Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ f IMYR FRAM HALDSSKOLIIGRAFARVOGI 1 » Morgunblaðið/Sverrir HÖFUNDAR vinningstillögnnnarj Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson, á staðnum þar sem Borgarholtsskóli mun rísa. I bakgrunni blasa Korpúlfsstaðir við en jafnframt er útsýni yfir Mosfellsbæ, sem veitir fé til byggingarinnar, ákjósanlegt. Bóknám o g bílaviðgerðir » b i Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við byggingu nýs framhaldsskóla í Borgarholti í Grafarvogi síðar á þessu árí. Ríkið, Reykjavíkur- borg og Mosfellsbær veita í sameiningu fé til verkefnisins. Orri Páll Ormarsson hefur bæði kynnt sér vinningstillöguna um hönnun bygg- ingarinnar og þá staðreynd að skólinn verður í senn vettvangur bók- og verknáms. Framhalds- skólarnir í höfuðborg- inni eru full- ir út úr dyrum. Hver einasti krókur og kimi er nýttur til hins ítrasta. Islensk ung- menni hafa á síðustu misserum þyrpst unnvörpum í fram- haldsnám og nú er svo komið að húsa- kostur framhalds- skólanna hrekkur ekki til lengur. Yfír- völd menntamála hafa heldur ekki sóað dýrmætum tíma í að horfa í gaupnir sér. Þau hafa þeg- ar ákveðið að bregðast á myndar- legan hátt við þessari öru þróun. Fleiri menntasetur munu rísa. Menntaþorsta æskunnar verður svalað hér eftir sem hingað til. Teikningar af nýjum framhalds- skóla í Borgarholti í Grafarvogi liggja fyrir og innan tíðar verður unnt að ráðast í framkvæmdir. Grafarvogur er byggð í örum vexti. Vogurinn heftir á örfáum árum breyst úr örgustu óbyggðum í samfélag sjö þúsund manna. Umskipti hafa átt sér stað á leifturhraða. Þegar Grafarvogsbú- inn snýr lúinn heim að kveldi far- sæls vinnudags getur hann verið viss um að merkja umtals- verðar breytingar á því umhverfí sem hann yfírgaf að morgni. Það kemur því vart á óvart að jafn aðkallandi verk- efni og nýjum fram- haldsskóla skuli vera valinn vettvangur í Grafarvogi. Sameinaðir kraftar Örlygur Geirsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðu- neytinu, er formaður byggingar- nefndar Borgarholtsskóla. Hann segir þennan nýja skóla eiga rætur að rekja til þeirra þrengsla sem framhaldsskólamir í Reykjavík hafí búið við síðasta kastið. „Þessi skóli kemur til vegna mikillar þarf- ar.“ Hann segir að margir séu þegar um hituna en fyrirsjáanlegt sé að námsfúsum ungmennum muni enn fjölga á næsta ári. Fram- haldsskólar landsins geti gert ráð fyrir allt að fímm hundruð fleiri nemendum en í ár á þröskuldinum haustið 1995. Fastlega sé gert ráð fyrir mestri aukningu á höfuð- borgarsvæðinu. Örlygur vekur at- Morgunblaðið/Ámi Sæberg Örlygur Geirsson hygli á að alvara málsins felist ekki einungis í skorti á rými til bóknáms heldur sé ekki síðurveru- leg vöntun á verknámsrými. í ljósi þessara staðreynda hafi því legið beinast við að slá tvær flugur í einu höggi. Þessi nýi framhalds- skóli verður því bæði lagður undir bækur og tól. Borgarholtsskóli er samstarfs- verkefni þriggja aðila: Ríkisvaldið mun standa straum af 60% kostnaðar, Reykjavíkurborg 28% og Mosfellsbær 12%. Að sögn Örl- ygs er hönnunar- og verktaka- kostnaður áætlaður um 750 millj- ónir króna. Heildarkostnaður við byggingu skólans gæti hins vegar numið einum milljarði. Formaður byggingarnefndar segir nefnilega afar kostnaðarsamt að tækjavæða skóla sem sé að stórum hluta ætl- aður undir verknám. Áætluð stærð byggingarinnar er um tíu þúsund fermetrar. Þar af segir Örlygur að um 3.500 fermetrar verði lagð- ir undir verknám. Hann segir að í upphaflegu tillögunni hafi verið gert ráð fyrir stækkun þess rýmis ef nauðsyn krefði. „Það verður seinni tíma ákvörðun." Hann von- ast til að jarðvegsframkvæmdir geti hafist með haustinu en stefnt sé að því að vinna við bygginguna verði komin á fullt skrið næsta sumar. Tímasetningar velti þó nokkuð á því með hvaða hætti verkið verði boðið út. Stórhugur Mosfellinga Örlygur segir samninginn um byggingu framhaldsskóla í Borgarholti merkilegan fyrir margra hluta sakir. Hann segir að um sé að ræða fyrstu heil- steyptu framhaldsskólabygging- una sem ráðist sé í að reisa í Reykjavík frá því að Pjölbrauta- skólinn í Breiðholti var byggður. I annan stað sé um að ræða sam- vinnu milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur sem hafi það mark- mið að leiðarljósi að leysa þann vanda sem upp hefur sprottið í báðum sveitarfélögum vegna skorts á framhaldsskólarými. Örl- ygur ber mikið lof á framtak Mos- fellinga. „Með þessari aðild hafa þeir sýnt verulega framsýn og stórhug sem er öðrum sveitarfé- lögum til fyrirmyndar." Loks segir hann að gerður hafi verið sérstak- ur samningur við atvinnurekendur og launþega í bílgreinaiðnaði. Hann gangi út á nýtingu skólans fyrir endurmenntun á þeirra veg- um. Gert er ráð fyrir að Borgarholts- skóli muni rúma allt að eitt þús- und nemendur. Örlygur segir að um 600 þeirra komi til með að leggja stund á bóknám. Verknám- ið mun því skipa veglegan sess. Auk náms í bílgreinum mun skól- inn jafnframt verða vettvangur kennslu í málmiðnaði og fleiri iðn- greinum. Hann bendir á að það sé vilji núverandi menntamálaráð- herra að leggja meiri áherslu á verkmenntun en gert hefur verið til þessa. Örlygur fullyrðir að á landsvísu sé annað hvort unnið að framkvæmdum eða verið að leggja drög að verknámsrými upp á tíu þúsund fermetra. „Aðstaða til verkmenntunar mun því taka stökkbreytingum á næstu fjórum til fimm árum.“ Vægi kostnaðar verulegt Þegar ákveðið var að ráðast í byggingu framhaldsskóla í Borgarholti auglýsti menntamála- ráðuneytið eftir arkitektastofum sem hefðu hug á að taka þátt í samkeppni um hönnun byggingar- innar. Viðbrögðin létu ekki á sér standa því eigi færri en 42 aðilar kváðust klárir í slaginn. Ekki fengu þó allir að spreyta sig því byggingarnefnd gaf að vel athug- uðu máli einungis sex aðilum færi á að reyna með sér. Það voru síð- an tillögur frá Arkitektastofu Finns og Hilmars sem fóru með sigur af hólmi. Eigendur stofunnar sem varð , hlutskörpust eru arkitektarnir Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson. Stofan naut dyggr- Q ar aðstoðar Rafhönnunar hf sem sá um raflagnahönnun og Verk- fræðistofu Stefáns Ólafssonar sem hafði burðarþol og lagnir á sinni könnu. Arkitektarnir eru á einu máli um að fyrirkomulag sam- keppninnar hafí verið til eftir- breytni. Hárrétt hafi verið að þrengja hópinn með tilliti til hag- j kvæmni. Á þann hátt hafí dóm- g nefnd gefist færi á að lesa allar _ tillögurnar niður í kjölinn. » Samkeppnin var sérstök fyrir þær sakir að byggingarnefnd áskildi sér strax í upphafí rétt til að meta tillögurnar ekki einvörð- ungu með tilliti til gæða heldur jafnframt kostnaðar. Finnur og Hilmar eru sannfærðir um að þessi staðreynd hafí haft veruleg áhrif , . á samkeppnina. Hilmar segir arki- tekta haga vinnubrögðum sínum | á annan hátt þegar þeim sé kunn- Q ugt um vægi kostnaðar í heildar- myndinni. Höfundar hafí allir stefnt að hagkvæmum lausnum með hágæða arkitektúr. Hann er fullviss um að fjöldi milljóna hafi sparast með þessum hætti. Þegar upp var staðið var það kostnaðar- munur á þeim tveimur tillögum sem til greina komu í verðlauna- | sætið sem réði úrslitum. Tillaga |t ; þeirra Finns og Hilmars var allt ^ að 120 milljónum króna hagstæð- ® ari en keppinautarins. Listin lögð á vogarskálar Mammons „Þessi nálgun endanlegrar lausnar með kostnaðarvitund gekk upp,“ segir Hilmar. „Útbjóðandi fékk til umfjöllunar sex tillögur sem allar voru í mjög háum gæða- flokki.“ Hilmar segir alltof oft brenna við að starfsbræður hans Q

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.