Morgunblaðið - 22.05.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 B 27
S VEITARSTJORN AKOSIMING AR
Seltjarnarnes
Ve stur-Barðastrandarsýsla
TVEIR listar bjóða fram á Seltjarn-
arnesi í kosningunum, D-listi Sjálf-
stæðisflokks og N-listi Bæjarmálafé-
lags Seltjarnarness. Oddvitar list-
anna tveggja eru sammála um þá
stefnu að halda álögum á íbúa í lág-
marki en ósammála um ijármála-
stjórn bæjarfélagsins. Sigurgeir Sig-
urðsson, bæjarstjóri og efsti maður
á D-lista, segir stöðuna vera góða,
en Siv Friðleifsdóttir, efsti maður á
N-lista, segir fjárhagsstöðu bæjarfé-
lagsins ekki slæma.
Sömu listar buðu fram til síðustu
kosninga og hlaut Sjálfstæðisflokkur
þá 5 fulltrúa en N-listinn 2.
Sigurgeir segir samstöðu um það
innan bæjarstjómarinnar að halda
álögurh á íbúa í lágmarki. Hann tel-
ur fjárhag bæjarins vera góðan og
skuldastöðuna vera með því besta
sem gerist.
Skipulagsmál séu ofarlega á dag-
skrá í bænum, nýlega hafi verið aug-
lýst samkeppni um deiliskipulag úti-
vistarsvæðis á Seltjarnamesi og
spennandi verði að sjá hvaða tillögur
berist.
í skólamálum sé það helst á dag-
skrá að byggja við Mýrarhúsaskóla
og Valhúsaskóla. Þá standi til að
Greinir á
um fjár-
málin
Sigurgeir Siv Friö-
Sigurðsson leifsdóttir
byggja nýjan leikskóla í bænum.
Hreinsun strandarinnar sé {fullum
gangi, þegar sé búið að hreinsa norð-
urströndina en verið sé að byija á
suðurströndinni.
Sigurgeir segir að kosningabarátt-
an hafí verið með hefðbundnum
hætti, gefin hafa verið út blöð, haldn-
ir hverfafundir og frambjóðendur
hafi heimsótt íbúa.
Fjárhagsstaða slæm
Siv er ósammála Sigurgeir um að
fjárhagsstaða bæjarfélagsins sé góð
og hún er ekki sammála þeirri fjár-
málastjórn sem þar er. Ástæða þess
að minnihlutinn hafi samþykkt árs-
reikninga Seltjarnarness sé að end-
urskoðandi minnihlutans hafi sagt
að þeir væru rétt færðir. Hún segir
að N-listinn sé sammála þeirri stefnu
að halda skattaálögum í lágmarki.
Hún bendir á að hagur bæjarfé-
lagsins hafi vænkast vemlega vegna
niðurfellingar aðstöðugjalda og Sel-
tjamames fengið um 40 mílljónir frá
ríkinu til að bæta upp tap vegna
niðurfellingar gjaldanna, sem ekki
var mikið.
Helstu stefnumál listans em fram-
kvæmdir við íþróttamannvirki og að
íþróttaiðkun verði efld í bænum.
Einnig vilja þau að atvinnuleysi ungs
fólks verði leyst og hefja byggingu
hjúkranarheimilis fyrir aldraða.
N-listinn býst ekki við því að ná
meirihluta í kosningunum. Siv segir
að þau vonist hins vegar til að ná
inn þriðja manni, og geti þannig
veitt meirihlutanum meira aðhald.
Eskifjörður
Hrafnkell A. Jónsson
Persónuleg og rætin barátta
PmlrrlKAim \f Arm i nhl n ði A
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
A ESKIFIRÐI eru í boði fimm flokk-
ar fyrir komandi bæjarstjómarkosn-
ingar og er það einum flokki meira
en síðast. Núverandi meirihluti er
skipaður 3 þremur fulltrúum frá
Framsóknarflokki, einum frá Al-
þýðubandalagi og einum frá Alþýðu-
flokki. Sjálfstæðisflokkur situr í
stjórnarandstöðu með tvo fulltrúa.
