Morgunblaðið - 22.05.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIMMA/BAÐ/SMA
SUNNUDAGUR 22. MAÍ1994 B 19
ATVINNUAUGiyS/NGAR
Verkfræðingar/
tæknifræðingar
Verkfræðistofa óskar eftir að ráða bygginga-
verkfræðing eða -tæknifræðing til starfa fljót-
lega. Góð kunnátta á tölvur og tölvuteiknun
er nauðsynleg.
Upplýsingum um menntun og fyrri störf skal
skila á Verkfræðistofuna Fjölhönnun hf.,
Grensásvegi 8, Reykjavík, fyrir 6/6 ’94.
Verkfræðistofan Fjölhönnun hf.
Ritari - bókhald
GSS á íslandi hf. óskar að ráða ritara til
starfa hluta úr degi, frá kl. 8.30 til kl. 14.00.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á
bókhaldskerfinu Fjölni (Bústjóri). Góð ensku-
kunnátta er æskileg. Laun í samræmi við
reynslu. Æskilegt er að starfsmaður geti
byrjað sem fyrst.
Umsækjendur vinsamlegast sendi okkur eig-
inhandarumsókn. Heimilisfang okkar er
Mörkin 6, 108 Reykjavík.
íslensk fjallagrös hf. óska eftir að ráða:
Framkvæmdastjóra
þróunarverkefnis
íslensk fjallagrös hf. vinna að þróun á heilsu-
vörum af ýmsu tagi úr fjallagrösum og öðrum
íslenskum villigróðri.
Óskað er eftir starfsmanni með menntun í
lyfjafræði, matvælafræði eða skyldum svið-
um og helst með reynslu úr lyfja- og mat-
vælaiðnaði.
Um er að ræða 6 mánaða ráðningu en með
möguleikum á framhaldi ef vel tekst til.
Nánari upplýsingar veitir Jakob K. Kristjáns-
son í síma 674488 kl. 10.00-12.00.
Umsóknir sendist til: íslenskra fjallagrasa hf.
Efna- og líftæknihúsi, Keldnaholti,
112 Reykjavík.
T ónlistarskólastjóri
Staða skólastjóra við tónlistarskólann á
Kirkjubæjarklaustri er laus til umsóknar.
Milli 30 og 40 nemendur stunda nám við
skólann og er m.a. kennt á hljómborðshljóð-
færi, málmblásturshljóðfæri, strengjahljóð-
færi og blokkflautur, auk tónfræðigreina.
Fyrir hendi er íbúðarhúsnæði og á Klaustri
er öll almenn þjónusta t.a.m. grunnskóli, leik-
skóli, heilsugæsla, verslun, hótel og banka-
útibú.
Hér er því kjörið tækifæri fyrir fjölskyldufólk
sem vill breyta til og setjast að á rólegum
stað, sem rómaður er fyrir náttúrufegurð og
veðursæld.
Umsóknir, þar sem fram koma upplýsingar
um menntun og starfsreynslu, sendist til
skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 10,
880 Kirkjubæjarklaustri, fyrir 1. júní nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma
98-74840 á skrifstofutíma.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39,108 Reykjavík, sími 678500
Starfsmannastjóri
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar
að ráða starfsmannastjóra til stofnunarinnar.
Starfið felur í sér umsjón með öllu starfs-
mannahaldi Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar.
Starfsmannastjóri mun ennfremur hafa með
höndum skipulagningu á fræðslu og
símenntun starfsfólks í náinni samvinnu við
yfirmenn sérsviða.
Starfsmannastjóra er ætlað að starfa sjálf-
stætt en í náinni samvinnu við félagsmála-
stjóra og aðra yfirmenn stofnunarinnar.
Markmið stofnunarinnar með þessu starfi
er m.a. að efla starfsmannahald og auka
gæði þeirrar þjónustu sem stofnunin veitir.
Starfsmannastjóri þarf að hafa hafa hald-
góða háskólamenntun, eiga gott með að
hafa samvinnu við og umgangast fólk og
hafa áhuga á félagslegri þjónustu.
Umsóknir berist Láru Björnsdóttur, félags-
málastjóra fyrir 15. júní nk. merktar
starfsmannastjóri.
Leikskóli St. Franciskussystra,
Stykkishólmi
Fóstrur
Fóstra óskast til starfa á leikskóla St. Franc-
iskussystra frá 8. ágúst 1994.
Við skólann starfa um 80 börn í blönduðum
deildum og 12 fullorðnir (fóstra og annað
mjög gott starfsfólk) auk skólastjóra.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 93-81028
eða 93-81128.
