Morgunblaðið - 06.07.1994, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
A landsmóti
BÖRKUR, sem setinn var af Sigvalda Ægis-
syni, stekkur hér út undan sér inn í hringinn
og stefnir í átt að Guðlaugi.
GUÐLAUGUR, sem átti sér einskis ills von,
uppgötvar hvað er í aðsigi og á fótum sínum
fjör að launa.
UM STUND leit út fyrir að Sigvaldi myndi
ríða á klárnum yfir Guðlaug en...
...hann sér við þeim, stekkur örsnöggt til hlið-
ar og klárinn er ekki nógu fljótur að átta sig.
BÖRKUR lét ekki staða numið þrátt fyrir
■ misheppnað tilræði við Guðlaug og lauk þátt-
töku sinni á glæsilegu stökki.
I kröppum dansi
STARF blaðaljósmyndara getur oft og tíðum verið
áhættusamt. Það sýna meðfylgjandi myndir þar sem
hinn kunni hestaljósmyndari og blaðamaður Guð-
laugur Tryggvi Karlsson lenti í kröppum dansi þeg-
ar hann í mesta sakleysi ætlaði að mynda hestana
sem þátt tóku í töltkeppni landsmótsins á Gaddstaða-
flötum.
Þulurinn hafði orð á því eftir að ósköpin dundu
yfir að hann hefði vitað til þess að naut ærðust
þegar þau sæju rauðar flíkur en hann hefði aldrei
vitað til að hestar gerðu slíkt hið sama, en Guðlaug-
ur klæddist rauðu vesti. Myndirnar sýna best hvem-
ig Guðlaugi tókst að bjarga sér úr bráðum lífsháska.
EN GUÐLAUGUR hrósaði sigri í tvísýnni bar-
áttu, sem sumir segja að hafi verið upp á líf
og dauða, í það minnsta hvað viðkom Guðlaugi.
MEÐ snerpu og léttleika hefur Guðlaugur
bjíirgað sér úr bráðri hættu.
Barist um
FOLK
erfðaréttinn
á eignum
Ást við
fyrstu sín
Jimis Hendrix
JAMES Sundquist heitir óskilget-
inn sonur Jimi Hendrix. Hann
hefur nú farið í mál við Al, föður
Hendrix, og krafist þess að erfa
eignir Jimis. Réttarhöldin eru þeg-
ar hafin í Seattle og munu líkleg-
ast standa yfir í dágóðan tíma. Á
meðan heldur hinn ungi Jimi uppi
minningu föður síns og spilar með
hljómsveitinni „The Beautiful Pe-
ople“. Á geislaplötu sem hljóm-
sveitin gaf út nýverið er lagið „If
6 Was 9“ ásamt fleiri lögum
Hendrix.
Jeff Bridges.
►LEIKARINN
góðkunni Jeff
Bridges mun
leika aðalhlut-
verkið í nýjum
vestra „Blown
Away“ og býr
sjálfur á bú-
garði. Þar er
hann með naut-
gripi og allt til-
heyrandi, auk
þess sem saga búgarðsins tengist
villta vestrinu: „Húsið á búgarð-
inum var notað sem hóruhús í
kvikmyndinni Himnahliðið (Hea-
ven’s Gate).“ Bridges trúir á ást
við fyrstu sýn og segir frá því
brosandi hvernig hann kynntist
eiginkonu sinni: „Það var
mjög rómantískt á sinn
hátt. Ég hitti eiginkonu
mína, Susan, í Mont-
ana nokkrum árum
áður [en myndin var
gerð]. Hún vann
fyrir einhvern ná-
unga á búgarði og
var með tvö glóð-
araugu og nef-
brotin. Eg féll
kylliflatur
fyrir henni.
Eg hélt að
kærastinn
hennar hefði
lamið hana
og ég væri
að bjarga
henni, en
hún hafði
bara Ient í
umferðar-
slysi.“
Missið ekki af stórvirki ársins
Leikstjóri Steven Spielberg
„„..j
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Háskólahíó
Hvar er eilífðin, amma?
MORGUNBLAÐINU barst eftir-
farandi bréf frá Þórarni Guðmunds-
syni húsgagnabólstrara, búsettum
í Jóhannesarborg:
vDagur daganna 17. júní 1994.
Islendingar í Jóhannesarborg og
fjölskyldur þeirra ásamt gestum
komu saman í tilefni dagsins á
heimili Hildar og Peter Von Schill-
ing. Dagurinn var vel úr garði gerð-
ur á rausnarlegan hátt, sem vel var
sniðinn að skörungsskap þeirra
hjóna. Á borðum var meðal annars
hangikjöt, harðfiskur, svið, reyktur
lax, skata með mörfloti, allt hart
fengið. Og stóð íslenskur fáni vor
fallegur að venju á hraungrjóti
miklu, sem vinur sótti í gömlu
Heklu okkar er hún hafði ælt og
bar til Suður-Afríku með skipi að
fornum sið. Duttu mér þá í hug
orð úr Hávamálum, sem ort voru
að talið er fimm þúsund árum fyr-
ir Krist. „Deyr fé, deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama; en orðstír
deyr aldregi, hveim er sér góðan
getur.“ Eða voru það orð Matthías-
ar Jochumssonar, söngur okkar
allra, „ísland ögrum skorið“, eða
bara eins og litla barnið sagði:
„hvar er eilífðin amma, gegndu,
hver skapaði Guð?“. Við vonum að
N.S.A sé velkomin í ykkar democr-
atic hverfi, sem ég kalla Hótel
Jörð.“
Þórarinn Guðmundsson sendi líka
kveðjur:
„Ástkæru ættbræður og ættsystur.
Við óskum ykkur til hamingju
með stærsta dag í lífi okkar allra,
nema væri fæðingardagurinn, hvar
sem við stöndum í okkar jarðlegu
„pólitík" heimsins. Við vonum að
Guð, hinn eini Guð alheimsins verði
með okkar elsta alþingi þessa
heims og stjórnmálamönnum með
okkar fallega forseta í fararbroddi
og allri þjóðinni, gleymum engum.
Hinar innilegustu heillaóskir um
gæfu og gengi um ókomna daga.
En hugur okkar leitar oft til okkar
ástkæru móðurmoldar sem mörg
stórmennin hefur alið. Yrði það
langur listi og fallegur, þó við bytj-
uðum aðeins á dögum Áuðar djúp-
úðgu og lengra sé ekki farið.“