allt dans á rósum
hjá Warner frekar en öðrum. Full-
kominn heimurstóð ekki undir vænt-
ingum þrátt fyrir Eastwood, Costner
og góða dóma. Sama var að segja
um Hinn eina sanna — Mr. Wonderf-
ul, Mann án andlits, M. Butterfly,
og The Saint of Fort Washington,
og Óttalaus, nýja myndin hans Pet-
ers Weirs kolféll þrátt fyrir rómaðan
leiksigur Jeff Bridges (ekki þann
fyrsta). Þá hafa vinsældir smámynd-
arinnar Ace Ventura komið heldur
betur á óvart. Warner frumsýndi 37
myndir 1993. Meðalkostnaðarverð
þeirra var 25,9 millj. dala, meðalaf-
koman 33 millj., hagnaðurinn að
meðaltali aðeins 18%.
Til framtíðar líta menn einkum
til kvikmyndagerðar The Client,
annarrar metsölubókar Grisham;
The Hudsucker Proxy, Interview
With the Vampire, skreytt miklum
stjömufans; Boys on the Side og
Second Best, sem báðar fjalla um
eyðni. Þá eru miklar vonir bundnar
við vestrana Wyatt Earp og Mav-
erick; jólamyndina í ár, Richie Rich,
með Macauley Culkin, On Deadly
Ground með Steven Seagal og næstu
mynd Quentins Tarantinos, sen heit-
ir Natural Bom Killers. Honum líkt.
Warner mun frumsýna 30-35 mynd-
ir í ár, svipað og í fyrra.
NÚ ER að hrökkva eða stökkva fyrir Schwatzenegger — nýjasta
stórmyndin hans, Sannar lygar, VERÐUR að slá rækilega í gegn.
BUENA VISTA
Buena Vista, dreifmgarfyrirtæki
framleiðsluarmanna þriggja; Touch-
stone, Hollywood Pictures
og Walt Disney Pictures, er
rfrtfe í öðru sæti í ár og það voru
einmitt teiknimyndirnar
sem skiluðu mestum hagnaði á þess-
um bæ, Aladdin, The Night Before
Christmas, Homeward Bound: The
Incredible Journey, og fleiri góðar.
Svalar ferðir, mynd sem var fram-
leidd af hinni sögufrægu Steel Dawn
(stjórnaði um tíma Columbia Pictur-
es), gerði það gott, sama máli gegn-
ir um Tengdasoninn, ódýra mynd
sem skiiaði af sér einhverjum mesta
hagnaði í sögu Disney-samsteypunn-
ar. Leikur hlæjandi láns og Tina
(What’s Love Got To Do With It)
fengu frábærar undirtektir hjá al-
menningi sem gagnrýnendum. Jóla-
vestrinn Tombstone spjaraði sig.
Vonbrigðum ollu hins vegar Fath-
erhood, Life With Mikey, Aftur á
vaktinni, Hókus, Pókus, Money for
Nothing, Bound By Honor, Swing
Kids o.fl. Mistakalistinn er langur.
Og tvær jólamyndanna brugðust
björtum vonum; Skytturnar þtjár og
Systragervi 2. Buena Vista frum-
sýndi 28 myndir í fyrra. Hver kost-
aði að meðaltali 19,7 millj. (það dap-
rasta í ár) og skilaði 23,9 millj. (einn-
ig það lægsta). Hagnaðarhlutfallið
21%.
Hjá hinni öflugu Walt Disney
samsteypu horfa menn björtum aug-
um fram á við (þrátt fyrir að Holly-
wood Pictures sé ætíð sami höfuð-
verkurinn) og bjóða um 30 myndir
í ár og veðja helst á teiknimyndina
The Lion King — Konung Ijónanna,
I Love Trouble, nýju myndina henn-
ar Juliu Roberts og Nicks Noltes;
Renaissance Man, með Danny De-
Vito undir Ieikstjórn Penny Mars-
hall og Blank Check, sem þeir spá
a.m.k. 60 millj. dala tekjum á heima-
markaði.
UNIVERSAL
Kvikmyndaverið átti eitt sitt
besta ár í fyrra og þann árangur
verður það að þakka
aðeins einni mynd, og
þvílík mynd — a.m.k.
aðsóknarlega séð! Júra-
garðurinn gerði sér lítið
^Tnram'' fyrir og varð mest sótta
mynd kvikmyndasog-
unnar. Ekki aðeins í Norður-Amer-
íku heldur um heim allan (sjá lista
annars staðar á síðunni). En ef þessi
virta og veigamikla stórbrellumynd
hefði ekki komið til hefði vegur
Universal orðið öllu dapurlegri þar
sem Júragarðurinn stendur á bak
við helming veltunnar. Aðeins ein
önnur mynd hlaut umtalsverða að-
sókn, Konuilmur með A1 Pacino.