SVÆÐISSKRIFSTOFA
MÁLEFNA FATLAÐRA,
REYKJAVÍK
Laus staða
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra f Reykja-
vík leitar að áhugasömum starfsmanni með
faglegan metnað og hæfni til að taka þátt
í öflugu uppbyggingarstarfi f þágu fatlaðra
með aðferðum gæðastjórnunar. Áskilin er
menntun og reynsla f störfum að málefnum
fatlaðra.
Um er að ræða vítt verksvið sem tekur til
lögbundinnar afgreiðslu umsókna um aðstoð
og þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur,
ráðgjafar og samvinnu við aðrar þjónustu-
stofnanir.
Staðan veitist frá 1. ágúst eða fyrr eftir sam-
komulagi. Umsóknarfrestur er til 8. júní nk.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma
621388.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist til Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra, Nóatúni 17, 105 Reykjavík.
Rafmagnsverk- eða
tæknifræðingur
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
Innflutnings- og verkfræðifyrirtæki
óskar að ráða rafmagnsverkfræðing eða
rafmagnstæknifræðing til starfa sem fyrst.
Starfssvið: Umsjón með innflutningi á raf-
magnsvörum, samskipti við erlend fyrirtæki
og markaðs- og kynningarstarfsemi.
Viðkomandi þarf að hafa menntun á sterk-
straumssviði, þekkingu á raflagnakerfum og
góða efnisþekkingu auk almenns áhuga á
viðskiptum.
Góð tungumálakunnátta nauðsynleg.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
eingöngu veittar á skrifstofu Guðna Jóns-
sonar, Tjarnargötu 14, og skal umsóknum
skilað á sama stað.
Umsóknarfrestur er til 27. maí nk.
Gudni Tónsson
RÁÐGJÖF & RÁÐN1NCARHÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Frá Æfingaskóla Kennaraháskóla
íslands
Húsvörður
Æfingaskóli Kennaraháskóla íslands óskar
að ráða húsvörð til starfa frá 1. ágúst nk.
Starf húsvarðar er m.a. fólgið í umsjón með
húsum skólans, lóð og húsmunum. Hann
hefur einnig umsjón með viðhaldi fasteigna
og sér um að lagnakerfi og brunavarnir séu
í samræmi við gildandi reglur.
Laun eru skv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir aðstoð-
arskólastjóri Æfingaskólans í síma 633950.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, óskast sendar
skrifstofu Æfingaskóla KHÍ, við Háteigsveg,
105 Reykjavík, fyrir 3. júní nk.
Tækni-,verk-
og tölvufræðingar
Tölvusamskipti hf. er ungt og framsækið
fyrirtæki, sem framleiðir faxhugbúnaðinn
Skjáfax fyrir einkatölvur og tölvunet. Helsta
verkefni fyrirtækisins er útflutningur á Skjá-
faxi.
Við leitum að traustum einstaklingi með
góða þekkingu á tölvunetum, Windows og
enskri tungu. Tækni-, verk- eða tölvufræði-
menntun áskilin.
Við bjóðum skemmtilegt og krefjandi starf
við þjónustu á Skjáfaxi innanlands sem utan.
Vinsamlegast sendið skriflega umsókn til
Tölvusamskipta hf., pósthólf 5114, 125
Reykjavík, fyrir 28. maí 1994.
Sumarvinna með
öldruðum
Sjúkrahúsið Sólvangur í Hafnarfirði óskar að
ráða starfsmann til þess að sjá um vistfólk
í sumardvöl. Um er að ræða: Tímabilið
12. júní til 22. júlí í húsi Sólvangs í Hvera-
gerði. Öll aðstaða er til fyrirmyndar.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu
við aðhlynningu aldraðra.
Upplýsingar gefa forstjóri eða hjúkrunarfor-
stjóri í síma 91-50281 24. maí til 27. maí
milli kl. 10.00-12.00.
Frá Fræðsluskrifstofu
Reykjanesumdæmis
Eftirtaldar kennarastöður við grunnskóla í
Reykjanesumdæmi eru lausar til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 22. júní nk.
Holtaskóli í Keflavík,
staða sérkennara, skriftarkennara og tölvu-
kennara.
Mýrarhúsaskóli á Seltjarnarnesi,
staða sérkennara.
Framlengdur er til 5. júní umsóknarfrestur
um eftirtaldar kennarastöður.
Myllubakkaskóli í Keflavík,
stöður í hand- og myndmennt og tónmennt.
Grunnskóli Grindavíkur,
staða almenns kennara og sérkennara.
Grunnskólinn í Sandgerði,
staða tónmenntakennara.
Fullorðinsfræðsla fatlaðra,
stöður sérkennara.
Umsóknir berist til skólastjóra viðkomandi
skóla sem gefa nánari upplýsingar.
Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis.