Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 44
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna FORGANGSPÓS TUR UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00 MORGUNBLADIB, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆH 85 SUNNUDAGUR 24. JULI1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK 1.286 frá íslandi á Nordisk Forum ’94 Erlend fiskiskip kaupa kost frá Danmörku Nýsjálensku kjöti Hluti þátttakenda á launum á meðan umskipað í höfnum um á meðan. Hafi íi'ármálaráðuneyt- ið veitt samþykki fyrir því að þeir starfsmenn sem heyrðu undir það fengju greidd laun og einnig félags- málaráðuneyti. Tekið fyrir í ríkisstjórn Steingrímur Ari Arason aðstoðar- maður fjármálaráðherra sagði í sam- tali í gær að málið hafi verið tekið fyrir á fundi ríkisstjórnar í febrúar og hefði niðurstaðan orðið sú að tekin yrði ákvörðun um launagreiðsl- ur í ráðuneytunum, með öðrum orð- um að heimildin væri til staðar en endanlegri ákvörðun hefði verið vís- að til hvers ráðuneytis. Að sögn Steingríms þarf hver starfsmaður að sækja um til síns forstöðumanns sem vísar erindinu til ráðherra. Kristófer Frank de Fontenay, sem unnið hefur skýrslu um möguleika íslands sem þjónustumiðstöðvar fyr- ir erlend fískiskip, telur metnaðar- leysi ríkja meðal íslenskra stjórn- valda í þessum efnum. Hann segir að takmarkanir sem settar séu lönd- unum erlendra fískiskipa í íslenskum höfnum, sem eigi að hindra veiðar úr sameiginlegum nytjastofnum, nái ekki tilgangi sínum vegna úthalds og stærðar skipanna. Hann telur þjóðhagslegan ávinning vegna vinnslu á físki úr erlendum skipum í vinnslustöðvum hérlendis geta ver- ið verulegan og hann sé hægt að auka t.d. með því að gefa afslátt af hafnagjöldum og gera þannig landanir hérlendis fýsilegri fyrir er- lend fiskiskip. ■ Útflutningsráð leitar .. ./4 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson I Flatey að sumarlagi SUMAR er skilgreint sem hin hlýrri af aðalárstíðunum tveim utan hitabeltisins og er stundum talið frá sumarsólstöðum til haustjafndægurs, eða 23. sept- ember. Óneitanlega er sumarlegt að litast i Flatey, en drengurinn heitir Gunnar Ingi Valdimarsson og tíkin heitir Sandra. Kannski er hún að safna sumarholdum, jafn makindaleg og hún virðist. HÁTT í fjórtán hundruð íslenskar konur eru skráðar til þátttöku á kvennaráðstefnunni Nordisk Forum sem haldin verður í Ábo í Finnlandi 1.-6. ágúst. Að sögn Birnu Hreið- arsdóttur verkefnisstjóra hafa 1.286 konur skráð sig til þátttöku frá ís- landi, auk þess sem um hundrað ís- lenskar konur, búsettar í öðrum löndum, sæki ráðstefnuna. Segir hún að þingið sé viðamesta og kostnað- arsamasta verkefni norrænu ráð- herranefndarinnar til þessa. Reykjavíkurborg og Akureyrar- bær samþykktu á sínum tíma að greiða þátttakendum á ráðstefnunni laun í fjarveru þeirra og segir Birna Hreiðarsdóttir að ríkisstjórnin hafi einnig samþykkt að ríkisstarfsmenn sem sækja vildu þingið yrðu á laun- EKKI er grundvöllur fyrir rekstri skipakostmiðlara á íslandi, m.a. vegna reglna um að ekki megi selja hluta úr gámum sem hingað eru fluttir með erlendu kjöti. Mun hagstæðara er fyrir erlend skip að panta kost frá Danmörku í heilum gámum. í þeim er oft á tíðum nýsjálenskt lamba- kjöt sem flutt hefur verið yfir hálfan hnöttinn. Auk matvöru panta útgerðir skipanna gjarnan veiðarfæri, þótt þau séu dýrari í Danmörku. Útflutningsráð íslands undirbýr nú könnun í samstarfí við hagsmuna- aðila á möguleikum íslands sem þjón- ustumiðstöðvar fyrir erlend fískiskip. Henni er ætlað að afla upplýsinga sem geta leitt til aukningar á sölu á vörum og þjónustu íslenskra fyrir- tækja til erlendra fískiskipa. Metnaðarleysi stjórnvalda Þeir þættir sem helst koma í veg fyrir að erlend fiskiskip komi hingað nú eru hátt olíuverð, hátt verð á matvöru og hár