Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Bekanntmachung fijr Deutsche zur Wahl zum Deutschen Bundestag Am 16. Oktober 1994 findet die Wahl zum Deutschen Bun- destag statt. Deutsche, die ausserhalb der Bundesrepublik Deutschland leben und hier keine Wohnung mehr innehaben, können bei Vorliegen der sonstigen wahlrechtlichen Voraus- setzungen an der Wahl teilnehmen. Fiír ihre Wahlteilnahme ist unter anderem Voraussetzung, dass sie 1. nach dem 23. Mai 1949 und vor ihrem Fortzug aus der Bundesrepublik Deutsch- land mindestens drei Monate ununterbrochen in der Bun- desrepublik Deutschland gewohnt - zu berucksichti- gen ist auch eine fruhere Wohnung oder ein fruherer Aufenthalt in dem in Artikel 3 des Einigungsvertrages genannten Gebietes (Brand- enburg, Mecklenburg- Vorpommern, Sachsen, Sac- hsen-Anhalt und Thuringen zuzuglich des Gebiets des frúheren Berlin (Ost) - oder sich dort sonst gewöhnlich aufgehalten haben; 2. a) in den Gebieten der úbrigen Mitgliedstaaten des Europarates leben oder b) in anderen Gebieten le- ben und am Wahltage seit ihrem Fortzug aus der Bun- desrepublik Deutschland nicht mehr als 10 Jahre verstrichen sind; 3. in ein Wahlerverzeichnis in der Bundesrepublik Deutschland eingetragen sind. Diese Eintragung er- folgt nur auf Antrag. Der Antrag ist auf einem Form- blatt zu stellen. Er soll bald nach dieser Bekanntmach- ung abgesandt werden. Einem Antrag, der erst am 26. September 1994 oder spáter bei der zustándigen Gemeindebehörde eingeht, kann nicht mehr entspro- chen werden (Par. 18. Ab- satz 1 der Bundeswahlordn- ung). Antragsvordrucke (Formblátter) sowie informierende Merk- blátter können von den diplomatischen und berufskonsularischen Vertretun- gen der Bundesrepublik Deutschland, vom Bundeswahlleiter, Statistisches Bundesamt, D-65180 Wiesbaden, von den Kreiswahlleitern in der Bundesrepublik Deutschland angefor- dert werden. Weitere Auskúnfte erteilen die Botschaften und berufskonsul- arischen Vertretungen der Bundesrepublik Deutschland. Reykjavík, den 24. Juli 1994. Botschaft der Bundesrepublik Deutschland Túngata 18, P.O. Box 400, 121 Reykjavík, Tel.: (91) 19535; Fax: (91) 25699; Dienststunden: Montag bis Freitag: 09.00-12.00 Uhr sonst nach tel. Vereinbarung. Tilkynning til Þjóðverja um kosningar til Þýska sambandsþingsins Þann 16. október 1994 verður kosið til Þýska sambandsþings- ins. Þjóðverjar, sem eru búsettir utan Sambandslýðveldisins Þýskaiands, og eru ekki lengur búsettir þar, geta, ef þeir full- nægja auk annarra skilyrða kosningaréttarins, greitt atkvæði með eftirfarandi skilyrðum: 1. Að þeir hafi eftir 23. maí 1949 og fyrir burtflutning frá Þýskalandi dvalið þar 3 mánuði samfleytt hið skemmsta eða dvalið þar að jafnaði. Einnig skal taka tillit til fyrri búsetu eða dval- ar á svæðum, sem nefnd eru í 3. grein sameiningar- sáttmálans (Brandenburg, Mecklenburg-Vorpommern, Sachsen, Sachsen-Anhalt og Thúringen, auk þess svæðis, sem áður nefndist Austur-Berlín). 2. a) Að þeir hafi verið bú- settir í einhverju öðru aðild- arlandi Evrópuráðsins eða b) Að þeir búi annars stað- ar, og ekki eru liðin meira en 10 ár frá brottflutningi þeirra miðað við kjördag. 3. Að þeir séu skráðir á kjörskrá í Þýskalandi. Kjós- andi þarf að sækja um skráningu í kjörskrá á sér- stöku eyðublaði sem fyrst eftir birtingu þessarar til- kynningar. Ekki verður unnt að sinna umsóknum, sem berast til hlutaðeigandi kjör- stjórnar þann 26. septem- ber 1994 eða síðar (sjá 18. grein, 1. málsgrein reglugerðar um kosningar til sambandsþingsins). Umsóknareyðublöð svo og upplýsingablöð má fá hjá eftirtöld- um aðilum: Sendiráðum og aðalræðisskrifstofum Sambandslýðveldisins Þýskalands. Yfirkjörstjóra, Statistisches Bundesamt, D-65180 Wiesbaden. Hjá héraðskjörstjórnum