Morgunblaðið - 22.05.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 B 15
fyrstu vikuna, fór þá í 91. sæti og
svo upp í 81. sæti og giskaði Derek
Birkett á að platan hefði selst í um
200.000 eintökum þar í landi.
Þriðju tónleika hljómsveitar
Bjarkar voru á tónlistarhátíð í
Árósum 9. september og síðan ráku
hverjir tónleikarnir aðra í Belgíu
og Bretlandi, en einir tónleikamir
í Bretlandi voru hljóðritaðir fyrir
breska útvarpið BBC og meðal
annars útvarpað hér á landi nokkru
síðar. Þá var gert hlé á tónleika-
haldi til að Björk gæti farið í
myndatökur fyrir stórar greinar hjá
Face, Clothes Show, Looks, Har-
pers & Queen og Rolling Stone og
undirbúið Bandaríkjaför.
Fyrstu tónleikarnir vestan hafs
voru í New York 9. nóvember og
í kjölfarið komu tónleikar í Boston,
Toronto í Kanada, Chicago, San
Fransisco og Los Angeles. Þeir tón-
leikar voru 19. nóvember ög þaðan
var haldið beina leið til Hollands
og leikið á tónleikum í Tilburg 22.
nóvember. Á eftir fylgdu fleiri tón-
leikar í Hollandi og Þýskalandi, en
Debut hafði náð milljón eintaka
sölu um þær mundir. Eftir þessa
tónleika tók Björk langþráð og
verðskuldað jólafrí frá því í lok
nóvember og fram í miðjan janúar
og hélt íslensk jól með fjölskyldu
sinni hér heima, en í janúar var
langferð framundan.
Eyjaálfa
ÁSTRALiA
Tónleikar
Bjarkar,
ágúst '93
til apríl '9
Big Day Out, Gold Coast
Big Day Out, Melboume
Big Day Out, Sydney
Big Day Out, Adelaide
Big Day Out, Perth
KANADA:
13. nóv., Torontó
BEGUR:
des., Centrum, Ósló
22. nó)
Los Angeles ^ j ■
BANDARÍKIN:
9. nóv„ Webster Hall, 14*
10. nóv., í sjónvarpi / !■
11. nóv., Avalon, Bostoi/ VH
16. nóv., Park West, ChlcntfUH
17. nóv., Warfield Theatre,
19. nóv., Wiltem Theatre, Los^ff!
15. apr., í sjónvarpi, Los Angele\
16. apr., Glam Slam, LoS Angeles
Melody, Stokkhólmi
Melody, Stokkhólmi
DANMÖRK:
9. sep., Árósum
5. des., Pumpehuset,
Kaupmannah.
JiS
SPÁNN:
19. feb.,
Morden Lights, Tij
3aradiso. Amster
pYSftALAND:
nóy., HuxfeyA Be | *
; .5. nbv, ZepReífri Halle. MuM
,*■*. 29.-/ÍÓV. Tur 3, Ddsseldcrf ■
6.ldes;f Grosse Freih’éit, Harr.l
FRAKKLAND: il
■1, des.. LaCite Rennei
a’Áfeb.; Elysée Montmartre, Par(s
ifijjfeb.. Elysee Vontnihrtre. Paris
íXlffluiíw ■fX. 21. j
23. j
iyimiiÉiftíiiiii|\k|nni 26.j
: iVlii>ÍBr
• StCTjnS?
um tónleikunum, í skemmtistað
Prince í Los Angeles, lék á tromm-
ur Sigt.ryggur Baldursson, sem
áður var með Björk í Sykurmolun-
um. Eftir þennan útúrdúr tók Björk
aftur upp þráðinn í hljóðverinu, en
trú þeirri yfirlýsingu sinni að vinna
plötuna með sem flestum var hún
fyrir stuttu að taka upp með skosk-
um slagverksleikara, eldri konu,
sem er talin einn fremsti og um
leið sérkennilegasti slagverksleik-
ari Breta. Annað hlé verður svo á
upptökum þegar Björk kemur hing-
að til lands til tónleikahalds á Lista-
hátíð á vegum Morgunblaðsins og
Smekkleysu s.m. hf., en síðar i
sumar verður hún eitt af aðalnúm-
erum Hróarskelduátíðarinnar og
leikur á jasshátíð i Nice í júlí. Það
er því ljóst að ekki gefst fullkomið
næði til að taka upp næstu plötu,
en enn er þó stefnt að því að plat-
an komi úr snemma á næsta ári
og ný undraár geti hafist.
Debut er enn að seljast, hefur
selst í 600.000 eintökum í Bret-
landi og ríflega 2.000.000 eintaka
um heim allan. Engu verður spáð
um framhaldið, enda vænlegt að
láta slíkt eiga sig þegar Björk
Guðmundsdóttir á í hlut, því það
eina sem sjá má fyrir með vissu
er að hún gerir einmitt það sem
hana langar til að gera en ekki það
sem einhver segir henni.
Um miðjan janúar hafði Debut
selst í 1,3 milljónum eintaka, þar
af tæp 400.000 eintök í Bretlandi,
sem var allmiklu meira en Derek
Birkett hafði áður spáð, um
400.000 eintök höfðu selst í öðrum
Evrópulöndum og álíka mikið í
Bandaríkjunum. I Noregi hafði
platan selst í um 14.000 eintökum,
í 13.000 eintök-
um og í Svíþjóð í
55.000 eintökum.
Áhugi fyrir plöt-
unni virtist síst í
rénum því platan
var komin aftur
inn á topp tíu í
Bretlandi og
komst öðru sinni
í þriðja sæti
breiðskífulistans.
