Morgunblaðið - 22.05.1994, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N MMAUGL YSINGAR
Umboðsmaður
Morgunblaðið óskar eftir umboðsmanni á
Raufarhöfn frá 1. júlí 1994.
Upplýsingar veittar hjá Sólrúnu í síma
96-51179 eða á skrifstofu Morgunblaðsins
á Akureyri, í síma 96-11600.
Löggiltur
fasteignasali
óskast til starfa hjá einni af elstu fasteigna-
sölum borgarinnar. Bestu kjör í boði fyrir
reyndan og duglegan sölumann.
Tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
kl. 17.00 hinn 26. þ.m. merkt: „Framtíðar-
atvinna - 11739“.
íþróttakennarar
Við Höfðaskóla, Skagaströnd, er laus staða
íþróttakennara. Um er að ræða heila stöðu.
Einnig eru möguleikar á þjálfun.
Launauppbót.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra í síma
95-22642 (skóli)/95-22800 (heima) og að-
stoðarskólastjóra í síma 95-22642 (skóli)/
95-22671 (heima).
Snyrtifræðingur
Þekkt snyrtivörufyrirtæki óskar eftir að ráða
snyrtifræðing til að annast kynningar á
snyrtivörum sínum. Um er að ræða hluta-
starf.
Umsækjandi þarf að hafa góða ensku- eða
frönskukunnáttu og að hafa starfað við fag sitt
í minnst 4 ár. Æskilegur aldur er 30-40 ára.
Áhugasamir sendi skriflega umsókn sína,
merkta: „PAR -111“, fyrir 26. maí til auglýs-
ingadeildar Mbl.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og verður þeim öllum svarað.
Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra á
Norðurlandi eystra
A Ráðgjafar- og greiningardeild vinnur
þverfaglegur starfshópur með víðtækt verk-
svið og margháttaða reynslu. Nú vantar okk-
ur í hópinn:
Sálfræðing - sem sinnir ýmsum sálfræði-
störfum s.s. athugunum, ráðgjöf til starfs-
manna og skjólstæðinga auk fjölbreytilegra
verkefna, t.d. varðandi þróun, skipulagningu
og fræðslu í samvinnu við aðra fagaðila.
Sálfræðihandleiðsla er til staðar.
Ráðgjafa - sem tengist stofnunum Svæðis-
skrifstofunnar og veitir þeim ýmiskonar ráð-
gjöf t.d. varðandi innra starf, einstaklings-
og starfsmannamál í samvinnu við aðra fag-
aðila deildarinnar.
Umsækjendur hafi reynslu af störfum með
fötluðum og menntun á félags- eða uppeldis-
sviði.
Stöðurnar veitast frá 15. júní eða eftir nán-
ara samkomulagi. Umsóknir sendist til skrif-
stofunnar fyrir 1. júní nk.
Nánari upplýsingar gefur Gyða Haraldsdótt-
ir, yfirsálfræðingur í síma 96-26960.
Sölumaður
Heildverslun í borginni óskar eftir að ráða
sölumann til starfa. Æskilegt að umsækjandi
hafi reynslu af sölustörfum.
Umsóknir, með almennum upplýsingum,
sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar:
„Sölumaður - 13204“ fyrir 27. maí.
Grunnskólinn Skógum
er lítill sveitaskóli í fallegu umhverfi undir
Eyjafjöllum. Okkur vantar kennara í ensku,
dönsku, samfélagsfræði og myndmennt.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 98-78834
eða í heimasíma 98-78808.
Ræstingafólk óskast
Verktaki óskast til ræstinga hjá stóru þjón-
ustufyrirtæki í Reykjavík. Kvöldvinna. Um er
að ræða 1000 fm.
Þeir sem hafa áhuga sendi inn nöfn sín á
auglýsingadeild Mbl. merkt: „F - 13084".
Reykjavíkurdeild
Rauða kross íslands
óskar eftir starfsfólki
Á vegum Reykjavíkurdeildar RKÍ er að taka
til starfa stoðbýli fyrir aldraða, heilabilaða,
staðsett í Grafarvogi.
Við leitum að fólki, sem hefur áhuga á að
starfa með öldruðum og taka þátt í uppbyggi-
legu starfi í þágu heilabilaðra.
Starfið er fólgið í heimilishaldi og ýmis konar
aðstoð við íbúana. Um er að ræða fjölþætt
starf, sem krefst þolinmæði og samskipta-
hæfni.
Unnið er á vöktum og er einungis um framtíð-
arstörf að ræða.