Sömu verða í boði nú og auk þess
E-listi Eskfirðinga. Margir þeirra
sem nú sitja í bæjarstjórn munu
hætta og von er á nýjum andlitum
í forystu bæjarins eftir kosningar.
Sigurður Freysson Framsóknar-
flokki segir að umhverfismál þar sem
aðaláherslan er lögð á frárennsli í
bænum verði aðalmál framsóknar-
manna á næsta kjörtímabili fái þeir
umboð frá kjósendum. Hann sagði
atvinnustigið hafa verið gott á Eski-
firði undanfarið kjörtímabil. Fram-
kvæmdir vom miklar við gatnagerð
og einnig er unnið við bryggjufram-
kvæmdir. Auk þess verður heilsu-
gæslustöð tekin í gagnið á næsta
Sigurður
Freysson
Hrafnkell A.
Jónsson
Emii Thorar-
ensen
ári. Sigurður segir Framsókn ætla
sér að ná inn þremur mönnum í kosn-
ingunum og þær leggist vel í sig.
Vonast hann til að málefnin verði
látin ráða ferðinni en ekki persónur.
Hrafnkell A. Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, telur kosningabaráttuna í ár
vera óvenju rætna og persónulega.
Nýir fletir séu að koma upp sem
hann hafí ekki þekkt áður þrátt fyr-
ir mörg ár í pólitík. Hann lýsti einn-
ig þeirri skoðun sinni að málefnafá-
tækt væri með mesta móti hjá stjórn-
arflokkunum. Hrafnkell sagði að at-
vinnumál,
íþrótta- og tóm-
stundamál og
umhverfismál
væru sett á odd-
inn hjá sínum
flokki. Þrátt fyr-
ir að atvinnu-
stigið væri við-
unandi mætti
gera mun betur
á ýmsum svið-
um. Að lokum kvaðst hann hæfilega
bjartsýnn á útkomu kosninganna.
Emil Thorarensen, oddviti E-lista
Eskfirðinga, sagði að ýmsar persónu-
legar væringar hefðu orðið til þess
að hann ákvað að segja skilið við
Framsóknarflokkinn og stofna E-
listann. Samfara því hefði losnað úr
læðingi óánægja ýmissa með stjórn-
arathafnir meirihlutans og telur hann
framboðið eiga fullt erindi í kosning-
arnar. Á stefnuskrá eru atvinnumálin
höfð fyrst og er þar þung áhersla
lögð á að störf tapist ekki af svæðinu.
Dalabyggð
Brýn verk-
efni bíða
Búðardal. Morgunblaðið.
MIKIÐ fjölmenni var á framboðs-
fundi þeirra fjögurra framboðslista
sem bjóða fram í nýja sveitarfélaginu
Dalabyggð. Fram kom að mörg brýn
verkefni bíða, til dæmis stækkun
Dvalarheimilisins Silfurtúns og meiri
umönnun íbúana þar. Einnig stækk-
un hjúkmnarheimilisins á Fellsenda.
Þá þurfi að gera átak í atvinnu- og
samgöngumálum.
Morgunblaðið/Kristjana
MARGMENNI var á framboðsfundinum í Búðardal.
Erfitt að
spá um
úrslitin
KOSIÐ verður í fyrsta sinn til sveit-
arstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi
Patreks-, Bíldudals-, Barðastrandar-
og Rauðasandshrepps í vor. Viðmæl-
endur Morgunblaðsins eru sammála
um að erfitt sé að segja til um hvern-
ig kosningarnar fari því sameiningin
breyti einhveiju, en búist er við því
að sjálfstæðismenn vinni á.
Fimm listar eru í framboði, A-
listi Alþýðuflokks, D-listi Sjálfstæð-
isflokkSj B-listi Framsóknarflokks,
F-listi Oháðra og J-listi Óháðra og
jafnaðarmanna, sem er klofningur
út frá Alþýðuflokki.
Hrepparnir sem standa að sam-
einingunni standa misvel fjárhags-
lega, Bíldudals- og Patrekshreppar
skulda mikið en dreifbýlishreppamin
tveir standa betur.