í Þýskalandi. Frekari upplýsingar veita sendiráð Sambandslýðveldisins Þýskalands, svo og aðalræðisskrifstofur. Reykjavík, 24. júlí 1994. Sendiráð Sambandslýðveldisins Þýskalands, Túngötu 18, pósthólf 400, 121 Reykjavík. Sími: (91) 19535; Fax: (91) 25699. Opnunartímar: Mánudaga til föstudaga kl. 9.00-12.00 eða eftir samkomulagi. ...blabib - kjarni málsins! Sjábu hlutina í víbara samhengi! I DAG SKÁK Umsjön Margeir Pétursson ÞESSI staða kom upp á opna kanadíska meistaramótinu sem lauk í Winnipeg um síð- ustu helgi. Enski stórmeist- arinn Julian Hodgson (2.580) hafði hvítt og átti leik en aiþjóðlegi meistarinn Ben Finegold (2.475), Bandaríkjunum, var með svart. ---- Sjá stöðumynd 33. dxeG! - Rxel+, 34. Khl - Hc8 (Ekki 34. - g5?, 35. g4 - Dh6, 36. Dxf7+ - Kh8, 37. Bxg5! og vinnur) 35. Dxc8 — De2 (Meiri mótstöðu veitti 35. — Ddl, þótt hvítur standi mun betur eftir 36. h4! 36. exf7+ — Kg7, 37. Bh6+ - Kxh6, 38. b e d • I Dxf8+ - Kh5, 39. Bxg6+! — Kg5 og í þessari gerunnu stöðu féll Hodgson á tíma og tapaði. Svartur er óverj- andi mát í nokkrum leikjum. Finegold var ótrúlega hepp- inn á mótinu, í næstsíðustu umferð slapp hann með jafn- tefli í gjörtapaðri stöðu gegn undirrituðum og einnig í þeirri síðustu gegn Kanada- manninum Hergott. Hann náði því að deila þriðja sæt- inu á mótinu. Farsi o Uue miklu mtínt’ ka&barþab áfc -ftjúgcc dn móiU.LencUngar? " Pennavinir Knútur Jóhannesson, Haga, Gnúpveijahreppi, 801 Selfossi. TVÍTUGUR Ghanapiltur með áhuga á knattspyrnu, sundi, kvikmyndum og tónlist: Thomas Kwame Boye, Box 1317, Oguaa, Ghana. UNGUR Búlgari vill skrifast á við 18-25 ára stúlkur á þýsku eða ensku: Vesilin Nanev, Hristo Smirnenski 81-40, 9009 Varna, Bulgaria. MAÐUR sem safnar aug- lýsingapennum óskar eftir sambandi við aðra penna- safnara: VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Er þjóðbúningurinn ekki hluti af íslenskri menningu? VIGDÍS Ágústsdóttir skrifaði Velvakanda: „Ég held að íslenskar konur megi vera ánægðar yfir því að enn skuli þjóðbúningar kvenna vera við lýði. Áhuginn á að koma sér upp upphlut fer vaxandi. cið minnsta kosti. Helst mega peysuföt ekki leggjast niður, þótt fleiri vilji upphlutinn í dag. Þetta kostar heilmikið fyrir konur, sem eiga ekkert silfur og dýr er saumaskapurinn ef þær ekki sauma þetta sjálfar. En mér hefur dottið í hug hvort ekki væri sniðugt fyrir gullsmiði og saumakonur að slá sér saman og setja upp búð, þar sem hægt væri að fá allt, sem til- heyrir okkar þjóðbúningum. Ég ætlaði að fá mér skyrtu og svuntu við upphlutinn minn og hélt að það fengist saumað og tilbúið. En það var þá ekki. Og þá komst ég að því, að nú fást t.d. ofnar svuntur ekki lengur, því að kambgarn er ekki unnið úr ís- lensku ullinni lengur. Þetta fannst mér slæmar frétt- ir, ofnu svunturnar eru svo fallegar. Svona búð gæti verið opin hálfan daginn. En ég held að það sé full þörf fyrir þetta svo að búninginn eignumst við sem flestar. Er hann ekki hluti af ís- lenskri menningu? Hvað segið þið um það, góðir íslend- ingar?“ Tapað / Fundið Gírahjól fannst BLEIKT og hvítt Murray- gírahjól fannst í Árbæjar- hverfí 8. júlí sl. Eigandinn má vitja þess í síma 672954. Úlpa fannst RAUÐ úlpa með fóðri á u.þ.b. tíu ára gamalt barn gleymdist í sjoppu í Ár- múla 26 sl. föstudag. Eig- andinn getur vitjað henn- ar þangað. Lýst eftir filmu ÞJÓÐVERJAR sem voru hér á ferð um mánaða- mótin júní-júlí töpuðu fdmu einhvers staðar á svæðinu Gullfoss/Geysir. Þeir skildu eftir heimilis- fang sitt hjá Upplýsinga- stöð ferðamála, Banka- stræti 2, Reykjavík, ef einhver skyldi finna fil- muna þeirra, en á henni er öll þeirra íslandsferð. Hafi einhver þessa filmu undir höndum er hann beðinn að snúa sér til Upplýsingastöðvarinnar. Gleraugu töpuðust DÖKK sjóngleru, gyllt Christian-Dior í Cartier- hulstri, töpuðust í Café óperu eða þar fyrir utan nú nýlega. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 30985. Víkveiji skrifar... Olafur G. Einarsson, mennta- málaráðherra, hefur kynnt drög að nýrri skólastefnu, sem mun valda byltingu í menntun bama og ungmenna komi hún til fram- kvæmda. Ekki er vanþörf á, því löngu er augljóst öllum sem vilja vita, að skólakerfíð fullnægir ekki þeim kröf- um, sem til þess eru gerðar. Nægir þar að nefna, að skólagangan miðar fyrst og fremst að stúdentsprófí og háskólanámi, en ekki að undirbún- ingi ungmenna að þáttöku í atvinnu- lífínu. Þetta hefur m.a. leitt til þess að fjöldi nemenda flosnar upp úr námi, þar sem þeir hafa annaðhvort ekki áhuga á eða getu til langskóla- náms. xxx Víkverji ekki gleymt því, að þegar eitt barna hans hóf skólagöngu sex ára var aðeins til þess ætlast, að það lærði hálft stafrófið frá hausti til vors, en að öðru leyti var föndrað. Þá eru sífelld frí úr skóla vandamál, sem foreldrar þekkja vel, m.a. vegna þess að forfallakennsla er takmörkuð eða engin. Sumarið hefur verið sá tími, sem foreldrar hafa einna helzt haft til að vera með bömum sínum og hann má sízt stytta. Auk þess hefur námsleiði gert vart við sig, m.a. vegna átakalítillar dvalar í skólanum. Námstímann má nota bet- ur yfir veturinn, en nota vorið til að fara með börnin út á vettvangi, t.d. til fræðslu í náttúrufræði, dýrafræði, umhverfisvernd og skógrækt. Drögin að nýrri skólastefnu eru að sjálfsögðu umfangsmikil og ná til íjölmargra þátta. Víkveiji mun því aðeins snúa sér að einu atriði, sem hann telur miklu máli skipta en það er lenging skólaársins úr níu mánuðum í tíu. Ekkert eitt atriði mun valda jafn- mikilli breytingu í þjóðlífinu og leng- ing skólaársins og verða áhrifín víð- tæk, ef til þess kemur. Hvað grunn- skólann varðar er það reynsla margra foreldra, að tíminn er illa nýttur, þótt mismunandi sé eftir ár- göngum. Námskröfur eru ótrúlega litlar fyrstu árin a.m.k. og hefur XXX Benda má á, að foreldrar eru ein- dregið gegn lengingu skólaárs- ins samkvæmt könnun, sem þrír kennarar í Hafnarfirði gerðu í vor. 74% foreldra voru andvíg lengingu, en aðeins 13,9% vildi tíu mánaða skóla. Könnunin var ekki viðamikil, en gefur samt sterka vísbendingu, sem óhjákvæmilegt er að taka tillit til. Reikna má með því, að það sama gildi með framhaldsskólann. Hvorki foreldrar né nemendur munu áfram um lenginu skólaársins þar. Ung- menni hafa ætíð notað sumarið til að afla tekna fyrir sjálfa sig og þann- ig létt undir með heimilunum. Ómet- anlegt hefur verið fyrir ungt fólk að kynnast þannig atvinnulífi lands- manna og sumarvinnan hefur sjálf- sagt oft leitt það inn á þá framtíðar- braut, sem það hefur valið sér. Til- gangurinn með lengingu námstíma framhaldsskólanna er útskrift stúd- enta á þremur árum, svo sem gert er víða annars staðar. En þessum árangri má auðveldlega ná með betri nýtingu skólatímans, sem nú er frá 1. september til maíloka. XXX Víkverji á ungling í framhalds- skóla, mjög góðum skóla, og er samt vitni að stórfelldri sóun á námstímanum. Allur desembermán- uður fer í próf. Vorpróf hefjast um eða upp úr páskum og er lokið snemma í maí. Auk þess eru frí ótrú- lega algeng eins og í grunnskólanum. Engin spurning er um það í huga Víkverja, að með breyttu skipulagi má þjappa núverandi fjögurra ára námi í þrjú ár án lengingar skólaárs- ins. Það verður enn auðveldara, ef eitt meginmarkmið nýju skólastefn- unar næst fram, þ.e. að grunnskólinn undirbúi nemendur betur fyrir fram- haldsskólanám með samræmingu á námsskrá. Ótrúlega mikill tími fer nú í það í framhaldsskólum að bæta úr þeim gloppum, sem er í þekkingu grunnskólanema miðað við kröfur á nýju skólastigi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.