Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 15 séu of uppteknir af hinni listrænu hlið arkitektúrsins. „Sumum finnst ómerkilegt að leggja listina á vog- arskálar Mammons. Sama gildir hins vegar um byggingarlist og aðra list hún er að hluta til við- skipti.“ Hilmar og Finnur eru þeirrar skoðunar að arkitektar verði að kunna sér hóf í listsköp- un. Vissulega séu glæstar bygg- ingar sómi og nauðsjm hvers sam- félags en hógvær tjáning sé hins vegar dyggð listamannsins. Þeir telja að hugmyndir margra arki- tekta séu oft ekki í nokkru sam- ræmi við aðstæður og efni í samfé- laginu. Hilmar vekur athygli á að arki- tektúr sé fyrst og fremst nytjalist. Finnur tekur í sama streng og bendir á að þegar allt komi til alls sé þetta lífsviðurværi þeirra og af því hljóti þeir að taka mið. í þessu tilfelli lá fyrir að vægi kostnaðar væri verulegt. Félagarnir vissu því að til lítils væri að setja sig í stell- ingar og leggja drög að marg- brotnu mannvirki. Þetta telja þeir þó síður en svo miður því arkitekt- úr sé list einfaldleikans. „Þetta fer að verulegu leyti eftir því hvað verið er að byggja,“ segir Finnur. „Arkitektar eru alltof gjarnir á að yfirhanna viðfangsefni sín.“ Starfrænt hús með vandaða og hvetjandi umgjörð Yfirlýst markmið höfunda vinn- ingstillögunnar var að laða fram starfrænt hús sem hefði til að bera vandaða og hvetjandi um- gjörð utan um þá starfsemi sem því væri ætlað að rúma. Áhersla var lögð á mikil gæði en jafnframt lág- marks tilkostnað. Þeir segjast hafa nálgast takmarkið markvisst með skjalfærðri, samfelldri og kerfis- bundinni yfirferð á verkefninu. Með lágmarks tilkostnaði eiga fé- lagarnir við að allt sé lagt á vogar- skálarnar, heildarkostnaður við byggingu hússins, viðhald og rekstur á líftíma þess. Út frá þess- um þætti kveða þeir aðgengilegt að meta arðsemi fjárfestingar af þessu tagi miðað við þann tíma sem hennar nýtur. Finnur og Hilmar segjast hafa lagt mikla áherslu á að laga bygg- inguna að nánasta nágrenni. „Þannig eru aðalbifreiðastæði skólans á flötu landi að norðan- verðu svo að þau nýtast vel fyrir fyrirhugaðan verslunarkjarna og íþróttahús. Ennfremur veldur þessi staðsetning bifreiðastæð- anna litlu ónæði fyrir íbúa blokk- anna að sunnanverðu," segir Finn- ur. Félagarnir segjast hafa gegnt tilmælum um að hrófla ekki við klöppum sem eru sunnan við svæð- ið þar sem byggingin mun rísa. Þá er gert ráð fyrir verönd sunnan við skólann. „Þetta útivistarsvæði á eftir að verða nemendum til mikillar gleði,“ segir Hilmar. Að vestan er síðan gert ráð fyrir göngutengslum við verslunar- og þjónustukjarnann sem höfundar vonast til að leiði til blómlegs mannlífs. „Arkitektóniskt“ heilleg Finnur og Hilmar fengu sér- stakt hrós frá dómnefnd fyrir auð- velda áfangaskiptingu. Þeir segja að hver áfangi um sig sé heilstæð starfræn heild. Fyrsti áfangi bygg- ingarinnar mun verða tveir vinnu- skálar fyrir verkgreinar. Verða þeir innréttaðir fyrir kennslu í málm- og bílgreinum. í öðrum áfanga verður fyrsti hluti bókn- ámshúss. í þeim þriðja nær ein- göngu kennslustofur ásamt lyftu og aðalstiga byggingarinnar. Fjórði áfangi mun hýsa stjórnun- ar- og félagsstarf ásamt bókasafni og aðalinngangi skólans þegar hann verður fullgerður. Lokaá- fanginn verður síðan verkmennta- hús fyrir byggingargreinar. „Af útliti húsanna má lesa að í hluta þess er iðnaður og annars staðar hefðbundinn skóli,“ segir Finnur. Hilmar bætir við að af útlitinu megi jafnframt greina hvar stjórn- un, félagsstarf og bókasafn sé að finna í byggingunni. „Hver áfangi fyrir sig er þannig hannaður að byggingin er arkitektóniskt heilleg á hvaða áfangastigi sem er. Form hússins og áfangaskipting miðar að því að byggingin sé á hveijum tíma sem heillegust bæði