Ástæðuna telja sérfræðingar skort
á stjömum í aðalhlutverkum mynda
Universal 1993 og 25% niðurskurð
á útgjöldum. Kvikmyndaverið hagn-
aðist einnig á myndunum Cop and
a Half, Dragon: Saga Bruce Lee og
Leið Carlitos.
Mistökin voru nokkur. Heart and
Souls og Lorenzo’s Oil þrátt fyrh
mjög góða dóma. Oðru máli gegnir
um The Real McCoy, Splitting Hcirs
og Army of Darkness. Þessar mynd-
ir fengu slæmar viðtökur jafnt hjá
gestum sem gagnrýnendum. Univer-
sal frumsýndi 22 myndir á síðasta
ári. Meðalkostnaður 25,9 millj. Með-
altekjur 37,2 millj., hagnaðarhlut-
fallið varð það næst-hæsta í Holly-
wood, 51%.
í ár eru miklar vonir bundnar við
Schindler’s List, nýjustu myndina
hans Stevens Spielbergs (sem var
reyndar frumsýnd í des. í nokkrum
kvikmyndahúsum), enda braut hún
blað í sögu þessa einstaka leikstjóra,
nú hlaut hann náð fyrir augum kvik-
myndaakademíunnar í fyrsta sinn
og fékk myndin flest veigamestu
Óskarsverðlaunum í vetur. Steinald-
armönnunum er spáð mikilli vel-
gengni í sumar, einnig The River
Wild og Casper. En það er nokkuð
ljóst að metaðsóknarmyndir á borð
við Júragarðinn skjóta ekki upp koll-
inum nema á áratugsfresti. Univer-
sal hyggst frumsýna u.þ.b. 15 mynd-
ir í ár.
CÖLUMBIA
1993 var stormasamt hjá þessu
stærsta fyrirtæki Sony Pictures Ent-
ertainment (hin eru
TriStar Pictures, Sony
Pictures Classics og
Triumph Releasing).
Hver mynd skilaði tapi
að meðaltali, gróusögur
á kreiki um viðskipti frammámanna
þess við mellumömmuna Heidi
Fleiss, þeir anda vonandi léttar í ár.
/ skotlínunni, tekjuhæsta myndin,
var ekki „innanhússmynd" heldur
framleidd af Castle Rock. Hins veg-
ar gerðu þær það gott Groundhog
Day, Poetic Justice, My Life og
Malice. Þá eru ótaldar tvær myndir
sem óneitanlega birtu yfir mæðu-
svipnum á gyðjunni með blysið, Öld
sakleysisins og Dreggjar dagsins.
Hafa hlotið frábæra dóma og skilað
frambærilegum fúlgum í kassann.
Vonbrigðin voru ófá og fátt kom
meira á óvart í þeim efnum á síð-
asta ári en dáðlaus frammistaða
nýjustu Schwarzenegger-myndar-
innar, Síðustu hasarmyndahetjunn-
ar. Hún kolféll miðað við þær miklu
væntingar sem við hana voru bundn-
ar, auglýsingaherferðina og leikar-
inn hefur ekki brugðist í áraraðir.
En haft er fyrir satt að Bandaríkja-
menn hafi ekki þolað að sjá garpinn
gera grín að spennumyndahetju-
ímynd sinni. Útkoman sannar samt
enn og aftur að kvikmyndafram-
leiðsla er mesta fjárhættuspil sam-
tímans. Leikir sem lærðir hristu höf-
uðið yfir Lost in Yonkers, Hexed,
Nytsamir sakleysingjar, Calendar
Girl, Josh & S.A.M. og The Pickle,
nýja myndin hans Pauls Mazurkys
komst ekki á blað. Jólavestrinn Ger-
onimo olli vonbrigðum í miðasölu.
Svo dræm var aðsókn þessara
mynda að margar þeirra fá ekki
kvikmyndahúsadreifíngu utan
Bandaríkjanna, heldur fara beint á
myndbandið. Columbia frumsýndi
26 myndir í fyrra. Meðaltekjur voru
aðeins 24,8 millj. dala, kostnaðurinn
hins vegar 31,6 millj., hagnaðarhlut-
fallið 22% — í mínus.
