Morgunblaðið - 22.05.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 B 25
HVÍTASUNNULILJA
(Narcissus
poeticus)
HVÍTASUNNU-
LILJAN er ein
hinna fjölmörgu
tegunda narcissus-
ættkvíslarinnar,
sem á íslerisku hef-
ur fengið heitið há-
tíðaliljur. Þekktast-
ar þeirra eru auðvit-
að páskaliljurnar
(N. pseudonarciss-
us) sem þrífast hér
mjög vel og
blómstra oftast um
páskaleytið. Á síð-
ari tímum hefur
orðið til mikill fjöldi kynblendinga
þessara tegunda, eru það einkum
Englendingar og írar sem hafa
lagt sig fram við þessar kynbæt-
ur. Afbrigðin skipta nú orðið mörg-
um þúsundum og gerð og litur
blómanna er afar breytilegur.
Enska garðyrkjufélagið hefur
skipt garðaafbrigðum í 11 höfuð-
flokka, og hefur sú flokkun fengið
alþjóðlega viðurkenningu. Páska-
liljur og kynblendingar þeirra og
hvítasunnulilja, eru í flokknum
1-4. Hvítasunnuliljur eru í flokkn-
um nr. 8 og samkvæmt skilgrein-
ingunni eru í þeim flokki aðeins
þau garðaafbrigði sem sýnilega
eru ekki blönduð páskaliljum eða
öðrum tegundum af narcissus-ætt-
kvíslinni. Hvítasunnuliljur heita
þessu sama nafni á hinum Norður-
löndunum og þá auðvitað vegna
þess að þær blómgast um hvíta-
sunnuleytið. Englendingar og
Þjóðveijar nefna þær aftur á móti
skáldaliljur (The poet’s narcissus)
þar sem þær koma oft
fyrir í skáldskap
grísku skáldanna Hó-
mers og Sófóklesar og
raunar fleiri skálda og
er þar af komið lat-
neska heitið poeticus.
Blóm hvítasunnu-
liljunnar eru hreinhvít
með gulri disklaga
miðju sem er rauð-
brydd og nefnist hjá-
króna. Næst miðjunni
er liturinn oft græn-
leitur. Hjá afbrigðinu
N. poeticus var. po-
etarum er hjákrónan
gulrauð og næstum
einlit. Afbrigðið N.
poet. var. recurvus er
til í ræktun hér á landi en erfið-
lega gengur að fá það til að
blómgast. Englendingar nefna
það „Phesant’s Eye Narcissus"
vegna þess hve hjákrónan líkist
mjög augum fasana. Blóm hvíta-
sunnuliljunnar hafa sterkan sæt-
an ilm. Heimkynni þeirra eru víða
um Suður-Evrópu. Hinar villtu
hvítasunnuliljur hafa yfirleitt
reynst fremur erfiðar í ræktun
bæði hér á landi sem erlendis.
Garðaafbrigðin, eða að minnsta
kosti sum þeirra, hafa aftur á
móti reynst mjög vel. Er það sér-
staklega eitt sem heitir actaea og
er af hollenskum uppruna. Á
Norður-írlandi og einnig í Banda-
ríkjunum hafa komið fram nokkur
ný afbrigði af hvítasunnuliljum.
Verið er að reyna sum þeirra hér
á landi og lítur út fyrir að mörg
þeirra muni þrífast vel.
Þá má hér að lokum segja frá
sérstakri hvítasunnulilju - senni-
íega ættaðri frá Miðjarðarhafs-
löndum - sem Christian Zimsen
apótekari flutti hingað til lands
frá Danmörku fyrir mörgum ára-
tugum, og rælrtaði um árabil í
garði sínum í Reykjavík. Síðar var
hún flutt í sumarbústaðaland við
Elliðavatn, óx þar villt og blómg-
aðist allvel að sagt er.
Um meðferð hvítasunnulilja er
það að segja að laukamir hafa
mjög stuttan hvfldartíma og geym-
ast því afar illa. Þarf því að setja
þá niður strax eftir komuna til
landsins. Laukamir era nokkra
minni en páskaliljulaukar en eru
settir niður í svipaða dýpt og þeir.
Hvítasunnuliljur hafa á undan-
förnum_ árum einatt verið á lauka-
lista GÍ.
Kr. Guðst.
BLOM
VIKUNNAR
288. þáttur
llmsjón Ájjústa
Björnsdóttir
Nýr gnð-
fræði
prófessor
FORSETI íslands hefur, með bréfi
dagsettu 15. aprfl sl., skipað dr.
Pétur Pétursson, prófessor í kenni-
mannlegri guðfræði við guðfræði-
deild Háskóla íslands frá 1. janúar
1994.
Dr. Pétur var skipaður dósent
í áðurnefndri
grein við guð-
fræðideild 1.
janúar 1993.
Áður var hann
dósent við fé-
lagsvísindadeild
Háskóla íslands
frá haustinu
1990 en árið
1988 varð dós-
ent við guðfræðideild Lundarhá-
skóla í Svíþjóð, en hafði áður einn-
ig kennt við félagsvísindadeild
Lundarháskóla.