Æskilegt er að umsækjandi hafi unnið með
öldruðum eða hafi reynslu af heimaþjónustu
fyrir aldraða.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Reykjavíkurdeildar RKÍ, sími
688188, Fákafeni 11, og skal umsóknum
skilað á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 27. maí nk.
MULABÆR
Hjúkrunarfræðingur
opin öldrunarþjónusta
Múlabær er þjónustuheimili fyrir aldraöa og öryrkja meö aösetur í Ármúla
34 í Reykjavík. Starfsemin fer fram á tímabilinu kl. 7.30-17.00 fimm daga
vikunnar. Þjónusta er veitt á félagslegu- og heilbrigðissviði og miöar aö
því að gera eldra fólki kleift að búa heima eins lengi og unnt er viö öryggi
og farsæld. Aö jafnaöi koma 48 einstaklingar daglega til dvalar á heimilinu.
í Múlabæ starfar hjúkrunarfræðingur, sjúkraliðar, leiðbeinendur, hár-
greiðslumeistari og annað starfsfólk með fjölþætta starfsreynslu víöa eða
úr öldrunarþjónustunni.
Við auglýsum nú eftir hjúkrunarfræðingi til
starfa um óákveðinn tíma vegna afleysinga.
Um er að ráða 60% starf. Vinnutími eftir
samkomulagi. Verkefnin eru fjölþætt, s.s.
almenn hjúkrunarstörf, heilsufarslegt eftirlit
með skjólstæðingum stofnunarinnar, tengsl
við endurhæfingar- og hjúkrunarstofnanir á
svæðinu ásamt nánu samstarfi við forstöðu-
mann og trúnaðarlækni.
Áhersla er lögð á lipurð í umgengni og gott
samstarf á öllum sviðum starfseminnar á
heimilinu.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í
Múlabæ í síma 681330.
Bakari
Veitingadeild Hótels Loftleiða óskar að ráða
bakarameistara.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
G&G veitingar,
Hótel Loftleiðum.
Ritari
Sérhæft þjónustufyrirtæki óskar að ráða
ritara.
Starfið: Fjölbreytt og lifandi ritarastarf.
Móttaka viðskiptavina og símaþjónusta.
Leitað er að röskum, skipulögðum og sjálf-
stæðum aðila með gott stúdentspróf.
Viðkomandi þarf að vera þjónustulipur, líf-
legur og hafa góða og aðlaðandi framkomu.
Unnið er í Windows umhverfi með Word og
Excel.
Æskilegur aldur 20-30 ára.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „Ritari - þjónusta11, fyr-
ir 27. maí nk.
RAÐGARÐURhl
STJORNUNAR OG REKSTRARRAÐGJOF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688
LANDSPITALINN
/ þágu mannúðar og vísinda
TAUGALÆKNINGADEILD
LANDSPÍTALANS
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast í fasta stöðu. Á
deildinni er einstaklingshæfð hjúkrun og
mjög góð starfsaðstaða.
Upplýsingar gefa Jónína Hafliðadóttir,
hjúkrunardeildarstjóri, s. 601650 og Bergdís
Kristjánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
s. 601300.
LYFLÆKNINGADEILD
LANDSPÍTALANS
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast á 60% nætur-
vaktir á 5 daga deild. Um er að ræða lyflækn-
ingadeild 11B sem er almenn lyflækninga-
deild, opin frá mánudegi - föstudags.
Hjúkrunarfræðingur óskast í afleysingastöðu
og í fasta stöðu á lyflækningadeild 14G.
Áhersla er á hjúkrun sjúklinga með gigtar-
og nýrnasjúkdóma.
Upplýsingar gefa Þóra Árnadóttir, hjúkrun-
ardeildarstjóri: S. 601255 og Bergdís Krist-
jánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri: S.
601300.
ENDURHÆFINGAR- OG
HÆFINGARDEILD
LANDSPÍTALANS í KÓPAVOGI
Hjúkrunarfræðingur/sjúkraliðar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til
starfa á deild 20 sem er fyrir mikið fatlaða
einstaklinga. Starfshlutfall samkomulag. Einn-
ig eru lausar stöður sjúkraliða á sömu deild.
Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmda-
stjóri eða yfirþroskaþjálfi, s. 602700.
Þroskaþjálfi
Á deild 8 er laus staða þroskaþjálfa í 80%
stöðuhlutfall. Deildin er elli- og hjúkrunar-
deild fyrir 11 einstaklinga.
Upplýsingar veitir Björgvin Jóhannesson,
deildarstjóri, s. 602700.