Morgunblaðið - 24.07.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 15
séu of uppteknir af hinni listrænu
hlið arkitektúrsins. „Sumum finnst
ómerkilegt að leggja listina á vog-
arskálar Mammons. Sama gildir
hins vegar um byggingarlist og
aðra list hún er að hluta til við-
skipti.“ Hilmar og Finnur eru
þeirrar skoðunar að arkitektar
verði að kunna sér hóf í listsköp-
un. Vissulega séu glæstar bygg-
ingar sómi og nauðsjm hvers sam-
félags en hógvær tjáning sé hins
vegar dyggð listamannsins. Þeir
telja að hugmyndir margra arki-
tekta séu oft ekki í nokkru sam-
ræmi við aðstæður og efni í samfé-
laginu.
Hilmar vekur athygli á að arki-
tektúr sé fyrst og fremst nytjalist.
Finnur tekur í sama streng og
bendir á að þegar allt komi til alls
sé þetta lífsviðurværi þeirra og af
því hljóti þeir að taka mið. í þessu
tilfelli lá fyrir að vægi kostnaðar
væri verulegt. Félagarnir vissu því
að til lítils væri að setja sig í stell-
ingar og leggja drög að marg-
brotnu mannvirki. Þetta telja þeir
þó síður en svo miður því arkitekt-
úr sé list einfaldleikans. „Þetta fer
að verulegu leyti eftir því hvað
verið er að byggja,“ segir Finnur.
„Arkitektar eru alltof gjarnir á að
yfirhanna viðfangsefni sín.“
Starfrænt hús með vandaða og
hvetjandi umgjörð
Yfirlýst markmið höfunda vinn-
ingstillögunnar var að laða fram
starfrænt hús sem hefði til að
bera vandaða og hvetjandi um-
gjörð utan um þá
starfsemi sem því
væri ætlað að
rúma. Áhersla var
lögð á mikil gæði
en jafnframt lág-
marks tilkostnað.
Þeir segjast hafa
nálgast takmarkið
markvisst með
skjalfærðri, samfelldri og kerfis-
bundinni yfirferð á verkefninu.
Með lágmarks tilkostnaði eiga fé-
lagarnir við að allt sé lagt á vogar-
skálarnar, heildarkostnaður við
byggingu hússins, viðhald og
rekstur á líftíma þess. Út frá þess-
um þætti kveða þeir aðgengilegt
að meta arðsemi fjárfestingar af
þessu tagi miðað við þann tíma
sem hennar nýtur.
Finnur og Hilmar segjast hafa
lagt mikla áherslu á að laga bygg-
inguna að nánasta nágrenni.
„Þannig eru aðalbifreiðastæði
skólans á flötu landi að norðan-
verðu svo að þau nýtast vel fyrir
fyrirhugaðan verslunarkjarna og
íþróttahús. Ennfremur veldur
þessi staðsetning bifreiðastæð-
anna litlu ónæði fyrir íbúa blokk-
anna að sunnanverðu," segir Finn-
ur. Félagarnir segjast hafa gegnt
tilmælum um að hrófla ekki við
klöppum sem eru sunnan við svæð-
ið þar sem byggingin mun rísa.
Þá er gert ráð fyrir verönd sunnan
við skólann. „Þetta útivistarsvæði
á eftir að verða nemendum til
mikillar gleði,“ segir Hilmar. Að
vestan er síðan gert ráð fyrir
göngutengslum við verslunar- og
þjónustukjarnann sem höfundar
vonast til að leiði til blómlegs
mannlífs.
„Arkitektóniskt“ heilleg
Finnur og Hilmar fengu sér-
stakt hrós frá dómnefnd fyrir auð-
velda áfangaskiptingu. Þeir segja
að hver áfangi um sig sé heilstæð
starfræn heild. Fyrsti áfangi bygg-
ingarinnar mun verða tveir vinnu-
skálar fyrir verkgreinar. Verða
þeir innréttaðir fyrir kennslu í
málm- og bílgreinum. í öðrum
áfanga verður fyrsti hluti bókn-
ámshúss. í þeim þriðja nær ein-
göngu kennslustofur ásamt lyftu
og aðalstiga byggingarinnar.
Fjórði áfangi mun hýsa stjórnun-
ar- og félagsstarf ásamt bókasafni
og aðalinngangi skólans þegar
hann verður fullgerður. Lokaá-
fanginn verður síðan verkmennta-
hús fyrir byggingargreinar. „Af
útliti húsanna má lesa að í hluta
þess er iðnaður og annars staðar
hefðbundinn skóli,“ segir Finnur.
Hilmar bætir við að af útlitinu
megi jafnframt greina hvar stjórn-
un, félagsstarf og bókasafn sé að
finna í byggingunni. „Hver áfangi
fyrir sig er þannig hannaður að
byggingin er arkitektóniskt heilleg
á hvaða áfangastigi sem er. Form
hússins og áfangaskipting miðar
að því að byggingin sé á hveijum
tíma sem heillegust bæði starf-
rænt og formrænt."