Pétur Pétursson prófessor er
með tvöfalda doktorsgráðu. Hann
lauk doktorsprófi í félagsfræði frá
Lundarháskóla 1983 og doktors-
prófi í guðfræði frá sama skóla
árið 1990.
Dr. Pétur hefur tekið virkan
þátt í alþjóðlegu samstarfi fræði-
manna og birt mikinn fjölda fræði-
greina í innlendum og erlendum
tímaritum auk nokkurra bóka og
bókakafla sem hann hefur ritað.
Dr. Pétur er fæddur á Akureyri
árið 1950. Hann er sonur hjónanna
Sólveigar Ásgeirsdóttur og Péturs
Sigurgeirssonar biskups. Hann er
kvæntur Þuríði Gunnlaugsdóttur
sjúkraliða og eiga þau fjögur böm.
RAD AUGL YSINGAR
Til leigu
Til leigu er á Suðurlandsbraut 41 fm teppa-
lagt húsnæði með sérinngangi og sérsnyrt-
ingu í bakhúsi. Laust nú þegar.
Upplýsingar í síma 91-15328.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Þjónustufyrirtæki óskar eftir rúmgóðu
100-160 fm skrifstofuhúsnæði til leigu. Stað-
setning í austurborginni eða miðborginni.
Áhugasamir aðilar sendi upplýsingar til auglýs-
ingadeildar Mbl. merktar: „ Skrifstofa - 777“.
Til leigu
Til leigu glæsilegt húsnæði í Sundaborg 9,
Reykjavík. Um er að ræða ca 300 fm.
Húnæðið skiptist til helminga, á jarðhæð er
gott lagerpláss með stórum innkeyrsludyrum
og á efri hæð er stór skrifstofa og góð sýn-
ingaraðstaða.
Nánari upplýsingar í síma 91-688104.
Fiskverkun Hafnarfirði
Til leigu eru tvö fiskverkunarhús hvort að
grunnfleti 300 fm. í öðru húsinu er frysting
og kæling með góðri aðstöðu. ( hinu húsinu
er fullkomin skreiðarþurrkun.
Mjög góð staðsetning stutt frá Fiskmarkaðn-
um. Leigist saman eða hvort í sínu lagi.
Upplýsingar hjá:
Ásbyrgi, fasteignasölu,
Suðuriandsbraut 54, Reykjavík,
sími 682444.
Kaupmannahöfn
íslensk hjón starfandi tímabundið í Dan-
mörku óska eftir að leigja 2ja-3ja herb. íbúð
með húsgögnum í Kaupmannahöfn eða ná-
grenni, tímabilið 1/6-15/9 '94. Skilvísar
greiðslur fyrir rétt húsnæði. Upplýsingar í
síma 91 -12980 eða 91 -656995 eftir kl. 17.00.
Óska eftír sérbýli á leigu
í Garðabæ eða
Bessastaðahrepp
Upplýsingar í síma 651565.
Kaupi gamla muni
s.s skrautmuni, bækur, myndir, málverk, silf-
ur, Ijósakrónur, lampa, bollastell, hatta,
veski, gömul póstkort og smærri húsgögn.
Upplýsingar í síma 91-671989 eftir kl. 16.
Geymið auglýsinguna.
Stokkhólmur
2ja herbergja íbúð með eldhúsi og baði
(u.þ.b. 70 fm) í úthverfi Stokkhólms, Rinkeby
(17 mínútur með lest úr miðbænum), til leigu
frá 1. júní til 1. september. íbúðin er búin
húsgögnum. Leigan er sek. 3000.
Upplýsingar í síma 91-43253.
Til leigu
Til leigu er einbýlishús á einum besta stað
í Kópavogi. Húsið er 260 fm á tveimur hæð-
um og með tvöföldum bílskúr.
Áhugasamir leggi nöfn sín inn á auglýsinga-
deild Mbl. merkt: „Hús - 599".
Fundur með ungu fólki
verður haldinn
þriðjudaginn 24. maí
kl. 18.00 á kosninga-
skrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins, Hraun-
bæ 102b, við hlið
Skallasjoppu.
Gestir: Inga Jóna
Þórðardóttir og
Kjartan Magnússon.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Æ Starfsmiðstöð eldri
borgara íValhöll
M Reykjavíkurferðir
Starfsmiðstöð eldri borgara í Valhöll, Háaleit-
isbraut 1, er opin alla virka daga frá kl. 12.00
til 18.00. Þar er boðið upp á skoðunarferðir
og síðdegiskaffi. Allt stuðningsfólk Sjálf-
stæðisflokksins er velkomið. Frambjóðendur
og forystumenn Sjálfstæðisflokksins koma í
heimsókn. Næsta kynnisferð um borgina
verður þriðjudag 24. maí. Lagt verður af
stað frá Aflagranda 40 kl. 14.00. Síðan verð-
ur haldið að Grandavegi 47, KR-heimili,
Neskirkju og Ráðhúsi. Þaðan verður faríð í
1-1V2 tíma skoðunarferð um borgina, sem
endar með síðdegiskaffi í Valhöll. Fólki verð-
ur síðan ekið heim í sín hverfi um kl. 16.30.
Það eru allir velkomnir, en við hvetjum sérstak-
lega borgara 60 ára og eldri til að koma með.
Hittumst hress og glöð! Áfram Reykjavfk.