Ólafur Arnfjörð, sveitarstjóri og
efsti maður A-listans, segir atvinnu-
málin vera mikilvægustu málin i
þessum kosningum. A stefnuskránni
sé að hætta fjáraustri í gjaldþrota
fyrirtæki, fjárhagur sveitarfélagsins
þoli það ekki lengur.
Hann segir að fjárhagsstaðan
hafi batnað verulega vegna skulda-
niðurfellingar ríkisins og því ætti
fjárhagsstaða hreppsins að vera
betri.
Gísli Ófafur
Ólafsson Arnfjörð
Ólafur segir að hingað til hafi
Alþýðuflokkurinn sótt fylgi sitt til
Bíldudals og Patreksfjarðar, en sjálf-
stæðismenn séu sterkir í Barða-
strandar- og Rauðasandshreppi.
Auka þarf bjartsýni
Gísli Ólafsson, efsti maður D-
lista, segist vona að sameiningin
komi Sjálfstæðisflokknum til góða.
Flokkurinn leggi áherslu á at-
vinnumál og að eyða atvinnuleysi á
svæðinu. Mest hafi vantað atvinnu
á Bíldudal og á því þurfi að taka.
Því þurfi að hefja sókn og skapa
hagstæð ytri skilyrði fyrir fyrirtæki
og auka bjartsýni meðal fólks.
Stofna beri atvinnuþróunarsjóð sem
ynni að því.
Þá þurfi að styða við bakið á þeim
einstaklingum og fyrirtækjum sem
em í rekstri.
Kanna þurfi möguleika á loðnu-
frystingu fijá þeim frystihúsum sem
eru á svæðinu og fjárfesta í tækjum
til þess.
Gísli segir engar stórar fram-
kvæmdir vera fyrirhugaðar á kjör-
tímabilinu, byggingu barnaskóla á
Patreksfirði sé að ljúka og hafin sé
bygging íþróttahúss á Bildudal.
Sauðárkrókur
Þarf að snúa vörn í
sókn í atvinnumálum
EINS OG viðast annars staðar eru
atvinnumálin ofarlega í hugum
frambjóðenda til bæjarstjórnar á
Sauðárkróki. Nú verður einungis
kosið um sjö sæti, því bæjarstjórnar-
mönnum hefur verið fækkað úr níu
í sjö. Fimm listar bjóða fram til kosn-
inganna eins og fyrir íjórum árum.
Listarnir fimm eru D-listi Sjálf-
stæðisflokks, A-listi Alþýðuflokks,
B-listi Framsóknarflokks, G-listi Al-
þýðubandalags og K-listi Óháðra
borgara. í síðustu kosningum fengu
framsókn og Sjálfstæðisflokkur þijá
menn hvor, en Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag og óháðir einn hver.
Meirihlutinn samanstóð af Sjálf-
stæðisflokki, Alþýðuflokki og óháð-
um.
Jónas Snæbjörnsson, efsti maður
á D-lista, segir að bæjarsjóður hafi
á yfirstandandi kjörtímabili þurft að
eyða talsverðu fé í að bjarga fyrir-
tækjum í bænum sem hafi þurft á
fjárhagsaðstoð að halda. Nú sé hins
vegar þörf á að efla atvinnurekstur
á svæðinu eftir föngum og sjálfstæð-
ismenn hafi hug á að skapa gott
umhverfi til fyrirtækjareksturs.
Hann segist ekki sjá fram á að
hægt verði að lækka skuldastöðu
bæjarins á næsta kjörtímabili, en
skuldir nema nú um 155 þúsundum
króna á hvern íbúa. Heildarskuldir
bæjarfélagsins nema hins vegar um
470 milljónum króna, þar af skuldi
bæjarsjóður 420 milljónir.
Bjartsýnn á úrslit kosninganna
Stefán Logi Haraldsson, oddviti
B-listans, er bjartsýnn á úrslit kosn-
inganna. Hann segir að spjótin i
baráttunni standi á flokknum, því
möguleiki sé á að framsókn hljóti
hreinan meirihluta í kosningunum
vegna fækkunar bæjarráðsmanna.