Innra fyrirkomulag er einkar
mikilvægt. Arkitektarnir segjast
hafa sett á oddinn að auðratað
verði um bygginguna. Þeir segja
að inngangur liggi í augum uppi
og þaðan sé leiðin greið inn í allar
vistarverur. „Þegar inn í bygging-
una er komið er gesturinn í rúm-
góðu anddyri sem gefur honum
þá tilfinningu að hann sé staddur
í menningarsetri,“ verður Hilmari
að orði. Anddyrið mun verða opið
upp um þijár hæðir og verða brýr
milli húshlutanna sem það skilur
að. „Þarna verða einskonar vega-
mót þar sem mætast hefðbundið
kennsluhúsnæði og orkustöð skól-
ans, þar sem nemendur og kennar-
ar munu nærast og safna kröftum
til átaka í kennslustofum," segir
Hilmar.
Finnur og Hilmar segjast hafa
hannað bygginguna með umtals-
verð samskipti lærlinga og læri-
meistara í huga. Sérstaklega er
markmið þeirra að
auðvelda samskipti
þessara tveggja
hópa í styttri hlé-
um. Jafnframt
segja þeir hönnun
byggingarinnar
síður en svo letja
kennara og nem-
endur í bóknáms-
greinum til að blanda geði við fé-
laga sína í verknámsgreinum.
Alútboð kjörið
Arkitektamir eru þeirrar
skoðunar að í verki sem þessu
beri að hafa það að leiðarljósi að
íslenskt vinnuafl og hráefni sé
notað þar sem því verði við komið.
I tillögu sinni gerðu þeir ráð fyrir
að sameiginleg rými í verknáms-
húsinu yrðu staðsteypt á hefð-
bundinn hátt. Á hinn bóginn telja
þeir kjörið að nýta hagkvæmni
alútboðs varðandi skálana sem séu
staðlaðar skálabyggingar. Þeir
geti verið úr stáli, límtré eða stein-
steypu. Endanlega ákvörðun vilja
þeir ekki taka fyrr en að undan-
gengnu alútboði. Þannig mun
markaðurinn væntanlega ákveða
úr hvaða efni skálarnir verða. Til-
laga Finns og Hilmars gerir ráð
fyrir að bóknámshúsið verði með
útveggjum steyptum á staðnum
en gólf verði forsteyptar holplötur
sem spanni á milli útveggja.
Finnur og Hilmar eru engir
nýgræðingar hvað varðar frækna
framgöngu í samkeppnum af
þessu tagi. Þeir hafa borið sigur
úr býtum í fjölda opinna og lok-
aðra samkeppna milli arkitekta og
hlotið ótal viðurkenningar. Stofa
þeirra hefur unnið að skipulags-
og byggingarmálum um fimmtán
ára skeið. Nú eru að rísa kirkja í
Grafarvogi, leikskólar fyrir
Reykjavíkurborg og hegningarhús
að Litla-Hrauni sem öll eru árang-
ur af þátttöku stofunnar í sam-
keppnum. Meðal bygginga sem
félagarnir hafa hannað og gengið
hefur verið frá á síðustu fimm
árum má nefna allar byggingar
Sunnuhlíðarsamtakanna í Kópa-
vogi, sjö Ieikskóla fyrir Reykjavík-
urborg, íbúðir aldraðra við Sól-
vang í Hafnarfirði, fjarskiptastöð
fyrir Póst og síma, nýbyggingar
að Reykjalundi og nú síðast brú
yfír Hafnarstræti fyrir Búnaðar-
banka íslands.
Menntaþorsta æsk-
unnar verður sval-
að hér eftir sem
hingað til
SAUMASTOFA — HEILDVERSLUN
milliliðalaus viðskipti
Nýbýlavegi 4
(Dalbrekkumegin),
Kópavogi,
sími 45800
Gallabuxur frá kr. 2.590
Köflóttar skyrtur frá kr. 990
Fleese peysur kr. 3.990
Regnjakkar kr. 2.190
Regnbuxur frá kr. 1.390
Isotex úlpurnar og buxurnar
komnar aftur.
Svefnpokar - bakpokar - tjalddýnur.
3ja manna tjöld og margt fleira.
* /
NYBYLAVEGUR
Jöfur
Toyota
, DALBREKKA 1
AUÐBREKKA
Fylgist meb á þribjudögum
í sumar!
Heimili/fasteignir kemur út á þriðjudögum í sumar.
Fasteignablabið er helsti vettvangur fasteignaviðskipta hvort sem um er að raeða húsnæði til eigin nota
eða til atvinnurekstrar. Þeir sem hugsa sér til hreyfings eða vilja bara fylgjast með fasteignamarkabinum
og kynnast nýjungum á sviði skipulags, viðhalds og nýsmíði fasteigna láta þetta blaö ekki fram hjá sér
fara. í blaðinu er einnig að finna innlendar og erlendar fréttir sem tengjast fasteignum auk þess sem
fjallað er um heimilið og ótal möguleika
til aö prýða þab og lagfæra.