Ekki varð góður
árangur í ára-
mótavali blaða
um allan heim til
að letja kaupend-
ur, enda var platan yfirleitt talin
með bestu plötum ársins 1993 ef
ekki sú besta. Hér á landi var plat-
an valin plata ársins, af einhveijum
orsökum „besta erlenda platan“
sumstaðar, og Björk var valin mað-
ur ársins.
Jólafríið var nú búið og Björk
og hljómsveit hófu undirbúning að
tónleikahaldi í Eyjaálfu og Asíu.
Haldið var til Ástralíu 20. janúar
og fyrstu tónleikarnir þar voru
haldnir 21. janúar. Alls urðu
Ástralíutónleikar fimm, en þá hélt
Björk til Japans að leika á sex tón-
leikum þar í landi, en að sögn tón-
leikahaldara þar hafði platan þá
selst í um 50.000 eintökum í Japan
og töldu þeir heimsóknina eiga eft-
ir að auka þá sölu til muna.
Brit-verðlaunin
Snemma árs var tilkynnt að
Björk væri í hópi þeirra sem til-
nefnd hefðu verið til verðlauna
breska tónlistariðnaðarins, Brit-
verðlaunanna svonefndu. Hún fékk
tilnefningu sem besta alþjóðlega
söngkonan og keppti þar meðal
annars við Janet Jackson, Mariah
Carey og Tinu Turner og einnig
var hún tilnefnd sem besti nýliðinn.
Að auki fékk Nellee Hooper tilnefn-
ingu sem besti upptökustjórinn fyr-
ir vinnu sína við Debut.
Sjálf verðlaunaafhendingin átti
sér stað strax á eftir Japansför
Bjarkar og hreppti hún áðurnefnd
tvenn verðlaun. I kjölfarið kom svo
annar skammtur af blaðaumfjöllun
og Debut sigldi aftur upp breska
breiðskífulistann. Eftir hátíðina
hélt Björk enn af stað, að þessu
sinni til að leika á tónleikum í
Frakklandi og á Spáni og loks á
tvennum tónleikum í Bretlandi.
Málshilðun
Um þetta leyti bárust fregnir af
því að breskur tónlistarmaður, Sim-
on Fisher, sem kallaði sig Lovejoy,
hefði höfðað mál gegn Björk á
þeirri forsendu
að hann hefði í
raun samið með
henni fjögur lög
á Debut, Human
Behaviour, Ven-
us as a Boy,
Aeroplane og
Crying, og ætti
því rétt á að fá
drjúgan hluta af
því fé sem inn
hefði komið fyrir
plötuna. Simon
þessi kom hing-
að til lands á
vegum Pakk-
húss postulanna 1990, sem var
félagsskapur og flutti inn erlenda
listamenn til skemmtanahalds, en
Björk og Simon hafði orðið vel til
vina og sú hugmynd vaknað að þau
myndu semja einhverja tónlist sam-
an. Af því varð þó ekki, en eitthvað
tóku þau upp, sem Simon hélt fram
að sannaði mál sitt. Að sögn Bjark-
ar fékk hann gjafsókn vegna þess
að hann hafði upptökuna undir
höndum, en hún þarf eðlilega að
greiða allan sinn málskostnað, sem
gæti hlaupið á milljónum króna.
Að hennar sögn kæmu svona mál
upp oft á ári, þar sem málshefjandi
reiknar með því að viðkomandi vilji
frekar greiða honum einhveijar
milljónir, en að greiða tugmilljónir
í málskostnað þó hann ynni málið.
Björk sagði að til að byija með
myndu lögfræðingar hennar reyna
að fá málinu vísað frá, en ef það
gengi ekki sagðist hún ekki vita
hvað hún myndi grípa til bragðs;
það væri svívirðilegt að semja við
slíkt fólk, en skynsemin segði að
það væri hagkvæmara en að leggja
í langvinna kostnaðarsama baráttu.
Frí oo bó ekki
Upphaflega ætlaði Björk sér að
láta af flakki og ferðalögum í mars
og taka sér átta mánaða frí til að
hefja upptökur á næstu breiðskífu.
Hún fór og í hljóðver að bytja á
breiðskífunni og fékk meðal annars
til liðs við sig Graham Massey úr
bresku danssveitinni 808 State, en
varð að gera hlé á upptökum til
að leika á tvennum tónleikum í
Bandaríkjunum, 15. og 16. apríl.
Til gamans má geta þess að á öðr-
Árið sem liðið ei Irá
kví Debut kom út befur
verið sannkailað jnnus
mirabilis" íyrir Björk
Guðmundsdóttur, sem
sagðist bafa gengið með
plotuna í sextán ár.
15 rétta gimilegt
austurlenskt sumathlaðborð
Súpa dagsins
Steiktar núðlur með grœnmeti - Anshau rúllur
Vermicelli baunir tau-sec- Fragrant kjúklingur
Svínarif með Pekingsósu - Szechuan fiskur
Lambakjöt með ostrusósu - Steikt grœnmeti
Yu-sidng skelfiskur - Svinakjót með yang-chai
Rœkjuflögur - Karrýkjúklingur að heetti Malasíubúa
Luo nautakjöt - Sœt hrísgrjón - Salat
Súrsatsósa, karrýsósa
barbecuesósa, sataysósa
Eftirréttur dagsins
Ming-court kokteill
veitingahúsið á íslandi
Laugovegi 28b Sími 16513 - 23535 - Fax 624762
E.B'ACKMÁN ouglýsingosiofo