starf- rænt og formrænt." Innra fyrirkomulag er einkar mikilvægt. Arkitektarnir segjast hafa sett á oddinn að auðratað verði um bygginguna. Þeir segja að inngangur liggi í augum uppi og þaðan sé leiðin greið inn í allar vistarverur. „Þegar inn í bygging- una er komið er gesturinn í rúm- góðu anddyri sem gefur honum þá tilfinningu að hann sé staddur í menningarsetri,“ verður Hilmari að orði. Anddyrið mun verða opið upp um þijár hæðir og verða brýr milli húshlutanna sem það skilur að. „Þarna verða einskonar vega- mót þar sem mætast hefðbundið kennsluhúsnæði og orkustöð skól- ans, þar sem nemendur og kennar- ar munu nærast og safna kröftum til átaka í kennslustofum," segir Hilmar. Finnur og Hilmar segjast hafa hannað bygginguna með umtals- verð samskipti lærlinga og læri- meistara í huga. Sérstaklega er markmið þeirra að auðvelda samskipti þessara tveggja hópa í styttri hlé- um. Jafnframt segja þeir hönnun byggingarinnar síður en svo letja kennara og nem- endur í bóknáms- greinum til að blanda geði við fé- laga sína í verknámsgreinum. Alútboð kjörið Arkitektamir eru þeirrar skoðunar að í verki sem þessu beri að hafa það að leiðarljósi að íslenskt vinnuafl og hráefni sé notað þar sem því verði við komið. I tillögu sinni gerðu þeir ráð fyrir að sameiginleg rými í verknáms- húsinu yrðu staðsteypt á hefð- bundinn hátt. Á hinn bóginn telja þeir kjörið að nýta hagkvæmni alútboðs varðandi skálana sem séu staðlaðar skálabyggingar. Þeir geti verið úr stáli, límtré eða stein- steypu. Endanlega ákvörðun vilja þeir ekki taka fyrr en að undan- gengnu alútboði. Þannig mun markaðurinn væntanlega ákveða úr hvaða efni skálarnir verða. Til- laga Finns og Hilmars gerir ráð fyrir að bóknámshúsið verði með útveggjum steyptum á staðnum en gólf verði forsteyptar holplötur sem spanni á milli útveggja. Finnur og Hilmar eru engir nýgræðingar hvað varðar frækna framgöngu í samkeppnum af þessu tagi. Þeir hafa borið sigur úr býtum í fjölda opinna og lok- aðra samkeppna milli arkitekta og hlotið ótal viðurkenningar. Stofa þeirra hefur unnið að skipulags- og byggingarmálum um fimmtán ára skeið. Nú eru að rísa kirkja í Grafarvogi, leikskólar fyrir Reykjavíkurborg og hegningarhús að Litla-Hrauni sem öll eru árang- ur af þátttöku stofunnar í sam- keppnum. Meðal bygginga sem félagarnir hafa hannað og gengið hefur verið frá á síðustu fimm árum má nefna allar byggingar Sunnuhlíðarsamtakanna í Kópa- vogi, sjö Ieikskóla fyrir Reykjavík- urborg, íbúðir aldraðra við Sól- vang í Hafnarfirði, fjarskiptastöð fyrir Póst og síma, nýbyggingar að Reykjalundi og nú síðast brú yfír Hafnarstræti fyrir Búnaðar- banka íslands. Menntaþorsta æsk- unnar verður sval- að hér eftir sem hingað til SAUMASTOFA — HEILDVERSLUN milliliðalaus viðskipti Nýbýlavegi 4 (Dalbrekkumegin), Kópavogi, sími 45800 Gallabuxur frá kr. 2.590 Köflóttar skyrtur frá kr. 990 Fleese peysur kr. 3.990 Regnjakkar kr. 2.190 Regnbuxur frá kr. 1.390 Isotex úlpurnar og buxurnar komnar aftur. Svefnpokar - bakpokar - tjalddýnur. 3ja manna tjöld og margt fleira. * / NYBYLAVEGUR Jöfur Toyota , DALBREKKA 1 AUÐBREKKA Fylgist meb á þribjudögum í sumar! Heimili/fasteignir kemur út á þriðjudögum í sumar. Fasteignablabið er helsti vettvangur fasteignaviðskipta hvort sem um er að raeða húsnæði til eigin nota eða til atvinnurekstrar. Þeir sem hugsa sér til hreyfings eða vilja bara fylgjast með fasteignamarkabinum og kynnast nýjungum á sviði skipulags, viðhalds og nýsmíði fasteigna láta þetta blaö ekki fram hjá sér fara. í blaðinu er einnig að finna innlendar og erlendar fréttir sem tengjast fasteignum auk þess sem fjallað er um heimilið og ótal möguleika til aö prýða þab og lagfæra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.