frystigeymslukostn- aður. Bílvelta í Vatns- firði EINN maður, farþegi i aftur- sæti, slasaðist þegar fólksbíll valt í Vatnsfírði, um 1 km vestan við Flókalund, í gær- morgun. Hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar til Reykjavíkur. Bílstjórinn var fluttur með sjúkrabíl til Patreksfjarðar með meiðsli á öxl en farþegi í framsæti slapp án teljandi meiðsla. Þyrla Landhelgisgæslunn- ar lenti við Borgarspítala kl. 13. Þegar blaðið fór í prentun var maðurinn enn í rannsókn og ekki fengust upplýsingar um hversu alvarleg meiðsl hans væru. Bifreiðin, sem er af gerð- inni Mercedes-Benz, er talin vera ónýt. Skemmdi bifreið MAÐUR var handtekinn á Seyðisfirði í fyrrinótt fyrir að skemma BMW bifreið. Mun hann hafa sparkað í bifreiðina án afláts og hún því dælduð hátt og lágt að sögn lögreglu. Maðurinn, sem er aðkomu- maður, var að vinna í bænum, og mun hafa átt eitthvað sök- ótt við eiganda bifreiðarinnar. Var hann áberandi ölvaður. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Synt yfir Flóann TÍU manna hópur sundfólks á aldrinum 14 til 20 ára úr Sundfé: lagi Akraness synti í gær frá Reykjavík til Akraness um 21 km vegalengd. Þau syntu í fylgd hafnsögubátsins Þjóts frá Akra- nesi og synti hvert þeirra í 15-20 mínútur í einu. Sundfólkið lagði af stað úr Reykjavíkurhöfn kl. 10.30 og ætlaði að vera u.þ.b. 5 klukkustundir á leiðinni. Þetta var áheitasund og farið til að fjár- magna ferð í æfingabúðir á Mall- orca í haust. ■Húsnæðisbréf fyrir 2,3 millj. HÚSNÆÐISBREF hafa aðeins selst fyrir 2,3-2,4 milljarða króna það sem af er þessu ári eða um fjórð- ung þeirrar upphæðar sem ætlunin er að afla alls á innlendum lána- markaði í ár. Öllum tilboðum í hús- næðisbréf í síðasta útboði fyrir rúmri viku var hafnað vegna of hárrar ávöxtunarkröfu og hefur sala Lréfanna raunar gengið illa frá því vextir lækkuðu um mánaðamótin október/nóvember á síðasta ári í kjölfar aðgerða stjórnvalda. Þetta er eina útboð húsnæðisbréfa í júlí, en þrjú útboð eru fyrirhuguð í ág- úst, það fyrsta í byrjun mánaðarins. Samkvæmt lánsfjárætlun Hús- næðisstofnunar er ætlunin að afla 9,1 milljarðs króna með skulda- bréfaútboði á innlendum markaði á þessu ári. Hilmar Þórisson, aðstoð- arforstjóri Húsnæðisstofnunar, seg- ir að þrátt fyrir dræmari sölu en jíætlanir hafi gert ráð fyrir hafí það ’ ekki komið að sök enn sem komið er, meðal annars vegna þess að framkvæmdir hjá Byggingarsjóði verkamanna hafi farið aðeins hægar af stað. Af fyrirhugaðri lántöku í ár fara tæpir sjö milljarðar til Bygg- ingarsjóðs verkmanna og ríflega tveir milljarðar til Byggingarsjóðs ríkisins, að sögn Hilmars. Stofnunin hefur haldið fast í að taka ekki tilboðum með hærri ávöxt- unarkröfu en 5% í bréfín, en meðal- ávöxtunin i síðasta útboði reyndist vera 5,15-5,20%. í byijun júní seld- ust tæpar 500 milljónir króna með ávöxtunarkröfu frá 4,96-4,99%. í byijun apríl hafði aðeins tekist að selja tæpar 700 milljónir króna það sem af var árinu í fimm útboðum við ávöxtunarkröfu um 5%, en til samanburðar má gera ráð fyrir að mánaðarlega sala skuldabréfa í fyrra hafí verið á bilinu 6-800 millj- ónir króna, en ávöxtunarkrafan var þá yfir 7%. 4 milljarðar að láni Húsnæðisstofnunin fékk 2,3 millj- arða króna að láni hjá ríkissjóði um síðustu áramót til 20 ára með 5% vöxtum og var sú upphæð notuð til að ganga frá uppgjöri vegna ársins. í febrúar fékk stofnunin síðan 1.600 milljóna króna bráðabirgðalán til við- bótár, sem ætlunin er að endurgreiða af skuldabréfasölu þessa árs. í kjölfar dræmrar sölu húsnæðis- bréfa hefur fyrirkomulagi á sölu bréfanna verið breytt í samráði við verðbréfafyrirtækin. Boðið er upp á bréf til 10, 15 og 20 ára í stað einn- ar tegundar áður og beinni sölu skuldabréfa til lífeyrissjóðanna hefur verið hætt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.