Columbiamenn hafa ástæðu til
bjartsýni í ár, margir sérfróðir spá
Wolf með Michelle Pfeiffer og Jack
Nicholson velgengni. í sumar koma
svo City Slickers II, North, eftir Rob
Reiner, Little Big League og, hjálpi
oss nú allir heilagir, The Next Kar-
ate Kid. Kvikmyndaverið mun frum-
sýna 14 myndir í ár.
20TH CENTURY FOX
Hér eru nýir menn teknir við
stjórn, verið að umbylta innviðum,
ímynd og myndasam-
setningu. Því var árið
1993 heldur atkvæða-
lítið en útkoman góð
og undir árslok féll
aðsóknarsprengjan,
Mrs. Doubtfire, sem er búin að hala
inn nokkuð á þriðjá hundrað milljón-
ir dala vestan hafs og hefur tryggt
sér annað sætið á vinsældalista
mynda frumsýndra í fyrra — á eftir
hinum ósigrandi Júragarði. Árið
byijaði heldur rólega. Síðan komu
myndir sem slógu í gegn á heima-
markaði, sumar þeirra bætti aðsókn-
in víðs vegar um heim; Flugásar 2,
The Sandlot, Rookie of the Year,
Hrói höttur — karlmenn á sokkabux-
um, The Good Son og Beverly Hill-
billies. Allar skiluðu þær sómasam-
legum og oft óvæntum hagnaði.
Sama er ekki upp á teningnum hvað
skellina varðar. Miklar vonir voru
bundnar við Jack The Bear og Hvarf-
ið (enn ein illa sótta ágætismyndin
með Jeff Bridges). Annars kom árið
mjög vel út. Fox frumsýndi 21 mynd
1993, hver kostaði að meðaltali 24,1
millj. dala en skilaði af sér 31,3
millj., hagnaðarhlutfallið hér 30%.
Það er margt spennandi á döfinni
hjá Fox eins og öðrum kvikmynda-
verum í ár. Sumarmyndinni Sannar
lygar (True Lies), 120 millj. dala
brellumynd með Schwarzenegger
undir leikstjórn James Camerons,
er spáð metaðsókn. Sömuleiðis
kvennavestranum Slæmar stelpur
(Bad Girls), með Drew Barrymore
og öðrum stólpaleikkonum, nýjustu
stórmyndinni hans John Hughes,
Baby’s Day Out, Speed og endur-
gerð jólamyndarinnar sígildu,
Miracle on 34th Street. 20th Cent-
ury Fox mun frumsýna a.m.k.
15-20 myndir í ár.
PARAMOUNT
Það stóð stríð um kaup og sölu á
Paramount-kvikmyndaverinu mest-
allt árið 1993 en það
^om furðu iítið niður
á framleiðslugetu eða
iBrTvv®* velgengni þess. Þar
«„w/ er Sherry Lansing við
* stjómvölinn, var áður
hjá 20th Century Fox og er ein
valdamesta konan í kvikmyndaborg-
inni. En að verinu sótti m.a. Barry
Diller, annar fyrrum stjórnandi Fox.
Hann tapaði slagnum fyrir fjölmiðla-
risanum Viacom. Árið var allgott,
smellimir höfðu betur en skellimir.
Eldur á himni, lítil og ódýr mynd,
spjaraði sig vel. Fyrirtækið og Ösið-
legt tilboð vom þó myndirnar sem
rifu upp hagnaðarprósentuna hér.
Sliver, Addams-fjölskyldugildin,
Leitin að Bobby Fisher og Wayne’s
World II ollu vonbrigðum. Cone-
heads, The Thing Called Love, Bop-
hal, It’s All True og Flesh and Bone,
hreinræktaðir skellir. Paramount
frumsýndi aðeins 15 myndir í fyrra
en útkoman var næstbest allra dreif-
ingarrisanna. Hver mynd kostaði að
meðaltali 25,9 millj. dala en skilaði
37,2 millj. í kassann. Hagnaðarhlut-
fallið því 43%.
Útlitið er misgott í augum spá-
manna. Full ástæða er þó til bjart-
sýni hvað snertir Drop Zone, nýjustu
mynd handritshöfundarins Jebs Stu-
arts (Flóttamaðurinn) og leikstjór-
ans Johns Badhams. Onnur álitleg
sumarmynd er gerð eftir metsölubók
Clancys, Clear and Present Danger,
með Harrison Ford. Þá eru menn
vongóðir um að jólamyndin The Sa-
int — Dýrlingurinn hitti í mark. Og
síðan eru það allar framhaldsmynd-
imar: Beverly Hills Cop III, Star
Trek VII og Naked Gun 33 'A. Para-
i