Morgunblaðið - 22.05.1994, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.05.1994, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ eftir Árna Matthíasson BRÁTT verður lióió ár sióan Björk Guómundsdóttir sendi ffrá sér breióskifuna Debut, eftir „sextán ára meógöngu" eins og hún oróaói þaó sjáif. Þaó ár hefur veríó sannkallaó „annus mirabilis" fyrir Björk Guómundsdóttur, sem sagói stuttu áóur en platan kom út aó eina von sem hún gerói sér um hana væri aó hún seldist fyrir kostnaói svo hún hefói efni á aó gera aóra. Þegar þetta er skrifaó heffur Deb- ut selst i á þrióju milljón eintaka um heim allan, Björk verió á allra vörum i poppheiminum og er enn og á liklega næga sjóói til aó geta einbeitt sér aó tón- list næstu árin. Hún ætti aó vera oróin hagvön i tón- listarheiminum, eftir aó hafa starfaó meira og minna aó tónlist sióan hún var á barnsaldri. Björk fékk nasasjón af frægóinni þegar hún sló i gegn meó Sykurmolunum 1986, óvart aó þvi er Sykurmol- arnir sögóu sióar, enda stóó aldrei til aó úr gaman- inu yrói atvinnumanna- hljómsveit. Þegar Sykur- molana þraut örendi fyrir tveimur árum, var Björk þegar farin aó velta ffyrir sér aó taka upp sólóskif u og þegar hljómsveitin lauk tónleikahaldi til aó fylgja efftir sióustu breióskif- unni snemma árs 1992, fór Björk aó leggja grunninn aó breióskifu. Frumraunin Fyrsta smáskífan af Debut, Human Behaviour, kom út fyrir ári, í maí 1993, og var strax vel tekið af gagnrýnendum og tónlist- aráhugafólki, þó ekki hafí lagið farið ýkja hátt á vinsældalistum, fór í 24. sæti í Bretlandi og í 40. sæti í vikunni á eftir. Lag- ið var þó valið lag vikunnar í breska poppvikublaðinu Mel- ody Maker og fimm síðna forsíðuviðtal við Björk birtist í blaðinu um svip- að leyti. Myndband við lagið, sem franski kvikmyndagerðar- maðurinn Michel Gondry gerði, vakti öllu meiri athygli og var til að mynda í forgangsspilun í MTV-sjónvarpinu. Um svipað leyti Jiii hennar ^^Fíðustu misseri Sykurmolanna var Björk búin að sanka að sér nokkrum lögum ólíkrar gerðar, var meðal annars með í huga lög þar sem hún syngi á móti þremur saxó- fónum, lög þar sem hún syngi með hörpuleikara og lög sem voru meira danskyns. Hún leitaði til Dereks Birketts hjá One Little Indian, út- gáfufyrirtækis Sykurmolanna, og óskaði eftir liðsinni hans við að gefa plötuna út sem var auðsótt, en hann sagðist eftir á hafa fylgt sömu stefnu við Björk og alla aðra tónlistarmenn; ef hann vildi á ann- að borð gefa út plötu með einhveij- um skipti hann sér ekkert af því hvernig platan hljómaði eða hvað væri á henni. Hann segist þá hafa talið víst að plötu Bjarkar mætti selja í einhvetjum tugþúsundum eintaka og því gæti útgáfan staðið undir sér. Þegar hér var komið hét platan Björk’s Affairs, eða Bjarkar- mál, og enn nokkuð laus i reipun- um. Áður en lengra varð haldið barst Sykurmolunum boð um að leika á nokkrum tónleikum með írsku hljómsveitinni U2, sem hljóm- sveitin þáði, meðal annars sem gott tækifæri til að ljúka samstarf- inu í bili. Sú ferð var farin haustið 1992 og eftir það flutti Björk til Bretlands til að sinna sólóferlinum og til að Sindri sonur hennar fengi notið meiri samskipta við móður sína, en ef þau hefðu búið á ís- landi. Snemma árs 1993 lauk Björk svo við plötuna með aðstoð upp- tökustjórans Nellees Hoopers, sem gaf henni heillegra yfirbragð, án þess þó að glata sérkennum lag- anna. Platan var þá búin að fá endanlegt heiti, Debut, eða frum- birtust svo forsíðuviðtöl við Björk í tískublöðunum I-d og Face og fleiri blöðum. Debut kom út 