Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Túrhilla
Johansen
kemur
færandi
hendi.
í Galtalækur“
GALTALÆKJARMÓTIÐ verður
haldið næstu verslunarmannahelgi
og þar verður mikið um dýrðir eins
og alltaf. Blaðamaður Morgunblaðs-
ins heyrði út undan sér að þtjár þjóð-
kunnar persónur væru þegar búnar
að taka frá tjaldstæði og farnar að
pakka niður í töskur fyrir helgina.
Þær eru Bella, besti vinur barnanna,
/fúrhilla Johansen, slökkviliðsfröm-
uður og Bibba á Brávallagötunni,
sem er nýkomin frá
Flórída. Þær voru tekn-
ar tali og spurðar um
ástæður þess að þær
ætluðu i Galtalæk um
verslunarmannahelg-
ina.
Bella segist
hafa farið þangað
frá því löngu áður
en hún fæddist, því
henni finnst svo nauð-
■feynlegt að þama sé ein-
hver stórkostleg fyrir-
mynd annarra barna, eins
og hún, svo þau
verði ekki
eins óþolandi pest og systir hennar
sem er með unglingaveikina.
Túrhilla Johansen sagðist ætla að
kynna nýjustu uppfmningu sína, upp-
blásinn ferðareykkyngjara, sem á að
hanga í hvetju einasta tjaldi yfir
helgina. „Og tað er svo grúvilegu
gott at vera í Galtalækur, af tví tað
er fimmtíu rennandi vatnssalerni um
alla skógurinn - tað er munur en
surnir!"
Bibba þráir helst af öllu að
gerast bindindisfrömuður,
þess vegna missir hún
ekki úr eina einustu
verslunartnannahelgi í
Galtalækjarskógi og
sagðist ekki einu sinni
ætla að taka vanillu-
dropa með sér á
svæðið. „Mér rennur
kalt vatn milli bols
og höfuðs þegar ég
hugsa til hvað það er
dásamlega rómantískt
þama í skógarrjóðr-
unum.“
Bibba á Brávallagötunni er rómantísk að eðlisfari.
FÓLK í FRÉTTUM
AFREKSMAÐUR
„Engin ástæða til að sýn-
ast meiri en maður er“
„FYRIR landsmótið voru flestir
búnir að spá Gými fyrsta sætinu
í A-flokki gæðinga en ég er ekk-
ert viss um hvernig hefði farið
ef ólukkuna með Gými hefði ekki
borið að. Ég tel að allir sem koma
með réttu hugarfari inn í úrslita-
keppni eigi möguleika á sigri,“
segir Daníel Jónsson. Hann sat
hestinn Dalvar frá Hrappstöðum
og sigraði í A-flokki á nýafstöðnu
landsmóti á Hellu. Daníel er að-
eins 17 ára gamall og yngsti
knapinn sem vinnur þetta afrek.
Hann segist í raun ekki hafa búist
við þessu í vor því Dalvar hafi
ekki gengið heill til skógar lung-
ann af vetrinum.
„„Það hefði verið skemmtilegra
að vinna landsmót undir öðrum
kringumstæðum því klárinn var
kominn í hörku gott form. En
sigurinn er mér mikils virði,“ seg-
ir Daníel og bætir við að hann
mæti ekki með hann til leiks á
Islandsmótinu um þessa helgi.
Segir hann klárinn búinn að gera
það gott og ekki sé ástæða til að
fara með hann á fleiri mót að svo
komnu. Auk þess sé hann betri í
gæðingakeppni en íþróttakeppni.
„Hann þarf meira rými og frelsi
en leyft er í íþróttakeppnin/ii,"
segir Daníel og heldur áfram:
„Það er allt óráðið með hvað gert
verður við hann, hvort hann verð-
ur seldur eða hvort ég kem til
með að eiga hann áfram. Það
hafa komið fyrirspurnir og jafnvel
tilboð í hestinn en það er best að
hafa sem fæst orð um upphæðir,“
segir Daníel með véfréttarsvip.
Aðspurður um það hvernig til-
finningar hafi bærst í brjósti hans
við verðlaunaafhendinguna segir
hann þetta ekki hafa verið ólíkt
öðrum skiptum sem hann hafi
þegið verðlaun. Tilfinningin hafi
verið góð, hann hafi verið sáttur
við sjálfan sig og hestinn og vissu-
lega hafi hann hugsað til foreldra
sinna, Jóns Alberts Sigurbjörns-
sonar og Láru Guðmundsdóttur.
„Þau eiga miklar þakkir skildar
fyrir velgengni mína í hesta-
mennskunni. Án þeirra aðstoðar
stæði ég ekki í þessum sporum,“
segir Daníel.
Daníel Jónsson keppir á landsmótinu ...
... og hampar síðan sigurlaununum.
Daníel keppir nú í ungmenna-
flokki á íslandsmótinu og að-
spurður um það hvoit ekki væri
frekar við hæfi að hann keppti
við hina fullorðnu segir hann mun
skemmtilegra að etja kappi við
jafnaldrana.„Það er engin ástæða
til að reyna að sýnast meiri en
maður er,“ segir Daníel.
HÁSKÓLABÍÓ
SÍMl 22140
Háskólabíó
Gestirnir vilja meira og því er veisluhöldum fram
haldið. Nú er boðið uppá Brúðkaupsveisluna sem
kvöldverð kl. 7 og miðnætursnarl kl. 11.10.
FOLK
Ánægður með lífið
► JIM Carrey sem var nánast
óþekktur þar til hann sló í gegn
í Ace Ventura: Pet Deteetive
hefur sannarlega gert það gott
í kvikmyndabransanum upp á
síðkastið. Eftir 15 ára barning
sem grínisti í veitingahúsum
varð hann heimsþekktur 32 ára
gamall fyrir hlutverk sitt í Ace
Ventura, en myndin sem gerð
var fyrir 15 milljónir dollara
hefur þegar skilað um 75 millj-
ónum dollara í aðgangseyri.
Fyrir hlutverk sitt fékk Carrey
350 þúsund dollara, sem honum
þótti allgott, og þegar hann
samdi um næstu mynd, The
Mask, fékk hann 100 þúsund
dollurum meira. Jákvæð um-
fjöllun um þá mynd á meðan
hún var í framleiðslu varð til
þess að umboðsmaður Carrey
fór fram á eina milljón dollara
fyrir næsta hlutverk sem stjarn-
an tæki að sér, en það var í
Dumb and Dumber. Þetta tóku
framleiðendur myndarinnar
ekki í mál og var þá þjarkað
mikið um nokkur hundruð þús-
und til eða frá. En einmitt á
meðan á því stóð sló Ace Vent-
ura eftirminnilega í gegn þrátt
fyrir að myndinni hefði ekki
verið spáð velgengni og þar með
gjörbreyttist samningsstaða
Carreys á einni nóttu. Framleið-
endur Dumb and Dumber gerðu
sér Ijóst að ný stórstjarna hafði
skotist upp á stjörnuhimininn
og vildu þess vegna alls ekki
sleppa hendinni af leikaranum.
Niðurstaðan varð sú að þeir
samþykktu að greiða honum 7
milljónir dollara eða um hálfan
milljarð ísl. króna fyrir hlut-
verkið, og það er því ekki að
ástæðulausu sem Jim Carrey er
nokkuð ánægður með sjálfan
sig þessa dagana.