Morgunblaðið - 06.07.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994 7
FRÉTTIR
Bolungarvík og Þórshöfn
U mfangsmiklar
endurbætur á
loðnubræðslum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
YFIRKJÖRSTJÓRN brennir kjörgögn síðustu kosninga f.v. Gunn-
ar A. Jónsson, Sr. Siguröur Sigurðarson og Leifur Eyjólfsson.
20 ára samstarfi lokið
Selfossi, Mogunblaðid.
DREGIST hefur að opna loðnuverk-
smiðjur á Bolungarvík og Þórshöfn
vegna umfangsmikilla endurbóta á
tækjabúnaði í verksmiðjunum. Tals-
menn þeirra segja að þær verði
opnaðar eins fljótt og auðið er, á
Bolungarvík í vikunni en á Þórshöfn
um eða eftir næstu helgi.
Á Bolungarvík er að sögn Elíasar
Jónatanssonar framkvæmdastjóra
Gnáar hf. sem rekur loðnuverk-
smiðju staðarins unnið dag og nótt
að framkvæmdum við verksmiðj-
una. „Við erum fjórum dögum á
eftir áætlun en, við ætluðum að
vera tilbúnir með verksmiðjuna fyr-
ir byijun loðnuvertíðar 1. júlí,“ sagði
Elías í samtali við Morgunblaðið.
Elías segir að verið sé að setja
upp gufuþurrkara í stað eldþurrk-
ara. Framkvæmdir hófust í lok síð-
ustu loðnuvertíðar fyrir um tveimur
mánuðum og fullyrðir Elías að verk-
smiðjan verði opnuð í vikunni.
Hólmar Ástvaldsson íjármála-
stjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar
segir að þar fari einnig fram um-
fangsmiklar endurbætur á tækja-
búnaði í loðnuverksmiðju fyrirtæk-
isins. „Það er slæmt að geta ekki
verið klárir í slaginn í upphafi vertíð-
ar. Ég geri þó ráð fyrir að breyting-
arnar muni vinna upp missi fyrstu
daganna," sagði hann.
YFIRKJÖRSTJÓRN Selfoss kom
saman til síðasta fundar 2. júlí.
Kjörstjórnarmennirnir, Leifur Ey-
jólfsson formaður, séra Sigurður
Sigurðarson ritari og Gunnar Á.
Jónsson, hafa starfað saman i 20
ár að kjörstjórnarmálum á staðnum
en luku nú þessu samstarfi.
Fyrir fundinn var farið með kjör-
gögn frá bæjarstjórnarkosningunum
og þau brennd eins og gert hefur
verið eftir hverjar kosningar.
íslenskur piltur
búsettur í Kanada
Lætur ferma
sig á Islandi
TVEIR unglingar verða fermdir á
sunnudaginn kemur í Siglufjarðar-
kirkju. Þetta væri ekki í frásögur
færandi ef annað fermingarbarn-
anna, Baldvin Júlíusson, væri ekki
fæddur og uppalinn í Kanada og
kominn sérstaklega til íslands til að
láta ferma sig.
Fermingarbörnin, Baldvin og Vigdís
Theódórsdóttir, eru bræðrabörn.
Baldvin er sonur Júlíusar Júlíusar-
sonar en faðir Vigdísar er bróðir
hans Theódór Júlíusson. Fjölskylda
Baldvins hefur búið í borginni Reg-
ina í Saskatchewan-fylki í Kanada
frá árinu 1976 og fest þar rætur.
Að sögn Theódórs Júlíussonar er
hefð fyrir þessu í fjölskyldu Baldvins
en báðar eldri systur hans k'omu
sérstaklega hingað til lands til að
ferma sig. Hann segir að dóttir sín
Vigdís hafi átt að fermast í Kópa-
vogi í vor en ákveðið að bíða frænda
síns.
Nauásynlegur
bragfðauki með kexi
. op' snittubrauði. a
LUXUS YRJA
Góð með öllu,
einnig kara ein sér
og með ávöxtum.
KASTALI
ppurinn í körfunni
Góður með öllu.
11
DALA BRIE
Ómissandi með ferskum
ávöxtum og á saltkexið.
'Wé&i/ GRÁÐAOSTUR
SE v: V-
pmm
■
.
Y íslenskir ostar \
eru hrein orkulind
sem gott er að sækja
orku sína i, hvert
t sem förinni A
er heitið. Æm
M Aii v '„v.
RJOMAOSTUR
Einstaklega ljúfur á
kragðið, getur komið í
^ stað viðkits.
BURI
Mjúkur og bragjð-
mildur. Góður
sein snakk.
ÍSLENSKIR W.
OSTAJV W %