28. júní hér á landi en í Bretlandi og víðar um heim kom platan út mánudaginn 7. júlí. Fyrirframpantanir voru gríðarmikl- ar og allt benti til þess að platan myndi stökkva beint inn á topp tíu í Bretlandi. Um miðja vikuna spáði Gallup-fyrirtækið í Bretlandi því að platan myndi fara í annað sæti listans, en þegar upp var staðið endaði hún í þriðja sæti og vantaði víst ekki nema 23 eintök upp á að hún hefði farið sæti ofar, en sam- kvæmt heimildum seldust af plöt- unni um 30—40.000 eintök þessa fyrstu viku. Við þetta ráku margir upp stór augu, enda hafði íslenskur listamaður aldrei komist nálægt þessum árangri. Útgefandi plöt- unnar, Derek Birkett, var og kampakátur og sagðist þess fullviss að takast mætti að selja 300.000 eintök af plötunni í Bretlandi áður en yfír lyki. Vikuna á eftir féll plat- an niður í 11. sæti listans, og sat þar í tvær vikur að hún seig niður í 14. sæti. í kjölfar þessarar velgengni hófst önnur viðtalslota Bjarkar, en ásókn í viðtöl var slík að hún neydd- ist til að takmarka mjög viðtöl og útiloka sum lönd um tíma til að geta sinnt öðrum. Þannig fór hún í viðtalaferð til Ítalíu og Bandaríkj- anna stuttu eftir að Debut kom út og MTV-sjónvarpsstöðin bauð henni að koma fram í sérstökum þætti sem sendur yrði út í beinni útsendingu síðar á árinu. Til þess hafði Björk þó ekki tíma, því vel- gengni plötunnar þrýsti á að hún kallaði saman hljómsveit til að fylgja henni eftir með tónleikahaldi. Fjdltijoðleg hljómsveit í hljómsveit sína réð Björk tón- listarmenn frá öllum heimshornum; Walesverja, Grikkja, Englending, Tyrkja, Barbadosveija, Irana og Indveija, og hljóðfæraskipan var nokkuð óvenjuleg, því í sveitinni var hljómborðsleikari, fíðluleikari, saxófón- og flautuleikari, Slag- verksleikari, trommuleikari og bassaleikari. Æfíngar hófust ekki fyrr en í ágústbyijun en þó var hljómsveitin tilbúin til tónleika- halds í ágústlok. Fyrstu tónleikam- ir voru í London Forum 19. ágúst, þar sem Björk tróð upp með Sykur- molunum í fyrsta sinn í Bretlandi á sínum tíma, og allir miðar á tón- leikana seldust upp áður en tókst að að auglýsa þá. Tveimur dögum síðar lék Björk svo með hljómsveit- inni frammi fyrir 50.000 manns á Wembley-leikvanginum, en þá var hún að hita upp fyrir U2. Tónleika- haldið varð tilefni mikillar umfjöll- unar í breskum blöðum og meðal annars birtust greinar um tónleik- ana í dagblöðunum The Guardian, The Independent, Financial Times og Daily Telegraph og dagskrárrit- ið Time Out lagði forsíðu blaðsins undir Björk og langa grein inni í blaði að auki. Þrátt fyrir lofsamlega umfjöllun fór ekki á milli mála að hljómsveitin var ekki tilbúin í stíft tónleikahald og því afþakkaði Björk að hita frekar upp fyrir U2 að sinni og lék þá meðal annars ekki á tón- leikum sveitarinnar í Dyflinni. Þegar hér var komið sögu lokaði umboðsskrifstofa Bjarkar fyrir öll viðtöl til að gefa henni næði til að æfa hljómsveitina, en platan hélt áfram að seljast af kappi og var komin í 500.000 eintaka sölu um heim allan þegar hér var komið sögu, rúmum mánuði eftir útgáfu. Ónnur smáskífan af Debut, Ven- us as a Boy, kom út 2. ágúst og fór þá í 29. sæti breska vinsælda- listans. Af því tilefni kom Björk fram í sjónvarpsþættinum Top of the Pops, en þar hafði hún síðast komið fram með Sykurmolunum. Debut sat enn á topp tuttugu og seldist enn allvel í Bretlandi og reyndar um heim allan. í Banda- ríkjunum kom platan út nokkru seinna en annars staðar í heiminum og fór í 141. sæti Billboard-listans

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.