Hann segir að í atvinnumálum
þurfí bærinn að fara að sýna meira
frumkvæði, fara í sókn og hætta í
vörn. Þá vilji framsóknarmenn að
stofnaður verði atvinnuþróunarsjóð-
ur með það markmið að efla nýsköp-
un og styðja við bakið á fyrirtækjum
og einstaklingum sem fyrir em í
bænum.
Að vísu sé fjárhagsstaða bæjar-
sjóðs ekki góð og því þurfi bærinn
að gera langtímaáætlun í fjármálum.
Það hafi ekki verið gert hingað til
og ekki sé enn búið að gera lög-
bundna þriggja ára fjárhagsáætlun.
Ekki sé hægt að vinna að fram-
gangi á Sauðárkróki nema slíkar
áætlanir séu fyrir hendi.
Seyðisfjörður
Seyðisfírði. Morgunblaðið.
KOSNINGABARÁTTAN á Seyðis-
fírði hefur verið með daufasta móti.
Enginn framboðslistanna hefur birt
stefnuskrá og ekkert kosningablað
séð dagsins ljós. Búast má við því
að bætt verði úr þessu á næstu dög-
um ef marka má þá líflegu starfsemi
sem fer fram á kosningaskrifstofum.
í framboði eru sömu þrír listar og
í kosningunum 1990. Framsóknar-
menn með 3 fulltrúa og sjálfstæðis-
menn með 2 mynda meirihluta en
T-listinn er stærstur með 4 fulltrúa.
Deilt um bæjarábyrgðir
Nokkuð hefur verið deilt um bæj-
arábyrgðir og segjast Tindar vilja
betri úttektir á fjárhagsstöðu og
áætlunum fyrirtækja sem sækja um
slíkt og segja að ekki hafi verið rétt
staðið að þeim málum. Þessu neitar
Litlar
upplýs-
ingartil
kjósenda
núverandi meirihluti og segir að slík-
ar ábyrgðir hafi einungis verið veitt-
ar að vel athuguðu máli.
Jónas Hallgrímsson, efsti maður
á lista Framsóknarflokksins, segir
helsta baráttumálið vera að koma
öllum í vinnu. Halda eigi áfram þeirri
atvinnuupp-
byggingu sem
bærinn hefur
staðið fyrir á
undanförnum
árum. Hann
nefnir einnig að
mikilvægt sé að
standa vel að
100 ára afmæli
bæjarins á
næsta ári. Hann
vill að haldið verði áfram við þau
verk sem hafin eru; tekin verði
ákvörðun um hvort íþróttahús fái
forgang fram fyrir áframhaldandi
skólabyggingu. Einnig á að dýpka
og breikka nýju höfnina.
Arnbjörg Sveinsdóttir er fyrsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins.
Hún segir atvinnumálin efst á baugi
Arnbjörg Jónas Hall
Sveinsdóttir grímsson
sem fyrr. Á yfirstandandi kjörtíma-
bili hefur meirihlutinn séð til þess
að bæjarsjóður hefur lagt hlutafé í
Dvergastein hf. og Birting hf. og
látið byggja dráttarbraut. Arnbjörg
telur að hlúa beri að vaxtarbroddum
í atvinnulifi, eins og ferðamálin em.
Markaðssetja á höfnina og sjúkra-
húsið. Hún segir flokkinn vilja beita
sér fyrir því að keypt verði skip fyr-
ir það fé sem bærinn hefur lagt í
Birting hf. og að ráðinn verði at-
vinnufulltrúi.
Efsti maður á lista Tinda, Pétur
Böðvarsson, segir atvinnumálin mik-
ilvægust, en leggur jafnframt
áherslu á að vel verði unnið í fé-
lags- og tómstundamálum og öllu
sem þeim tengist. Hann telur mikil-
vægt að vel sé stutt við bakið á
fijálsum félagasamtökum þannig að
allir, ungir sem aldnir, fái góða lífs- t
fyllingu í frítíma sínum. Pétur segir
erfitt að gagnrýna starf fráfarandi
meirihluta, þar sem þeir fari eftir
sínum skoðunum og maður verði að
virða þær. Þó vill hann helst setja
út á það að rokið sé úr einu verki
í annað og ekki tekið tillit til nefnda
bæjarins.
Pétur
Böðvarsson